Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1985, Síða 1
Fimmtán hundruð
bíða eftir láni
Þaö eru eitt þúsund og fimm hundr-
uð manns, sem bíöa eftir láninu sínu
hjá Húsnæðisstofnun. Um áramót
vantaði 222 milljónir til þess að eyða
biðröð lántakenda, sem myndaðist á
síðasta ári. Nú vantar 127 milljónir í
viðbót eða samtals 349 milljónir.
Samkvæmt upplýsingum sem DV
fékk í Húsnæðisstofnun var halinn
Fjármálaráðherra
flýtir 150 milljón
króna fjárveitingu:
„Óljóst
hvað
| ietta
dugir”
„Við lásum um þetta í blöðunum
í morgun eins og aðrir. Eins og er
er óljóst hvað þetta dugir en viö
munum setja af staö það sem beið
um áramót, það gengur auðvitað
fyrir. Ég veit ekki hvort þetta er
nóg til þess en væntanlega fáum við
síðan peninga frá lífeyrissjóðunum
í lok mánaðarins eins og viö feng-
um í lok janúar.” Þetta sagði Hilm-
ar Þórisson, skrifstofustjóri Hús-
næðisstofnunar, í morgun. Þá lá
fyrir að f jármálaráðherra ákvaö í
gær að flýta 150 milljóna hluta af
fjárveítingu ríkisins í ár til Bygg-
ingarsjóðs.
vegna nýbyggingarlána um áramót
116 milljónir króna. Vegna lána til
kaupa á eldri íbúðum 90 milljónir og
vegna breytinga 16 milljónir króna.
Lengst var biðin oröin hjá fólki sem
var að kaupa eldri íbúðir í fyrra, jafn-
vel frá því um mitt árið.
Þessar 222 milljónir samtals eru enn
óafgreiddar. I janúar átti að afgreiða
45 milljónir og nú í febrúar 82 milljónir
króna. Sem fyrr segir er halinn því orð-
inn 349 milljónir króna alls. Áætlað er
aö afgreiða 185 milljóna króna lán í
þessum mánuði. Það dugir ekki fyrir
halanum frá áramótum.
Líklegt er, samkvæmt upplýsingum
frá Húsnæðisstofnun, aö tveggja til
þriggja mánaða bið verði enn hjá þeim
sem ættu að vera að fá lán sín um þess-
ar mundir. Alls er áætlað í lánsfjár-
áætlun að lán úr Byggingarsjóði ríkis-
ins nemi 1.790 milljónum á árinu og úr
Byggingarsjóði verkamanna 683 millj-
ónum króna.
Engin framkvæmdalán voru veitt
byggingarfyrirtækjum eða byggingar-
félögum í fyrra. Þau eru ekki heldur á
dagskrá á þessu ári. Þessir aðilar fá
því ekki fé til byggingarframkvæmda
úr opinbera lánakerfinu. Þeir verða að
bíða eftir að einstaklingar, sem kaupa
af þeim, fái lán í sömu röð og aðrir.
HERB
I*
öskudagurinn er í dag. Börn víða um land fagna deginum með ýmiss kon-
ar uppákomum, skrípaklæðnaði og grímum. Þessi börn voru fagurlega bú-
in í leikskóla KFUM við Langagerði.
DV-mynd GVA
Halinn hjá Húsnæðisstofnun er nú 350 milljónir króna:
Sjómannaverkfall:
Flotinná
a mac m 'm
leiðmm
íland
„Við erum á leiðinni í land. Sam-
kvæmt samtölum mínum við aðra
skipstjóra, sem eru á sjó, veit ég ekki
annaö en flest ef ekki öll skip séu á
leiðinni eða komin í land,” sagði Vil-
helm Annarsson, skipstjóri á Slétta-
nesi og formaður sjómannaféiagsins
Bylgjunnar á Isafirði, i samtali við
DV í morgun. Hann var þá staddur
rétt úti fyrir Vestfjörðum.
Samninganefndir Sjómannasam-
bandsins og Farmanna- og fiski-
mannasambandsins beindu þeim tU-
mælum til skipstjóra og áhafna fiski-
skipa síðdegis í gær að veiðum yrði
hætt og skipin sigldu til hafna vegna
brota útgerða á samningsákvæðum
um veiðar i verkfalli. Var þessi sam-
þykkt gerð að loknum árangurslaus-
um samningaf undi í gær.
„Við erum svo sem ekkert óhressir
með þetta úr þvi sem komið er,”
sagði Vilhelm. „Hins vegar fórum
við út á sunnudag og meiningin var
að vera úti í viku, tíu daga og klára
túruin en það hefur sem sagt
breyst.”
„Eg er mjög ánægöur með að skip-
stjóramir á þessum skipum ætli að
sýna okkur þessa samstöðu,” sagði
Guðjón Kristjénsson, formaður
FFSI. „Með þessu eru þeir að leggja
áherslu á að þeir eru ekki sáttir við
útvegsmenn sem hafa brotið samn-
inga með því að bjóða mönnum alls
konar fríðindi gegn því að sigla í
verkfallinu. Máliö er komið í algeran
hnút en ég vona að þessi ákvörðun
skipstjóranna geti haft einhver áhrif
þará.”
„Þetta horfir ekki gæfulega,”
sagði Kristján Ragnarsson, formað-
ur LlU. „Það er samningsbrot við
okkur fyrst mennirnir eru að sigla í
land. Samkvæmt okkar samningum
er mönnum heimilt að ijúka sinni
veiðiferð. Ég sé því ekki ástæðu til að
ætla annað en aö þessi ákvöröun hafi
þau áhrif að koma málinu í enn meiri
vandræði,” sagði Kristján Ragnars-
son.
Deiluaðilar koma saman til fundar
klukkan 13.30 ídag.
-KÞ
Ofreiknaði Húsnæðis-
stofnun vísitöluhækkun?
— aðstoðarbanka-
stjóri Seðlabanka
segirað heildarstofn
lána eigi að vera
3% lægri en
raun sé á
Svo virðist sem lántakendur eigi
inni talsverðar upphæðir hjá Hús-
næöisstofnun ríkisins, þar sem
lánskjaravísitala hafi verið of-
reiknuð í september 1983. Það er að
minnsta kosti skoðun Bjarna Braga
Jónssonar aðstoöarseðla-
bankastjóra.
„Þetta er ekki mál Seðlabankans,
en ég vil benda þeim sem ákafast
gagnrýna lánskjaravísitöluna á, að
fylgjast með hvemig framkvæmd
fyrri lagfæringa hefur farið fram,”
sagði Bjami Bragi í samtali við DV.
Bjarni vísar hér til loforða ríkis-
stjórnarinnar frá í ágúst 1983 þegar
nýr útreikningur lánskjara-
vísitölunnar var upp tekinn og hún
reiknuð mánaðarlega í stað þriggja
mánaða timabila eins og áður var.
Samkvæmt eldri útreiknings-
aðferðinni átti vísitalan aö hækka
um 8,1% í september en samkvæmt
þeirri nýju um 3% minna, eða 5,1%.
Gamla aðferðin var látin gilda
almennt í september, en hin nýja
kom til framkvæmda í næsta
mánuði. Hins vegar sagði í til-
kynningu frá ríkisstjóminni frá 21.
ágúst 1983. „Hins vegar hefur
ríkisstjómin ákveðiö að ganga til
móts við húsbyggjendur og náms-
menn með þeim hætti að nýja láns-
kjaravísitalan gildi strax gagnvart
þeim og verði því 5,1% í september.
Jafnframt mun ríkisstjómin beina
þeim tilmælum til lífeyrissjóðanna
aö þeir hafi sama hátt á húsnæðislán-
umsínum.”
Bjami Bragi segir að þetta hafi
átt að hafa í för með sér að heildar-
stofn húsnæðislána hækkaði 3
prósentum minna en raun varð á.
Hins vegar hafi þessu ekki verið
framfylgt og honum var aðeins
kunnugt um einn mann sem notfært
hefði sér heimildina.
Sigurður E. Guðmundsson, for-
stjóri Húsnæðisstofnunar, sagði að
stofnunin hefði skrifað félagsmála-
ráðherra bréf þegar þessi fyrirmæli
bárust og beðið um upplýsingar um
nánari útfærslu. Svar við þvi bréfi
hafi hins vegar aldrei borist og þetta
þvíekkikomisttilframkvæmda. óEF