Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1985, Side 8
8
, DV. MANUDAGUR18. FEBRUAR1985.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Kanadískt
leyfiþarf
• Eftir birtingu fréttarinnar í New
York Times þar sem sagt er aö skjöl
sem sanni aö Bandaríkjamenn
haföi áætlanir um aö flytja kjam-
orkusprengjur til Kanada, Islands
og annarra ríkja á hættutímum
hefur Kanadastjórn lýst því yfir að
samþykki hennar sé nauðsynlegt
til aö áætluninni sé hrint í fram-
kvæmd.
Utanríkisráðherra Kanada, Joe
Clark, sagöi þetta í svari við endur-
teknum spumingum stjórnarand-
stöðunnar.
Samkvæmt skjalinu sem Wiiliam
Arkin sýndi kanadiskum yfirvöld-
um í byrjun janúar og Reagan for-
seti á að hafa undirritað hyggjast
Bandaríkjamenn flytja 32 kjam-
orkudjúpsprengjur til Kanada.
Bandaríska sendiráöið í Ottawa
segir rangt aö þaö hafi reynt aö
þrýsta á Kanadastjóm að leyfa
slíkan flutning á kjamasprengjum.
Finnska
lömunarveikin
rannsökuð
Heilbrigöisstofnanir þriggja
landa ætla aö hjálpa Finnum viö
rannsókn á lömunarveikitilfellum
sem vart hefur orðið í Finnlandi.
Þegar hefur einn 17 ára gamall
strákur látist úr sjúkdómnum.
Fimm aörir, aö minnsta kosti, hafa
fengiö veikina síöan í október.
Fyrsta tilfellisins varö vart í
Lapplandi i Noröur-Finnlandi.
Finnar hafa hafiö baráttu gegn
lömunarveikinni, en þetta er i
fyrsta sinn í 20 ár sem hennar hef ur
orðið vart. A aö sprauta alla lands-
menn gegn henni. Löndin þrjú, sem
ætla aö hjálpa Finnum, eru Banda-,
ríkin, Bretland og Holland.
Táragas
áKanaka
Ellefu manns meiddust, þar af
tveir alvarlega, í fyrstu átökum
Kanaka og lögreglu á Nýju-Kale-
dóníu. Þetta eru fyrstu átökin þar í
meira en mánuö.
Atökin byrjuöu eftir aö hvítir
hægrisinnar ákváöu að halda
strandveislu nálægt bænum Thio,
þarsemmikiö er um Kanaka, eöa
innfædda Melanesa. Þegar Kanak-
ar réðust að bleikandlitunum
skarst lögregla í leikinn og notaði
táragas og kylfur á Melanesana.
Arásarmennimir voru um 50 en
hvítu innflytjendurnir voru fleiri en
200.
Mynduðu loftnet
Tveim bandarískum stjómar-
erindrekum, sem fengu reisupass-
ann frá Spáni fyrr í þessu mánuöi,
var vísað úr landi fyrir að mynda
loftnet á þaki forsætisráöherrahall-
arinnar. Þaö var dagblaöiö E1 Pais
sem skýrði frá þessu um helgina.
Mennimir tveir voru handteknir
glóövolgir þar sem þeir voru að
mynda loftnetin frá glugga stafns
nokkurs í grennd viö höllina.
Ætlunin mun hafa verið aö kanna
kraft og bylgjulengd hinnar leyni-
legu fjarskiptamiðstöövar Spánar-
stjómar.
Hótaaðloka
herstödvum
Embættismenn varnarmála-
ráðuneytisins í Bandaríkjunum
segja að þeir íhugi nú aö loka her-
stöðvum Bandaríkjamanna í
Gríkklandi. Þeir segjast vera orðn-
ir langþreyttir á Bandaríkjahatri
Papandreous forsætisráðherra.
Þeir nefna einnig barsprenginguna
nálægt einni herstööinni sem þátt í
hugsanlegri ákvöröun aö loka her-
stöövunum.
Ef ekki er bara ætlunin aö skjóta
Grikkjum skelk í bringu með þess-
um yfirlýsingum er talið líklegast
aö herstöðvamar veröi fluttar yfir
á land erkióvina Grikkja, Tyrk-
lands.
Falklandseyjamálið íbreska þinginu:
Hörö rímma í uppsigl-
ingu fyrír Thatcher
Thatcherstjómin þarf í dag að svara
í breska þinginu ásökunum stjómar-
andstöðunnar um aö hafa logiö til um
tildrög þess aö argentinska herskipinu
Belgrado var sökkt í Falklandseyja-
stríöinu fyrir þrem árum. — Það reið
á sínum tima baggamuninn um aö
sáttartilraunir fóm út um þúfur og
stríðiö komst í algleyming.
Krafist er afsagnar Michael
Hesultine vamarmálaráöherra og
John Stanley sem honum stendur næst
í hermálum. — En samkvæmt leyndar-
skjölum sem opinber starfsmaður,
Clive Ponting, lak til stjómarand-
stæðings i júli síðasta sumar haföi
argentínska herskipiö verið 11 stundir
á siglingu heim á leið þegar kaf-
báturinn sökkti því. Thatcher forsætis-
ráöherra haföi fullyrt í sjónvarps-
viötali i mai 1983 aö herskipið heföi
ekki veriö á leiö frá Falklandseyjum.
Poting var ákæröur fyrir aö
bregðast þagnarskyldu opinberra
starfsmanna og eftir aö hann lét af
störfum í vamarmálaráðuneytinu hóf
hann greinaskrif í blöð um hvaö stjóm-
endum í ráðuneytinu hafði farið á milli
í málinu. Hefur hann eftir John Stanley
á einhverjum fundinum í ráöuneytinu
um málið: „Eg held við ættum aö
flokka þetta allt undir trúnaðarmál og
neita aö svara spumingum um þaö.”
— Ponting var á dögunum sýknaöur
fyrir réttinum af ákærunum.
Talsmaöur ráöuneytisins segir að í
umræðunum í þinginu í dag verði gerö
full grein fyrir afbökunum og útúr-
snúningunum, mál þetta sé byggt
á. En búist er við þvi að mikill hiti
veröi í umræðunum í neöri mál-
stofunni.
.Andstæðingar Thatchers forsætis-
ráöherra halda því fram að hún og
stjóm hennar hafi blákalt att Bretum
út í styrjöld og blóösúthellingar til þess
aö leiða athygli almennings frá vanda-
málunum heima fyrir. Jukust enda
vinsældir Thatchers mjög eftir
sigurinn yfir Argentínumönnum.
Fundu leyni-
skjöl heima
hjáTreholt
Jón Einar, Osló.
Rannsóknarnefnd norska utanríkis-
ráðuneytisins hefur komist að því aö
Ame Treholt hafði orðið sér úti um
ljósrit af leyniskjölum sem hann haföi
fengið lánuö hjá starfsfélögum sinum.
— Nefnd þessi var sett á laggimar
þegar Treholt var handtekinn fyrir
rúmu ári.
Samkvæmt upplýsingum norska
Dagbladet í dag fann lögreglan fjölda
leyniskjala í íbúð Treholts í Osló fyrir
ári. — Af því viröist sem Treholt hafi
notfært sér kunningjana til þess aö
komast yfir leyniskjöl sem annars
féllu ekki undir hans verksvið.
Akæruvaldsins er síðan að sanna
hvort Treholt hefur látið erlendum
ríkjum þessi leyndarmál í té en hann
hefur sjálfur ávallt þrætt fyrir og
segist hafa tekiö skjölin meö sér heim
til yfirlestrar.
Sidonbúar tóku ó móti Gemayel
með gífurlegum fagnaðarlétum
þegar hann heimsótti baeinn.
ísraelsmenn höfðu haldið bœn-
um í tœp þrjú ór. Gemayel for-
seti svaraði bœjarbúum með
sigurmerki.
FARNIR FRA SIDON
Gífurlegur fögnuður í borginni við
heimsókn Gemayels
Forseti Líbanons, Amin Gemayel,
var borinn í gullstóli um götur Sídon-
borgar í gærkvöldi þegar hann heim-
sótti borgina eftir aö Israelsmenn
fluttu heri sína þaöan um helgina. Með
Gemayel var Rashio Karami forsætis-
ráöherra.
Líbanonher sendi fámenna her-
flokka inn á svæðiö. Þeir taka viö eftir
32 mánaöa hersetu Israela. Fólk tók af
miklum fögnuðu á móti hernum, for-
setanum og forsætisráöherranum.
Þetta var fyrsta opinbera heimsókn
líbansksforsetatilSídoní40ár. '
Sjónvarpsstöövar kristinna manna
og múhameðskra geröu báöar hlé á
dagskrá sinni til aö sýna sjónvarps-
myndir frá fögnuðinum.
En mikilvægar óánægjuraddir
heyrðust þó. Walid Jumblatt, leiðtogi
drúsa, skoraöi á alla hópa í Libanon aö
velta „hataðri harðstjórn” Gemayels.
Hizbollah flokkur shíta múhameðs-
trúarmanna sagöist stefna aö byltingu
að hætti Irana.
Herlið stjómarinnar yfirtók svæði
allt aö tveimur kílómetrum í burtu frá
hinni nýju víglinu Israela. Þrátt fyrir
fámenni vonast þeir til aö halda því
svæði enda hafi þeir fólkið í borginni
meö sér.
Fyrrum hnefaleikameistarinn
Muhammad Ali varð að hverfa frá
Beirút eftir misheppnaöa tilraun til að
fá fjóra Bandaríkjamenn leysta úr
haldi. Þaö eru Hizbollah-menn sem eru
taldir halda Bandaríkjamönnunum.
Ásakaður um pyntingar
Fró Árna Snævarr, fróttaritara DV i
Lyon:
Jean-Marie Le Pen, foringi Front
National i Frakklandi, hefur ásakaö
vinstri öflin, með ríkisstjómina og
blaðið Liberation i broddi fylkingar,
um aö hafa skipulagt samsæri gegn
sér. Blaðiö Liberation birti á þriðju-
daginn var ásakanir fimm nafn-
greindra Alsírbúa á hendur Le Pen um
pyntingar er hann gegndi herþjónustu
á Alsír 1957.
Þrœtir fyrir
Le Pen hefur mótmælt ásökunum
blaösins en oröið æriö tvísaga um ein-
stök atriöi þeirra. Vill hann ekki viður-
kenna að franski herinn hafi beitt pynt-
ingum heldur einungis mjög ákveðn-
um aðferðum í yfirheyrslu. Er
baráttan við alsírska sjálfstæöissinna
stóösemhæst.
Daginn áöur en Liberation birti
ásakanir fimmmenninganna lýsti
Poperen, annar æðsti maður Sósíalista-
flokksins, því yfir að ríkisstjórnin og
flokkur hans ættu héðan í frá í stríöi viö
Front National. Hefur þetta oröiö Le
Pen tilefni til aö ásaka Liberation um
aö taka þátt i samsæri gegn sér meö
stjóminni. Liberation er eitt víðlesn-
asta blað Frakklands, einkum meðal
ungs menntafólks til vinstri í stjóm-
málum, en verður seint taliö stjómar-
blað.
Skotmark kommúnista
Le Pen hefur lýst því yfir að flokkur
hans sé nú hættulegasti andstæðingur
sósíalista og kommúnista og því sé
hann nú aðalskotmark þessara afla.
Hann sagöi orörétt á blaðamannafundi
á dögunum: „Liberation er málgagn
glæpamennsku, kynvillu og hryðju-
verka sem nota aðferðir sem eru jafn-
gamlar mannkyninu, meiöyröi.lygi og
skítkast. Ásakanir blaðsins eru svip-
aðar og ég fengi þrjár manneskjur til
að lýsa því yfir opinberlega að forseti
lýðveldisins hefði látiö ríða sér í rass
úti í Bouloide-skógi á jólanótt. ”
Len Pen hefur stefnt Liberation fyrir
meiðyrði.
5 mánaða rannsókn
Liberation fyrir sitt leyti hefur lýst
yfir aö þaö standi viö frétt sína. Hefur
blaöið fullyrt að rannsókn málsins hafi
staöiö yfir í fimm mánuöi og ekkert
samband sé milli birtingar fréttarinn-
ar og stríðsyfirlýsingar Poperens.
Alsírsku fimmmenningamir sem
ásaka Le Pen voru allir meölimir í
Sjálfstæðishreyfingu Alsírs. Sumir
þeirra að minnsta kosti tóku þátt i
hryöjuverkum í Alsírstríðinu. Sjálf-
stæöishreyfingin, sem nú er við völd í
Alsír, hefur lýst því yfir að máliö sé
franskt innanríkismál sem hún skipti
sér ekki af. Raunar var dreifing þess
eintaks Liberation sem birti ásakan-
imar ekki leyfð í fyrstu í Alsír.