Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1985, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1985, Blaðsíða 27
DV. MÁNUDAGUR18. FEBRUAR1985. 27 íþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir íþróttir Girardelli „stal” sigri frá Ingemar — Sigraði í fimmta skipti í svigi heimsbikarsins á laugardag. Var aðeins f 9. sæti eftir fyrri umf erðina ,,Ég vissi að ingemar Stenmark var aftur kominn i toppþjálfun og 6g varð því að ná mínu besta til að sigra hann í siðari umferðinni. Spennan var frábœr, sú mesta i vet- ur, og brautin mjög krefjandi. En það var gaman að henni," sagði Marc Girardelli, Lúxemborg, eftir að hann hafði beinlínis „stolið" sigrinum frá Ingemar Stenmark í svigi heimsbikarsins í Kranjska Gora á laugardag. Var aðeins í níunda saeti eftir fyrri umferðina — Stenmark þá bestur — en í síðari umferðinni var Lúxemborgarinn i sárflokki. Keyrði þá á 66/100 betri tima en Stenmark og varð sigur- vegari með 5/100 úr sekúndu betri tima samanlagt en Svíinn. „Maður verður að ná tveimur full- komnum ferðum til að sigra hann. Marc er svo snjall um þessar mundir að hann getur meira að segja leyft sér að draga úr ferðinni — jafnvel að verða á mistök,” sagði Stenmark en lengi vel stefndi í fyrsta sigur hans í keppni heimsbikarsins i vetur þarna í Ingemar Stenmark — beið spenntur eftir úrslitunum. DV-mynd Hilmar Snberg. Júgóslaviu. Þá sagði Stenmark aö það kæmi sér illa að nú yrði gert þriggja vikna hlé á keppninni. Þá hefst hún á ný í Japan, síðan USA. „Eg er á þvi að ég geti enn sigrað í keppni. Eg vissi að ég átti góða sigur- möguleika á laugardag en síöan kom Marc. Hann var stórkostlegur,” sagði Stenmark. Hann var á annarri skoöun en flestir aðrir sem eru fegnir að fá hvíld. Erfið braut Brautin í Júgóslavíu var mjög erfið eins og best sést á því að aðeins 19 af 68 luku keppninni. Meðal þeirra sem féllu Marc Girardelli vann sinn fimmta sigur í svigi heimsbikarsins í vetur. úr var Pirmin Zurbriggen. Eftir þessa keppni hefur Girardelli nú 33 stiga for- skot á hann i stigakeppninni. Aörir koma ekki til greina. Urslit á laugar- dag urðu þessi. 1. Marc Girardelli, Lúxemborg, 2. Ingemar Stenmark, Sviþjóð, 3. -4. Jonas Nielsson, Svíþjóð, 3.-4. Paul Frommelt, Lichtenst. 5. Ivano Edalini, italiu, 6. Klaus Heidegger, Austurríki, 1:43,11 (52,02-51,09) 11.43,16 (51,41-51,75) 1:43,88 (51,63-52,25) 1:43,88 (51,68-52,20) 1:44,11 (51,54-52,57) 1:45,20 (52,71—52,49) I stigakeppninni hefur Girardelli nú 240 stig. Zurbriggen næstur með 207 stig. Andreas Wenzel er í þriðja sæti með 172 stig. Síðan koma Franz Heinz- er, Sviss, 132, Peter Miiller, Sviss, 128, Ingemar Stenmark 125 og Thomas Biirgler, Sviss, í sjöunda sæti með 124 stig. I svigkeppninni er Girardelli bestur en hann vann sinn fimmta sigur i svig- inu í vetur á laugardag. Hann er með 125 stig og Stenmark, þrátt fyrir slæm- an vetur á hans mælikvaröa, er annar með 78 stig. Wenzel þriðji með 75 stig. hsim.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.