Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1984, Blaðsíða 32
32
DV. LAUGARDAGUR 27. OKTOBER1984.
Tilkynningar
Húnvetningar
Vetrarfagnöur félagsins veröur haldinn
laugardaginn 27. október aö Hverfisgötu 105,
(risinu). Fagnaöurinn hefst meö félagsvist kl.
21. Dansaötil kl.02.
Fréttatilkynning frá
Utanríkisráðuneytinu
Hinn 21. október afhenti Hannes Hafstein for-
seta Egyptalands, Hosni Mubarak, trúnaðar-
bréf sitt sem sendiherra Islands í Egypta-
landi með aðsetri í Genf.
Bella
_ ^ „v‘n-
, Jú.éggetalveg vélritaö
I bréf fyrir þig, þó ég hafi
veriö aö lakka neglurnar
i vinnutimanum — þaö
voru nefnilega táneglurn-
ar.
Tillaga frá stjórn Sambands
foreldra- og kennarafélaga
A fundi sínum í gær, 16. október, samþykkti
stjóm Sambands foreldra- og kennarafélaga
meö atkvæöum allra stjórnarmanna eftirfar-
anditillögu:
„Stjórninni þykir miöur aö til þess hafi
komiö aö kjaradeilur hafa nú valdiö lokun
grunnskólanna. Bömin missa þar meö af
fræöslu sem stjórnvöldum er skylt að'sjá
þeim fyrir samkvæmt lögum.
Stjómin getur ekki oröa bundist eftir þá
hatrömmu og órökstuddu árás sem kennara-
stéttin varö fyrir á Alþingi 11. þ.m. þótt aö
vísu hafi verið beðist af sökunar á oröbragöi.
Einsýnt þykir aö þegar um svo djúpstæöan
ágreining er aö ræöa milli aöila sé lítil sem
engin von til viöunandi lausnar á kjaramálum
kennara nema aö fram fari faglegt mat á
störfum og starfsaöstööu grunnskólakennara
og aö þeir fái laun í samræmi viö nýtt starfs-
mat.
Stjórnin leggur sérstaka áherslu á mikil-
vægi starfsemi grunnskólans og telur aö fariö
hafi veriö óvarlegum höndum um þetta fjör-
egg þjóöarinnar. Brýnt er aö grunnskóhnn
geti hafiö störf sem fyrst og aö sem
minnstum truflunum sé valdiö á starfsemi
hans.
Stjórn Sambands foreldra- og kennarafé-
laga í grunnskólum Reykjavíkur gerir þá
kröfu aö unniö vecði aö lausn yfirstandandi
vinnudeilu af fullri ábyrgöartilfinningu og
kurteisi en á því hefur oröiö verulegur mis-
brestur á síöustu dögum aö mati stjórnar-
innar.”
ísland kjörið í
Efnahags- og félagsmálaráð
Sameinuðu þjóðanna
Hinn 22. október var Island kjörið í Elnáhags-
og félagsmálaráð Sameinuðu þjóðanna
(ECOSOC) næstu þrjú árin frá 1. janúar nk.
að telja. Kosningin fór fram á allsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna sem nú stendur yfir í
New York. I ráðinu eiga sæti alls 54 ríki og
voru átján kosin að þessu sinni, þ.e. fjögur
önnur Vesturlönd: Frakkland, Spánn, Tyrk-
land og Vestur-Þýskaland; fimm Afríkuríki:
Ginea, Marokkó, Nígería, Senegal og
Zimbabwe; þrjú Asíuríki: Bangladesh, Ind-
land og Japan; Rúmenía úr hópi Austur-
Evrópuríkja; og loks Brasilía, Haiti,
Colombia og Venezúelá frá Rómönsku
Ameríku.
Efnahags-. og félagsmálaráð Sameinuðu
þjóðanna er ein af aðalstofnunum sam-
takanna og fiallar m.a. um mál á sviði auð-
linda, iðnvæðingar, viðskipta og þróunar,
mannréttinda, tækni og vísinda og félags-
legrar þjónustu.
Island hefur ekki áður verið í framboði til
ráðsins.
Utanrikisráðuneytið,
Reykjavík, 24. október 1984.
Verkakvennafélagið
Framsókn
minnir á hinn árlega basar sinn á Hallveigar-
stöðum 17. nóvember nk. Byrjað er að safna
basarmunum og væntir stjórn félagsins að
félagsmenn og velunnarar komi munum á
basarinn í skrifstofu félagsins, Hverfisgötu
8—10 (Alþýðuhúsið),á venjulegumskrifstofu-
tíma.
Kvenfélag Kópavogs
heldur spilakvöld þriðjudaginn 30. október kl.
20.30 í f élagsheimili Kópavogs.
Nefndin.
Valskonur
Fyrsti fundur vetrarins veröur haldinn aö
Hótel Loftleiöum (kjallara) þriðjudaginn 6.
nóvember kl. 20.30. Aríðandi aö sem flestir
mæti.
Uppskeruhátíð
knattspyrnudeildar
Vals
Sunnudaginn 28. október nk. verður haldið
lokahóf knattspymudeildar Vals í veitinga-
húsinu Y Kópavogi og hefst það kl. 15. Veittar
verða viðurkenningar fyrir góðan árangur til
allra flokka deildarinnar. Nokkur stutt ávörp
verða flutt og ýmislegt verður til
skemmtunar. AUir Valsmenn eru boðnir vel-
komnir í hófið en sérstaklega era leikmenn
yngri flokka félagsins og foreldrar þeirra
boðnir velkomnir. Vegna lokahófsins falla
æfingar 6. og 7. flokks niður sunnudaginn 28.
október. Stjórn knattspymudeildar Vals.
Hesturinn okkar
þriðja tölublað ársins 1984, er komið út.
Meðal efnis í blaðinu má nefna greinar um
kynbótahross sem sýnd voru á f jórðungsmót-
unum í sumar á Austurlandi og Vesturlandi.
Einnig er fjallað um gæðingakeppni og
ungUngakeppni á fyrrnefndum stöðum. Berg-
Und Hilmarsdóttir skrifar um beitarrann-
sóknir hrossa og fjaUað er um rafmagnsgirð-
ingar. Halldór Pjetursson skrifar um sam-
skipti manns og hests.
Mikið af myndum prýðir blaðið meðal
annars eru Utmyndir á miðopnu frá
f jórðungsmótinu og tvær svarthvítar mynda-
opnurfrá Islandsmótinuá Vindheimamelum.
Jólaföndurnámskeið
Jólaföndurnámskeið aö hefjast hjá
Heimilisiönaöarskólanum.
Tuskubrúöugerö 30. október.
Prjónatækni 1. nóvember.
Dúkaprjón 5. nóvember.
Myndvefnaöur 13. nóvember.
Barnafatasaumur 14. nóvember.
Vefnaöur 14. nóvember.
Innritun að Laufásvegi 2.
IMámskeið hjá Sjálfsbjörg
Dagana 9. og 10. nóvember nk. verður haldið
námskeið í Ölfusborgum um fatlaða og kynlíf.
Námskeiðið er ætlað fötluðum, starfsfólki
stofnana er fatlaðir dveljast á og öðrum þeim
er áhuga hafa á efninu. Þátttökugjald er kr.
500 og er fullt fæði og gisting innifalið í þeirri
upphæð. Þátttaka tilkynnist í síma 29133 og
þar eru nánari upplýsingar veittar.
Aldrei meira úrval af brauði — 15 nýjar tegundir
30% ódýrari en annarsstaðar
Bakaríið KRINGLAN
Starmýri 2
Opnunartími: 8-6 virka daga
kl. 8-4 laugardaga
kl 9 - 4 sunnudaga
Skólavörðustíg 2
kl. 8 - 6 virka daga
kl. 9 - 4 um helgar
Tilkynning frá
Kattavinafélaginu
Flóamarkaðurinn í Hafnarstræti er óviðkom-
andi Kattavinafélaginu. Af marggefnu tilefni
skal það tekið fram að Kattavinafélagið er
ekki aðili að Sambandi dýravemdunarfélags
Islands og að flóamarkaður sá sem starfrækt-
ur er í Hafnarstræti er félaginu gjörsamlega
óviðkomandi og hefur það aldrei þegið þaðan
eyris virði. Kattavinafélagið tekur sjálft á
móti bæði fatnaði og öðru sem fólk vill gefa
því og rennur allur ágóði til húsbyggingar
félagsins sem þegar er hafin.
Hjálpræðisherinn
A sunnudag kl. 14 verður sunnudagsskóli, kl.
17.30 hermannasamkoma, kl. 20.30 kveðja
fyrir lautinant Mirjan Oskarsdóttur sem er á
förum til Panama. Fórn verður tekin til
starfsins í Panama. Kafteinn Daníel Oskars-
son stjómar. Allir velkomnir.
Kvenfélag Hallgrímskirkju
Fundurinn sem átti að vera 1. nóvember nk.
fellur niður vegna kirkjuþings. Næsti fundur
félagsins, sem er jólafundurinn, verður 6.
desember. Basarinn verður 17. nóvember.
Golfskóli Þorvaldar
Golfskóli Þorvaldar tekur aftur til starfa nú í
byrjun nóvember. Kennsla er bæöi fyrir byrj-
endur og lengra komna í íþróttinni og öllum
opin. Kennslan fer fram innanhúss og veröur í
íþróttahúsinu Asgaröi í Garöabæ. Allar
nánari upplýsingar eru gefnar í síma 34390.
Bridge
Bridge-fróttir frá TBK
Fjórum umferðum af fimm er lokið í
aðaltvímenningskeppni félagsins og er
staðan þannig fyrir síðustu umferð
sem spiluð verður nk. fimmtudag 1.
nóv. í Domus Medica og sem hefst kl.
19.30.
1. Gunulaugur Öskarss.-Sigurður Stein-
grimss. 485
2. Tryggvi Gíslas.-Bernharður Guðmunds482
3. Sigtryggur Siguröss.-Gísli Steingrímss. 475
4. Rafn Krlstjánss.-Þorstelnn Kiistjánss. 473
5. Björa Jónss.-Þórður Jónss. 469
6. Magnús Torfason-Guðni Kolbeins 460
7. Karl Nikulásson-Bragi Jónsson 459
Athugiö að síðasta umferð verður
spiluð nk. fimmtudag 1. nóv. eins og að
ofangreinir.
Stjórnin.
Bridgefólag Breiðholts
Þriðjudaginn 16. október var spilað-
ur eins kvölds tvímenningur í einum 12
para riðli.
Röð efstu para var þessi:
1. Guðjón Jónss.-Hermann Láruss. 205
2. HermannSiguröss.-JóhannBjarnas. 187
3. Anton Gunnarss.-Friöjón Þórhallss. 186
Meöalskor 165
Spilaður verður eins kvölds tví-
menningur 1. þriðjudag eftir að verk-
fall leysist. Síðan verður spilaður
barómeter. Spilað er í Gerðubergi kl.
19.30 stundvíslega.
Bridgefélag
Hafnarfjarðar
Nú er nýlokið 3 kvölda aðal-
tvímenningi en sigurvegarar í honum
teljast tvímenningsmeistarar Hafnar-
fjarðar 1984. Keppnin var jöfn og hörð
og úrslit voru ekki ráðin fyrr en á
síðustu spilunum. Lokastaöan varð
annars þessi:
1. Friðþjófur Einarsson —
Kristófer Magnússon 739
2. Árni Þorvaldsson —
Sævar Magnússon 732
3. Ingvar Ingvarsson —
Kristján Hauksson 722
4. Ásgeir Ásbjörnsson —
Guðbrandur Sigurbergsson 700
5. BöövarMagnússon —
Ragnar Magnússon 698
Næsta keppni félagsins er 3 kvölda
butler, þ.e. tvímenningur meö sveita-
keppnisútreikningi. Sú keppni hefst
næstkomandi mánudag 29. okt. Verði
verkfalli BSRB ekki lokið fyrir þann
tíma er spilaö í fundarsal Vélsmiðju
Péturs Auöunssonar viö Oseyrarbraut,
en annars í íþróttahúsinu við Strand-
götu. Spilamennska hefst kl. 7.30.
Frá Reykjanesnefnd
Reykjanesmótið í tvímenningi veröur
spilað helgina 10.-11. nóv. Fyrir-
komulagið veröur barómeter með
tölvugefnum spilum, 3—5 spil milli
para. Spilað verður í íþróttahúsinu við
Strandgötu og hefst spilamennskan kl.
1 á laugardeginum. Þátttöku má
tilkynna til eftirfarandi:
52941 (EinarSigurðsson)
40245 (SigurðurSigurjónsson)
93-3345 (Gísli Isleifsson)