Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1985, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1985, Qupperneq 22
22 DV. MIÐVKUDAGUR 20. FEBRUAR1985. VIÐ ERUM LENGST AÐ VINNA FYRIR HLUTUNUM: FIMMTÁN MÍNÚTUR FYRIR BENSÍNLÍTRANN HÉR, EINA í WASHINGTON Viö hér á Islandi höfum sérstaklega gaman af því aö bera okkur saman við aörar þjóöir meö alla skapaöa hluti. 1 hvert skipti sem viö sjáum ein- hvers konar samanburð á prenti erum viö óöara búin aö setja íslenskar tölur inn á könnunina. Nú brugðum viö á DV á þaö ráö að gera dálitla könnun á eigin spýtur. Viö könnuðum verö á tíu atriðum sem dagsdaglega koma upp á borö hjá okkur. Þaö er: kaffi, vodkapeli, kaffi- boili á kaffihúsi, leiga á myndbandi, bíómiöi, amerískir filter vindlingar, gosglas á kaffihúsi, áskrift aö dag- blaöi, bensínlítri og startgjald í leigu- bfl. íslensk laun léleg Meö hjálp fréttaritara DV á stööun- um var verö kannaö í eftirtöldum borg- um: Osló, Kaupmannahöfn, París, Lundi, Þórshöfn, Washington DC og Reykjavík. Síöan var reiknaö út hve lengi menn í viðkomandi löndum væru aö vinna fyr- ir þessum vörum og þjónustu. Á töflunni, þar sem verðið er boriö saman, sést aö Reykjavík kemur hreint ekki verst út hvað allt kostar. Verðið hér lendir svona rétt fyrir ofan miöju. Ef aftur á móti er litiö á mínút- urnar sem þaö tekur okkar verkamenn aö vinna fyrir hlutunum kemur upp allt annar flötur. Þá berum við „höfuð og herðar yfir viömiöunarþjóöir okkar. Það tekur okkar mann lengstan tíma að vinna fyrir öllu saman. Lengi að vinna fyrir bensíni Kaffið hjá okkur er álíka „dýrt” og hjá þeim í Lundi. Viö erum mínútu skemur en þeir aö vinna fyrir einu kg eða 99 mínútur. I Washington DC er þaö hins vegar nærri helmingi ódýr- ara. Þar er verkamaöurinn aðeins 55 mín. að vinna fyrir einu kg. Þaö kostar 35 kr. að fá sér bolla af kaffi á kaffihúsi í Reykjavík en 15 kr. í Washington DC. Þaö kostar 35 kr. að fá sér glas af gosdrykk á kaffihúsi í Reykjavík og 67 kr. í Osló. Bensín- lítrinn kostar 26,70 kr. í Reykjavflc en ekki nema 11 kr. í Washington DC. En verðið segir ekki allt. Lítum á hve margar mínútur það tekur verka- manninn aö vinna fyrir þessum vörum og þjónustu. Island kemur illa út úr því dæmi. Verkamannalaun hér á landi eru lægri en í viömiðunarlöndum okkar. T.d. er verkamaöur á íslandi 245 mínútur eöa rúmar 4 klst. að vinna sér fyrir vodka- pela en ekki nema 71 mín. í Kaup- mannahöfn eöa rúma klst. I Washington DC er verkamaðurinn eina minútu að vinna sér fyrir bensín- lítranum en 15 mínútur hér á landi. Þaö tekur okkur 19 mínútur aö vinna fyrir kaffibollanum á veitingahúsinu, en hann kostar 35 kr. I Osló eru þeir ekki nema 15 min. aö vinna fyrir honum en þar kostar hann 55 kr. Askrift dagblaös er áberandi dýrust í París. Þar eru þeir 223 mínútur eöa nærri 4 klst. aö vinna fyrir La Mondin- um sínum á meöan við erum 128 mín. eöa rúmar 2 klst. aö vinna fyrir DV. Sennilega fá þeir fleiri kg af pappír og prentsvertu í París en við. Kaup- mannahafnarbúar eru 130 mín. aö vinna fyrir sínuin Berlingi, eða álíka lengi og viö, og þeir í Washington eru ekki nema rúman klukkutíma eöa 65 mín. aö vinna fyrir Washington-póstin- umsínum. Vegna lága kaupsins á Islandi eru leigubflar mjög dýrir hér, miöaö viö viömiöunarlönd okkar. Þaö tekur okkur 48 mínútur aö vinna fyrir startgjaldinu en aðeins 12 mín. fyrir danskan verkamann. Leigubflar í Osló eru einnig ódýrir eða 14 minútur og aðeins lítiö eitt dýrari í París eöa 16 mín. Þeir eru hins vegar dýrir í Lundi, Þórshöfn og Washington DC. Við getum dregið hvaöa lærdóm sem viö viljum af þessum samanburði. Hann er meira til gamans geröur en aö hann sé vísindalega unninn m.t.t. al- varlegs samanburöar á lifskjörum millilanda. A.Bj. Færeyjar: NIÐURGREITT KJOT OG ENGINN SOLUSKAnUR Bjór þambaður i Færeyjum. Í angu samanburðarlanda okkar nama Banda- rikjunum eru menn eins fljótir að vinna fyrir áfenginu eins og í Færeyjum. Frá Eðvarð Jónssyni, fróttaritara DV í Færeyjum: Verö á sumum matvörum, einkum kjöti, er lægra í Færeyjum en í Dan- mörku. Vegna offramleiöslu Evrópu- bandalagsríkjanna á nautakjöti hafa Færeyingar getað keypt nautakjötiö á niöurgreiddu veröi en Danir leggja hins vegar hærri innflutningsgjöld á kjötiö til aö vernda eigin framleiöslu á nautakjöti. Færeýingar hafa á hinn bóginn engu aö tapa en allt aö græða á þessum viö- íslendingar í Svíþjóð: LEGGJA EKKI í HÚSNÆÐIS- MARKAÐINN HEIMA |jj f? sé.fV- % f M j f#| HBmSI m nkjSLii 1: « «*;« <*** UMtti Það vakti mesta athygli fráttaritara okkar í Svíþjóð hve húsnæðismál eru þar í miklu betra lagi en hár. Samkvæmt töflunni eru Svíar fijótari að vinna fyrir flestu en við. Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, frátta- ritara DV i Lundi: „Aðalmunurinn er fólginn í húsnæð- ismálunum,” sagöi íslenskur náms- maöur hér í Lundi er ég spurði hann á hvaöa sviöi honum fyndist mestur munur á verölagi á Islandi og í Sví- þjóö. Trúlega hefur hann hitt naglann á höfuðið. Algengast er aö íslenskir námsmenn hér í Lundi borgi 1500 til 1800 sænskar krónur á mánuði í húsa- leigu fyrir þriggja til fjögurra her- bergja íbúðir. Mjög algengt er aö þeir fái síðar tvo þriðju hluta þeirrar upp- hæöar endurgreidda í formi húsaleigu-. styrkja. Þessir styrkir eru miöaöir viö tekjur. Dæmi veit ég um sex manna fjöl- skyldu íslenska sem greiðir 2.500 sænskar krónur í húsaleigu og fær síö- an endurgreiddar 2.200 sænskar krón- ur í styrk. Allmargar íslenskar fjölskyldur hafa líka keypt sér búseturéttindi en þaö form búsetu ætti Islendingum nú aö vera orðið kunnugt eftir miklar um- ræður í fjölmiölum. Eru þess dæmi hér aö íslenskir námsmenn, sem lokiö hafa námi sínu, treysti sér ekki til að flytja heim til Is- lands vegna ástandsins i húsnæðismál- umþar. „Viö ráðum ekki viö aö kaupa okkur húsnæði á Islandi eins og þessum mál- um er háttað nú og leigumarkaðurinn heima sýnist mér ekki fýsilegur held- ur,” sagðieinn þeirra viömig. skiptum. Þeir hafa einnig getað keypt niöurgreitt kindakjöt frá Islandi og til skamms tíma hafa þau innkaup veriö ennþá hagstæðari en innkaup þeirra á nautakjöti. Þeir hafa keypt ódýra kjúklinga frá Hollandi og Svíþjóð. Hefur stundum verið hægt að fá sænsk egg á 12 krónur, danskar, kflóiö og sykur á sex krónur kflóiö. En kflóið af sykri kostar 16 krónur í Danmörku. Mjólk og mjólkurafurðir eru hins vegar dýrari hér en í Danmörku þótt nú orðið sé meiri hluti f ramleiöslunnar oröinn færeyskur. Söluskattur er ekki lagður á vörur í Færeyjum og því eru ótollaðar vörur, eins og bækur og blöð, ódýrari í Færey jum en í Danmörku. *»athons routiors *íz mnm ttevKáutkm n «.n ÖWúh* v ^PHffBOAAM A FAIT expres “E.pOURRIR ItöPQTS-.LA SEMALNED£LA DERNiERECHANCE *"’* BSSQUfS ELECT iö*»S k l OMBRf. OU* CERCUOL Frakkar aru manna lengst að vinna fyrir dagblöðunum sinum, eða tæpa fjóra tima fyrir mánaðaróskrift. Á islandi er maður í sömu stöðu tvo tima að vinna fyrir óskriftinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.