Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1984, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1984, Blaðsíða 31
DV. LAUGARDAGUR 27. OKTOBER1984. 31 Jobn Savage lstur vel að Nastassiu Kinski í kvikmynd Kontchalovski „Elskhugum Maríu”. Or „Þeim sem tunglið hefur velþóknun é”. er um aö ræða vonlaust ástarsamband því hermaðurinn hefur orðið fyrir svo miklu áfalli að hann er liðónýtur til ástaleikja. Hann elskar of heitt til að geta elskaö. „Eg dái þessa slavnesku hliö, melódramatiska og innblásna af Platonov. Eg og handritshöfundurinn Gérard Brach höfum búið einfaldar persónur ofbeldisfullum tilfinning- um,” segir Kontchalovski. Var óþekktur Og myndin er full af sterkum drátt- um: Stóll einn og yfirgefinn úti á sléttu nemur tímann sem líður, ófrýnilegur hvutti í fylgd rustalegs tónlistarmanns veður um....Er ég kem til Parísar mætti ég hjá Gaumont kvikmynda- fyrirtækinu. Þeim lfkaði ekki við mig. Eg fór til Hollywood, það var bara lógiskt,” segirKontchalovski. Kontchalovski kynntist leikreglun- um í Los Angeles. Hann er leikstjóri Siberiade sem fékk verðlaun á Cannes, „So what?” spyrja Kanar. Hann gerði meistaraverkið, Fyrsti meistarinn, árið 1965. „Það er bara gömul saga,” segja þeir þá. Hann geröi Hamingja Assíusemvarbönnuð....jæja...” „Ég var algerlega óþekktur. Bandarískir framleiðendur fara ekki í bíó, þeir hafa ekki tima... Og ég vildi ekki fara tómhentur til baka til Sovét- ríkjanna. Ég vildi ekki sleppa þessu.” Þaö var árið 1983 aö hann setti upp leikritið Máfinn eftir Chekov með Nastassiu Kinski. Hún stakk upp á þvi aðgerakvikmynd. í bekk með Ashkenazy Langafi og afi Kontchalovski voru málarar, en faðir hans leikritaskáld sem samdi þjóðsöng Sovétríkjanna. Hann varð næstum þvi píanóleikari. „Eg var í bekk meö Vladimir Ash- kenazy. Hann var snillingur. Mér bauð við því. „Arið 1961 var Kontchalovski 24 ára og þá sá hann „Þegar storkarnir fara hjá”. „Eg gat gert þetta og gert þaö betur.” Hann skrifaöi 20 handrit, þar á meðal handritiö að Andrei Roublev, og færði sig svo aftur fyrir myndavélina. ,3g trúi á guð,” segir hann. Otar Iosseliani er guöleysingi, sköll- óttur og beiskur. Hann á aðeins eitt sameiginlegt með Kontchalovski fyrir utan þjóðemiö: hann notar sama hand- ritshöfund, Gérard Brach. Sá ágæti maður starfar á alþjóðlegum vett- vangi (hann hefur starfað meö Pol- anski, Jean-Jacques Annaud (Leitin að eldinum), Antonioni, Ferreri) en fer aldrei út úr herberginu sinu. „Eg nenni ekki lengur aö standa í illindum,” segir Iosseliani. ,,Eg hef gert þrjár myndir i Sovétríkjunum og allar hafa lent i erfiðleikum að komast út. Það skyldi ekki nokkur maður neitt isögunumminum.” I „Þeim sem tungliö hefur velþóknun á” er Iosseliani trúr sjálfum sér: hann fléttar saman 40 persónum, tuttugu þemum, kastar fram tíu skritlum, fléttar saman hundrað replikum og þúsundtilviljunum. „Það sem vekur áhuga minn er hvemig örlög sumra snerta líf annarra sem þekkja þá ekki neitt.” Úr einu í annað Þar af leiðandi má finna í „Tungl- inu” þjófa sem brjótast inn hjá banka- stjórum en þeir síðarnefndu sofa hjá konum löggumanna, en þeir kokkála vopnasala sem hitta hryðjuverka- menn sem græöa á tá og fingri... Og er þetta öll sagan? Nei, alls ekki, en þaö er bara ekki hægt að gera út- drátt eða muna eftir, svo flókin er sag- an. En þeir sem séð hafa Laufblöð falla (1966), Einu sinni var söngþröstur (1970) og Pasorale (1976) undrast ekki. I heimi Iosseliani er ekkert ábyggilegt. Og sá mynd eftir John Ford Hann er sonur ofursta sem síðar varö verkfræðingur en hann naut föður síns einungis skamman tíma. Arið 1936 var hann fluttur i fangabúðir., jEg var tveggja ára gamall.” Þaðan var föður hans sleppt árið 1956 og endurreistur. Iosseliani ólst upp hjá móður sinni og frænkuí Thilissi og heyrði utan að sér að styrjöíd rikti. 650 þúsundir Georgíu- manna féllu í síðara stríði, en þeir eru einungis 2 milljónir. Hann lærði tónlist eins og allir. Einn góðan veðurdag sá hann mynd eftir John Ford. Þar með var það ákveðið, hann ætlaöi að veröa kvikmyndaleikstjóri og Georgíumað- ur. Það er ekki auðvelt. Hann fékk að heyra sömu spurning- una um hverja mynd: „Hvað er nú þetta?” Skrifæðið var pirrað en hann þrjóskaðist áfram. Myndir hans þurftu tveggja ára vist í hreinsunareldi áður en þær voru settar á markað. Og þá einungis gerðar 10 kóþíur en vanaleg mynd er 500 kópiur sem dreift er í Sovétrikjunum. „En ég stefni samt að því að snúa aftur til Tbilissi og taka upp óvenjulegar sögur.” Iosseliani fékk lof fyrir myndlna „Þeir sem tunglið hefur velþóknun á” á kvik- myndahátiðinni í Feneyjum. „Jákvœöir þœttir" I Prövdu hinn 27. júlí siöastliöinn voru birtar ráðleggingar Nikolai Sinov, stjómanda Mosfilm upptöku- veranna. Hann sagði að sovéskar myndir ættu aö fela í sér „jákvæða þætti”. „Ungur forstjóri verksmiöju fær hugljómun af tteknibyltingunni, visindamaður meö auöugt imyndunar- afl, samyrkjubóndi sem meðvitaður er um vandamál líðandi stundar, sovésk- ur diplómat sem tekst að berja i gegn stefnu Sovétríkjanna í samningavið- ræðum um afvopnunarmál.” Auk þessa er við hæfi að mynd- skreyta „hin góðu tengsl Sovétríkj- anna og Indlands, og hina gömlu vin- áttu pólsku og sovésku þjóöanna”. Tíðindalaust á austurvígstöövunum. ás-byggt á L’Express. waazaa BÍLABORG HF. Smiöshöföa 23, sími 812 99 NOTAÐIR... Við höfum nú til sölu sérlega gott úrval af notuðum MAZDA bílum í sýningarsal okkar, sem eru allir vandlega yfirfamir á verkstæði okkar og seljast með 6 mánaða ábyrgð frá söludegi. OPIÐ LAUGARDAG FRÁ KL. 10-4 MAZDA eigendur athugið: Okkur bráðvantar allar árgerðir af vel með förnum MAZDA 323 á söluskrá. pkh! Hafið þið áttað ykkur á því að í mörgum tilfellum er hagkvæmara að kaupa góðan notaðan MAZDA bíl hjá okkur heldur en nýjan bíl af ódýrari gerðum? í sérf lokki Plymouth Volaré Coupé '80 6 cyl., sjálfsk. í gólfi, vökva- stýri, útvarp, ekinn aðeins 55.000 km, sumar- og vetrar- dekk, skipti á ódýrari. Chrysler Le Baron Medallion '81 6 cyl., sjálfsk., vökva- og veltistýri, rafdrifnar rúður og skottlok, litað gler, útvarp, sumar- og vetrardekk, læst drif o.fl. aukahlutir. Stórglæsi- legur lúxusbíll. Skipti á ódýr- ari. Plymouth Volaré Road Runner 76 V8 318 cub., ekinn 60.000 míl- ur. Huggulegur bíll með fjölda aukahluta. Gott ástand, skipti á ódýrari. Plymouth Valiant 75 Ekinn 80.000 km, 6 cyl., sjálfsk. Gamall og harður jaxl sem bregst þér varla í vetur. Mazda 323 '77 Bíll í góðu standi sem fæst með aðeins 25.000 kr. útborg- un. CHRYSLER sk®da Opið í dag kl. 1 —5 JOFUR HF Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Simi 42600

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.