Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1984, Page 6
6
DV. LAUGARDAGUR 27. OKTOBER1984.
VÖFFLUR MEÐ RIÓMA
ÁSKAGASTRÖND
Einstök veöurblíöa hefur veriö 6
Skagaströnd þaö sem af er hausti og er
veöriö betra nú en i manna minnum aö
haustlagi. Atvinnuöstandiö er mjög
gott. 3 bótar eru á skelveiðum og 5 á
rækjuveiöum. Þá er unniö kapp-
samlega við byggingaframkvæmdir.
M.a. er verið aö byggja nýjan skíöa-
skála og er mjög gott skíðaland i ná-
grenni Skagastrandar. Þá er í smíðum
kirkja, verslunarhús og hús fyrir
aldraöa.
Heimamenn i verkfalli vinna dag og
nótt á öörum vígstöðvum, eins og
jafnan tíökast i verkfalli, og skóla-
krakkar eru margir hverjir i vinnu.
Nóg er af sígarettum á Skagaströnd.
Á hverjum sunnudegi skella
heimamenn sér i félagsvist í Kántribæ
þar sem bomar eru fram vöfflur meö
rjóma og kaffi og undir leikin létt
kántritónlist aö frumkvsöi Hallbjöms
Hjartarsonar sem hefur tileinkaö sér
kántrílífsmynstur.
Feröamannastraumur hefur líka
aukist gífurlega á Skagaströnd aö und-
anfórnu og á þar Hallbjöm kántrí, eins
og hann er oft nefndur, allar þakkir
skildar. Stór hluti Islendinga, sem
aldrei haföi heyrt Skagastrandar
getið, getur nú nánast bent blindandi á
þennan rómaöa kaupstað fyrir noröan,
ólandakortinu. -EH/BÁ/Skagaströnd.
Dagsprent á Akureyri:
Þarf mikla fyrirgreiðslu
til að fara aftur af stað
,,Eg er óhress með þá,” sagöi
Jóhann Sigurösson, framkvæmda-
stjóri Dags á Akureyri, um nýgerða
samninga viö prentara. „Þeir gefa
ekki meira en samningarnir sem
starfsmenn á Degi heföu getað gert en
bókageröarmenn felldu. Þaö sem var
komiö hér hefði ekki gefið bókagerðar-
mönnum lakari laun. ”
„Það er ekki búiö að sjá áhrif þess-
ara samninga. Blaöiö lifir þá af en þaö
er ljóst aö mikla fyrirgreiöslu þarf til
aö f ara aftur af stað. ”
Jóhann sagöi aö sér litist vel á þá
hugmynd aö starfsmannafélög semdu
sérstaklega. Núverandi kerfi væri úr-
elt og gæfi launþegum ekki hagstæðari
samninga. -EH/JBH/Akureyri.
NÝ SPARIBÓK
MEÐ SÉRVÖXTUM
VÆNTANLEG UM MÁNAÐAMÓTIN.
1LAUS BÓK MEÐ HÆKKANDIÁVÖXTUN.
ÍV BÚNADARBANKIÍSLANDS
í
LOKASPRETTURINN
íþiónustuferó Volvo
Nú er þjónustuferð Volvo komin á Suðurlandið. Á þessari ómissandi farandsýningu Volvogeturaðlítatorfæruvörubifreiðir
6x4 Terberg og auk þess nýjasta glæsivagninn Volvo 740 GL og Volvo Paloma 340 DL.
Allir bílarnir eru af árgerð 1985.
Dagskráin á lokaspretti þjónustuferðar Volvo:
Föstudagur 26. október: Selfoss (kl. 11-15), Hella (kl. 16-17),
Hvolsvöllur (kl. 17.30-19.30)
Laugardagur 27. október: Grindavík (kl. 11-13),
Sandgerði/Garður (kl. 14-16), Keflavík (kl. 17-19)
Mánudagur 29. október: Akranes (kl. 11-15),
Borgarnes (kl. 16-20)
Þriðjudagur 30. október: Stykkish (kl. 10-13)
Grundarfjörður (kl. 14—16), Ólafsvík (kl. 17-19)
Reynsluakstur í boói
SUÐURLANDSBRAUT 16 - SÍMI 35200