Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1985, Qupperneq 42

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1985, Qupperneq 42
42 DV. MÁNUDAGUR18. FEBRUAR1985. Cltlitsteiknari DVauglýsir eftir útlitsteiknara — lay-out manni — til afleysingastarfa. Þarf að geta hafið störf sem fyrst. Skriflegar umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist til ritstjórnar DV, Síðumúla 12—14, 105 Reykjavík. HREINT LOFT Loftræstikerfi, stór og smá, fyrir reykherbergi, kaffistofur, vinnusali, eldhús o.fl. Ennfremur framleiöum við: sprautunarklefa fyrir bílasprautun, sprautunarskápa fyrir smærri hluti, t.d. húsgögn, hurðir og fl. SDblikkver Skeljabrekka 4 - 200 Kópavogi - Símar: 44040-44100 XZi o ZANUSSI EINN AF OTAL MORGUM ZA 2601 VR Frystiskápur Frystir:Q**3260 Itr. Frystigetá: 20 kg. á sólarhr. Mál: (H x B x D); 151 x 60 x 60 cm. Meö borðplötu. Másnúahurö. Orkunotkun 63 W á klst. Verö...... —5% stg. KR.29553,- KR.28075,- VERKSMIOJAN, HAFNARFIRÐI SíMAR: 5 00 22 - 5 00 23 - 5 03 22 AUSTURVERI VIÐ HÁALEITISBRAUT SÍMAR: 84445 -68 60 65 o o MERKJASALA Á ÚSKUDAG REYKJAVÍKURDEILD RKÍ afhendir merki á neðantöldum útsölustöðum á þriðjudag. Börnin fá 10 kr. í sölulaun fyrir hvert selt merki og þau söluhæstu fá sérstök verðlaun. VESTURBÆR: LAUGARNESHVERFI: Skrifstofa Reykjavíkurdeildar RKi, Öldugötu 4, Laugarnesskóli. Melaskóli. KLEPPSHOLT: Langholtsskóli, AUSTURBÆR: Skrifstofa RKÍ., Vogaskóli. Nóatúni 21, ÁRBÆR: Hlíðaskóli, Álftamýrarskóli, Árbæjarskóli. Hvassaleitisskóli, BREIÐHOLT: Austurbæjarskóli. Breiðholtsskóli, Arnarbakka 1, SMÁÍBÚÐA- OG Feilaskóli, FOSSVOGSHVERFI: Breiöholti III. Fossvogsskóli, Hólabrekkuskóli, Breiðageröisskóli. ölduselsskóli. Merkjum og peningum fimmtudag. skilað í skólana ísfirðing- ar kafa eft- ir Bergljótu Bergljót liggur á 10 metra dýpi, 50 metra frá landi, og hefur gert í tæp 80 ár. Bergljót er engin smásmíöi, 525 brúttólestir, 40 metra löng og 9 metra breið. Enda er hún dönsk skúta sem smíðuö var í Þýskalandi árið 1879. Fyrir 82 árum var Bergljót í vöru- flutningum hér við land og hlekktist á við Hafnarfjörð. Var mál manna að skútan væri ónýt og niöurstaðan sú að flytja hana vestur á land, sökkva henni og nota í bryggjuundirstöðu í Álftafirði í Isafjarðardjúpi. Ekki tókst betur til en svo að skútunni var sökkt á vitlaus- um stað og bryggjan byggö á öðrum. Síðan hefur Bergljót hvílt á hafsbotni og lengi framan af kom efsti hluti hennar í ljós í stórstraumsfjöru. Hann hvarf þó er fram liðu stundir þar sem menn náðu sér í góðan eldivið með því að höggva í efsta iagið. Að undanförnu hafa ísfirskir kafarar verið að skoða skipiö þar sem það ligg- ur og fyrir skömmu unnu þeir það þrekvirki að ná stýrinu á þurrt land. Vó það 1500 kíló og var um 8 metrar að lengd. Verður því komið fyrir á sjó- minjasafni þeirra Vestfirðinga. „Þetta er bara hobbí hjá okkur. Við höfum gaman af að skoða Bergljótu á botninum,” sögðu ísfirsku kafararnir í samtali við DV. Þeir heita Kjartan Hauksson, Benedikt Ólafsson, Svein- björn Júlíusson, Sævar Árnason og Jó- hannes Jónsson. -EIR. Þannig le'rt Bergljót út er hún var upp 6 srtt besta. Nú hvílir hún ð hafsbotni og er augnayndi ísfirskra kafara. isfirskir kafarar búa sig til farar á fund Bergljótar ó botni Álfta- fjarðar. Ásgeir Hvítaskáld skrifar um siglingar: SEGLSKIPIÐ GRÁNA 3. ágúst 1868 strandaði frönsk fiski- skúta, Emelie að nafni, á Hafnarrifi við Skaga. öllum skipverjum var bjargað um borð í tvo fiskibáta frá Skagaströnd. En þegar uppboðið átti aö fara fram á strandstaönum nokkrum dögum seinna var skipið horfið. Það var þá komiö til Siglu- fjarðar í fylgd með tveim enskum fiskiskútum, heldur illa útleikið, og var talið að átt hefði að ræna því. Englendingar neyddust til að skila ýmsu góssi sem þeir höfðu tekið úr skipinu. Emelie var svo slegin Jó- hanni í Haga á Árskógsströnd og fleiri bændum við Eyjafjörð fyrir 346 ríkisdali. Skipinu var fleytt inn á Gásavík en hinir ejrfirsku bændur ætluðu að nota byrðing skipsins til húsagerðar en skipið lá tvö ár óhreyft. Þegar Gránufélagið var stofnaö varð skipið eign þess og Tryggvi Gunnarsson í Laufási, ásamt norðlenskum bátasmiðum, gerðu skipið haff ært á ný. Næstu árin var skipið í förum milli verslunarstaða Gránuf élagsins norð- an- og austanlands og til útlanda. Grána fór tvær til þrjár ferðir milli landa á sumri en var erlendis yfir vetrarmánuðina. Skipið sigldi til Danmerkur, Noregs, Svíþjóðar, Skotlands, Englands og Hollands. Sagt er að kaupmenn á Akureyri hafi gefið skútunni þetta nafn í háð- ungarskyni, af gráum lit þess og elli. Skipið var 95 brúttólestir að stærð. Grána þótti óvenju happsæl og fljót í ferðum. Þar hefur Táðið miklu úr- vals skipstjórn Laurits Petersen. Grána þjónaöi Islandi í mörg herr- ans ár því í hjarta sínu stóð hún með okkur i sjálfstæðisbaráttunni þó hún væri útlensk. En fyrir Gránu kom að- eins eitt óhapp á löngum þjónustu- ferli hennar. Á leið til Liverpool með saltfiskfarm lenti Grána í aftaka- veðri fyrir utan Suðureyjar við Eng- land. Rak skipið stjórnlaust að landi og strandaði loks skammt frá bónda- bæ á eynni Lewis 17. október 1896. Og bar Grána beinin þar. Húsfreyjan var ein heima á bænum er strandiö bar að en hún aðstoðaði við björgun skipverja með því að festa linu sem þeir létu reka í land frá skipinu. Þannig uröu sögulok fiskiskútunnar frá Dunkerque. Hér fer á eftir útdráttur úr bréfi Lauritz Petersen sem hann skrifaði Chr. Havsteen, kaupstjóra hjá Gránufélaginu, um strand Gránu. Og lýsir það vel kjörum siglingamanna á þessum tima og mögnuöum ævin- týrumþeirra: Suðureyjum, 23. október 1896. Þér munið hafa fengið að vita það hjá stórkaupm. F. Holme, að nú er gamla Grána strönduð, sem er hið mesta sorgarefni, því mér þótti und- ur vænt um skipið, en þakka þó Guði fyrir, að hann frelsaöi mig og alla skipshöfnina úr þessum mikla lífs- háska, er ég skal nú leyfa mér að skýra yður nokkuð nákvæmar frá. Snemma á laugardagsmorguninn þann 17. október sneri vindurinn sér og kom á noröan, er varð bráðlega að fullkomnu hvassviðri með ákaflega háum brotsjóum af norðvestri. Klukkan hálfátta brotnaði bugspjót- ið efst, og urðum við að höggva það frá okkur, svo að skipið brotnaði eigi aö framan. Klukkan sex um kvöldið fengum við hinn voðalega brotsjó yfir okkur, er limlesti alveg veslings Gránu og sópaöi öllu á stjómborða fyrir borð, eftir að hafa brotið það og bramlað, brotið borð- stokkinn á tveim stöðum og brotið stýrishúsið. Þá brotnaði líka alveg borðstokkurinn á bakboröa, tók út báöa bátana og matarílátin öll þeim megin, og fjórar tunnur af saltfiski, sem ég átti sjálfur. Þá fyllti og káet- una og hásetarýmiö alveg af sjó. Stórseglbóman brotnaði í sundur, en segl rifnaði til agna og sömuleiðis stagfokkan og fleiri segl, er við reyndum að setja upp, táðust í sund- ur í ofviðrinu svo gamla skinnið hallaðist nú svo mikið, að ljósbera- fjölin öðrum megin var niðri í sjón- um. Og nú verö ég að játa það, að þá ætlaði ég engum okkar líf, er vorum um borð, og bað þá mína síðustu bæn til hins algóða himnaföðurs fyrir mér og vesalings konunni minni og börn- unum mínum smáu. En þá rak skipiö á land, úr öllum þessum ósköpum, og við héldum allir lifi. Þegar hinn voðalegi brotsjór reið yfir skipið, fékk ég mikið högg á lífið, svo ég gat varla staöið og er lasinn, en mest þjáir mig svefnleysi og sorg yfir að hafa misst mitt kæra skip, mína kæru „Gömlu Gránu” sem ég hafði siglt með í sautján ár, og má aldrei hugsa svo til, að mér vökni eigi um augu. Við erum hér á lélegri bóndabæ en almennt gjörist á Is- landi, sem allur lekur, streymir yfir okkur, en fólkið vill allt fyrir okkur gjöra, sem það getur, og er ógn gott við okkur, en er hrætt um að ég ætli ekki að frískast, sem ég vona þó að verði með guðs náð, svo að konan mín og hin ungu börn mín verði eigi forstöðulaus, og fyrir þá von þakka ég góöum guði. Eg veit það að Grána var ekki eins heppin í siglingum í ár og vanalega, en ég get hvorki kennt mér né henni um strandið, ég hefi góða samvisku yfir því, að hafa gjört skyldu mína sem skipstjóri á gömlu „Kæru Gránu”. Yðar skuldbundinn vin, Lauritz Petersen. Það reyndi á þessa menn í barátt- unni við hafiö. Seglskipin voru braut- ryðjendur nútímaþjóðfélags. Enda þótti þeim vænt um skipin sín í þá daga. Skip sem vindurinn bar á milli landa. Danska ríkið heiöraði fátæka bændafólkiö á eyjunni Lewis með því að senda því forkunnarfagra klukku, áletraða, í björgunarlaun. Petersen starfaði hjá Gránufélaginu lengi eftir þetta. Sem dæmi um ágæti skipsins má nefna að Grána sigldi á 18 sólarhringum til Kaupmannahafn- ar, fullhlaðin vörum. Og geri plast- skútur nútímans betur. Heimildir fengnar úr grein eftir Guð- mund Sæmundsson í Sjómannablað- inu Víkingi ’82. Og úr blaðinu Austra sem kom út á Seyðisfirði 9. desember * 1896. I ........................... i,.,,!,,' I V

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.