Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1985, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1985, Page 5
DV. MIÐVHCUDAGUR 20. FEBRÚAR1985. 5 „ERUM AD FARA AÐ LÖGUM” —segja náttúruverndarráðsmenn sem mótmæla 15 ára framlengingu á starfsleyfi Kísiliðjunnar „I náttúruvemdarlögum er Náttúru- vemdarráði falið að vemda Mývatn og Laxá. Með þessum mótmælum okkar erum við að fara að lögum,” sagði Eyþór Einarsson, formaöur Náttúru- vemdarráös, á blaðamannafundi sem ráðið boðaði til í gær vegna 15 ára framlengingar á starfsemi Kísiliðjunn- arviðMývatn. Það kom fram í máli manna á fund- inum að verksmiðjunni er leyft að taka kísilgúrinn hvar sem er í vatninu, því eru engin takmörk sett. „Það er þetta sem við erum hrædd við. Um leið og vatniö dýpkar hverfur fuglalífið. Þá má ekki gleyma því að Laxá og öll hlunnindi þar em háð skilyrðunum í Mývatni,” sagði Eyþór. „Það er alveg ljóst að starfsemi Kísiliðjunnar stöðv- ast einhvem tíma. Vegna ónógra rann- sókna vitum við ekki hvenær. Þess vegna fórum viö fram á aö Kísiliðjan fengi aöeins framlengingu til 5 ára svo og að fram fæm nákvæmar rannsóknir á áhrifum gúmáms í vatninu.” Eyþór sagöi og að á meðan niður- stööur rannsókna þessara lægu ekki fyrir gætu þeir ekki fallist á svo langt starfsleyfi. Hann sagði að í umfjöllun um þetta mál hefði verið látið að því liggja að Náttúruvemdarráð hefði farið fram á að Kisiliöjunni yrði lokað og starfsemi hennar hætt. Það væri ekki rétt, heldur vildu þeir aðeins nánari rannsóknir áður en lengra væri haldið. Þá kom fram að Náttúruvemdarráð hefði skotið máli sinu til menntamála- ráðs og væri nú beðið eftir svörum það- an. -kþ Jón Gunnar Ottósson Itffrssðingur út- skýrir Itfriki Mývatns. DV-mynd GVA. 15 ára starfsleyfi nauðsynlegt — segir hreppsnefnd Skútustaðahrepps „Við teljum nauðsynlegt að Kísil- iöjan fái starfsleyfi til aö minnsta kosti 15 ára svo fram geti farið eðlileg þróun fyrirtækisins og sveitarfélagsins í heild. Eölilegt má telja að haföur væri fyrirvari á um stöðvun efnistöku úr Mývatni ef rannsóknir leiða í ljós nauð- synþess.” Svo segir í ályktun hreppsnefndar Skútustaðahrepps vegna deilna um framlengingu starfsleyfis Kísiliðjunn- ar. Segir jafnframt að Kísiliðjan sé þjóð- hagslega hagkvæmt fyrirtæki og eitt af stærri útflutningsfyrirtækjum lands- ins. Veiti hún 70 til 80 manns fasta vinnu. Þess vegna sé augljóst hve mikil áhrif hennar séu í 580 manna byggðarlagi. „Ovissa um framtíð Kisiliöjunnar skapar öryggisleysi hvað varðar lifsaf- komu þessa fólks og lamar uppbygg- ingu í sveitarfélaginu öllu,”segir orð- rétt i ályktuninni. Að lokum er þeirri ósk beint til iðnaðarráðherra að hann beiti sér fyrir því að skipulagöar rannsóknir verðl hafnar á svæðinu. — KÞ Kindakjöt: Minna f ramleitt og minna borðað Otflutningur á kindakjöti jókst um 33 prósent á siöasta ári miðaö við árið áður. Alls voru fluttar út 3.561 lest. Framleiðsla kindakjöts dróst saman um 5,7 prósent á siöasta ári. Salan var einnig minni á árinu. Miðaö við 1983 seldist um 1000 lestum minna af kjöti 1984. Samdrátturinn er um 9 prósent. Sala kindakjöts var alls árið 1984 9739 lestir. I upphafi ársins voru birgðir af kindakjöti 9316 lestir sem er tæpum 900 lestum minna en árið áður. Niðurstaðan eftir árið er því að meira var flutt út, minna frámleitt, minna étið og kjötfjalliö minna en í fyrra. APH ATHUGASEMD Sl. mánudag hringdi í undirritaðan ódrukkin blaðakona af DV og vildi fá staðfestingar á sögusögnum sem henni höfðu borist til eyma. IDV í gær, þriðjudag, gaf svo að líta afsprengi sögusagna þeirra er að henni hafði verið lætt og samtals hennar viö mig. Hafði þá orðið undraverð frjó- semi í huga hinnar ódrukknu blaða- konu og afmyndaður getnaður litið dagsins ljós. Baksíðufrétt DV, undir fyrirsögninni „Vel við skál...”, hefst á alllöngum inngangi er verkar á þá sem til þekkja sem heilaspuni. Síðan kemur tilvitnun í undirritaðan: „Þetta er rétt. Ég get ekkineitaðþessu.” Þetta er hins vegar rangt. Og ég neita þessu. Og get það. Og geri það. Það eina sem rétt er í inngangi þessum er að haldið var listmunaupp- boð að Hótel Borg og svo setningin: „Var þar margt um manninn enda góð verk í boði.” Annaö er ranghermi og allt upp í örgustu lygar, persónuníð um. gesti uppboðsins og atvinnuróg um GalleríBorg. Það sem haft er eftir undirrituðum í lok fréttarinnar er heldur ekki rétt, en þó ekki eins gróflega fært frá réttum vegi og annað þó svo það sé slitið úr tengslum við það sem ég sagöi. Um fréttaþættina og fréttina vil ég segja: Um gesti uppboðsins hafði ég engin þau orð sem í fréttinni greinir. Eg brýndi fyrir hinni ódrukknu blaðakonu að hver gestur uppboðsins hefði haft rétt til að bjóða i hvaða verk sem honum leist, rétt eins og að bjóða ekki i nokkum skapaðan hlut. Hins vegar bæri þeim sem slegin væri mynd skylda til að vitja hennar og standa þar með viö sitt boð, rétt eins og mönnum ber aö standa við orð sín i hverju einu. Loks sagði ég blaðakon- unni ódrukknu að þar sem frestur viöskiptamanna uppboösins var ekki liðinn þegar hún ræddi við mig hefði ég enga ástæðu til að ætla að ekki yrði staöið við þau boð sem á uppboðinu voru gerð. Ekki fleira hér um. Þóþettaílokin: Til að verða góð blaðakona þarf, til viðbótar við eðlisgreind og víðtæka þekkingu, ást á sannleikanum, dirfsku til að segja hann, komi maður auga á hann, og þrek til að þegja yfir því sem maöur veit ekki rnn en heldur. Takk! ÚHar Þormóðsson. Athugasemd við athugasemd: DV stendur við frétt sína. Rétt var eftir Úlfari haft. Stúdíómyndat Ljósmyndaþjónusta Siguröur Þorgeirsson Ijósm. Klapparstig 16 Simi 14044 Oft er meiri þurrkur í íslenskum húsum, en á sjálfri SAHARA eyðimörkinni Ekki er óvanalegt aó Rakastig inn- anhúss fari allt niöur i 20%. Til samanburðar er meöal rakastig i Sahara 25%. Það segir sig því sjálft, aö af slikum þurrki hafa hvorki menn né stofuplöntur gott af. Meö BONECO rakatæki og raka- stilli kemur þú i veg fyrir að slíkt ástand skapist. BONECO raka- tæki hreynsar loftið, og gæðir það raka, og með BONECO raka- stilli stjórnar þú sjálf(ur) hvaða rakastig skal vera í herberginu. rakastiliar BONECO rakatæki — lofthreynsitæki GEFA RÉTT LOFTSLAG INNANHÚSS: boneco Gunnar Ásgeirsson hf. . r ©\ SiióurlaildstH.uil 16 Simt 91 35200 r

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.