Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1984, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1984, Side 7
DV. LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1984. 7 Bókasaf n KÍ til sýnis Bókasafn Kennaraháskóla Islands veröur til sýnis almenningi í dag, laug- ardaginn 8. desember, frá klukkan 13.30 til 17.00, í tilefni þess aö safnið hefur fengiö til umráöa nýtt húsnæöi í nýbyggingu skólans við Stakkahlíö. Kennaranemar munu veröa meö kaffi- sölu í skólanum á sama tíma til ágóöa fyrir námsferð sína til kennaraháskól- ans í Tromsö síðar í vetur. Hið nýja húsnæði safnsins er um 400 fermetrar aö stærö og eru þar lessæti fyrir 100 manns í lesstofu, aöalsal og í vinnuherbergjum. Safniö hýsir rú rösklega 30 þúsund bindi bóka og um 4.500 tímaritsárganga. Á síöasta ári voru útlán safnsins um 18.300, þar af um 20% til lánþega utan skólans. Aðalfundur Dómarafélags Reykjavíkur Aöalfundur Dómarafélags Reykja- víkur var haldinn 23. október sl. Meö- al ályktana sem samþykktar voru á fundinum voru ályktanir um hrööun heildarendurskoöunar á dómstóla- skipan, sem og lögtöku frumvarps um Lögréttu. Þá hvatti f undurinn til þess aö hraðað yrði endurskoðun laga um ineöferö opinberra mála svo að málsmeöferö á héraðsdómsstigi verði munnleg í ríkara mæli og aö komiö verði á fullri greiningu milli lögreglustarfa og dómstarfa viö rannsókn og meðferð opinberra mála. Þá beindifundurinn Þeim tilmælum til dómsmálaráöherra að hann leit- aöi umsagnar félagsins um þau frumvörp er varöa dómstóla og rétt- arfar. Formaður Dómarafélags Reykja- víkur var kjörinn Friögeir Bjömsson en af formennsku lét Steingrímur Gautur Kristj ánsson. Mæðrastyrks- nef nd með jólasöfnun Mæörastyrksnefndin í Reykjavík hefur nú hafiö jólasöfnun sína og hafa samskotalistar þegar veriö sendir út til fyrirtækja. I samtali viö DV sagöi Unnur Jóns- dóttir, fbnmaður Mæðrasiyrkaieöxiar, aö nefndin heföi notið einstakrar vel- vildar og trausts af hálfu Reykvíkinga. Heföu þeir ár hvert trúað nefndinni fyrir myndarlegum peninga- upphæöum til úthlutunar sam- borgurunum sem viö erfið kjör búa. Sjaldan heföi þörfin verið meiri en nú. Unnur sagöi aö nefndin vildi beina því til fólks að umsóknir um jólaglaöning yröu aö berast sem allra fyrst. Skrifstofa Mæðrastyrksnefndar er aö Njálsgötu 3, póstgíró 36600—5. Þar er tekið á móti umsóknum og framlög- um. Skrifstofan er opin daglega frá tvö til sex. Síminn er 14349. Fataúthlutun er mánudaga, þriðjudaga og fimmtu- daga, frá tvötil sex, aö Garðastræti 3. Lögfræðingur nefndarinnar, Sigrún Benediktsdóttir, er við á mánudögum frá tíu til tólf fyrir hádegi. Veitir Mæðrastyrksnefnd ókeypis lögfræðiaö- stoö. -EH. Stof nun unglinga- athvarfs í undir- búningi á Akureyri Stefnt er aö því aö koma upp ungl- ingaathvarfi á Akureyri á næsta ári. Aö sögn Ingimars Eydai, sem situr í félagsmálaráði Akureyrar, var í fyrra sett á stofn samstarfsnefnd félags- málaráös og æskulýösráðs. Hún skilaöi tiilögum um sto&iun slíks athvarfs fyrir gerö fjárhagsáætlunar bæjarins þá og var veitt nokkurt fé til undirbúnings. Skólanefnd Akureyrar hefur einnig veriö meö tillögur um stofnun ungl- ingaathvarfs. Ingimar sagöi að meiningin væri aö leggja fram nýjar tillögur fyrir gerð næstu fjárhagsáætlunar. „Þessu at- hvarfi er ætlað aö taka til alls konar vandamála unglinga. Við vitum því miður um unglinga á Akureyri sem þurfa á svona athvarfi aö halda. Þetta yröi ekki nauöungarstofnun heldur voru hugmyndir félagsmálaráös að unglingarnir gætu verið þama, t.d. þrjá daga í viku. I hugmyndum skóla- nefndar var gert ráð fyrir aö þeir væru á hverjum degi. Þetta er ætlunin að samræmanúna.” JBH/Akureyri. Ályktun Stúdentaráðs Stúdentaráö Háskóla Islands sam- þykkti á dögunum ályktun þar sem lýst er andstööu við hugmyndir sem fram hafa komið um að tekin verði upp inn- tökupróf í læknadeild. Aö fenginni reynslu varöandi „numems clausus” telur ráöið aö liklegt sé aö fleiri deildir innan Háskólans fylgi í kjölfarið. Stúdentaráð telur því að hvort sem um er að ræða inntökupróf eöa „numerus clausus” sé veriö aö gripa til aðgerða sein samrýmast ekki þeirri grundvall- arhugsjón sem lá að baki setningu laga umHáskóla Islands. Æ FISHER skákar keppinautunum í verði og gæðum. HÁTÍÐARSTUriD MEÐ FÍSHER Fisher Hi F1 System 350 er frábært sett, hvort sem litið er á tæknihliðina eða útlitið. Vegna velheppnaðrar hönnunar er verðið mun lægra en menn búast við. Hljómtækjasettið System 350 hefur alia hluti aðskilda; plötuspilara, magnara með tónjafnara, útvarp og segulband, en þannig eru tóngæðin frá Fisher tryggð. System 350 gefur mikið en kostar lítið. Verð aðeins: 950 StSr' Þú kemur og semur. Fisher, íyrsta flokks. LÁGMÚLA 7. REYKJAVÍK - SÍMI 685333. SiÖNVARPSBÚDIN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.