Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1985, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1985, Qupperneq 10
10 DV. MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRUAR1985. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Fallandi gengi í Bólivíu Verðbólgan stefnir í 116 þúsund prósent Þeir í Bólivíu eru að vísu ekki farnir að aka pesóum sínum í hjól- börum i innkaupaferð út í matvöru- búð eins og frægt er af fallandi gengi þýska marksins á þriðja áratugnum, i tíð Weimar-lýðveldisins. En það er mjög skammt í það. Þeir i Bólivíu eiga sennilega heims- metið í verðbólgu um þessar mundir. Almennt verölag hækkaði um 2.700% á árinu 1984 en aðeins (!) 329% árið 1983. Spáin fyrir þetta ár var 40.000% verðbólga en af hagtölum fyrir janúarmánuö, sem seðlabanki Bólivíu hefur sent frá sér, virðist sú spá alltof hógvær. — Verðhækkanir i janúar námu 80% svo að það virðist stefna f 116.000% verðbólgu á árinu! Peningar í sekkjatafí Blaðakona frá Wall Street Journal varð vitni að því þegar sendill skjögr- aði inn í Banco Boliviano Ameri- cano, í höfuðborginni La Paz á dögunum, og var að sligast undan troðnum poka sem hann bar á bak- inu. Sagði hann pokann geyma 32 milljónir pesóa sem gjaldkerinn hafði ekki einu sinni fyrir að telja. — ,,Við erum hættir að standa f þvf að telja peningana,” sagði Max Loew Stahl, einn starfsmanna bankans, við blaða- konuna. Þessar 32 milljónir jafngiltu þá 21 þúsundi fslenskra króna en tlu dögum síðar voru þær ekki nema 14 þúsund króna virði. Það eru ekki aöeins dagprísar á varningnum. Júlfa Blanco Sirba, sem afgreiðir í sælgætissjoppu á einni aðalgötu La Paz, selur súkkulaði- stykki á 35 þúsund pesóa eina mfnútuna en fimm mfnútum sfðar selur hún það á 50 þúsund pesóa. Tveggja þumlunga þykkur peninga- bunkinn, sem hún fær fyrir súkku- laðið, er þyngri en súkkulaöistykkiö. — Það má ekki láta peningana staldra við eina mfnútu. Breytingar á verðlagi fréttast manna á milli og mega allir hafa sig við. Hænuegg kostaði 3000 pesóa í síðustu viku en 10 þúsund i þessari viku og er sjálfsagt komið upp fyrir 15 þúsund þegar þetta er skrifað. . . lóþúsund. . . 17þúsu. . .! Stórinnfíutningur Peningaseðlar eru prentaðir í tonnatali fyrir þessar tæplega 6 milljón sálir sem búa í Bólivíu. Heilu flugvélafarmarnir berast tvisvar i viku með nýja peningaseðla frá prentsmiðjum f Vestur-Þýskalandi og Bretlandi. Innflutningur gjaldmiðils kostaði Bólivfu 20 milljónir dollara á sfðasta ári og eru peningar þriðja mesta innflutningsvaran á eftir hveiti og námavinnslutækjum. Sumar staðreyndir f peningamálum Bólivíu þekkja tslendingar á sjálfum sér frá því fyrir myntbreytinguna. Til dæmis að þúsund pesóa seðillinn kostar meira f prentun heldur en unnt er að fá fyrir hann f skiptum. Þaö er hægt að fá einn tepoka fyrir hann. Ef menn ætla að borga fyrir meðalstórt sjónvarpstæki f þúsund pesóa seðlum þurfa þeir rúm þrjátfu og fjögur kfló af peningum. í svo ört fallandi gengi þýðir ekkert að reyna að nota krftar- kort og menn vilja helst ekki ávísanir. Til þess að létta á vandræöaástand- inu, þegar menn þurfa að rogast með peninga f tunnusekkjum, gripu yfir- völd til þess að gefa út f nóvember f vetur nýjan seðil, 100 þúsund pesóa, en það eru ekki næstum nógu margir i umferð. Ekki sem klósett- pappír einu sinni „Þessir eru ekki einu sinni hentugir sem klósettpappfr,” sagði Ruth Aranda apótekari og veifaði 100 pesóa seðli fyrir framan Sonju L. Nazarló, Wall Street Journal. — Enda er aðgangseyrir 300 pesóar á almenningssalerni. Aranda keypti fyrir þrem árum nýja lúxustegund af Toyotabifreið sem kostaði þá það sama og Aranda selur þrjú glös af höfuðverkjatöflum á f dag. Jorge von Bergen, framkvæmda- stjóri hjá stóru pappírsvörufyrirtæki i Bolivfu, þarf 1 sfnum viðskiptum að rogast með peningana i ferðatöskum. Eiginkona hans þarf að hafa þjónustustúlkuna með í för þegar hún kaupir til heimilisins. Það er bara til þess að bera með henni peningana. Vörurnar sem hún fær fyrir þá kemst frúin sjálf með heim. 540 verkföll á einu ári Svona efnahagsástandi fylgir oft vöruþurrð, biðraðir, hamstur, rysk- ingar, þegar fólk er að troðast f bið- röðum, æsingur, bciskja. Allt dagfar fólks er markað þessu. Einkabankar lokuðu í nokkra daga ekki alls fyrir löngu af ótta um líf og limi banka- stjóranna. Verksmiöjur stöðvast iðu- lega af verkföllum. Margar verslanir hafa hætt. Og þar sem pesóinn er nánast verðlaus notast menn við Bandaríkjadali í öllum meiriháttar viðskiptum. Dollara geta þeir keypt hjá þessum 800 gjaldeyrismiðlurum eða svo sem er að finna við Avenida Camacho sem er aðalbankastræti þeirra f La Paz. Laun hafa hækkað um 1.500% síðan Hernan Siles Zuazo forseti tók við af herforingjastjórninni 1982 en verðbólgan hefur meira en gleypt þær kjarabætur. Kaupgetan hefur raunar minnkað um 25% enda voru 540 verkföll f Bólivíu á síðasta ári og fóru 35 dagar í allsherjarverkföll þar sem nánast allt athafnalif var lamaö. Og verkföll f Bólivíu eru engin logn- molla. Eina dæmigerða viku, ekki alls fyrir löngu, tóku verkamenn f 34 verksmiðjum 180 framkvæmdastjóra f glslingu á meðan á launadeilunni stóð og héldu sumum þeirra föngnum i allt að þrjá daga. Eirðariausir á ráðherrastólunum Rfkisstjórn Siles Zuazo forseta hefur setið f tvö ár og þó er varla hægt að nota það orð því að hún hefur ekki verið kyrr í sæti. Zuazo hefur á þessum tíma skipt sex sinnum um stjórn og hafa alls setið í þeim 74 ráðherrar. Engin þessara stjórna hefur getað lagt fram skiljanlega fjár- hagsáætlun eða efnahagsstefnu. Þær hafa lækkað gengið æ ofan i æ og boðað ýmsar sparnaðarráðstafanir með litlum árangri. Búist er við fleiri yfirlýsingum um sparnaðarráðstafan- ir en almenningur er farinn að taka þvi sem hreinu gríni. Hinn sjötugi forseti fór í fjögurra daga hungurverkfall siðasta haust til þess að hvetja landsmenn til „friðsemdar og íhugunar”. Fjórum mánuðum fyrr hafði honum verið rænt úr svefnherbergi sfnu i valda- ránstilraun sem rann út í sandinn tiu klukkustundum síðar. Enn áður höfðu verkamenn f launadeilu klippt í sundur símallnur til forseta- bústaðarins og skrúfað fyrir vatnið til forsetans. Núverandi rikisstjórn Bólivíu er númer 189 f 159 ára sjálfstæðissögu landsins. Mörgum er til efs að hún endist fram að kosningum, sem boðaðar hafa verið i júnf, því að óvíst er hve herinn þolir lengi að horfa upp á hringavitleysuna. Ofíuvonirnar brugðust Að einhverjum hluta má rekja efnahagsvandann til sfðari helmings áttunda áratugarins þegar fyrri vonir um stórar ollulindir i Bólivíu brustu og skuldir, sem stofnað hafði verið til f bjartsýninni, féllu f gjalddaga. Um leið hefur verð á tini fallið, en það er næststærsta útflutningsafurð Bóli- víumanna. Stærst er jarðgasið en salan á þvf misfórst þegar aðal- kaupandinn, Argentfna, lenti í erfiðleikum. (Stærsta útflutnings- afurð Bólivíu er óopinber en það er kókabasi sem notaður er til þess að búa til kókafn, sem er ólöglegt, og færir þvl ekki rlkissjóði neinar tekjur.) Siles Zuazo var kjörinn forseti 1980 en herinn, sem alltaf hefur leikið stórt hlutverk i stjórn landsins, hleypti honum ekki i forsetastólinn fyrr en nær þrem árum síðar. Þá var hið opinbera farið að eyöa meiru en það aflaði og gripið var til þess að prenta fleiri peninga. GP. Frá Áma Snævarr, fréttaritara DV í Frakklandi: FRANSKIR K0MMÚNISTAR Þaggað niður í andstöðunni Endurnýjunarsinnarnir í hópi franskra kommúnista fengu engu breytt á 25. þingi flokksins sem haldið var um miðjan febrúarmánuð. Pierre Juquin, helsti talsmaður þeirra, hlaut hvergi kosningu f stjórn- málaráðið né stjórn (secretariet) flokksins. 3 þekktustu leiðtogar endurnýjunarsinnanna, þ. á m. Juquin, héldu sætum sínum en minna þekktari urðu fyrir barðinu á hreinsunum forystunnar. Drög að stjórnmálaályktun sem forystan lagði fram var samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta en telja má það sögulegt að hluti fulltrúa sat hjá. Þar sem fylgismenn Sovét- kömmúnista fara, fær flokksforystan alltaf 99% atkvæði. Forysta kommúnistaflokksins hefur að minnsta kosti um stundar- sakir tryggt tök sfn á flokknum. Sam- vinnuslit kommúnista og sósíalista sem urðu 1 sumar hafa verið staðfest af fulltrúum flokksmanna. Ekki nóg með það: héðan í frá er kommúnista- flokkurinn ekki aðeins i stjórnarand- Söguleg stund: Pierre Juquin, einn fulltrúa i stjórnmálaráflinu, situr hjá er atkvœfli eru greidd um stjórn málaályktun. Klappafl fyrir George Marchais eftir afl hann var endurkjörinn aðalritari. stöðu heldur f stríði við fyrrverandi samherja sína, sósíalista. En vandamál flokksins eru þau sömu. Flokkurinn sem fyrir 40 árum hafði 26% atkvæða féll niður 112% ! sumar. Tugir þúsunda flokksmanna hafa sagt skiliö viö flokkinn. Það virðist ekkert annað en glötun blasa við flokknum ef stefna flokks- forystunnar breytist ekki. Skoðana- kannanir sýna að kjósendur hans eru hneykslaðir á þeirri einangrunar- stefnu sem einkennir hann nú. Endurnýjunarsinnarnir virðast búnir að vera i bili enda þótt þrfr helstu foringjar þeirra, Pierre Juquin, Felix Damette og Marcel Rigout, hafi haldiö sætum sínum ! miðstjórn. Ljóst er hins vegar, eftir að 15 minna þekktir stuðningsmenn þeirra voru felldir úr miðstjórn, að þeir eru áhrifalausir með öllu. Eftir þetta 25. þing kommúnista er hægt að fullyrða að franskir kommúnistar eru forhertir 1 einangrunarstefnu og Moskvu-þjón- ustu sinni. Raddir andstæöinga forystunnar eru þaggaðar niður. Ef miðað er við skoðanakannanir meðal kjósenda kommúnista má fastlega búast við að fylgi kommúnista muni enn dvfna f kosningum. ás/Frakklandi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.