Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1984, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1984, Page 36
FRÉTTASKOTIÐ (68) - (78) • (58) SIMINN SEM ALDREI SEFUR Sími ritstjórnar: 68 66 31. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022. Hafir þú ábendingu ■ eða vitneskju um frétt — hringdu þá i síma 68-78-58. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greið- ast 1.000 krónur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið i hverri viku. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1984. Verkef num fækkar en stofnunin stækkar Hagvangs- skýrsla gagnrýnir Orku- stofnun: I skýrslu Hagvangs hf. um Orku- stofnun, sem gerö er fyrir iönaöar- ráðuneytiö, er meðal annars skýrt frá því aö sú stofnun hafi fariö stækkandi síöustu ár þrátt fyrir minnkandi verk- efni. Er sagt í skýrslunni að það „virö- ist einkennandi vandamál fyrir A- hluta stofnanir ríkisins sem sjá ekki ástæðu til aö leggja niöur störf, sem ekki er þörf á, því slíkt muni aðeins veröa notaö gegn þeim viö úthlutun f jármagns úr ríkissjóði.” Tæpt er á margvíslegri gagnrýni í þessari skýrslu, bæði á Orkustofnun sem sh'ka og stjórnendur hennar. En yfirleitt er notað mjög varfæriö orða- lag og það er mat viðmælanda DV, sem nákunnugur er málavöxtum, aö þessi Hagvangs-skýrsla sé merkilegri fyrir þaö sem hún segir ekki en fyrir þaö sem í henni stendur. I skýrslunni segir að Orkustofnun hafi töluvert verið gagnrýnd fyrir að „stjórnun stofnunarinnar væri ekki nógu markviss”, stjómendur hafi „einna helst verið gagnrýndir fyrir að hafa meiri áhuga á einstökum fagverk- efnum en allri starfsemirmi”, „stofn- unin hafi stækkaö töluvert sl. ár, en starfsemin ekki dregist saman i sam- ræmi viö minnkandi verkefni” og að „stofnunin hafi veriö gagnrýnd fyrir aö vera ekki nógu hagsýn í vali á rann- sóknarverkefnum, þar sem val verk- efna byggist frekar á því að útvega öllum starfsmönnum verkefni í staö þess aö aðlaga starfsemina samdrætti í verkefnum”, eins og þar stendur. Nú vinna 149 manns í 116 heimil- uðum stöðugildum hjá Orkustofnun, þar af 28 í lausum stööum. HERB Verkfallsfjölskyldan á fæðingardeildinni i gærkvöldi: Pétur Emiisson, Sigrún Edda Sigurðardóttir, Edda Mary og sú nýfædda sem á ekkiað heita Albertina. Þriðja dóttirin, Ósk, var fjarstödd. D V-mynd Bjarnleifur. Fimm manna f jölskylda í verkfalli: Þetta er vonlaust LOKI Það var mikið í húfi fyrir Áiafoss. — „það er ekki hægt að lifa af þessum launumT „Þessir menn sem eru meö allt sitt á hreinu, meira og minna skuldlaust, Albert, Þorsteinn, Steingrímur eöa hvað þeir nú heita, skilja okkur ein- faldlega ekki. Það er ekki hægt aö lifa á þessum launum, svo einfalt er það,” segir Pétur Emilsson, 37 ára gamall skólastjóri í Vesturhópsskóla í Húnavatnssýslu. Hann og eiginkona hans, Sigrún Edda Sigurðardóttir, sem starfar sem matráöskona i skóla eiginmannsins, hafa bæði veriö í verkfalli í hartnær mánuð. Þau eiga þrjú börn, þaö síðasta fæddist ein- mitt nú í verkfallinu. svoeinfalt erþað” ,jEg hef ekki hugmynd um hvernig við förum að eftir verkfall. Þetta er í einu oröi sagt vonlaust. Eg fékk 700 krónur útborgaðar um síöastliðin mánaðamót og hef fleytt mér og mínum framhjá lögfræðingum meö tveimur víxillánum sem bætast við aðrar skuldlr. Næst verður billinn að fjúka; eini afraksturinn eftir 7 ára skólastarf aðinnbúi frátöldu.” Skólastjóralaun Péturs nema rúmum 20 þúsund krónum og eigin- konan fær 13 þúsund á mánuði yfir skólatímann fyrir matargerðina. „Við erum föst þama í Vesturhópi, draumur um íbúðakaup hér fyrir sunnan á þeim launum sem við höfum er jafnfjarlægur og Aiaska,” segir Pétur og vill ekki hugsa þá hugsun til enda hvemig fer ef verk- faliið dregst fram yfir mánaöamót og engin laun greidd út í nóvember. „Nú erum vlö orðin fimm í fjöí- skyldunní og ekki léttist róðurinn við það. Enég skal lofa ykkur því aö litli, nýfæddi sólargeislinn á fæðingar- deildinni verður ekki skirður Albert- ína,” sagði skólastjórinn að lokum. -EER. Hreinn Pálsson, formaður Starfsmannafélags ísafjarðarbæjar: „Égskilekki þetta kaup- tryggingar- 11 ,,Eg skil nú ekki þetta kaup- tryggingarmas. I þessum samningi er ákvæði um heimiid til endurskoðunar 1. júlí og 1. október sem þýðir að báð- um aðilum er þá heimilt að taka upp viðræður hafi kaupmáttur umsaminna launa breyst. I þessu felst engin sjálf- virk hækkun og það er alveg skýrt orðað,” segir Hreinn Pálsson, for- maður Starfsmannafélags Isafjarðar- bæjar. Itrekað hefur komið fram í fjöl- miðlum að í samningi Isfirðinganna væri ákvæði um verðtryggingu kaups- ins. Ingimar Halldórsson, einn þriggja samningamanna bæjarins, fullyrti í DV í gær að hér væri aöeins um aö ræða heimUd til endurskoðunar. „Um þessa túlkun hefur enginn ágreiningur verið miUi samninganefndar bæjarins og Starfsmannafélagsins,” seg'r Hreinn Pálsson. HERB Undanþága fyrir húfur og tref la Verkfallsstjórn BSRB samþykkti í gær að veita Alafossverksmiðjunum undanþágu til að flytja út 6 lestir af ullarvörum sem fara á Bandaríkja- og Evrópumarkað. Er hér um að ræða húfur, trefla, peysur og aðra ullarvöru sem gífurleg eftirspurn er eftir viöa um heim á þessum árstíma. Eða eins og Agúst Ágústsson, markaðsstjóri Álafoss, sagði í samtaU við DV: ,,Fólk notar þetta ekki á ströndinni um mitt sumar." Áður hafði Álafoss fengiö undanþágu fyrir31estumafsömuvöru. -EHt Blaðamenn sðmdu Samningar hafa tekist miUi blaða- manna og viðsemjenda þeirra og var samkomulagið undirritað skömmu fyrir kvöldmat í gærkvöldi. Samkomu- lagið er mjög svipað því sem prentarar sömdu um, eða um 21 % launahækkun á samningstímanum sem gildir út árið 1985. -FRI i i í i i i i i i i t Í t t t t i i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.