Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1984, Side 21
DV. LAUGARDAGUR 29. DESEMBER1984.
21
POPPMINJASAFN Á HRAKHÓLUM
Poppminjasafniö veröur á hrak-
hólum frá og með nýársdegi því þá
verður aðalsal Sigtúns lokað sem
skemmtistað og gólfteppaverslun
flytur þar inn í staðinn. Poppminja-
safninu hefur verið komiö fyrir í Sig-
túni í tilefni af dansleikjahaldi
hljómsveitanna Stuðmanna og Ox-
smá sem þar munu halda sameigin-
lega áramótadansleik. Enginn veit
hvenær næst gefst tækifæri til aö sjá
þetta merka safn íslenskra popp-
minja.
„Við gengum á fund Davíös Odds-
sonar borgarstjóra til að fá húsnæði
undir poppminjasafn en borgin hefur
ekki séð ástæðu til að liðsinna okk-
ur,” segir Jakob Magnússon Stuð-
maður. „Nú hefur komið til tals aö
því verði komið fýrir á 2. hæð í Kjör-
garði en það er ekki ákveðið. Okkur
Stuðmönnum er í mun að rokkhátta-
fræðinni verði sýndur sá sómi sem
hún á skilið. Við höfum í huga aö
Gestur Guðmundsson, sem er eini
rokkháttafræðingurinn hér á landi,
sjái um safnið. Hann er sjálf-
kjörinn rokkminjavörður því hann er
fróöastur manna um rokkhætti
alla,” sagði Jakob Magnússon um
þetta stórmerka safn sem hefur að
geyma ómetanlega hluti tengda ís-
lenskri rokksögu síðustu tveggja
áratuga.
Áramótadansleik Stuömanna og
Oxsmá verður útvarpað á rás 1. Auk
þessara tveggja hljómsveita munu
koma þar fram söngvararnir Kristj-
án Jóhannsson og Kristinn Sig-
mundsson og alþingismennimir
Karvel Pálmason, Helgi Seljan og
Guðrún Agnarsdóttir. Einnig stóö til
að fá sendiherra Bandaríkjanna og
Sovétríkjanna á Islandi til að syngja
saman islensk lög. Síðast þegar frétt-
ist var sá bandaríski búinn að gefa
vilyrði en svar hins sovéska kollega
hans lá ekki fyrir. Hvort þeir heiðra
Poppminjasafnið og útvarpslilust-
endur með söng sínum mun væntan-
lega skýrast eftir miðbætti á
gamlárskvöld.
OEF
Jakob Magnusson StuOmaður fer varfærnum höndum um eina af gersemum Poppminjasafnsins, sviðsskó Péturs Kristjánssonar frá sið-
Svanfríðarskeiðinu. DV-myndir: GVA.
undixn hdnduúx
Wiímu 'R.eo.Mng.
p
Jakob Magnússon við sviðsjakka Ólafs Gauks frá árinu 1965. Á bak við
hann sér i poppbuxur óþekktrar „grúppíu" sem fundust við niðurrif
Breiðfirðingabúðar.
Stuðmenn i fatnaði frá blómaskeiðinu. Bráðum munu þeir ásamt fatnaðinum tilheyra rokkháttafræðinni.
Einn afmörgum munum á Poppminjasafninu.
Svona er nú umhorfs i Sigtúni eftir að Oxsmá og Stuðmenn hafa farið
um staðinn höndum. Á nýársdag verður farið að innrétta þarna teppa-
verslun.
SjBnHn 1 .
i fkj: —
Jói grínari f ertugur:
29. dagatalið
tilbúið
Dagatalið hans Jóa grínara er tilbú-
ið. Ekki er seinna vænna þar sem ára-
mót eru nú á næsta leiti. Dagatal Jóa
er aðeins gert í einu eintaki og á Jói
þaðsjálfur.
I fréttatilkynningu er DV barst frá
Grínarinn meö almanakið fyrir árið
1985. DV-mynd: GVA.
Jóa grínara kemur fram að Jói hafi
orðið fertugur á árinu sem nú er að
líöa. Hann hefur veriö skemmtikraftur
í 30 ár, frá 1955—1985... „söngvari,
grínari, leikari, eftirherma með grín-
mál og töframál”, eins og segir í
fréttatilkynningu. Þá syngur Jói grín-
ari lög við öll helstu tímamót og tæki-
færi. -EIR,