Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1985, Page 3
DV. MÁNUDAGUR18. FEBRUAR1985.
3
Misjafnir vextir innheimtir af tugþúsundum skuldabréfa:
Dómstólar fá vaxta-
ruglið til úrskurðar
Utreikningur vaxta vegna skulda-
bréfa sem útgefin voru fyrir 11.
ágúst í fyrra hefur lent í meiriháttar
ruglingi í bankakerfinu. Teflt er um
vaxtamun sem snertir aö minnsta
kosti 30 þúsund skuldabréf og
verulegar upphæðir. Fullvíst er að
dómstólar muni fá þetta vaxtarugl
til úrskurðar á næstu dögum.
Þessi skuldabréf eru með hæstu
vöxtum eins og þeir eru ákveðnir á
hverjum tima. I ágúst ákvað Seðla-
bankinn tiltekna hæstu vexti á
þessum bréfum varðandi þau sem
gefin höfðu verið út fyrir 11. ágúst.
Bankar og sparisjóðir ákváöu nú
eigin vexti með nýfengnu vaxta-
frelsi. Hæstu vextir urðu þar hærri
en Seölabankinn hafði ákveöið á um-
rædd bréf.
Mestur varð munurinn á verð-
tryggðum bréfum 2—3% en á óverð-
tryggðum bréfum 5%. Fyrir þrem
vikum sendi lögfræðingur í Stjórnar-
ráöinu Seðlabankanum kvörtun
vegna vaxtatöku Landsbankans af
innheimtubréfi. Siðan hefur banka-
eftirlit Seðlabankans skoðað málið. 1
ljós hefur komið alls konar vaxta-
taka banka og sparisjóða.
Sumir, eins og Landsbankinn, hafa
eingöngu tekið hæstu bankavexti,
ekki hæstu vexti að mati og sam-
kvæmt tilkynningu Seðlabankans.
Landsbankamenn segja Seðlabanka-
menn hafa vitaö það frá upphafi.
Aörir hafa tekið Seðlabankavextina.
Sumir sitt á hvað og enn aðrir hæstu
vexti um tima og síðan Seðlabanka-
vextina.
Þannig er þetta oröin meiri háttar
krossgáta, sem getur orðið deilumál
milli þúsunda lánardrottna og
skuldunauta. Seðlabankinn tilkynnti
í fyrradag að hann stæði vaxta-
ákvörðun sína frá í ágúst. Þess
vegna stefnir í málaferli. „Við bíöum
eftir að einhver fari í mál, við
hvetjum til þess,” segir Benedikt
Guðbjartsson, lögfræðingur í Lands-
bankanum.
HERB.
Bolludagurinn er í dag og fer víst
ekki fram hjá mörgum. Þessi
hressilegi kúreki heitir Þórhallur og
er í öskjuhliðarskólanum. Nýja
kökuhúsið færði nomendum skól-
lans bollur í fyrra og aftur i dag. Þaö
verður því stuð ó mannskapnum ef
að likum lætur.
DV-mynd Jóhann A. Kristjánsson.
Samtök
Grikk-
landsvina
íslendingar sem gist hafa Grikkland
á liðnum átta árum eru komnir eitt-
hvað á f jórða þúsundið. Nokkrir þeirra
hafa nú tekið saman höndum um að
stofna með sér samtök um að efla
tengsl milli Grikkja og íslendinga,
jafnt í menningarefnum sem á öðrum
sviðum, og verða þau opin öllum
Grikklandsvinum. Stofnfundur sam-
takanna verður haldinn í „Risinu”,
fundarsal Veitinga- og ferðaþjónust-
unnar að Hverfisgötu 105 föstudaginn
22. febrúar og hefst klukkan 20.30.
Fundarsalurinn er á homi Hverfisgötu
og Snorrabrautar, gengið inn frá
Hverfisgötu, en bílastæði í Hörpuporti.
Auk þess sem gengið verður frá
formlegri stofnun samtakanna, sam-
þykkt lög og kosin stjóm fyrir næsta
ár, verður boðið upp á grískan úrvals-
rétt, matreiddan af þarlendum fag-
manni og grísk vín eins og hver vill
hafa. Að sjálfsögöu verður þjóðar-
drykkur Grikkja, ouzq einnig á
boðstólum. Meðal skemmtiatriða
verða valdir kaflar úr gamanleik
Aristofanesar, Lýsiströtu, sem sýnd-
ur var í Þjóðleikhúsinu fyrir all-
mörgum árum, upplestur úr Grísk-
um þjóðsögum og ævintýrum í
þýðingu Friðriks Þórðarsonar og sýn-
ing á vinsælum griskum dönsum. Leik-
in verður grísk tónlist allt kvöldið og
stiginn dans eftir því sem verkast vill.
Meö því aö undirbúa þarf matargerð
fyrirfram, eru væntanlegir stofnendur
Grikklandsvinafélagsins beðnir að
gera viðvart um þátttöku í síma 24631
(Zorba) þriðjudaginn 19. febrúar
milli klukkan 14 og 18. Þátttökugjald
verður 400 krónur á mann, maturinn
innifalinn.
EGHLL
VILHJÁLMSSON HF.
Smiðjuvegi 4, Kópavogi. Símar 77200 - 77202.
ÖRUGG
ENDURSALA
Árum saman hefur FIAT verið topo-bíll í endursölu. UNO er þar auðvitað efstur
á blaði, sést sjaldan á bílasölum og stoppar þar stutt.
Þessvegna eru peningarnir þínir vel geymdir í FIAT-UNO,
þú ekur á afburða bíl sem þú getur breytt snarlega í peninga ef á þarf að
halda. Sum bílaumboð segja þér að spyrja eigendur um endursöluna.
Við segjum: spurðu bílasalana, þeir vita allt um endursölu.
CAMLI BÍLLINN UPPÍ
Augljóst er að betri bílakaup bjóðast ekki, UNO 45 SUPER '85 á 280.000,-.
Að auki tökum við gamla bílinn uppí þannig að þú losnar við
fyrirhöfn og áhættu sem alltaf eru samfara sölu á notuðum bílum.
Uriöl
MEST SELDI BILL A ISLANDI
Unol45superá götuna
kr.280.000.-