Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1985, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1985, Page 6
6 DV. MÁNUDAGUR18. FEBRUAR Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Hvert skal halda í sumaríeyfi? líður og jafnframt virðast íslendingar fara meira út fyrir landsteinana frekar en hitt. Neytendasíðan heimsótti ferðaskrifstofurnar til að athuga hvaö ferðalöngum byðist í ár — sérstaklega ætlum við þó að athuga nýja ferðastaði hjá f jórum ferða- skrifstofum á Reykjavíkursvæðinu: Útsýn, Úrvali, Samvinnuferðum — Landsýn og Atlantik. Ferðabæklingar ferðaskrifstofa hér á landi eru nú flestir hverjir komnir út og eru nú mikið lesnir á meðal Islendinga þessa dagana. Úrvalið er fjölbreytt og nýjungar skjóta upp kollinum hjá ferðaskrifstofunum á hverju ári og er árið 1985 ekki undanskilið. Fjölbreytnin eykst með hverju árinu sem Samvinnuferðir-Landsýn: Ahersla á lifandi sumarleyfi Á meöal nýjunga hjá Samvinnuferð- um-Landsýn eru sjálfstæðar leiguflug- ferðir til Rhodos, nýr sæluhúsastaður í Hollandi, ný sumarhús í Danmörku og leiguflug til Salzburg. Haldiö veröur áfram aö bjóða upp á hefðbundna áfangastaöi Samvinnuferða-Landsýn- ar eins og Rimini-Riccione, Grikkland, Dubrovnik í Júgóslavíu, Sovétríkin, Kanada og Norðurlöndin. Efnt verður til fimm mismunandi rútuferða, bíla- leigubílar eru í boði í Kaupmannahöfn, Amsterdam og Salzburg, orlof aldraðra er á dagskránni o.fl. Mikill áhugi virðist vera meðal al- mennings á Rhodos, en Rhodos hefur verið tískustaður meðal ungmenna á Norðurlöndum. I sumar ráögerir Sam- vinnuferðir-Landsýn sex leiguflugs- ferðir þangað og er hámarksfjöldi um 780 manns. I sumar tekur nýr sæluhúsakjami, Meerdal, við af sæluhúsunum í Eeem- hof. Aöstaðan í Meerdal er öll svipuð þeirri sem íslensku farþegamir eiga að venjast í Kempervennen en þangað veröur áfram fariö í sumar. I sumar er í fyrsta sinn boðið upp á sumarhús i nágrenni Gilleleje í Dan- mörku, en þau hús leysa Karrebæks- minde af hólmi. Farþegarnir koma til með að dveljast í nýjum einbýlishús- um og er aðbúnaöur hinn besti. Sumar- húsin í Karlslunde eru áfram í boöi, en einmitt þar hófst Danmerkurævintýri Samvinnuferða-Landsýnar fyrir nokkrum árum. Bæklingur Samvinnuferða-Landsýn- ar gengur undir nafninu „Lifandi sum- arlcyfi”. Á hverjum áfangastað er boð- iö upp á fjölda viöfangsefna, gengist fyrir kennslu og keppni farþeganna í tennis á einum staönum, bowling á öðrum, seglbrettasiglingum o.fl. eftir því hvað hentar á hverjum stað. Sér- stök áhersla verður lögð á að leigja ýmsa íþrótta- og leikaöstöðu á ákveön- um tímum eingöngu fyrir islenska far- þega. J1 m---------------- Eyja sólguðsins Helíos — Rhodos — hefur verið eftirsótt- ur ferðamannastaður. Eyjan sólrika er 77 km löng og 35 km breið. Samvinnuferðir-Landsýn bjóða nú ferðir til Rhodos. £EZ7 '< r Ferðaskrifstofan Urval: Opin leið til Frakklands Frakkland ber hæst af nýjungum ferðaskrifstofunnar Úrvals. Flogið er til Marseilles og þaðan er ekið til tveggja staða: til Rivierunnar eða til Cape d’agde, sem er meiri fjölskyldu- staður heldur en hinn. Urval útvegar sumarhús fyrir fólk sem er á eigin vegum í sjö Evrópulönd- Nú geta Islendingar dvalist ó frönsku Rivierunni i sumarleyfi sínu. Úrval býður upp é ferðir þangað og tii Cape d’agde í Frakklandi einnig. Rivieran verður aldrei talin með ódýrustu sumarleyfisstöðum enda er nafnið tengt ósjálfrátt við lúxus, segir í baeklingi Úrvals. um: Austurríki, Bretlandi, Danmörku, Svíþjóð, Noregi, Frakklandi og Þýska- landi. Rútuferðir Úrvals um Mið-Evrópu hafa öðlast miklar vinsældir á undan- förnum árum. Boðið verður upp á tvær fjórtán daga ævintýraferðir og eina fimmtán daga um Þýskaland, Sviss, Frakkland, Austurríki og Lúxemborg. Einnig verður farin fimmtán daga rútuferð um Austurríki, Italíu, Júgó- slavíu, Ungverjaland og Tékkóslóv- akíu með áherslu á menningar- og listaborgina Vín. Tvær átta daga vínuppskeruferðir verða farnar um vínhéruðin í Þýska- landi. Ekið veröur meðfram Rín og Mósel með viðkomu í helstu bæjum og borgum þar sem innfæddir fagna upp- skerunni. Urval og Norræna félagiö hafa gert með sér samning, þar sem Urval skipuleggur ferðir tU Norður- landa fyrir félagsmenn Norræna fé- lagsins og er jafnframt veittur 5 prósent afsláttur af ferðum til félags- manna. Áfram verður boðið upp á ferðir Ur- vals til Ibiza, eyju í Miðjarðarhafinu mitt á milli Spánar og Mallorca. Mall- orcaferðir veröa líka í boði hjá Urvali. Ferðamátinn „Flug og bíll” býðst til sautján borga í tólf löndum. Farin verður sérstök hópferö á Evrópumót hestamanna sem f ram f er í Svíþj óð dagana 13.—19. ágúst. Auk þess sem upp er talið hér að framan er ýmislegt annað í gangi hjá Urvali, til dæmis Rómarferðir, tungu- málanámskeið í Frakklandi og Eng- landi, lystilegar Parísarvikur, íþrótta- ferðir til Skotlands, Englands og Holl- ands, golfferð til Mallorca og Skot- lands svo eitthvað sé nefnt. JI r Ferðaskrifstofan Utsýn: Grikkland og enska Rivieran Grikkland og enska Rivieran eru á meðal nýjunga ferðaskrifstofunnar Utsýnar í sumar. Kristín Aðalsteins- dóttir deildarstjóri hjá Utsýn, sagöi að skoðanakönnun hefði verið fram- kvæmd sl. nóvember til að grafast fyrir um óskir viðskiptavina um ferða- val og ferðamáta. „Yfir 2000 svör bár- ust og vildu um 78 prósent eyða sumar- leyfi sínu í Suðurlöndum þar sem veðrið væri öruggt. Um 30 prósent af þeim vildu fara til Spánar. Síðan komu ttalía og Grikkland næst á óskalistan- um, því höfum við hjá Utsýn sett upp ferðir til Grikklands, sem ekki var boð- ið upp á í fyrra.” Ferðirnar eru til Porto Carras og er gistiaðstaðan á nýju hóteli, Meliton Beach, sem stað- sett er á sjálfri ströndinni. önnur nýjung Utsýnar er enska Rivi- eran, en þangað voru Englendingar sjálfir famir að fara í sumarleyfi á síð- ustu öld, að sögn Kristínar. Enska Rivieran er staðsett á Suður-Englandi og er um 30 km strönd í Devon. Utsýn mun halda hefðbundnum ferð- um sínum áfram svo sem Costa del Sol, sem hefur upp á margt að bjóða handa íslenskum ferðamönnum. Portúgal og ítalía eru sívinsælir staöir á meðal Is- lendinga og eru jafnframt góðir fjöl- skyldustaðir. Italía heillar þó sérstak- lega hvað varðar sögu og list. Kristín sagði að tvær heimsreisur væru áætlaöar seinna á árinu. I nóvember er sjötta heimsreisan á dag- skrá og að þessu sinni er ætlunin að endurtaka Kenýa-ferð, en slík ferð var farin 1982 fyrst. I heimsreisuklúbb Út- sýnar eru nú um 400 meölimir. Utsýn er með á sínum snærum sum- arhús í hjarta Mið-Evrópu, i Rinarlönd- um. Einnig býður Utsýn upp á flug og bíl og flakk á eigin vegum, eins og flestar aðrar ferðaskrifstofur. Tungu- málanámskeið eru í gangi víðsvegar um heim og annast Utsýn bókanir varðandi flug og annaö í samræmi við dvölina. Tólf daga rútuferð verður farin um Vestur-Noreg 19. júlí, fimm landa ferð í 15 daga verður farin 8. júní, og 19 daga ferð verður farin um Austur-Evr- ópu 10. ágúst. JI m---------------► Porto Carras í Grikklandi — staður sem Útsýn býður upp á á Sithonia-skaga. Hótelið, sem islendingar koma til með að búa á, er þetta glœsilega hótel til vinstri á myndinni og heitir það Meliton Beach.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.