Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1985, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1985, Blaðsíða 44
44 DV. MÁNUDAGUR18. FEBRUAR1985. Mick Jagger, gamia kempan úr Rolling Stones, róðst hart að Ronald Reagan Bandarikjafor- seta i viðtali við þarlent blað á dögunum. Jagger sagði að fólk kysi Raagan vegna þess að þvi líkaði við hann persónulega en virtist ekkert vita um hvaða stefnu hann fytgdi. Jagger segir að Reagan hafi gert þá riku rik- ari á kostnað hinna fátœku og að hann stefndi heimsfriði i hættu. Tennisleikarinn sænski, Bjöm Borg, er orðinn leiður á að búa á herragarði sinum, Alastaholm, sem stendur rótt fyrir utan Stokkhólm. Hann keypti sór þvi þriggja herbergja ibúð inni í borginni og greiddi fyrir hana jafnvirði 6 milljóna islenskra króna. Margrét prinsessa, systir Betu Bretadrottningar, er mikil reyk- ingamanneskja og hefur sætt fyrir það ákúrum reykingavarn- armanna i Bretlandi. Eftir að annað lungað var tekið úr henni hafa þeir farið fram á að hún hætti að reykja opinberlega og einnig hafa þeir óskað eftir að Beta láti fjarlægja merki krún- unnar af sígarettupökkum þeirra fyrirtækja sem hafa feng- ið leyfi tíl að nota það. Gríska tónskóldið Mikos Theodorakis hefur látið hafa eftir sér að hann muni ef til vill þurfa að fara aftur i útlegð. Ástæðan er stsfna hinnar sósiai- isku rikisstjórnar Andreas Pap- andreou sem Theodorakis segir að só að koma upp nýrri einræð- isstjóm. Theodorakis var sem kunnugt er í útlegð ó timum her- foringjastjórnarinnar í Grikk- landi árin 1967 til 1974. Nancy Reagan, forsetafrú i Bandaríkjunum, hefur ráðið Jennyfer Hirshberg sem blaða- fulltrúa sinn. Það virðist vera erfitt og óbyrgðarmikið starf að vera blaðafulltrúi forsetafrúar- innar þvi mánaðarlaunin eru 185 þúsund krónur íslenskar og árs- launin þar af leiðandi rúmar 2,2 milljónir króna. Sviðsljósið Sviðsljósið Oxsmó ó œfingu í húsagarði í Amsterdam. Viðeigandi umhverfi fyrir tónlist hljómsveitarinnar. DV-myndir Sigrún Haröardóttir. Oxsmá íHollandi Frá Sigrúnu Harðardóttur, fréttaritara DV í Amsterdam. Hljómsveitin Oxsmá kom hingað tQ Amsterdam í byrjun febrúar í þeim til- gangi að sjá og sigra hollenska hljóm- sveitadýrkendur. A flugvellinum tók á móti þeim mót- tökunefnd hollenskra yngismeyja og fréttamaður Rabotnik útvarpsstöðvar- innar, sem er ólögleg útvarpsstöð krakara, tók viötal við sexmenning- ana. Þeir voru hinir bröttustu og töldu það litið mál að slá í gegn í Amster- dam. Það reyndist ekki fjarri lagi hjá þeim því fyrstu tónleikunum þeirra var útvarpað í áðurnefndri útvarps- stöð og forsvarsmenn Paradísó, sem er mest áberandi tónleikahús .fyrir tónlist af léttara taginu, hefur áhuga á að fá Oxsmá til að halda tónleika. Það verður reyndar ekki að þessu sinni því Paradísó skipuleggur prógramm sitt marga mánuði fram í tímann. Meðferðis hafa félagamir í Oxsmá tvær kvikmyndir sem þeir hafa sjálfir gert, en strákamir eru flestir mynd- listarmenn og eru ýmist í eða hafa nýlokiö námi frá Myndlista- og hand- iöaskóla Islands. ► ÞaÖ er Irtið mól að sló í gegn í Hollandi, segja þeir félagar í Oxsmó. Það hefur greinilega allt leikið í lyndi hjó þeim skötuhjúunum Pétri Holm og Joan Collins þegar þessi mynd var tekin. Frétt úr breska blaðinu Daily Express um laundóttur Péturs hefur vakið athygli. Collins æfyfir laundóttur Péturs Þær sögur ganga nú fjöllunum hærra að Joan Collins hafi orðið æf þegar hún frétti að tilvonandi eiginmaður henn- ar, hinn sænski Peter Holm, hafi leynt hana að hann ætti 14 ára gamla dóttur í Svíþjóð. Sviösljósið skilur nú ekki hvaða uppi- stand þarf að verða út af þessu, en samt sem áður skrifa nú erlend slúöur- blöö mikið um þessa uppgötvun. Látið er í veðri vaka að tilvonandi hjónaband Joan Collins og Péturs verði að engu vegna þessa. Þau hafa búið saman um nokkum tíma og hann er nú umboös- maður hennar og framkvæmdastjóri sameiginlegs fyrirtækis auk þess að vera sambýlismaður. Þetta þurfti svo sem ekkert að koma á óvart þar sem Pétur er frægur kvennabósi. Eftir að hann fór að búa með Collins hafa blöö verið iðin við að hafa uppi á fyrri ástkonum hans sem hafa lýst honum sem versta flagara. En hvað um það?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.