Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1985, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1985, Blaðsíða 11
DV. FÖSTUDAGUR 22. MARS1985. 11 Börn 1-10 ára 3 giös á dag Börn þurfa á miklu kalki að halda til að byggja upp heilbrigð bein * og tennur. Á þessum árum er grunnurinn lagður að hraustum | líkama - ef fœðuvalið er rétt. 'i Líkaminn er í hröðum vexti. Áföll á borð við skort á réttum efnum til uppbyggingar geta haff alvarlegar afleiðingar. Foreldrar œttu að hafa í huga : að nœr vonlaust er að | fullnœgja kalkþörf líkamans J án þess að bamið neyti nœgrar mjólkur. 1 Ófrískar konur og brjóstmæður 5 giös á dag Það þarf meiri mjólk fyrir tvo. Fái móðirin ekki nœgilegt kalk, vinnur | líkaminn það úr beinum hennar til að byggja upp fóstrið og framleiða mjólk. Móðirin þarf því að fá mikið af kalki, eigi hún að j sleþpa við afleiðingar kalkskorts síðar á œvinni. 2-3 glös á dag og styrkja þannig tennur og bein Igmfn* MJÓLKURDAGSNEFND Mjólk inniheldur margvísleg nœringarefni sem nýtast fólki á öllum aldri, en tvímœla- laust gegnir kalkið þar mikilvœgustu hlutverki. Líkaminn þarf mikið af kalki á hverjum degi til vaxtar og viðhalds beina og tanna. Til að kalkið í fœðunni nýtist, þarf ákveðið magn af D vítamíni, sem einmitt er að finna í réttum hlutföllum í mjólkinni. Pess vegna er mjólkin ekki aðeins kalkríkasta fœða sem til er, heldur einnig auðnýtanlegri kalkuppspretta en flestar aðrar fœðutegundir. Afleiðingar kalkskorts Kalkskortur veldur beinþynningu, sem getur haft alvarlegar afleiðingar í för með sér. Hennar verður sjaldnast vart fyrr en miðjum aldri er náð, en þá er of seint að bœta úr. Beinþynningu er hins vegar hœgt að koma í veg fyrir með því að drekka nœga mjólk í œsku og á unglings- árum. Með því að byrja að drekka mjólk reglulega á fullorðinsárum er einnig hœgt að halda beinþynningu niðri. Best er þó að drekka mjólk daglega alla œvi. RDS Sérfrœðingar hafa komist að raun um hvað daglegur skammtur af kalki má vera stór svo hann nýtisttil vaxtar og viðhalds beina og annarrar líkamsstarf- semi. Þetta magn er nefnt ráðlagður dagskammtur (RDS). Hér eru gefnir upp ráðlagðir dagskammtar fyrir hina ýmsu aldurshópa til glöggvunar fyrir lesendur. Konur 60 ára og eldri 4-5 glös á dag Kalktap kvenna er meira en karla og er þeim þvf hœttara við beinþynningu. Ástœðurnar eru fyrst og fremst kalkskortur vegna meðgöngu og brjóstagjafar. Flœgt er að takmarka skaðann með daglegri neyslu mjólkur. Sé kalkskortur í líkamanum kemur beinþynning yfirleitt í Ijós eftir að miðjum aldri er náð. Þá er hœgt að koma í veg fyrir áframhaldandi hrömun með kalkneyslu og halda þannig sjúkdómnum niðri. Séu beinin heilbrigð tryggir mjólkurdrykkja áframhaldandi heilbrigði. Unglingar 11-18 ára Ungt fólk og fullorðið Kalkneysla kemur f veg fyrir beinþynningu og viðheldur styrk beina. Ef kalk er nœgilegt í beinunum má viðhalda fullkomnum styrk með daglegri neyslu og einnig má halda beinþynningu niðri ef kalkskortur er þegar staðreynd. Fólk á efri árum Líkamsvöxturinn er mjög hraður á þessum árum og hver dagur dýrmœtur. Mikið þarf af kalki og ef réttrar fœðu er neytt er komið í veg fyrir áföll sfðar á cevinni. Kalkið stuðlar að fullum þroska beina og tanna og verður að vera í nœgilegu magni f beinunum þegar Ifður á unglingsárin, þvf eftir tvítugt er yfirieitt of seint að bœta upþ kalkskort.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.