Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1984, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1984, Page 6
6 DV. LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1984. Hjördís Hákonardóttir, formaður Islandsdeildar Amnesty, Jóna Lísa Þorsteinsdóttir, ein af stofnendum deildar- innar, Björn Þ. Guðmundsson, fyrrverandi formaður, Bemharður Guðmundsson, sem einnig hefur verið formaður, Sif Aðils, framkvæmdastjóri tslandsdeildarinnar, og Margrét Heinreksdóttir, fyrrverandi formaður. Islandsdeild Amnesty 10 ára Sauðárkrókur: Fyrstu stúdentarnir frá kaupfélaginu ’85 Islandsdeild Amnesty International á 10 ára afmæli nú á haustdögum. I til- efni afmælisins verður haldinn hátíðarfundur á morgun, sunn'udag, á Hótel Borg kl. 17. Dagskrá fundarins hefst með ávarpi Bjöms Þ. Guðmunds- sonar, fyrsta formanns Islandsdeildar- innar. Camilla Soderberg og Snorri ö. Snorrason leika saman á blokkflautu og lútu. Hjördís Hákonardóttir flytur erindi um Amnesty og yfirlýsingu Sameinuöu þjóðanna gegn pyntingum. Þá lesa Borgar Garðarsson og Hallmar Sigurðsson úr leikritinu Petro og kafteinninn í þýðingu Heimis Páls- sonar. Þórhallur Birgisson og Kateleen Bearden leika saman á fiðl- ur. Sigurbjörn Einarsson flytur ávarp og að endingu leika Guörún S. Birgis- dóttir og Martial Nardeau á flautur. Starf Amnesty International hefur verið umfangsmikið á umliðnum ár- um. Eins og kunnugt er hafa samtökin einbeitt sér að málefnum samvisku- fanga, fólks sem sætt hefur fangelsun- um og harðræði vegna skoöana sinna. Starf samtakanna felst í könnun á sakarefnum og aöstæðum þeirra fanga sem til greina kemur að samtökin taki upp á sína arma. Baráttuaöferð sam- takanna er að senda bréf eða skeyti til viðkomandi yfirvalda. Árangurinn er síðan kominn undir því hvort ráða- mennirnir láta undan þrýstingnum. Oft hefur verið gagnrýnt að meö þessu móti beinist athyglin anungis að fáum föngum en allur fjöldinn verði útund- an. Það er aftur á móti von Amnesty að þeir fangar sem samtökin hjálpa verði samnef narar allra samviskuf anga. I Amnesty International eru nú rúm- lega 500 þús. félagar í 160 þjóðlöndum. I Islandsdeildinni eru félagamir tæplega 800. Verkefnum deildarinnar er sinnt af bæði einstaklingum og hópum. Tveir hópar vinna nú sem stendur að málefn- um fangelsaöra stúdenta við Ehwa há- skóla í Suöur-Kóreu, prests frá Eþíópíu og fimm lækna í Sýrlandi. Einn hópur vinnur að skyndiaðgerðum sem eru t.d. að bjarga föngum sem dæmdir hafa verið til dauða. Annar hópur skrifar reglulega vegna fanga mán- aöarins. Um þessar mundir er einnig unnið sérstaklega að verkefni undir kjörorðinu: Pyntingar er hægt að stöðva. Frá Júlíusi Guðna Antonssyni Sauðár- krókl: Fjölbrautaskólinn á Sauðárkróki er tiltölulega ungur skóli og því í hús- næðishraki, eins og oft vill verða. Nú hefur fundist lausn á húsnæðisvanda- málinu. Fjölbrautaskólinn hefur tekið á leigu rúmlega 400 fermetra á efstu hæð byggingar Skagfirðingabúðar sem er í eigu Kaupfélags Skagfirðinga. Kaupfélagshöllin sem stendur skammt frá skólanum er næstum ónotuð. Gildir leigusamningurinn í tíu ár. Áætlað er að hefja kennslu á næstu önn. I samtali við DV sagði Jón Hjartar- son, skólameistari Fjölbrautaskólans, að það mætti aö vissu leyti segja að kaupfélaginu hafi þarna verið bjargað frá offjárfestingu sinni. „Það skiptir okkur engu máli hvaðan viö fáum hús- næði sem við getum notað og bjargar okkur úr húsnæðisvanda,” sagði hann. Hingað til hefur verknámshús skól- ans verið notað að miklum hluta sem bóknámshús. Alla tiö hefur skólinn I nóvember sl. voru haldin tvö nám- skeið um málefni fatlaöra. Fyrra nám- skeiðið var haldið í ölfusborgum fyrir aðstandendur fatlaðra. Það námskeið sóttu um 40 manns, þar af 20 böm. Síðara námskeiðið var haldið á sama stað dagana. 8.—11. nóvember og bar verið upp á gagnfræðaskólann kominn hvaö varðar kennslustofur. Gagn- fræðaskólinn hefur líka verið aðþrengdur vegna þessa ástands. Því var mjög brýnt aö fá aukið húsnæði svo halda mætti uppi kennslu í skólunum. Nýtt bóknámshús Fjölbrautaskólans er að visu i deiglunni en mun ekki komast í gagniö á næstu árum. Heimavistin í skólanum annar hvergi nærri eftirspurn. Leigja hefur þurft allskonar húsnæði úti í bæ. Stefnt er að þvi aö taka í notkun hluta af við- byggingu heimavistarinnar á næsta hausti. 1 Fjölbrautaskólanum áSauðárkróki eru 259 nemendur í dagskóla. Alls eru nemendur 367 ef kvöldskóli og meist- araskóli eru teknir með. Nemenda- aukning hefur verið mikil í skólanum eins og í öðrum framhaldsskólum landsins. Er því þörf á mikilli upp- byggingu svo hægt sé að anna eftir- spurn. námskeiðið yfirskriftina „Fatlaðir og kynlíf”. Um leiöbeiningar og fræðslu á þvi námskeiði sáu Ragnar Gunnarsson sálfræðingur og Niels-Anton Ras- mussen læknir. Það var Lionsklúbbur- inn Njörður sem greiddi fargjald þeirra hingaðtillands. -EH Námskeið um mál- efni fatlaðra Sýnd verða atriði frá: Dansskóla Sigurðar Hákonarsonar Jassneistanum Hafdís Jónsdóttir Dansskóla Auðar Haraldsdóttur Jassballetskóla Kristínar Nýja Dansskólanum Jassballetskóla Báru Miðar seldir við innganginn Barnamiðar kr. 100,- Fullorðnir kr. 150,- - , gfðUT ___ Verið velkomin rSlúq úlenilcaidújöKennana F.Í.D. verður haldin í Broadway sunnudag 09. des. ★ Barnaskemmtun kl. 15.00 Kvöldskemmtun kl. 21.00 (húsið opnað kl. 14.30) (húsið opnað kl. 20.00)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.