Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1985, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1985, Page 13
DV. FÖSTUDAGUR 22. MARS1985. 13 Menning Menning Menning Menning Leikhópur MK sýnir: Hlaupvídd 6 — eftir Sigurð Pálsson A morgun, laugardaginn 23. mars, frumsýnir leikhópur Menntaskólans í Kópavogi leikritiö Hlaupvídd 6 eftir Sigurö Pálsson. Leikstjóri er Þórhildur Þorleifsdóttir en alls taka um 20 manns þátt í sýningunni. Hlaupvídd 6 gerist á stríðsárunum og fjallar um það hvernig íslenska þjóðin lenti í ástandinu, eins og þaö var kallað. Verkiö hefst á síldarplani fyrir norðan, stuttu áöur en breski herinn kemur hingað til lands. Áhorfendur fylgjast með nokkrum stúlkum sem eru þar við söltun og síðan því hvemig hersetan og stríöið hafa áhrif á líf þeirra og annarra persóna sem koma fram í verkinu. Reynt er að endur- spegla þau áhrif sem þetta tímabil hafði á þjóðina í heild sinni. Þó þetta sé að vissu leyti örlagasaga er léttur undirtónn í leikritinu. Inn í at- burðarásina er skotið atriðum þar sem þeir Hitler og Churchill láta móð- an mása. Þórhildur leikstjóri sagði að eftir að hún leikstýrði Sveik í Þjóöleik- húsinu i fyrra heföi einhver gagnrýn- andi sagt að hún hefði einstaka tilhneigingu til að gera hættulega menn hlægilega. Nú er hún að sjálf- sögðu ekki ábyrg fýrir texta verksins en hvað sem því líöur er ágætasta skemmtun að fylgjast með tilburðum leikarans sem túlkar hinn litt hlédræga Adolf Hitler í Hlaupvídd 6. „Þetta er búið að vera mjög skemmtilegt,” sagði Þórhildur, „þó svo að við höfum ekki siglt í lygnum sjó allan tímann. Það er alltaf töluvert átak að gera krökkunum grein fyrir alvörunni sem liggur aö baki ef maður ætlar aö láta áhorfendur borga fýrir að sjá sigásviði.” Verkið er sett upp í Hjáleigunni, en s vo kallast lítill salur í k jallara Félags- heimilis Kópavogs. Salurinn tekur um 60 manns í sæti og er sérstakur fyrir það að sviðið er nokkum veginn jafn- stórt og áhorfendasvæðið. Áhorfendur sitja mjög nálægt leikurunum og ættu að verða í mjög góðum tengslum við það sem er að gerast á sviðinu. ,3alurinn hefur auðvitaö bæði kosti og galla og þaö er sjálfsagt aö reyna að nýta sér kostina,” sagði Þórhildur að lokum. Þegar blaðamaður leit inn á æfingu Örn Alexandersson i hlutverki einvaldsins. DV-mynd GVA. um miðja viku var augljóslega komin taugaspenna í leikarana fyrir frum- sýninguna. A miðju gólfi stóðu síldar- tunnur, skjaldarmerkiö var í bak- grunni og krakkamir voru í óða önn að ganga frá sviðinu. Þau sögöu að æfingar hefðu staðið frá því í byrjun febrúar, þetta væri mikil vinna en að sjálfsögöu vel þess virði. Áhugi skóla- yfirvalda væri að vísu lítill, en nemendur skólans biðu í ofvæni eftir að fá að sjá leikritið. Atriði úr því var sýnt á árshátiö skólans þannig að fólk fékk nasaþefinn af því sem koma skal. Tónlistina við verkið samdi einn nemenda, Ari Einarsson. „Þjóðverjar hafa ráðist inn i Pólland." Skuggi heims- styrjaldarinnar færist yfir sildar- planið fyrir norðan. DV-mynd GVA. f/ ER 'AHÆTTUSAMARyv AÐ EIGNAST BÖRN UMOG \ EFTIR FERTUGT? /J FERÐ INNI ELLIÁRIN L VIKAN^ Á EYJU \ RÓBINSONS 0 KRÚSÖ Á I KONUR ' HINRIKS ÁTTUNDAI HEIMSREISU " ER HÆTTULEGT AÐHAFA YFIRSKEGG? r soliisTN / GETUR SKINIÐ Á NÖTTUNNI Y KYNLIF TIL > HEILSUBÖTAR \ EÐA HEILSUBÖT v AF KYNLÍFI? í ER HÆGT AÐ STJÖRNA SNJÓKOMU? sýnipg um helgína --- \ I Al ITADHAr A V/ LAUGARDAG A 10-14 rT wm SUNNUDAG hJ5siöttin9a LTJ 14-17 Háteigsvegi 3 Sími 27344 í’Jddhús med 12 mánaða BWHl

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.