Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1984, Page 10
10
DV. MIÐVKUDAGUR12. DESEMBER1984.
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Svíþjóð:
Vönuðu menn
til að hreinsa
kynstofninn
—margt gruggugt í skúmaskotum
„kynþáttavísindanna”
I háskólabænum Lundi í Svíþjóö er
mikiö saín hauskúpa sem þar hafa
legiö frá því fyrir og eftir síöari
heimsstyrjöld. Þessar hauskúpur áttu
að sanna yt'irburði hins germanska
kynstofns og sérstaklega liins
sænska anga hans. Fundur þessara
beina nýlega hefur varpað dagsljósi
á myrkan kafla sænskrar sögu og
þykir sýna ótrúlega kynþáttaþröng-
sýni sem skákar jafnvel kynþátta-
rannsóknum nasista. Þaö sem er
einna merkilegast er aö þessar
rannsóknir héldu áfram eftir aö
gyðingaútrýmingar heimsstyrjaldar-
áranna höfðu leitt í ljós hvaöa
afleiöingar slíkir fordómar geta haft.
Enginn gagnrýndi
Rannsóknirnar voru liöur í áætlun
sem innihélt h'ka fjöldaófrjósemis-
aögerðir, aö sögn tveggja lærdóms-
manna viö Lundar-háskóla. „Þaö
sem er furðulegt er aö enginn gagn-
rýndi fjöldaófrjósemisaðgeröirnar
nokkru sinni,” segja fræöimennirnir,
Richard Sotto og David Weston.
Sænska læknisfræöitímaritiö
skýrði frá því í júní 1949 aö 12.108
konur og 1.378 karlar hefðu veriö
gerð ófrjó á árunum milli 1935 og
1948. Flest voru dæmd „vanþróuö”.
Sumum var lýst sem kynferðislega
of örum eöa einfaldlega „andfélags-
legun”.
Tölur sænska félagsmálaráösins
sýna að frá 1949 til 1964, þegar lög
leyfðu yfirvöldum aö beita fólk meö
geöræn vandamál þrýstingi til aö fá
þaö til aö gangast undir ófrjósemis-
aðgeröir voru 26.619 konur og 1.251
karl gerð ófrjó.
Fræðimennimir tveir segja aö þó
ófrjósemisaðgeröirnar hafi átt að
vera gerðar af frjálsum vilja, þá
áttu þeir útvöldu fárra kosta völ.
Lög frá mars 1944 leyfðu aö stór-
glæpamenn og fólk meö „óeölilega
mikla kynhvöt” væri gert ófrjött.
Fangar gátu annaöhvort gengist
undir ófrjósemisaögeröina eöa veriö
áfram í fangelsi.
Lögin standa ennþá þó aö þau séu
mikið breytt. Síöasta ófrjósemisaö-
gerð á glæpamanni var árið 1970.
Samkvæmt tölum félagsmálaráösins
voru sjö manns gerðir ófrjóir áriö
1979 „af mannúðarástæðum”.
Fordómar í víðsýnu
samfélagi
I dag er þaö aöeins í lítt þekktum
ritum og skjölum sem finna má
leifar þráhyggju Svía um kynþátta-
mál. Sotto og Weston segja aö á því
sjáist vísvitandi fjöldaminnisleysi.
Svíar neiti aö horfast í augu viö fortíö
kynþáttafordóma sem sé svo á skjön
viö ímynd þeirra sem opinskátt og
víösýnt samfélag.
Þeir segja að þessar 2000 hauskúp-
ur sem þeir fundu hafi veriö notaöar
í rannsóknum sem áttu aö sanna þá
kenningu aö hinir litlu, breiöleitu,
dökkhæröu, upprunalegu íbúar Sví-
þjóöar, svo sem Lappar og Finnar,
heföu verið sigraöir og þeim ýtt
noröur af hinum sterkari og meiri
ættflokki Svíanna.
Samkvæmt þessari kenningu yfir-
tóku hávaxnir, ljóshæröir, bláeygöir
Svíar yfirráöasvæði þessara manna
og færöu með sér yfirburðamenn-
ingu.
Kynþáttalíffræði
Fræöimönnunum tveimur þykir
skrýtiö aö rannsóknunum skuli hafa
veriö haldið áfram eftir síöari heims-
styrjöldina þegar ljóst var aö í kjöl-
Gunnar og Alva Myrdalaðhylltust ófrjósemisaðgerðir.
far shkra rannsókna haföi sex
milljónum gyðinga verið útrýmt. En
rannsóknirnar í Lundi voru einungis
hluti af miklu víötækari rannsókn-
um. Áriö 1921 samþykkti sænska
þingið samhljóöa aö setja upp ríkís-
stofnun í kynþáttalíffræöi í Uppsöl-
um. Stofnunin fór strax að rannsaka
úrkynjun sem samblöndun kynþátta
átti aö valda. Á fyrstu tveimur árum
rannsóknarinnar voru 85.000 tilfelli
skoöuö.
Fyrsti formaður rannsóknarinnar
var Hjalmar Hammarskjöld, faöir
Dags, aöalritara Sameinuöu þjóö-
anna.
Þtkktir fræðimenn
Ekki var htiö á þessar tilraunir
sem hluta af kynþáttafordómum fyrr
en eftir síöari heimsstyrjöldina.
Margir þekktustu fræðimanna Svía
voru viöriönir þær. Áriö 1933 kynnti
Bændabandalagið, fyrirrennari Miö-
flokks Thorbjörns Fahdin, áætlun th
aö verja hinn sænska ættflokk gegn
„óæöri erlendum kynþáttaafbrigö-
um.”
Dæmigerö setning í sænskri skóla-
bók frá þriöja áratugnum segir:
„Negramir hafa aldrei skapaö
nokkrar byggingar, ritað mál sitt
eöa byggt stór hafskip. Þeir eru
mestan part bamalegt og vinalegt
fólk sem hefur gaman af skemmtun-
um, en eru líka lygarar og
óáreiöanlegir og hafa vanþróaðar
trúarhugmyndir. ”
Öfgahópar
Nú eru meira en 10 prósent hinna
átta miUjóna íbúa Svíþjóöar af
erlendum uppruna. Slíkar hugmynd-
ir em því lítt vinsælar í Svíþjóð
nútímans. Þeir einu sem aðhyUast
þær eru ýmsir öfgahópar sem vUja
losna viö farandverkamenn og aöra.
„Þaö eru vaxandi kynþáttafor-
dómar í Svíþjóð núna vegna efna-
hagsöróugleika,” segir Stefan
Meisels, varaformaður gyöingasam-
félagsins. „En nýnasistaáróður
beinist 99 prósent gegn innflytjend-
um og aöeins eitt prósent gegn
gyöingum.”
Eitthvað bar á gyðingahatri á
fyrirstríösárunum í Svíþjóö en þaö
var mjög takmarkað. Fræöi-
mennirnir viö Lundarháskóla segja
aö gyöingahatur hafi ekki veriö
vandamál.
Myrdal
En hugmyndin um aö „hreinsa”
kynstofninn haföi mikinn stuöning.
Svo mikinn aö Gunnar og Alva Myr-
dal, einhverjir þekktustu vísinda-
menn Svía, lögöu tU áriö 1935 aö
ófrjósemisaðgerðum yrði fjölgaö:
„Þjóöfélagið hefur áhuga á aö
frelsi geðveikra til að fjölga sér verði
hamið. Veröi slíkum einstakUngum
meinaö aö sjá dagsins ljós myndi þaö
vera sérlega félagslega jákvætt,
fyrir utan áhrifin sem það myndi
hafa á framtíöarþróun kynstofns-
ins.”
Þessa setningu er aö finna í bók-
inni „Crisis and the population
issue,” eftir Ölvu Myrdal, konuna
sem f ékk friðarverðlaun Nóbels 1982,
og mann hennar.
„Fyrir mig sem Svía og vísinda-
mann fékk þaö mest á mig aö sjá aö
viö vorum meö ófrjósemis- og
vönunaráætlun og aö lesa hvaö Myr-
dal-hjónin höföu um þaö aö segja,”
segir Nils Ryman, erföafræöingur
viö Stokkhólmsháskóla.
Ekki er þó víst að þetta komi öUum
jafnmikiö á óvart. Andrew Young,
sendiherra Bandaríkjanna hjá
Sameinuðu þjóöunum, sagöi einu
sinni aö Svíar væru mestu kynþátta-
hatarar í heimi.
Jólagetraun DV, 5. hluti:
Hvað heitir skúrkurinn?
Meöal goöanna í ValhöU er þessi
lymskulegi náungi sem hér sést troöa
sér í dulargervi. Opinberlega telst
hann til goöa þó svo menn og guðir viti
sem er aö í æöum hans rennur örlítiö
jötnablóö. Hann er sífeUt til vandræöa
og ekki má treysta aö jólagjafir hans
séu aUar jafnfaUegar.
1 fimmta hluta jólagetraunar DV og
goöanna í VaUiöU spyrjum við hvaö
hann heiti þessi skúrkur. Reyndar er
svariö aö finna á baksíðu DV ef grannt
er skoöaö; nákvæmlega hvar segjum
viö ekki.
Þátttakendur eru hvattir til að safna
saman öllum lausnunum 10 og senda til
DV, jólagetraun, Síöumúla 14 fyrir 2.
janúar. Þá veröur dregið úr réttum
lausnum og verölaunin eru ekki af
verri endanum: Myndbandstæki,
hljómtækjasamstæöa og feröatæki.
Allt úrvalsgripir sem goöin sjálf hafa
valið og reynt í versluninni Japis í
Reykjavík.
Loki
Leppalúöi
Lúsífer
Nafn
I
I
| Heimilisfang
I Sími__________