Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1984, Blaðsíða 11
DV. LAUGARDAGUR 27. OKTOBER1984.
11
„Ég verö aldrei
jafnoki móður
minnar”
— segir Stephanie af Mónakó
Ef til vill væri þaö ómögulegt hvort
sem er. Grace prinsessa af Mónakó,
sem lést fyrir tveimur árum í hörmu-
legu bílslysi, var falleg, tignarleg og
trú fjölskyldu sinni og landi. En dóttir
hennar, Stephanie, blómstrar sannar-
lega þó deila megi um hvort hún nái
móður sinni. Nú hefur hún lokiö skóla-
námi í bili a.m.k. — og eftir tvö ár mun
hún takast á hendur konunglegar
skyldur. Hvemig líst henni á þaö?
„Þaö verður erfiö vinna en ef þaö
hjálpar landinu og föður mínum, geri
ég þaö með glööu geði,” segir
Stephanie.
Teiknaði föt þegar
hún var lítil
„Mamma sagöi alltaf aö einn góöan
veöurdag kæmi ég eitthvað nálægt
tískunni. Og núna hefur þaö komiö á
dagínn því að ég er hjá Dior-tísku-
húsinu í París og er aö læra um allt
sem tengist henni... Meira aö segja
þegar ég var lítil, fannst mér mjög
gaman aö teikna föt á dúkkurnar
mínar. önnur börn teiknuöu hús og dýr
— ég teiknaöi fólk og föt á þaö.
Síðasta skólaáriö mitt í París heim-
sótti ég Dior með mömmu. Eg var meö •
skólabækurnar í höndunum og herra
Bohan, forstjórinn, tók eftir því aö ég
var með teikningar. Hann spurði mig
samstundis hvort ég vildi þjálfa mig í
teiknun undir stjóm hans. Og ég sagði
auðvitað já, á stundinni. Eg hafði
ákveðið aö fara fyrst á tískunámskeið
W&k i
'X
en þá bar slysiö aö höndum og því varö
úr aö ég fór beint til hans.
Enginn skipar mér
hvernig ég klæðist
Eg teikna ennþá — þaö er mitt starf.
I fyrstu hjálpaði ég hinum teiknurun-
um. Þeir teiknuöu útlínur fyrir mig og
ég læröi hvernig föt ættu aö vera svo
rétt hlutföll væru.
Nú vinn ég meira á eigin vegum og
teikna hversdagsföt af þeirri tegund
sem ég klæðist gjarnan sjálf. Eg veit
aö ég hef orö á mér fyrir að ganga bara
í gallabuxum en varla gat ég látið sjá
mig þannig hjá Dior.
Raunar geöjast mér best aö kven-
legum fötum.
Eg hef alltaf veriö mjög ákveðin í því
hvemig ég klæðist og þaö hefur aldrei
neinn sagt mér fyrir verkum í þeim
efnum.
Mamma reyndi aldrei aö neyöa mig
til aö ganga í fötum sem mér líkuðu
ekki.
1 vinnunni á ég allt eftir. Eg á eftir aö
læra geysilega margt og þaö er ósköp
erfitt aö segja um hvort ég verö
nokkurn timann jafngóö og til dæmis
Bohan forstjóri. En ég er ekki þannig
gerö aö ég hugsi um hvaö framtíðin
ber í skauti sér.
Á eyðieyju með hunda
Samt sem áður á ég mína dag-
drauma. Einn af dagdraumunum er að
dveljast á eyðieyju meö allt og alla
sem mér eru kærir.
Eg tæki pabba með og alla í fjöl-
skyldunni og auðvitað hundana, Fred
og Gribouille. Hundarnir fara meö mér
hvert sem ég fer og þess vegna ferðast
ég aUtaf í lest í staö þess að fljúga.
Fjölskyldan er mér afskaplega
mikilvæg. Þaö eru sjö ár á milli okkar
Alberts, átta ár á milli min og Karó-
línu. Viö erum mjög nánar og Albert
býr í París þannig að viö hittumst oft.
Ég tala við pabba í síma á hverjum
degi. Hann verður aUtaf að vera í
Mónakó þannig aö viö reynum að vera
þar eins mikiö og hægt er.
Ljósmyndarar eru harðir
naglar og ósvífnir
Mér finnst mikilvægt að vera eins
mikið og ég get meö þeim sem ég elska
og fjarri forvitnum augum. Ljósmynd-
arar hafa njósnaö um mig síðan ég
fæddist. Eg hef þurft aö vega og meta
hverja hreyfingu. Hér í París, þar sem
ég bý núna, er það ekki svo slæmt
vegna þess að ég Ufi svo venjulegu lífi
og fer svo lítið út aö þeir hafa engar
æsimyndir af mér... en ef ég fríkaði út
eöa dytti á höfuðið úti á götu þá yröu
þeir himinlifandi.
Þegar ég verð tuttugum og eins árs
mun ég taka viö skyldum mínum í
Mónakó. Eg mun gera mitt besta en ég
veit ekki hvort ég verö nokkurn tímann
jafnoki móöur minnar. Eg veit ekki
hvort ég get gert þetta eins vel og
hún.”
Mjög kvenlegur fatnaður
fellur henni best í geð.
STOPP
Nú rýmum við íagerínn
og
bjóðum með miklum
afslætti:
• 3 eldhúsinnréttingar
• Baðskápa
• Hilluskápa
• Baðspegla
• Stakar hurðir á skápa
• Eldhúsvaska
og ýmis/egt fieira.
Nú er um að gera að nota tækifærið og
gera góð kaup.
OPIÐ LAUGARDAG KL. 10-16.
Kalmar
SKEIFAN 8 - 108 REYKJAVlK - SlMI 82011
Ertu búinn að tryggja
þér eintak?
Á N/ESTA
blaðsölustað!
Tryggðu þér eintök í tíma!
ÁSKRIFTARSÍMINN ER
28028.
snjosÍQdcir
IIMNKAUPA
STJÓRAR
Ath. Einnig nýtt á markaðnum
snjóþotur fyrir 6 mánaða til 2
ára með öryggisbeltum.
Sviss er miðpunktur vetraríþróttanna. Það er þvi engin
tilviljun að þaðan koma hinar margreyndu EK0-B0B snjóþotur
einhverjar bestu snjóþotur sem völ er á. Fáanlegar í 4 gerðum
og tveimur litum, 82-95 cm langar.
INNKAUPASTJÓRAR, KOMIÐ
EÐA HAFIÐ SAMBAND
INGVAR HELGASON HF.
VONARLANDI V/SOGAVEG, SÍMI 37710.