Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1985, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1985, Side 7
DV. MÁNUDAGUR18. FEBROAR1985. 7 Neytendur Neytendur Neytendur Feróaskrifstofan Atlantik: Aukning f Mallorcaf erðum „Okkar vinsælustu og síungu feröir eru Mallorcaferðir og munum við koma til meö að auka þær í sumar,” sagði Böðvar Valgeirsson, forstjóri feröaskrifstofunnar Atlantik. „Fyrstu ferðimar til Mallorca verða páskaferðir. Boðið verður upp á nýjan dvalarstað í Sviss rétt sunnan við Ziirich, nánar tiltekiö við Vierwald- stattervatn.Þar er boðið upp á íbúða- hótel og verða fyrstu ferðimar famar um páskana. Þar er einnig skíðaað- staða sem hægt er að nota í allt sum- ar.” Atlantik býður upp á flug og bíl til flestra Evrópulanda. Einnig verða tvær skipsferðir: önnur í vor og hin í haust. Vorsiglingin verður um austur- hiuta Miðjarðarhafsins og verður farið með ítölsku skemmtiferðaskipi. Síðari siglingin — haustsiglingin — verður með amerísku skemmtiferðaskipi og verður farið um Karíbahafið. Böðvar sagði að almenna reglan viö fjármögnun ferðanna hjá Atlantik væri helmingur verðsins út og helmingur á nokkrum mánuðum eftir ferðina — eft- ir samkomulagi. fl Brauðrasp íhvelli Ef ykkur vantar skyndilega rasp er hægt að búa þaö til á stundinni ef tvíbökur eða þurrkað brauö er til á heimilinu. Hægt er að láta tvíbökumar í þykk- an plastpoka og mylja þær með kökukeflinu. Þá losnar maður við raspmylsnu út um allt eldhús. Annars er gott ráö að láta alla brauðenda í ofnskúffuna og þurrka við mjög lítinn straum. Einnig má láta brauðendana þurrkast í ofninum á meðan hann er að kólna eftir notkun. Þegar komið er verulegt magn af þurrkuðum skorpum og endum er hægt að taka fram hakka- vél, blandara eða eitthvert annað slíkt tól og búa til rasp. Langbest er að blanda samam öllum mögulegum tegundum af brauðéndum. A.Bj. Þvotturinn ífrystikistuna Fyrir kemur að dúkur eða sængur- ver ofþornar áður en búið var að strauja. Þá er gott ráð að brjóta það vel saman og stinga í frysti i einn eða tvo klukkutíma. Þá verður strauningin leikur einn. Ef fyrirsjáanlegt er að ekki verður lokið við að strauja þvottinn á meðan hann er hæfilega rakur er gott ráð að geyma hann einfaldlega í frystikist- unni þangaö til færi gefst á að strauja. A.Bj. Andlitslyfting blómapottanna Leirpottar undir stofublómin eru miklu fallegri en plastpottarnir, en það vill stundum setjast mygluskán utan á þá. Á þessu má ráða bót með því að þvo pottana vel í sápuvatni og bera á þá lag af parafínolíu. Þeir halda sér lengi eftir þessa meðferð. A.Bj. Málningíkrús Gekk eitthvað af málningunni af síðast þegar þú málaðir stofuna hjá þér? Láttu málninguna í glerkrús með skrúfuðu loki og láttu krúsina standa á lokinu. Þá kemur ekki skán á máln- inguna. Ef þetta er blandaður litur skaltu skrifa blönduna (annars lita- númerið) á lokið til þess að auðvelt sé aö fá aftur nákvæmlega sama lit. A.Bj. Uppþvottaefni íflösku Gott ráð fyrir þá sem eiga upp- þvottavél. Tæmið pakkann með upp- þvottaefninu á hreina og þurra flösku með skrúf uðum tappa. Þannig helst uppþvottaefniö þurrt og engin hætta á að þaö fari út um allt þó flaskan velti um koll. Það er einnig handhægara að hitta á sápu- hólfið í uppþvottavélinni með flösku- stútnum en beint úr pakkanum. A.Bj. LAGERSTARF Bifreiðavarahlutaverslun óskar að ráða lagermann til starfa nú þegar. Upplýsingar um aldur og fyrri störf send- isttil auglýsingadeildar DV, Þverholti 11, fyrir22. febrúar merkt „B-500". TIL HÚSGAGNA- FRAMLEIÐSLU ÚTBOÐ Viö byggjum nýja húsgagnaverksmiöju aö Hesthálsi 2-4 Reykjavík, og þurfum að bæta við vélakosti. Við viljum vekja athygli umboðsmanna og fyrirtækja sem gætu haft áhuga á að selja okkur nýjar eða lítið notaðar vélar á eftirtalinn lista. - 1 KRISTJflfl SIGGEIRSSOfl HF. yrjunviku Vörumarkaðs veisludisk vegsamar góður kokkur. í byriun viku borðið fisk úr borðunum hjá okkur. Fiskur er besta fæði, fiskur er atéiört æði VÖRUMARKAÐURINN ÁRMULA EIÐISTORGI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.