Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1984, Page 2
2
DV. LAUGARDAGUR 8. DESEMBER1984.
Kjarasamningar og gengisf elling:
Laun rýrnuðu um
2% gagnvart dollar
Laun eru nú lægri gagnvart Banda-
ríkjadollar en þau voru fyrir samning-
ana eöa meö öðrum orðum hefur
gengisfellingin verið meiri en sem nam
kauphækkunum. Þetta var gagnrýnt
af stjórnarandstöðunni þegar gengis-
fellingin var ákveðin en þetta má sýna
með ákveðnum dæmum.
Ef tekið er dæmi af launþega sem
tekur laun samkvæmt 9. launaflokki
BSRB þá hafði hann 12.787 krónur í
mánaðarlaun fyrir samninga eða með
lágmarkstekjutryggingu 12.913
krónur. Fyrir þær tekjur gat hann
keypt 383,5 dollara miðað við gengi 25.
október. Þann 30, október er síöan
skrifað undir nýja kjarasamninga
BSRB. Þá fékk þessi sami laúnþegi
14.186 krónur í mánaðarlaun frá og
með 1. nóvember og gat fyrir þá
upphæð keypt 421,7 dollara. Þaö stóð
ekki lengi því stuttu síðar var gengi
krónunnar fellt um 12% sem kunnugt
er. Þótt þessi launþegi hafi fengið 800
króna hækkun á mánaöarlaun sín þann
1. desember getur hann samt ekki í
dag keypt jafnmarga dollara fyrir
mánaðarlaunin og hægt var fýrir
samninga. Um síðustu mánaðamót
fékk þessi launþegi í 9. launaflokki
BSRB greiddar 14.986 í mánaðarlaun.
Fyrir þau laun getur hann keypt 376,3
dollara í dag miðaö við gengi Banda-
ríkjadollara í gær. Það er 7,2 dollurum
minna en hann gat keypt fyrir mánað-
arlaunin fjrir samninga eða sem
nemur tæpum 2 prósentum.
Auðvitað kaupa fæstir dollara fyrir
mánaðarlaunin en þessi hækkun doll-
arans kemur fram í hækkun á inn-
fluttri vöru. öll innflutt vara hefur því
hækkað meira en sem nemur launa-
hækkunum.
ÓEF
Seðlabankanum ber að
Verðlaunahafamir í Eurocard-ritgerðasamkeppninni, talið frá vinstri: HeiðdísMagnúsdóttir, Sauöárkróki, Guðný
Guðjónsdóttir, Akranesi, Eiríkur Jónsson, Akranesi, Helgi Sigurðsson, Rvík, Edda Gísladóttir, Rvík, Auður Þórs-
dóttir, Rvík, Herborg Hauksdóttir, sigurvegarinn, Kjartan Hansson, Rvík, þær systur Hlín og Sif Olafsdætur, Egils-
stöðum, og Anna Gunnarsdóttir, Rvík. Dv-mynd Bjarnleifur.
fylgja ríkisstjórninni
Vegna frestunar ríkisstjómar-
innar á vaxtabreytingabeiðni Seðla-
bankans þykjast menn sjá stórpóli-
tískan ágreining í uppsiglingu.
Og svo velta menn því fyrir sér
hvort Seðlabankinn taki ákvöröun
um þessar vaxtabreytingar í sínar
hendur eftir viku ef samþykki ríkis-
stjómarinnar liggur ekki fyrir þá.
Samkvæmt reglugerðum verður
Seðlabankinn aö fylgja efnahags-
stefnu ríkisstjórnarinnar þannig að
hennar er valdið í raun. Eftir því
sem næst verður komist hefur Seðla-
bankinn aðeins einu sinni tekið
ákvöröunarvald sem þetta í sínar
hendur.
Skýr og sérstök ákvæði em um
ákvörðunarvald ríkisstjórnarinnar
varðandi vexti af uröalána.
Samkvæmt samstarfssamningi
núverandi ríkisstjórnar frá í maí
1983 var ákveöiö aö vinna að því aö
færa afurðalán úr Seölabankanum til
viðskiptabanka. Engin tilfærsla
hefur farið fram enn en unnið er að
því.
-ÞG
Verðlaun í ritgerðasamkeppni Eurocard af hent:
Stóru pollarnir í
tannlausa bekknum
Herborg Hauksdóttir, 12 ára stúlka
af Seltjarnamesi, fékk 1. verðlaun í rit-
gerðasamkeppni Euroeard sem haldin
var í haust. Verðlaun vom afhent í gær
á Hótel Sögu. Tíu önnur skólabörn
hlutu viðurkenningu.
Jö/^oð
Sólböðin
okkar hafa
endanlega sannað
ágæti sitt.
Nú er vitað að ljósaböð
í hófi eru holl.
Við leggjum ríka áherslu á ráðgjöf og starfsfólk
okkar er ávallt reiðubúið að leiðbeina þér.
Sólbaðsstofa
Ástu B.Vilhjálms
Grettisgötu 18
sími 28705
Ritgerðasamkeppnin bar yfir-
skriftina Leið mín í skólann og
hætturnar sem leynast á leiðinni.
Þátttakendur vom öll skólabörn á
aldrinum 12 ára og yngri.
Alls bámst á annað hundraö rit-
gerðir hvaöanæva af landinu. Þau sem
hlutu viðurkenningar í gær voru frá
Reykjavík, Akranesi, Sauðárkróki og
Egilsstööum.
Fyrstu verðlaun vom alls tíu þúsund
krónur. Viðurkenningamar voru fimm
þúsund krónur hver.
Greinilegt var á öllu í gær að
peningarnir vom kærkomin sending í
jólamánuöinum, þó hitt hafi ekki verið
síður skemmtilegt að fá viðurkenningu
fyrir að hafa skrifaö góðar ritgerðir.
Dómnefnd var skipuð þeim Auðnu
Hödd Jónatansdóttur, 10 ára nemanda,
Ragnheiði Davíðsdóttur, umferðar-
ráði, Páli Garðarssyni, lög-
regluvarðstjóra, Guttormi Þormar,
yfirverkfræðingi umferðardeildar
Reykjavíkur, og Haraldi Haraldssyni,
stjórnarformanni Kreditkorta sf.
Hann var jafnframt formaður dóm-
nefndar.
Allar ritgerðirnar vom sérlega vel
skrifaðar en þó var meira um vert að í
þeim komu mjög svo þarfar ábend-
ingar um hvað betur mætti fara í um-
ferðinni.
Þannig fékk einn þátttakenda,
Eiríkur Jónsson, 7 ára snáði af Akra-
nesi, aukaverðlaun, kr. 2.500 fyrir
bestu ritgerðina frá 6—10 ára
krökkum. Endum umfjöllunina svo á
tilvitnun í ritgerð Kjartans Hanssonar,
6 ára snáða úr Reykjavík:
„En þurfa ekki ökumenn að fara í
umferðarskóla líka? Muna þeir eftir
okkur, stóru sex ára pollunum í tann-
lausa bekknum ? ” -ÞG
Eiríkur Jónsson, 7 ára Skagamaður, fékk aukaverðlaun fyrir bestu ritgerð barna
á aldrinum 6—10 ára. 1 ritgerð sinni bendir hann á þá hættu þegar strákar elta fé-
laga sína út á götu án þess að líta í kringum sig.
Ekki stóreignaskattur, ekki skyldusparnaður:
Söluskatturinn hækkar
Þingflokkur sjálfstæðismanna hefur
samþykkt 0,5% hækkun söluskatts sem
veröur því 24% á næsta ári. Þingflokk-
ur framsóknarmanna hafði áður falið
ráðherrum sínum afgreiðslu málsins.
Um leið er það ljóst að ekki verður
beitt skyldusparnaði og að tillögur
framsóknarmanna um 70 milljóna
stóreignaskatt ná ekki fram að ganga.
Þessi söluskattshækkun dugir til
þess að ná 250 milljónum inn í ríkissjóð
upp í fjárlagagatið. Þar með liggur
fyrir að loka verður fjárlögunum með
erlendum lánum að upphæö á bilinu
600—700 milljónir króna. Engin frekari
skattlagning er á döfinni og enginn
frekari spamaöur en þegar hefur verið
nýttur.
Frumvarp að lánsfjáráætlun liggur
nú fyrir. I því er gert ráð fyrir að er-
lend lán verði í lok næsta árs rúmlega
61% af þjóöarframleiöslu ársins.
HERB