Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1984, Page 17
17
DV. LAUGARDAGUR 8. DESEMBER1984.
— Veröuröu þá ekki milljóna-
mæringur?
Andrés brosir og efast um þaö. „Eg
hef ekki hugsað út í þaö.”
Sögur og leikrit
— Hvernig gengur annars aö lifa á
skriftunum?
„Eg er á þriggja mánaöa starfs-
launum úr launasjóöi rithöfunda og á
þriggja mánaöa starfslaunum lista-
manna. Þannig aö ég er í rauninni á
launum.
Eg er núna að skrifa sviösverk og þá
gerir maður sér grófar útlínur,” segir
Andrés og vísar til sviðs em gert er úr
hvítum pappa og liggur í hillu beint
fyrir framan skrifborðiö hans. „Svo
sér maöur persónurnar spretta upp.”
Þaö má segja aö nóg sé í gangi hjá
Andrési. Nýlega var flutt eftir hann
Draumaströndin. „Gamansamt leikrit
fyrir útvarpiö”. Sjónvarpsleikrit, sem
hann geröi fyrir íslenska sjónvarpið,
hefur veriö sýnt í Noregi og Svíþjóö og
fengið ágæta dóma. Þaö stendur til aö
sýna þaö í Danmörku, Irlandiog Eng-
landi hjá BBC, fjórðu rás. Utvarps-
leikritið Fiörildi hefur veriö þýtt á
ensku og verður einnig flutt í Svíþjóð á
næstunni. I janúar veröur svo saga
hans, sem heitir Elsku bam, á dagskrá
Morgunstundar barnanna í útvarpinu.
„Eg byrjaöi aö skrifa fyrir böm á
þeim árum er ég hafði meö Stundina
okkar aö gera í sjónvarpinu. Eg
skrifaöi texta fyrir brúöur sem hétu
Glámur og Skrámur. Síðan skrifaöi ég
leikverk fyrir sviö sem var sýnt í
Þjóöleikhúsinu ’74. Þá fór eiginlega
skriöa af staö.
Eg hef í starfi mínu sem dagskrár-
gerðarmaöur skrifaö meira og minna
— þætti og áramótaskaup.”
Andrés starfaði sem blaöamaður
tvö ár eftir stúdentspróf, fór síöan yfir
á sjónvarpiö og hefur veriö starfs-
maöur þess frá upphafi.
Hugarheimur unglinga
— Ferðu aftur á sjónvarpið?
„Tíminn á eftir aö leiða í ljós hvaö
verður,” segir Andrés. „Eg uni mér
vel viö skriftirnar. Hitt er annað mál
að rithöfundur má aö mínu mati ekki
einangra sig frá umhverfinu. Hann
verður aö vera í lifandi sambandi viö
fólk. Þess vegna held ég að þaö sé hollt
og gott fyrir höfund aö vera meö að
minnsta kosti annan fótinn á öörum
vígstöðvum.”
— Hvernig er þaö þegar þú ert aö
skrifa unglingabækur, er ekki erfitt að
setja sig inn í hugarheim og oröaforöa
unglinganna?
„Jú, þaö er einmitt þaö sem ég er að
leggja mig fram um að hafa á hreinu.
Hvernig unglingarnir tala. Hvernig
þeir hugsa. Reyna aö gefa lifandi
mynd af unglingum dagsins í dag.
Eg reyni aö vera í sambandi viö
unglinga og hef gaman af aö tala við þá
og hlusta á þá segja frá. Hlusta á
þeirra dásamlega húmor og alla
stælana.”
Næst gengum viö niöur í stofu því
ljósmyndarinn vildi fá aö mynda
Andrés í stól meö dætrum sínum. Við
rákum augun í píanó. „Þaö er ein
besta hugarró aö setjast viö hljóö-
færiö,” segir Andrés.
— Hvernig er venjulegur vinnudagur
hjá honum?
„Þegar maöur vinnur á sjálfs sín
vegum veröur maöur aö beita sig
ströngum sjálfsaga. Eg byrja hvern
dag viö skrifborðið og vinn þar
venjulegan vinnudag. Eg er síðan meö
kvöldin á lausu fyrir mitt fólk.
Góðir rithöfundar
— Lestu mikið?
„Já, ég reyni aö minnsta kosti aö
komast yfir þaö sem skrifað er af
íslenskum höfundum. Eg geri þaö bæði
ánægjunnar vegna og eins til aö vita
hvað kollegarnir eru aö gera. Til aö
fylgjast meö stefnum og straumum.
— En hvaö finnst Andrési um
íslenskan skáldskap?
„Eg vona aö skáldsagan haldi velli.
Það hafa komið fram margir býsna
góðir rithöfundar á síðustu árum. Þaö
gefur manni von um bjarta framtíð.”
-SGV.
KAFLII K BOKIMI
TÖFF TÝPA A FÖSTIJ
kemur fyrir besta fólk og gæti þess
Vegna alveg eins komiö fyrir þig.
Gulli horfir upp í loftiö, tekur þessu
fjarri.
— Onei, það skal ekki koma fyrir
mig. Ekkistraxaðminnsta kosti.
Elías kastar poppi upp í loft, galop-
inn munnur er mark á niöurleiðinni,
hann hittir ekki.
— En þú, segir Gulli, pælir þú mikiðí
stelpum?
Elias ypptir öxlum, lítur til hans sem
snöggvast meö svip sem segir hvorki
já né nei, kastar upp ööru poppi,
hittir.
— Það er alveg vonlaust fyrir þig að
spá t Ingunni, heldur Gulli áfram.
Elías hóstar, poppið fór vitlausa leiö
ofaníhann.
— Ingunni! Þú ert ruglaöur! Eins og
égséaöspáíhana! Nei, vinurminn!
Gullihlær.
— Elli sæti!
Elías stjakar við honum.
— Mér er alveg nákvæmlega sama
um hana ef þú vilt fá að vita þaö.
Gulli veltir sér á magann, hláturinn
fossar út úr honum.
— Hann haföi gaman af aö spæla þig,
kallinn! Sástu þær.. . Ingunni og
Sissu.. .þærgrenjuöuaf hlátri!
Ekkertsvar.
Hann kastar upp poppi, opnar munn-
inn upp á gátt, hittir.
— Vissiröu aö hún er aftur byrjuö aö
verameð Júlla?
Elias hristir höfuöið.
— Nei, ég vissi það ekki. Það skiptir
heldur engu máli hvað hún gerir.
— Eg sá þau saman úti í sjoppu í
gærkvöldi, það var æðisleg hamingja.
f — En ánægjulegt.
— Skrýtið. . . það er eins og þessi
manneskja geti haft suma stráka al-
veg í vasanum. .. ég sé ekki hvaö þeir
sjá viöhana.
Elíasdæsir.
— Ekki ég heldur.
— Hún er algert fiðrildi... flögrar
bara á milli. Hún heldur áreiöanlega
aö hún sé ofsalegt bjúti.
Elías brosir.
— Maöur gæti haldiö að þú værir fer-
lega skotinníhenni!
-Eg?
— Já, eins og þú talar mikið um
hana.
— Góði besti!
Þeir þegja saman um stund.
Gulli rakar saman poppi sem liggur
eins og hráviöi á stofugólfinu, Elías
lygnir aftur augunum, hrekkur við og
rís upp við dogg, það er farið aö braka í
sjónvarpinu.
— Æ, lækkaðu í þessum stunum.
Þetta er grautfúlt. Það er ekki hægt að
hlæja aö þessu nema einu sinni. Þú
mátt skrúfa fyrir þetta mín vegna.
Gulli er í öörum heimi, heyrir þetta
ekki. Hann er búinn aö tina poppið upp
úr gólfinu og teygir aftur úr sér meö
skrýtiö bros á vörunum.
— Þú ætlar þá ekki í partúö til henn-
arannaökvöld?
— Tú Ingunnar?
— Já. Hún bauð þér alveg spes, var
þaöekki?
Eúas hristir höfuöiö.
— Ertu frá þér! Það væri þaö síöasta
seméggeröi. En þú? Ætlarþúaðfara?
-Eg?
Gulli hlær.
— Nei, ég læt ekki draga mig í svona
partí.
— Af hverju ekki?
— Bara. Eg nenni því ekki. En þú, af
hverjuferö þúekki?
Eúas tekur hnefafyúi af poppi og læt-
ur buna upp í sig, dregur við sig svarið.
— Af hverju ég fer ekki? I fyrsta lagi
er ég ekkert ofsalega hress út í Ing-
unni. Og í öðru lagi er ég á föstu. Eg fer
ekki í partí nema kærastan sé með.
Gulú spingur, þetta var æðislegur
brandari.
— Þú! Áföstu!
Elías útur til hans.
— Þú trúir mér ekki?
Gulú hristir höfuðið, spriklar meö
fótunum, þetta er svo ofboðslega fynd-
iö.
— Þetta er samt alveg satt, ég er
ekkert aö gera að gamni mínu, ég er á
föstu. Ég hef bara ekki sagt neinum f rá
því.
Hann horfir alvarlegur í bragði á
Guúa sem hættir að hlæja útla stund og
gapir, svo springur hann aftur.
— Veistu þaö að þú værir æðislega
fmnleikari! Egtrúöiþvínæstumþví!
— Hún á heima á Akranesi, heldur
Eúas áfram. Viö sjáumst ekkert oft
þess vegna. En viö tölum mikið saman
isíma.. .
— Isíma! Rugúð! Astísíma!
Gulli veltist um af hlátri.
— Heyrðu.. . bíddu aðeins.. . hvað
er þetta?
Eúas hnippir í Gulla, hann þagnar.
— Hvað?
— Það er einhver að koma!
Þeir leggja viö eyrun og mikið rétt:
Það er rjálað við hurðina fram á gang-
inn.
Gulúsýpurhveljur.
— Mamma er að koma heim. Hvaö
er klukkan eiginlega?
— Hún er aö veröa hálf sjö.
Hann sprettur á fætur.
— Vá! Eg vissi ekki aö hún væri orö-
in svona ferlega margt.
Hann hleypur að vídeótækinu, tekst
með naumindum að kippa Djörfu
nóttunum úr því og stinga Jóa og
baunagrasinu inn í staðúin; í næstu
andrá kemur móðir hans gustmikil inn
ístofunatilþeúra.
— Eg heyrði rokumar i þér fram á
gang, Gulú minn, segir hún brosandi.
Er þetta svona óskaplega skemmtileg
mynd sem þið eruð að horfa á, strákar
múiir?Máégsjá?
Gulú hnigur niöur á púðann, Djörfu
nætumar brennheitar undir peysunni.
— Já, hún er fín þessi, segir hann
brosandi og sópar upp í sig poppi. Al-
gerþruma!
Sjúkrahús á
Sauðárkróki
Tilboð óskast í innanhússfrágang á 1. og 3. hæð nýbyggingar
sjúkrahússins á Sauöárkróki.
Hæðirnar eru nú tilbúnar undir tréverk.
Verkinu viö 1. hæð skal lokið 15. júní 1985 og öllu verkinu lokið
15. júlí 1986.
Utboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7,
Rvk., gegn 10.000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað föstud. 21. desember 1984 kl.
11.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 268« PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
Notaðir
í sérf lokki
International Scout II árg. 1978
ekinn 102.000 km, V8 345 cub. sjálfsk., vökva- og veltistýri, ný
dekk, sportfelgur o.fl., skipti á ódýrari.
Opið kl. 1—5 í dag.
JOFUR HF ________
Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Sími 42600