Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1985, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1985, Page 11
DV. MIÐVUOJDAGUR 20. FEBROAR1985. Hrísey: Skortur á vinnuafli Frá Valdísi Þorsteinsdóttur, Hrfsey: Aðalatvinnurekandi hér í Hrísey er Fiskvinnslustöð Kaupfélags Eyfirð- inga. Heildarframleiðsluverð á siðasta ári var 100 milljónir króna. Hlýtur það að teljast mjög gott miðað við að íbúa- fjöldinn hér nær ekki 300 manns. Togarinn Snæfell aflaði á síðasta ári 2.277 tn. að verðmæti 31,6 milljónir króna. Togskipið Sólfell fiskaði 994 tonn af botnfiski sem það landaði hér í Hrísey en 250 tonn af rækjum á Dalvík. Ennfremur veiddi Sólfell 616 tonn af sQd sem landað var á Sey ðisfirði. Hér er skortur á vinnuafli. Áður var hér nær ógerningur að fá húsnæði. Nú bregður svo við að hús standa auð. Væri það athugandi fyrir þá sem búa á stöðum þar sem atvinnuleysi er mikið að huga að búsetuskiptum. Hríseyjarferjan flutti tæplega 30 þúsund farþega á árinu sem leið. Alis voru famar 2000 ferðir. Ferjan hefur fastar áætlunarferðir daglega, þrjár til fimm ferðir á dag aiia daga ársins. Telst það til tíðinda ef ferðir falla niður vegna veðurs. -EH. Vinna stöðvaðist í 300 þúsund vinnudaga — árið 1984 með mestu verkfallsárum Fjöldi tapaðra vinnudaga af völdum verkfalla eða verkbanna var rúmlega 301 þúsund á síðasta ári. Það er næst- mesti dagaf jöldi frá árinu 1970. Á árinu 1976 var fjöldi daga með vinnustöðvun af fyrrgremdum sökum tæplega 310 þúsund, að því er fram kemur i nýjasta fréttabréfi Kjararannsóknamefndar. Verkföll eða verkbönn komu til framkvæmda hjá sjö aðilum á árinu. Starfsfólk í Isal boðaði verkfall i tvígang í janúar og febrúar en þeim var báðum aflétt samdægurs. Skipstjórafélagið boðaöi verkfall vegná skipstjórans á Karlsey í apríl. Stéttarfélag sjúkraþjálfara átti í tveggja daga verkfalli i maí. Félag bókagerðarmanna stóð í 6 vikna verkfalli í september og október. Verkalýðsfélög á Suðurlandi stóðu í verkfalli gegn sláturleyfishöfum í september. Verkfall BSRB hófst í byrjun október og stóð í fjórar vikur og frá sama tíma var boðað verkbann á blaðamenn Morgunblaðsins, DV og NT. Samtals stóöu 12 þúsund manns í verkfallsátökum á árinu. Þar af voru flestir innan BSRB, eða um 10 þúsund manns. -ÓEF. Duglegir smiðir Fró Regínu Selfossi: Að sögn Ingva Rafns Sigurðssonar, framkvæmdastjóra hjá S.G. Einingahúsum hf. Selfossi, voru sett upp 82 einingahús á Selfossi á síðasta ári. Þar af voru sett upp 11 hús og gerð fokheld í desember sl. á aöeins 23 vinnudögum. Veðrátta til útivinnu hefur verið eins og best verður á kosið. Vant fólk vinnur við einingahúsin, einnig við að setja þau á grunna. Ingvi Rafn er ungur og efnilegur maöur eins og hann á kyn til og setur markið hátt. Hann setti t.d. upp 25 hús í Grafarvogi í borg Davíðs Oddssonar á síðastliðnu ári. 40 manns vinna hjá Einingahúsum í vetur. Þar af eru fjórar konur út- lærðir húsasmiðir. Otborgun vikulega í vetur hefur verið 368.000 krónur. S« Skipholti 19, simi 29800 Nú einfaldast málið fyrir þá sem leita sér að myndbandstæki sem er í senn hlaðið tækninýjungum árgerðar 1985, fjarstýrt, þráð- laust (engar snúrur) og samt á hagstæðu verði ásamt traustri þjónustu. * 1985 árgerð, hlaðin tækninýjungum. * Quarts stýrðir beindrifnir mótorar. * Quarts klukka. * 7 daga upptökuminni. * Fjögurra stafa teljari. * Myndleitari. * Hraðspólun með mynd áfram. * Hraðspólun með mynd afturábak. * Kyrrmynd. * Myndskerpustilling. * Myndminni. * Framhlaðið, 43 cm breitt (passar íhljómtækjaskápa). * Sjálfspólun til baka þegar bandið er á enda. * Svona mætti lengi telja. * Sjón er sögu ríkari. Verð: 41.980, stgr. Þráðlaus fjarstýring fylgir með í verðii NORDMENDE

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.