Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1985, Qupperneq 22
22
DV. MÁNUDAGUR18. FEBRUAR1985.
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
Glóðarauga og
brotnar tennur
• Bjarni Ág. Friðriksson.
Bjarni
annarí
Edinborg
— á skoska
meistaramótinu í júdó
Bjarni Friöriksson varð í öðru
sæti i undir 95 kg flokki ð opna,
skoska meistaramótinu i júdó i
Edinborg á laugardag. Til úrslita
glimdi hann við Robert Fusten-
berger, Austurríki, og tapaði.
Þess má geta að á ólympiu-
leikunum í Los Angeles sl.
sumar tapaði þessi Austurrikis-
maður fyrir ítalanum sem Bjarni
sigraði þar i keppninni um
bronsverðlaunin.
Tveir aðrir islenskir júdómenn
tóku þátt í mótinu í Edinborg,
þeir Guðmundur Sæmundsson
og Magnús Hauksson. Þeir sigr-
uðu i fyrstu umferð en féllu
síðan út.
Stuttgart
lagði IFK
Gautaborg
Stuttgart og sænsku meistar-
arnir IFK Gautaborg léku
vináttuleik i Stuttgart á laugar-
daginn. Leiknum lauk með sigri
Stuttgart, 3—1. Thomas Kempe,
Peter Reichert og Bernd Förster
skoruðu mörk Stuttgart, en
Mats Gren skoraði fyrir Gauta-
borgarliðið.
Mikill kuldi var þegar leikurinn
fór fram og léku margir leikmenn
meö húfur og hanska, og klæddust
síöum buxum. Svíarnir skoruöu
fyrsta mark leiksins — á 8. mín., en
síðan tóku leikmenn Stuttgart leik-
innísínar hendur.
-HO/-SOS.
Heimsmet
í langstökki
Galina Chistyakove, Sovót-
rikjunum, setti nýtt heimsmet i
langstökki innanhúss á laugar-
dag þegar hún stökk 7,25 metra i
Kishinev, höfuðborg Sovétlýð-
veldisins Moldavíu. Eldra metið
átti Heike Daute, A-Þýskalandi,
6,99 m sett i Senftenburg fyrir
góðu ári.
-hsim.
Sögulegur leikur þegar Saarbrucken sló Hannover
út úr bikarkeppninni í V-Þýskalandi
Frá Hilmari Oddssyni, fréttamanni
DVí V-Þýskalandi:
Forráðamenn Hannover hafa far-
ið fram á það við v-þýska knatt-
spyrnusambandiö að leikur liösins
gegn Saarbrucken i 8-liða úrslitum
bikarkeppninnar, sem Saarbrucken
vann 1— 0 á laugardaginn, verði
leikinn aftur. Forráðamennirnir
segja að dómarinn, Manfred Uhlig,
hafi hreinlega skemmt leikinn en
margir dómar hans vöktu reiði leik-
manna liðanna og oft lá viö að
slagsmál brytust út á leikvellinum.
Mikið var um stimpingar og var fyr-
irliða Hannover, Carsten Surmann,
vísaö af leikvelli á 78. min. fyrir
grófan leik.
Einn af leikmönnum Hannover,
Bastian Hallberg, segir að dómarinn
hafi slegiö sig í andlitið þegar Sur-
mann fékk reisupassann, þannig að
hann hafi fengið glóöarauga. Þá segir
Fred Schraub, sóknarleikmaður
Hannover, að Santos Muntubila, bak-
vörður Saarbrucken, hafi slegið sig í
andlitið, þannig að hann hafi misst
þrjár tennur.
Svo mikill æsingur var úti á vellinum
um tíma að þjálfarar liðanna þurftu að
skipta sér af gangi mála.
Leikurinn fór fram við mjög slæmar
Spennu-
leikur
í Bochum
Aðeins þrír leikir
voru leiknir
íBundesligunni
Frá Hilmari Oddssyni, fráttamanni
DV í V-Þýskalandi:
— Aðeins þrir leikir voru leiknir í
Bundesligunni á laugardaginn, þar
sem flestir knattspyrnuvellir hér
voru ísilagðir. 40 þús. áhorfendur
mættu á heimavöll Bochum, þar
sem Schalke náði aö knýja fram
sigur, 1—0. Olaf Thon átti stórleik
með Schalke. Þaö var Klaus Taeu-
ber sem skoraði sigurmark
Schalke. Geysileg spenna var undir
lok leiksins þegar leikmenn Boch-
um gerðu örvæntingarfulla tilraun
til að jafna metin, en þá náðu leik-
menn Schalke að bjarga þrisvar á
marklinu.
Bielefeld lagði Dortmund að velli,
3—0, og virðast dagar Dortmund vera
taldir í Bundesligunni. Það gengur nú
allt á afturfótunum hjá þessu fræga fé-
lagi.
Frankfurt vann góðan sigur, 4—2,
yfir Karlsruhe í þriðja leiknum.
-HO/-SOS.
aðstæður — völlurinn ísi lagður. Það
var Michael Blattel sem skoraöi sigur-
mark Saarbrucken á 73. min.
Rahn hetja „Gladbach"
Borussia Mönchengladbach lagði
Solingen að velli, 2—1, í Solingen.
Hans-Gunther Bruns skoraði fyrst fyr-
ir Gladbach á 44. mín., eftir að rang-
stöðuleikaðferð Solingen hafði brugðist
— Bruns komst á auöan sjó og skoraði
örugglega. Gunter Diekmann jafnaöi,
1—1, fyrir Solingen — með skoti af 10 m
færi á 60. mín. Það var svo Uwe Rahn
sem tryggði Gladbach sigur á 65. mín.
— með skoti af 12 m færi, eftir send-
ingu frá Frank Mill.
Tveimur leikjum varð að fresta í 8-
liða úrslitunum. Það voru viðureign
Uerdingen og Bremen og leikur Lever-
kusen — Bayern Miinchen.
-HO/-SOS.
• Uwe Rahn — tryggði Gladbach sigur i Solingen.
FERRERIREÐST
Á LÍNUVðRÐIWW
— þegar Auxerre tapaði, 0—2, fyrir spútnikliðinu Toulon í Frakklandi
Frá Árna Snævarr, fréttamanni DV í
Frakklandi:
Jean-Marc Ferrari hjá Auxerre,
sem margir telja arftaka Michel
Platini í franska landsliðinu, var
heldur betur í sviðsljósinu þegar
Auxerre tapaði, 0—2, fyrir spútnik-
liðinu Toulon. Ferreri byrjaði á þvi
að klúðra dauðafæri, siðan var
hann felldur inni i vítateig og ekkert
dæmt. Þegar fimm min. voru til
leiksloka varð Ferreri æfur og
réðst á annan línuvörðinn og hrinti
honum. Þá lauk „þætti" Ferreri
sem var rekinn af leikvelli.
Emon og hinn 37 ára Argentínumað-
ur Onnis skoruöu mörk Toulon. Onnis
lætur ekki aldurinn á sig fá — þessi
mikli markaskorari er enn í fullu f jöri.
• Nantes átti stórleik þegar félagið
lagði Tours að velli, 4—0. Það er greini-
legt að leikmenn Nantes eru að ná sér
á strik eftir áfallið sem félagið varð
fyrir fyrr í vetur þegar tveir af leik-
mönnum liðsins létust í bifreiðarslysi.
Það var Júgóslavinn Vahid Hilihodzic
sem skoraði tvö mörk og er hann nú
markahæstur í Frakklandi með 21
mark.
• Brest lagði Bastia að velli, 4—2.
Buscher, sem Stuttgart og Everton
hafa augastað á, skoraði eitt mark í
leiknum og er hann nú markahæsti
leikmaður í Frakklandi, með 15 mörk.
• Bordeaux og París St. Germain
I
I
I
I
Valur mætir FH
Stórleikur verður i kvöld í 1.
deildar keppninni i handknatt-
leik. Þá eigast við efstu liðin í
deildinni, Valur og FH, i Laugar-
dalshöllinni ki. 20. Það þarf ekki
að fara mörgum orðum um það
að leikurinn verður örugglega
tvisýnn og spennandi.
I
I
I
I
léku ekki um helgina. Bordeaux er efst
í Frakklandi með 29 stig eftir 24 leiki
og síðan kemur Nantes með 36 stig eft-
ir jafnmarga leiki. Toulon er með 21
stig eftir 25 leiki og Auxerre er með 30
stig.
-AS/-SOS
• Hilihodzic —
mark.
hefur skorað 21
Gunde Swai 1
í fyrsta sæl ■ :s
— í heimsbikarkeppninni í skíðagöngu
Sænski skiðagarpurinn Gunde
Swan treysti stöðu sina í stiga-
keppni heimsbikarsins ■ norrænum
greinum þegar hann sigraði í 15 km
skíðagöngu við Witoscha Gebirge i
Búlgaríu á laugardag. Það var eftir
harða keppni við tvo Norömenn.
Gunde Swan hefur nú hlotið 97 stig í
stigakeppninni. Næstir eru Norð-
mennimir Pal-Gunnar Mikelplas með
84 stig, Ove Aunli 82 stig og Thor-
Hákon Holte með 77 stig. 1 fimmta sæti
er Finninn Kari Harkönen með 73 stig
og sjötti Thomas Wassberg, Svíþjóð,
meðölstig.
Urslit í skíðagöngunni í Búlgaríu
urðu þessi.
1. GundeSwan, Svíþj., 41:06,5
2. Thor-Hákon Holte, Nor., 41:15,1
3. P-G. Mikelplas, Nor., 41:27,0
4. Uve Belman. A-þýsk., 41:54,9
Það vakti athygli að Wassberg varð
aðeins í 12. sæti á 42:33,6 mín. og rétt á
undan honum varð þekktasti göngu-
maður Sovétríkjanna, Alexander
Batyuk, á 42:31,4 mín. -hsim.
íþróttir
íþróttir
Iþróttir
íþróttir