Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1985, Síða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1985, Síða 35
DV. MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRUAR1985. 35 Mest frá Bretíandi Þeir sem standa að sýningunni ætla því að stoppa þetta óöryggi hjá al- menningi með því að leiðbeina honum að því sem er virkilega vel hannað. Hönnun frá Skandinavíu hefur því verið sniðgengin. í staðinn hefur mest veriö valið frá Bretlandi. Bandarikin eru 1 Ööru sæti. Bretar eru með 24 hluti, Bandaríkjamenn með 14, Japanir með 12, Frakkar með 10, Þjóðverjar með 9, ítalir með 8, og frá öðrum löndum, eða öllum hinum, koma svo 23 hlutir. Zippo Zippo-kveikjarinn er á þessari sýn- ingu. Hann mun hafa séð dagsins ljós á fjórða áratugnum. Hann, ásamt Ray Ban sólgleraugum, sem einnig eru þarna, var upphaflega framleiddur fyrir bandariska hermenn. Kveikjarinn hefur siðan farið sigurför um heiminn. Reyndar hafa orðið aðrir kveikjarar á vegi hans. Ronson lét mikið að sér kveða og notaði gas en ekki bensín eins og Zippo. Síðan hefur gasið tröllriðið markaðnum. Nú eru einnota kveikjarar allsráðandi og litil reisn yfir þeim. Bjallan var ekki valin sem eitt af bestu hönnunarverkum. HÖNNUN Hönnun er orð sem íslendingar byrjuðu að temja sér fyrir nokkrum árum eða svo. Þá voru allir að hanna. Nú eru menn orðnir nokkurn veginn á eitt sáttir um hvað þetta þýðir. Nú er svo komið að aðeins fáir útvaldir hafa rétt til að taka þetta orð sér í munn og hanna. Bretar hafa nú valið 100 hannaða hluti á sýningu sem nýverið var opnuð í heimalandi þeirra. Þar gefst mönnum kostur á að sjá hvað sérfróðir telja vera best hannað síðustu 300 árin. APH. Tíðarandinn Tiðarandinn Tíðarandinn Tíðarandinn Tíðarandinn ROBERT LUDLUM KStSílUNG AUtHOH Of THE MRSBFAL M0SAIC f***mm*rrn-rtuca***>* 111 a«: mmnmm* ÐIMTSTY WILLIAM STYRON DEIGHTON Vasabækurnar, eða pappírskiljurnar, eru dæmi um góða hönnun að mati Breta. Sígildir hlutir Þvi miður höfum við á DV ekki verið á þessari sýningu og styðjumst áfram við heimildarmann okkar danskan. Hann nefnir reyndar ekki alla þessa finu hluti sem hafa fengiö pláss á þessari sýningu. Hann er nefnilega dálitið svekktur yfir því að Bretarnir vildu ekki sjá það skandinaviska. Hvað snertir stærðir þarna má geta þess að þarna er að finna hluti á stærð við Concorde-flugvélina niður í galla- buxur frá Ameríku. Það eru galla- buxurnar sem ættaðar eru frá kúasmöi- um i Bandarikjunum og sem hafa tröll- riðið heiminum síðan. Það er líklega ekki til sá maður i vesturhlutanum sem ekki hefur smeygt sér í gallabuxur. Ef það hafa ekki verið Levi Strauss þá hafa það verið eftirlíkingar. Bretarnir eru hrifnir af hönnun þessara buxna. Levi Strauss varð fyrstur til að koma þessum buxum á markað. Þær voru saumaðar úr bláu denimefni og það gerðist fyrst 1850. Frá þeim tíma hafa jarðarbúar, margir hverjir, gengiö í þessum flikum. Við vitum líka að ef Rússar hefðu verið með sýningu af þessu tagi hefðu gallabuxurnar líka verið þar. Því þar i landi láta menn gjarnan lifið fyrir svo sem einar slikar. Við hér á íslandi vitum líka að þær hafa slegið i gegn hér. Til þess að kanna það er hægt að gera vettvangskönnun úti á götu. Það sem meira er er að þessar buxur eru yfirleitt eins i útliti. Það er því óhætt að fullyrða að án þessara buxna hefðum við verið illa stödd. Þetta er hönnun sem hefur verið notuð óspart og margir orðið rikir af að framleiða og færri buxnalausir. Reyndar virðist vera að finna einskonar afturhvarf hjá gömlum Zippo-notend- um og aðdáendum. Þeir hafa margir hverjir tekið fram gamla Zippo- kveikjarann sinn eða keypt sér nýjan þvi þeir fást enn i verslunum. Farartæki Við erum þegar búin að nefna Concorde-flugvélina sem Bretar og Frakkar smíðuðu i sameiningu. Við munum að það tók allmörg ár. Siðan viröast fáir hafa keypt þennan grip. Hún sló ekki i gegn. Bretamir eru veikir fyrir henni og setja hana á bekk með þessum 100 hlutum. Þarna er einnig að finna gömlu vesp- una. Vespur og slík farartæki hafa reyndar aldrei náð mikilli útbreiðslu hér á landi. Víða erlendis eru þessi farartæki mun algengari og oft yfir- gnæfandi á götum úti. Vespan þykir sérlega vel hönnuð að mati Bretanna. En hvaða bil skyldu þeir nú hafa valið? Flestir hefðu búist við að bjallan yrði fyrir valinu. En svo varð ekki. Annar bíll var vaiinn og 1 raun ekki síður merkilegur og fagur eftir því. Þessi bíll hefur yfirleitt verið nefndur braggi á islensku. Réttu nafni heitir hann reyndar Citroén 2CV. Hann er franskur að uppruna og hefur verið vinsæll viða um heim. Hann hefur verið tákn fyrir þá nægjusömu. Þeirra sem ekki leggja mikið upp úr glæsibif- reiðinni en höfuðáhersluna á markmið og tilgang bllsins. Það er, ef menn skyldu ekki hafa vitað þaö áður, að koma sér frá punkti A til punkts B. Bragginn er fallegur og notagildi hans mikið miðað við kostnað. Ritvólin er dæmi um góða hönnun. Allt á róttum staö. Hór sjóum við Olivetti ritvól fró fyrri timum. öldósin öldósin hefur einnig fengið heiðurs- sæti á þessari sýningu. Við fslendingar erum ekki vel dómbærir um hönnunar- fegurð hennar af skiljanlegum ástæð- um. Þá hefur einnig ,,pocket-bókin” verið valin sem góð hönnun. Það var mikil bylting i bókagerð þegar pappírs- kiljan kom fyrst á markað erlendis. Hér á íslandi hefur hún reyndar ekki fengið sérstakan sess. Reyndar byrjaði Mál og menning að framleiða pappírs- kiljur um síðustu jól og nefnast þær uglur. AOrir hiutir Við höfum aðeins nefnt hluta af því sem þarna er að sjá. Sumt telja ekki allir að sé góö hönnun. Það eru ekki allir sammála því að „combi-reiðhjól” sé þess virði að vera á þessari sýningu eða að ný gerð af tennisspaða úr létt- málmum eigi að vera þarna. Framtíöarsýning Sá sem stendur á bak við þessa sýn- ingu er sir Terence Conran. Hann er meðal annars þekktur fyrir það að vera milljónamæringur. Hann á verslunar- keðjurnar sem nefnast Mothercare og Habitat. Þá seinni ættu fslendingar að kannast við. Það er reyndar ekki sjálf- ur lordinn sem stendur á bak við sýninguna heldur sjóður sem hann stofnaði. Þessi lord er þekktur að því að líkja eftir hönnun frá Norðurlöndunum. Varningurinn er siöan seldur i hans verslunum til miðstéttarfólks. Hann hefur áhuga á því að koma upp varanlegu safni sem sýni aðeins það besta sem fram hefur komið á sviði hönnunar. Hann hefur sérstaklega augastað á yfirgefnum hafnarsvæðum i London sem nú er orðið mikiö af. Hvað er vei hannaö? Að lokum er ekki úr vegi að velta þvi fyrir sér hvað er vel hannað. Það getur verið einstaklingsbundið hvað fólki finnst gott og hvað slæmt. Við vitum t.d. ekki hvort síminn er þarna. Svarti síminn þar sem sama tólið var fyrir tal og heyrn. Það var snilli að finna það tæki upp. Enn meiri snilli var að hanna þennan sima. Getur hann verið miklu einfaldari? Er ekki allt á réttum stað? Hann sló gjörsam- lega í gegn. Þessa dagana virðist þó veldi hans vera ógnað með takkasímum sem reynt er að hafa aðeins öðruvisi. Þó er ekki vikið frá meginhugmynd- inni. Það er kannski best að vera ekki að fjölyrða um hvað sé það bestaog fall- egasta því þegar grannt er skoðað getur þaö verið vafasamt að segja öðrum hvað sé það besta. APH tók saman.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.