Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1985, Qupperneq 10
10
DV. FÖSTUDAGUR 22. MARS1985.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Eyðing Amasonskóga veldur
vísindamönnum áhyggjum
Víöáttur hata veriö ruddar í
Amasonsvæði Brasiliu sem er
stærsta hitabeltisskógasvæði
jaröarinnar. Hafa Brasilíumenn
gengið svo ötullega fram til land-
náms og uppbyggingar aö vísinda-
mönnum stendur oröiö stuggur af.
Vara þeir viö hættum sem þessu
gætu verið samfara, eins og
breytingum á veðurfari og fleira.
Stígandi i framkvæmdum
Þaö er ætlað að meö eldi og
jarðýtum hafi veriö rutt sem svarar
5—10% af þeim fimm milljón ferkíló-
metrum sem Amasonskógar þöktu
einu sinni. Þetta hefur veriö gert á
síöustu tuttugu árum tU þess aö
rýma fyrir nýjum nautabúgörðum,
vatnsorkuverum og námum.
Seinni árin gætir meiri stígandi í
þessum aögeröum, eftir því sem
BrasiUumenn heröa á sér aö sigrast
á þessu síðasta óunna landsvæði
jaröarinnar til þess aö auka land-
búnaðarframleiöslu sína og virkja
fundnar náttúruauöUndir.
Margt unnið
fyrirgýg
Vísindamenn segja aö lítill
gaumur sé gefinn aö því aö beina
landbúnaðarverkefnum til heppi-
legri svæöa, og af því hafi oft leitt aö
menn hafi borið niður á miöur heppi-
legum stöðum. Naumast hafi fyrr
verið rutt svæöi til að brjóta land en
staðurinn hafi veriö yfirgefinn aftur
vegna lítt yrkjanlegs jarðvegar. A
nýlegri, alþjóölegri ráöstefnu um
Amasonsvæðið kom fram aö þessi
einstæöu skógarsvæöi væru stundum
rudd tU að fá beitUand fyrir nautpen-
ingíaöeinsörfáár.
Visindamennimir hvetja mjög
til meiri rannsókna meö tilliti
til afleiöinga af svo stórfelldu raski,
þegar lengra Uöi frá. Þeir bera þó af
sér um leið aUar ásakanir um að
vilja taka fyrir aUar framkvæmdú-
eöa mannvirki á Amasonsvæðinu.
Þeir vUja aö vandað sé val staöa tU
umróts og menn gæti aö sér, því að tU
þessa hafi margar framkvæmdir
veriö vanhugsaðar og margt verið
unniö fyrir gýg með óbætanlegum
spjöUum.
Ófrjósamur
jarðvegur
Fyrra orö, sem fór af frjósemi
moldar Amasonskóga, reyndist tál.
Eöa aö menn gerðu sér ekki grein
fyrir á hverju hún byggðist. I þétt-
vöxnum hitabeltisskógi fyrirferst
mikið af gróöri í samkeppninni og í
þessu loftslagi vinnst fljótt frjósöm
mold úr leifunum. En hún endist ekki
og þarfnast stööugrar endurnýjunar,
en efniviöurinn tU þess er ekki til
staöar þegar skógurinn hefur veriö
ruddur. Hringrásin hefur veriö rofin.
Þaö er unnt aö finna aUt aö 170
mismunandi einstaklinga, óUkar trjá-
tegundir, á aðeins einum hektara í
Amason, þar sem aöeins fyndust tvær
tylftir, í mesta lagi, á jafnstóru svæöi
skóga í Bandaríkjunum eða Evrópu.
En menn ætla aö samt sé ekki nema í
mesta lagi 10% svæðisins yrkjanlegt
tU landbúnaöar.
Ráðstefna
um Amason
Á ofannefndri ráðstefnu, sem efnt
var tU í geimrannsóknarstofnun
BrasiUu viö Sao Paulo og stóö í tíu
vikur, báru vísindamenn saman
bækur sínar um veöurfar, líffræöi-
legar staöreyndir og hvaö annað sem
vitneskja nær yfir á þessu svæöi.
Stóö ráöstefnan í tíu vikur og komu
þar fram vísindamenn sem sumir
hverjir hafa stundaö rannsóknir á
þessusvæðiíáratug.
Voru aUir á einu máli um að meiri
rannsókna væri þörf, en þó blasti við
aö ruðning skóganna hefði fólgna í
sér hættu og nauðsyn bæri til meiri
aðgæslu.
Síðan 1978, þegar landstjórnin
haföi gervihnattamyndir tU þess aö
reikna út aö 77 þúsund ferkUómetrar
(1,55%) hefðu veriö ruddir, hefur
ekkert veriö fylgst af hálfu yfirvalda
meö því hvaö gengið hefur á þetta
regnskógasvæöi, sem er þriðj-
ungur aUra regnskóga jarðar.
Framkvæmdamennimir halda því
fram aö um sé aö ræöa svo lítinn
hluta aö engar áhyggjur þurfi aö
hafa. En ef stígandin eykst áfram
jafnört í framkvæmdunum og veriö
hefur síöustu ár mun aUur
skógurinn horfinn innan þrjátíu ára,
samkvæmt útreikningum ráðstefnu-
manna.
Fólksflutningar
Þangað hef ur f lust f jöldi fólks, sem
flosnað hefur upp frá bústörfum í
suöurhluta BrasiUu (kornbeltinu)
vegna vélvæðingar í landbúnaöinum.
Þessir fólksflutningar hófust með
vegalagningunni á miöjum sjöunda
áratugnum, þegar fólki opnuöust
svæöi, er áöur höfðu verið
óaðgengileg. Fólk kepptist viö aö
helga sér landskika og þá einatt meö
því einfaldlega aö ryðja skóg, þótt
þaö hefði engar áætlanir um aö
nytja skikann í náinni framtíö.
Skattaívilnanir og ríkisstyrkir hafa
síðan verkaö hvetjandi til jarðbrots.
Gæti dregið
úr úrkomu
Á vísindaráðstefnunni var áréttaö
aö afsannaðar heföu veriö fyrri
kenningar um mikilvægi Amason til
súrefnisframleiöslu jaröar. Amason
eyöir aftur jafnmiklu súrefni og þaö
framleiðir. En Amason er mikil
regnverksmiðja, og stórfellt rask á
skógunum myndi draga mjög úr úr-
komu í Brasiliu og hugsanlega ná-
tegustu löndum. Og þar sem
algengasta aöferöin við aö ryöja
skógarsvæði er að brenna skóginn,
hafa menn áhyggjur af því að fyrir
hvem hektara sem brenndur er fara
800 smálestir af kolsýringi út í and-
rúmsloftið.
eða til að rýma svæði til land-
Skógar hafa verið ruddir fyrir vatnsorkuver. . .
. . . og til þess að komast í að nýta náttúruauðlindir með námavinnslu
búnaðar.
Fjör færíst f kfn-
verska blaðamennsku
Blaðamaður ársins.
Verksviö kínverskra blaöamanna
hefur breyst upp á síökastiö. Eftir aö
hafa setiö áratugi viö aö sjóða
saman texta á hugmyndafræðilínu
kommúnistaflokksins hefur þeim
veriö sagt aö snúa sér meira aö rann-
sóknarblaöamennsku til að fletta
ofan af spillingu og Bakkabræðra-
vinnubrögðum í kerfinu. Flokkurinn
heldur aö sjálfsögöu enn um
taumana, en hefur sem sé spennt
aktygin á fjölmiölana til aö hjálpa
viö aö draga umbótaplóginn.
Misjöfn hrifníng
Eins og vænta mátti hafa jarlarnir
í kerfinu ekki tekiö þessu alls staöar
jafnvel. Dagblööin í Kína hafa aö
undanfömu greint frá ýmsum
viðburöum í borgum eins og Sjansjæ,
Peking og Sjenjang, þar sem blaöa-
menn hafa verið hnepptir í varðhald
eöa jafnvel sætt barsmíöum, þegar
kerfiskurfum ofbauö snuörið í þeim.
Aðalmálgagn flokksins, Dagblaö al-
þýðunnar, sá ástæöu til þess nýlega
aö hafa orö á því aö slíkt framferði
embættismanna „mætti ekki liða”.
Einna hæst bar þama mál átta
blaöamanna sem vom aö gmfla í því
hvort ólöglega hefði veriö staöiö aö
lokun verslunar einnar í einkarekstri
í Sjansjæ, heimabæ Maos
formanns. Þessi einkaverslun þótti
hafa staðiö sig óþarflega vel í sam-
keppni viö ríkisverslunina. Heima-
jörlunum mislíkaöi umfjöllun blaöa-
snápanna um máliö og sökuöu þeir
þá um aö afbaka staöreyndir og
þiggja mútur. Blaöamannafélagiö í
Kína, sem hefur 300 þúsund félaga
innan sinna vébanda, linnti ekki lát-
um fyrr en yfirvöld í Sjansjæ höföu
beöiö biaöamennina afsökunar.
Sérstöklög
Nú hafa landsyfirvöld látiö máliö
til sín taka til þess að vemda blaða-
menn fyrir slíkri meöferö. Eru í
smíðum ný lög varðandi prentfrelsi
og fjölmiölun, og virtur fyrrverandi
aöalritstjóri Dagblaös aiþýöunnar
hefur feröast um landiö til að efna
sér í tillögur til nýju laganna. Hann
hefur einnig eigin reynslu til aö
byggja á, því aö í herferðinni gegn
hugarfarsmengun (sem var fýrir
einuogháIfuári)var hann og nokkrir'
starfsbræður hans reknir fyrir
leiðaraskrif meö æði frjálslyndri
túlkun á marxisma, túlkun, sem nú
viröist aftur njóta góörar náöar.
Meira frjálsræði
Kínverskir blaöamenn telja sig
njóta meira frjálsræðis í störfum
núna, en áöur en Deng Xiaoping kom
til valda aftur 1978. Þeir þurfi ekki
lengur aö bíða eftir grænu ljósi yfir-
valda fyrir hverja frétt og meira
tillit sé tekiö til tillagna þeirra og
hugmynda um hvaö taka skuli fyrir í
staö þess aö umskrifa fréttatilkynn-
ingar áöur. Eins og öörum í Kína er
blaöamönnum sagt að fara aö ráöi
Dengs og leita „sannleikans í stað-
reyndunum”. En sannleikurinn er þó
oft háöur því hver er ríkjandi flokks-
lína hverju sinni.
Þessi viðleitni til þess aö hressa
upp á hlutverk fjölmiölanna er til
komin fyrir þaö, aö almennt er viöur-
kennt, aö sem hugmyndafræðilegt
verkfæri hafa fjölmiðlarnir ryðgaö,
og þörf sé á því aö ryöberja þá.
Lesendakönnun
Þótt dregið hafi síðustu tvö árin úr
töluverðu af áróöursstaglinu í kín-
verskum fréttaflutningi, er enn sagt
um flest kínversku blööin að þau séu
fremur leiðinleg aflestrar. I nýlegri
könnun meöal 2.500 lesenda blaöa í
austurhluta Kína voru menn nær
einróma sammála um aö nytsam-
asta lesningin í opinberu fjöl-
miölunum væru veöurfréttirnar. Og
ekki voru þaö nema 65% þeirra, sem
spurðir voru, er töldu fréttirnar, sem
þeir lásu, vera sannleikanum
samkvæmar.
Dagblaö alþýðunnar státar af sex
milljón lesendum, en er þegar fariö
aö finna fyrir samkeppni. Hefur þaö
tekið upp gagnrýni á „sorpsnepl-
ana”, sem litu fyrst dagsins ljós fyrir
tveim árum. Má vera, að þeir þyki
meiri afþreying til lestrar.