Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1985, Blaðsíða 34
34
DV. MIÐVKUDAGUR 20. FEBROAR1985.
Tíðarandinn Tiðarandinn Tiðarandinn Tiðarandinn Tiðarandinn
.
:
. .
Bretarnir völdu afl sjálfsögflu Concorde sem fulltrúa I hóp þess sem best hefur verifl fiannafl.
Gallabuxurnar, sem kúasmalar I Ameriku notuflu upphaflega, eru
eitt af undrunum hvafl hönnun snertir.
Bragginn er einn af þeim útvöldu.
Þannig leit fyrsta árgerflin út, 1937.
Fré þeim tíma hefur útlitið ekki
breyst mikifl.
Hvað eiga Zippo
og bragginn
sameiginlegt?
Um þessar mundir stendur yfir
ýning i London á hundrað hlutum sem
reskir sérfræðingar telja best hann-
ða. Þessir hlutir koma reyndar flestir
rá Bretlandi og eru frá því fyrir um
)00 árum og til okkar tima.
Hönnun
Það er reyndar ekki ætlunin að fara
út í fræðilegar útleggingar á hönnun.
En til að byrja með verðum viö að
staldra aðeins við orðið hönnun.
Hönnun er þýðing á orðinu „design”.
Þetta orð varð feikivinsælt um tíma hér
á íslandi. Liklega má segja um orðið að
það hafi verið ofnotað. Það voru allir
að hanna og allt var hannaö. Svo langt
gekk þessi notkun að menn hér á ís-
landi voru byrjaðir að hanna börn i
stað þess eins og venja er að búa þau til
eða eignast. En það verður að segjast
eins og er að það er ákaflega freistandi
að taka sér þetta orð i munn. Það
hefur til að bera mikinn glæsibrag og
virðuleika.
Nú hafa flestir orðið sammála um að
þrengja að notkun þessa orðs. Notkun
þess hefur því að sama skapi farið
minnkandi. Hins vegar er ákaflega
erfitt aö skilgreina hvar eigi að draga
mörkin á milli hönnunar og hins sem
ekki getur verið hönnun. Hér skulum
við ekki fara út í þá sálma. Við skulum
samt halda okkur við það að á bak við
flesta nýja hluti er hönnun. Óhikað er
síðan hægt aö tala um að það sé
hönnun þegar þessir hlutir eru ekki
öðrum likir i lögun.
„Leföin aö góörí hönnun"
En víkjum aftur til London. Það eru
þarlendir hönnuðir og listfræðingar i
fremstu röð sem hafa valið þessa
hundrað hluti á fyrrnefnda sýningu.
Hlutirnir koma úr öllum heiminum.
Sýningin heitir: „Leiðin aðgóðri hönn-
un”. Undirtitill hennar er „Hundrað
bestu hlutir allra tíma”.
Heimildarmaður okkar, sem var
staddur á þessari sýningu, er danskur
biaðamaður. Hann varð hvumsa þegar
hann rakst á þennan texta strax i and-
dyri sýningarinnar: Góð hönnun fékk á
sig slæmt orð á sjötta áratugnum þegar
hún var bendluð við ákveðna tegund af
skandinavískri fegurð. Af þessari
ástæðu eru gagnrýnendur ruglaðir i
riminu og ekki á eitt sáttir um það
hvað eigi að kalla góða hönnun. Og
almenningur hefur aldrei verið eins
óöruggur um þetta nokkru sinni áður.
Hér er Zippo sjálfur. Snilldarlega hannaður. Reyndar upphaflega
fyrir ameriska dáta.