Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1985, Page 5
DV. MÁNUDAGUR18. FEBRUAR1985.
5
Ráðstefna um fiskeldi og fiskstofna í ám og vötnum:
KALLAÐ A AUKNAR RANNSÓKNIR
Núna um helgina hélt Líffrseðifé-
lag Islands ráðstefnu um fiskeldi og
nýtingu fiskstofna í ám og vötnum.
Ráðstefnan var haldin á Hótel Hofi
og var þátttaka nokkuð góð. En þessi
mál hafa verið mjög ofarlega á baugi
síðustu vikur og mánuði og nú bendir
margt til þess að Islendingar hyggist
leggja í verulegar fjárfestingar í
fiskeldi. Flutt voru 15 erindi um þessi
efni og urðu töluverðar umræður um
þau, en einnig unnið i starf shópum.
Jón Kristjánsson flutti fyrsta er-
indi ráðstefnunnar og talaði um nýt-
ingu stöðuvatna, Tumi Tómasson um
nýtingu laxveiðiáa. Finnur Garðars-
son talaði um rannsóknir á íslensk-
um laxveiöiám, Gísli Már Gíslason
um framleiöslu fæðudýra fisks i
Laxá í Suður-Þingeyjarsýslu. Ami
Isaksson talaði um gönguseiðaeldi
og hafbeit, Júlíus B. Kristinsson um
lífeðlisfræði sjógöngubúnings og
Siguröur St.' Helgason og Ulfar
Antonsson um stríöeldi á laxi. Erindi
Stefáns Aðalsteinssonar var um val
á stofnum og kynbætur á laxi og Oss-
urar Skarphéðinssonar um stjómun
kynþroska í laxfiskum.
Sigurður Helgason ræddi um smit-
sjúkdóma i eldisfræöi og sjúkdóma-
vömum, Gunnar St. Jónsson um eit-
urhættu af völdum sjávarsvifþör-
unga, Sveinn Jónsson um fóður lax-
fiska. Hrafnkell Eiríksson talaði um
eldi sjávarlífvera, Guömundur
Bjömsson um hagnýtingu jarö-
varma til fiskeldis og Ulfar Antons-
son um stöðu og hugsanlega þróun
mateldis á Islandi.
Ráðstefna þessi var tímabær og
var að heyra á fundarmönnum, að
þeim hefði fundist hún nauðsynleg og
og fróðleg.
I lok ráöstefnunnar var eftirfar-
andi ályktun samþykkt:
1. Að nýting silungs í stöðuvötnum
kalli á talsvert þróunarstarf og
rannsóknir varðandi afkastagetu
vatnanna og heppilegar ódýrar
veiöiaðferðir.
2. Aö talsveröir, litt kannaðir mögu-
leikar séu á nýtingu sjóbleikju og
sjóbirtings og þurfi að auka rann-
sóknir.
3. Að auka þurfi rannsóknir á burð-
argetu laxveiðiáa og rannsóknir
varðandi heppilega ásetningu
laxastofna. Ennfremur varðandi
nýtt landnám á ófiskgengum hlut-
um ánna. Brýnt er að auka sam-
vinnu þeirra sem fást við slíkar
rannsóknir, t.d. Veiðimálastofnun
og Líffræðistofnun Háskólans.
-G. Bcnder
Verðlækkanír Verðlækkanir
Endalausar verðlækkanir - Stórkostlegar verðlækkanir.
INGVAR HELGASON HF
Sýningarsalurinn/Rauðagerði, simi 33560.
Munið bílasýningar okkar í sýningarskálanum við Rauðagerði laugardaga
og sunnudaga kl. 14—17.
Tökum flesta
notaða bíla
upp í nýja.
Þetta eru ekki kjarabætur.
Þetta eru peningar beint í lommen
Við tökum dæmi og þú getur sjálfur reiknað útjiína „Lommepenge"
t
SUBARU JUSTY 5 dyra fólksbíll
fjórhjóladrifinn. Kr. 36^100. Nú kr.
342.000. Stgr. 322.000.
SUBARU 1,8 GL station, fjórhjóla-
drifinn. Kr. 59M)00. Nú kr.
576.600. Stgr. 556.600.
Væntanlegur SUBARU 1600 DL,
fjórhjóladrifinn, station, Kr.
495.000. Stgr. 475.000.
Þetta eru aðeins örfá dæmi. Lækkunin nær til allra okkar bíla
og mundu að hjáokkur er fjölbreytnin mest og kjörin best.
NISSAN CHERRY 1000. Kr.
327:900. Nú kr. 316.000. Stgr. kr.
296.000.
NISSAN CHERRY 1500 GL. Kr.
382.000. Nú kr. 369.300. Stgr. kr.
349.300.
NISSAN BLUE BIRD 2000 GL 4ra
dyra fólksbíll. Kr. 569^900. Nú kr.
552.800. Stgr. 532.800.
NISSAN LAUREL2,8SGLdísil.4ra
dyra fólksbíll kr. 755:700. Nú kr.
734.300. Stgr. 714.300.
NISSAN PATROL dísil 7 manna
jeppi. Kr. 973:300. Nú kr. 948.000.
Stgr. kr. 928.000.
NISSAN SUNNY 4ra dyra fólks-
bíll. Kr. 408:400. Nú kr. 392.400.
Stgr. kr. 372.400.
NISSAN SUNNY 4ra dyra station
kr. 493:800. Nú kr. 420.200. Stgr.
kr. 400.200.
Væntanlegur NISSAN SUNNY
sendibíll 1,3 I. Verð kr. 272.100.
Staðgreiðsluverð kr. 260.000.