Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1985, Side 16
16
DV. MANUDAGUR18. FEBROAR1985.
HVAR SKAL GREIÐA
BIFREIÐASKATT?
Bifreiðastjóri skrifar.
Fyrir nokkrum árum var tekin upp
sú ánægjulega nýbreytni aö Bifreiða-
eftirlitiö í Reykjavík tók viö greiðslu á
bifreiðaskatti um leið og menn færðu
bifreiðar sínar til skoðunar. Fyrir
nokkru fór ég með bifreið þangaö til
skoðunar sem ekki væri í frásögur fær-1
andi nema vegna þess að þá brá svo I
við að ekki var tekið við greiðslu bif- j
reiðaskatts. Þegar ég innti afgreiðslu-
mann eftir hverju þetta sætti, þá var
upplýst aö það væri ekki sama hvaða
gjaldkeri væri á vakt, einn tæki við
skatti en annar ekki.
Heiðar Viggósson, skrifstofu-
stjóri Bifreiðaeftirlitsins:
„Við höfum reynt að taka hér við bif-
reiðaskattinum í ár til hagræðis fyrir
þá sem vildu borga hann um leiö og
þeir færu með bilinn í skoöun. Hins
vegar er ætlast til þess að bifreiða-
skatturinn sé greiddur hjá tollstjóra.
Og nú þegar giróseðlar hafa verið
sendir út þá ætti ekki að vera neitt því
til fyrirstöðu að menn gerðu það.
En ég kannast ekki við það að það
væri misjafnt eftir því hvaða gjaldker-
ar væru á vakt hvort tekið væri við
þessari greiðslu eða ekki.”
Bifreiðareiganda finnst slaemt að Bifreiðaeftirlitið skuli ekki taka á
móti greiðslu bifreiöaskatts. „Ætlast er til að skatturinn sé
greiddur hjé tollstjóra," segir Heiðar Viggósson, skrifstofustjóri
í Bifreiðaeftirlitínu.
Ævar Guðjónsson: Mér finnst
Stundin okkar góð. Bjössi bolla er
minn maöur. Svo eru hljómsveitirnar
lika góðar.
Anna Dóra Heiðarsdóttir: Stundin
er alveg ágæt. Mér finnst Bjössi bolla
skemmtilegur og svo er gaman að
horfa á Smjattpattana.
Walter G. Grímsson: Mér finnst
íún fín. Mér finnst hljómsveitimar
:em koma og spila skemmtilegastar.
Hín uppáhaldshljómsveit er samt
Vham!
„Rómversk glíma vin-
sælt sjónvarpsefni”
Bergur Bjömsson, Ásbúð 48,
skrifar:
Við nýliðið kjör iþróttamanns ársins
og skoöanaskipti lesenda DV þar um,
hefur rifjast upp afrek Bjama
Friðrikssonar júdókappa á OL í Los
Angeles. Eg ætla ekkert að tjá mig um
þetta kjör sem er búið og gert, en hitt
er annaö aö ég bíö ennþá eftir þvi aö
sjónvarpið sýni okkur allar glímur
Bjama frá OL og gjama nokkrar
valdar glímur að auki. Eg tel alveg
vafalaust aö þetta efni sé til á myndum
og trúlega ekki dýrt aö þessum tíma
liðnum.
Ef svo ólíklega tækist til að
sjónvarpið gerði eitthvað í þessu máli
þá væri alveg tilvaliö að fá um leið svo
sem klukkustundar þátt með róm-
verskri glimu sem ég tel að sé vinsælt
sjónvarpsefni samanber þætti sem
mikið var horft á í Kanasjónvarpinu á
sínum tíma.
Meðal annarra orða? Hefur
sjónvarpið eitthvað fyrir sér í því að
það sé vinsælt sjónvarpsefni að horfa á
hvern skíðamanninn eftir annan í
keppni við klukku eða þá dýfingar þar
sem líka er einn keppandi í einu að ekki
sé nú talað um tímalengd þessara
þátta í dagskránni?
Ester Ýr Steinarsdóttir og
Matthildur M. Björgvinsdóttir:
Okkur finnst Stundin góð eins og hún
er. Smjattpattamir em frábærir og
svo er Bjössi bolla skemmtilegur líka.
Hvernig finnst þér
Stundin okkar?
Helga Albertsdóttir: Mér finnst
hún skemmtileg. Mér finnst hljóm-
sveitimar bestar og líka Smjattpatt-
arnir.
Kratar sýna kotungshátt:
Bænarskjal til Noregs?
„Margt er það í koti karls, sem
kóngs er ekki í ranni,” var sagt í
einni sögunni. Nú er það liðin tíð hjá
okkur Islendingum. — Nú á aö sækja
allt sem okkur vanhagar um til Nor-
egs.
Krataþingmaöur úr Keflavík
kveður upp úr um þaö á Alþingi að öll
okkar ógæfa sé þvi aö kenna að norsk
stjómvöld hygli svo sjávarútvegi
þar í landi að við fáum ekki rönd við
reist og hvetur til mótmæla við sendi-
ráð og á ráðherrafundum til að
krefjast þess aö Norðmenn breyti
um stefnu í innanlandsmálum
sinum!
Erum við Islendingar að verða
algjörir aumingjar og afstyrmi?
Þessi nýi kratakúltúr i fullkomnum
aumingjaskap er hámark niðurlæg-
ingar okkar. Auðvitað hafa kratar
alltaf verið flokkur fyrirgreiðslu og
bitlinga en að ætla að ráðskast meö
innanrikismál hjá öörum þjóöum er
fáránlegt.
Það er þó bót í máli að einn eöa
tveir þingmenn hafa mótmælt
þessum hugmyndum sem of margir
virðast styðja.
Okkur Islendingum ætlar, að því
er virðist, ekkert að verða til
bjargar. — Fyrst var það landhelgin.
ÍJtfærsla í 200 mílur. Það átti að
bjarga öllu hér í sjávarútvegi. tlt-
lendingana burt og þá yrði „auð-
lindin”, fiskimiðin að gullnámu á ný.
Aldrei áraði verr en eftir útfærsluna
og brottrekstur útlendinga af mið-
unum. En áfram skal haldið. Kæra
Norðmenn — og Kanadamenn fyrir
að taka fé af landsmönnum til að
bjarga og aðstoða atvinnurekstur í
þessum löndum! — Hvaö myndum
wm
„Nú á að saekja allt sem okkur vanhagar um til Noregs,
Noregi við veiðar.
segir Vestri. — Hér eru bátar frá
við segja, ef Norömenn eða Kanada-
menn kærðu okkur fyrir að verða við
kröfugerðum hinna ýmsu atvinnu-
greina hér á landi um aö útdeila al-
mannafé til hinna ýmsu aðila sem
hvaö haröast þrýsta?
Já, við höfum löngum verið tilætl-
unarsamir, Islendingar, og oft
höfum við farið í heimsóknir til Nor-
egs, með kvæði, með sögur og fallið á
kné fyrir framan kónga og höfðingja
— og þegið ölmusur.
Þessu vilja kratar halda áfram.
Nú í formi algjörrar niöurlægingar
með betlistaf í hendi og hor í nös. —
„Við getum ekkert selt, þið gerið svo
vel við ykkar atvinnuvegi, við erum
smáþjóð, sjáið aumur á okkur, fá-
tækum, smáum”. Boöskapur krata,
árið 1985.
Já, þeir í Keflavík eiga stórhuga
menn í stjórnmálunum eða hitt þó
heldur.
WHAM! hátíð um næstu helgi
Jón Axel hringdi:
Sem einn af starfsmönnum skemmti-
staðarins Traffic get ég nú upplýst að
um næstu helgi verður haldin marg-
umbeðið Wham! hátíð. Á laugardags-
kvöldið verður hátíðin opin fyrir eldri
en 16 ára og eftir hádegi á sunnudaginn
verður opið fyrir yngri en 16 ára.
Þeir sem hafa verið aö biöja um
slíka hátíð á lesendasiöunni aö undan-
fömu ættu því að geta tekið gleði sína.
Bjarni Grímsson: Mér finnst Stund-
in frábær. Hljómsveitin sem söng lagið
um labradorinn var góð. Þetta var
alveg frábært lag.
Bergi finnst tilvalið að fá svo sem klukkustundar þátt í sjónvarpið
með rómverskri glímu.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Spurningin