Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1985, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1985, Page 23
DV. MÁNUDAGUR18. FEBRÚAR1985. 23 íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir Þrettán var ekki óhappa- talahjá Njarðvíkingum — sem lögðu Hauka að velli, 76—73, í úrvalsdeildinni íkörfuknattleik í Njarðvík Þrettán reyndist UMFN ekki nein óhappatala í leik þess við Hauka i úrvalsdeildinni um helgina. Tólf sinnum í röð hafa þeir sigrað Haukana og bœttu nú við þrettánda sigrinum. Að venju var mjótt á mununum og úrslitin ekki ráðin fyrr en á lokasekúndunum þogar Valur Ingimundarson skoraði þriggja stiga körfu með glæsilegu lang- skoti. ívar Webster svaraði með körfu á lokasekúndunni en það dugði ekki til því að stig heima- manna voru orðin 76, en Haukanna 73. UMFN hafði 10 stiga forustu í hálfleik, 47 - 37. Fyrri hálfleikur var spilaöur af mikl- um krafti og fjöri. Bæði liöin sýndu sínar bestu hliðar, nema hvaö heima- menn voru öllu hittnari en gestirnir og höföu náö 10 stiga forskoti í hléi og munaði þar nokkru að Valur hafði skorað þriggja stiga körfur fjórum sinnum, af þeim 14 sem hann skoraði i fyrri hálfleik. Hreiðar Hreiðarsson var með sömu tölu. Ivar Webster var hins vegar með mestu skorun, 18 stig í fyrri hálfleik, þótt hann væri óhittinn framan af. Allt gekk á afturfótunum hjá UMFN í byrjun seinni hálfleiks. Isak og Valur Staðan í 2. deild Tveir leikir voru háðir í 2. deild karla á íslandsmótinu í handknatt- leik á föstudagskvöld. Úrslit urðu þessi: Ármann — Haukar 21—25 Grótta — Fylkir 20—21 Staðaner núþannig: KA 10 9 0 1 235-192 18 Fram 10 8 1 1 242-200 17 HK 11 7 1 3 225-213 15 Haukar 12 6 0 6 271-276 12 Ármann 12 4 0 8 258—266 8 Fylkir 11 3 2 6 216-235 8 Grótta 12 2 3 7 250-267 7 Þór.Ak. 12 2 1 9 243-288 5 -hsfm. fengu fljótlega fjórðu villuna og voru teknir út af. Haukamir náðu sér þá vel á strik og söxuðu jafnt og þétt á for- skotiö, enda skoruðu Njarðvikingar ekki körfu í rúmar fimm mínútur. Pálmar Sigurösson, sem aðeins hafði skorað tvö stig, enda einbeitt sér að spilinu, tók nú að skora og staðan varð 51—50. Njarðvíkingar endurskipulögðu þá Ieik sinn og juku muninn í 59—50. Haukamir vom samt ekki af baki dottnir. Jöfnuðu og náðu eins stigs forustu, 66—65. Spenningurinn var gifurlegur næstu mínúturnar. Haukarnir misstu Hálfdán Markússon af velli, en hann hafði staðið sig mjög vel, og nokkru seinna Pálmar Sigurös- son, báða með fimm villur, svo að róðurinn léttist hjá Njarðvíkingum sem léku yfirvegað og gættu þess að rasa ekki um ráð fram gegn Haukun- um sem þoldu ekki álagið og urðu á mistök undir lokin. Njarðvíkingar léku án Arna Lárus- sonar, sem er meiddur, geta verið ánægðir með sigurinn, þótt naumur sé. Valur, Hreiðar og Isak voru máttar- stólpar liösins að þessu sinni en það reyndist ekki eins jafnt og oftast áður — missti taktinn þegar þessir þrír voru utan vallar. Líklega hafa Haukarnir treyst um of á Ivar Webster, spilið byggðist um of á aö koma til hans knettinum. Pálmar naut sín því ekki sem skyldi, sá hittni leikmaöur. Hálfdán skoraði oft kná- lega og var ásamt þeim tveimur, sem að framan eru nefndir, bestur í liði Hauka. • Maður leiksins Valur Ingimundar- son, UMFN. Dómarar voru þeir Sigurður Valur Halldórsson og Rob Illiffe og dæmdu mjög vel. Stig UMFN: Valur Ingimundarson 29, Hreiðar Hreiðarson 18, Isak Tómas- son 12, Ellert Magnússon og Gunnar Þorvarðarson 6, Teitur örlygsson 3, Helgi Rafnsson 2. Haukar: Ivar Webster 26, Hálfdán Markússon 12, Pálmar Sigurðsson 11, Olafur Rafnsson 10, Kristinn Kristins- son og Sveinn Sigurbergsson 6, Henning Henningsson 2. -emm. • Andrei í sigurkasti sínu ó ólympiuleikunum í Los Angeles. Andrei varpaði kúlunni 21,24m — og setti nýtt ítalskt met innanhúss ítalski ólympiumeistarinn í kúlu- varpi, Alessandro Andrei, setti nýtt landsmet í kúluvarpi i Genúa ó laug- ardag þegar hann varpaöi 21,24 metra. Þriðji besti órangurinn i heiminum i ór og aðeins tveimur sentímetrum styttra en þegar hann sigraði í LA. Fyrra met hans var 21,11 m. Árangrinum nóði Andrei i landskoppni italiu, Bretlands og Júgóslaviu. Þar unnu ítalir Breta í karlakeppninni með 24 stiga mun en í kvennakeppninni jöfnuðu bresku stúlkurnar þann mun. Júgó- slavneska iþróttafólkiö kom langt ó eftir. I keppninni setti ítalska stúlkan Giul- iana Salce „óopinbert” heimsmet í milu-göngu, 6:43,59 mín. Að öðru leyti var árangur ekkert sérstakur í keppn- inni. Þó sigraði Harrison, Bretlandi, í 800 m hlaupi karla á 1:47,81 mín. og I Bretlandi, sigraði í 400 m á 47,24 sek. var vel fyrstur. Alberto Barsotti, Tozzi, Italíu, annar á 47,40 sek. Italíu, annar á 1:49,19 mín. Black, | hsím. Jupp Derwall óvin- sæll í Tyrklandi Fró Hilmari Oddssyni, frétta- manni DVI V-Þýskalandi: Jupp Derwall, fyrrum lands- liðsþjótfari V-Þýskalands, er ekki beint vinsæll i Tyrklandi, þar sem hann starfar nú. Tyrkn- eska blaðið Milliyet er nú með skoðanakönnun I gangi. Frétta- menn blaðsins hringja i félög um allan heim og bera fram spurninguna: — „Gotið þið notað Derwall?" Uli Höness, framkvæmdastjóri Bayem Miinchen, fékk upphring- ingu frá blaðinu um helgina. Hann svaraði spumingunni þannig að Bayem væri ánægt með Udo Latt- ek, þjálfara félagsins. -SOS TÖLVUSTÝRÐ AUGLÝSIIMGASKILTI Með BIGI Auglýsingaskilti kemurðu skila- boðum á framfæri - innan húss og utan. BIGI fer aldrei fram á kauphækkun, aldrei í verkfall og vinnur allan sólarhringinn, svo framarlega sem rafmagn er fyrir hendi. BIGI Skiltin eru að sjálfsögðu með íslensku letri og þau eru fáanleg í mörgum stærðum (frá 0,76 - 11 m á lengd). Dæmi um verð: O 136x23x10,5 cm 66.785 kr. O 76x9x3,5 cm 30.968 kr. DQCC l\llf L. Síðumúla 4, s. 91-687870

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.