Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1985, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1985, Blaðsíða 5
DV. LAUGARDAGUR 23. MARS1985. 49 1 Þú örvæntir sem sé ekki um framtíð bókarinnar? „Eg held að það sé alltaf ákveðinn hluti þjóðarinnar sem les. Það getur verið að minna sé lesið en áöur var. En mér sýnist áhugi ungs fólks vera mikill og svo myndi ekki vera ef fólk væri hætt að lesa almennt. Það kemur stundum upp í manni eitthvert svartagallsraus. Þegar á heildina er litið held ég að það sé ástæðulaust. Það er ekki hægt að skipa fólki að lesa. Þaö les yfirleitt til að fræðast um sjálft sig og heiminn og for- tíð og nútíð. Eg trúi því ekki að for- vitni manna verði drepin niður og þeir leiti sér eingöngu afþreyingar. Það held ég að væri óþarflega mikil svart- sýni.” Bækur þínar hafa fengið mjög góðar viðtökur. Hefur þaö oröið þér upp- örvun? „Já, vissulega.” Varstu ekki óörugg þegar þú gafst út fyrstu bókina? „Jú, mjögsvo.” Fræðimennska og skáldskapur Þetta er miklu erfiðara, heldur en að skrifa fræðirit um bókmenntafræði, að senda frá sér skáldverk, ekki satt? „Jú, vegna þess aö þaö er ööruvísi tekiö á því. Þaö eru svo miklu fleiri þættir sem teknir eru inn í sambandi við skáldverk. Hvað snertir fræðirit eða rannsóknir er fyrst og fremst veriö að gagnrýna þær hugmyndir sem koma fram í því. Þess vegna er lögð áhersla á að það sé vel grundað og rök- stutt. En það eru náttúrlega önnur lög- mál sem gilda í skáldskap og menn taka allt öðruvísi á honum. Þó hitt sé náttúrlega líka spennandi aö vita hvaða viðtökur einhver hugmynd fær til dæmis í sambandi við fræðirann- sóknina.” Nú hefuröu rannsakað miðaldabók- menntir svo skrifaröu bækur sem gerast í nútímanum. Þér hefur aldrei dottiö í hug að skrifa verk sem gerist á miðöldum. Eða ætlaröu að fást við einn tíma sem fræðimaður og annan tíma semskáld? Eg held að ég myndi ekki treysta mér í bili til þess að skrifa miðalda- verk. En kannski að maður fikri sig lengra og lengra aftur í tímann.. . Ég veit það ekki. Það er ómögulegt að segja. Hvað bækur snertir þá eru mið- aldimar kannski ekki svo langt í burtu. Þær eru nær okkur en við höldum. Líka í frásagnarlist. Sjálfsagt gerum viö það alltaf þegar við fjöllum um fortíðina að við fæmm hana til nútímans að einhverju leyti. Við eigum erfitt aö ná fram miööldum eins og þær voru. En það hefur verið hægt að láta þær lifa í gegnum kyn- slóðirnar með því að hver kynslóö hefur hugsað um þetta tímabil og varpað á það nýju ljósi. Þetta safnast svo allt saman og verður úr því heimur sem við ímyndum okkur að hafi verið svona en það er náttúrlega allsendis óvíst aö hann hafi verið þannig. Miðaldaverk hljótum við að lesa að einhverju leyti með gleraugum nútímamannsins. Við getum ekki orðið miðalda lesendur. ” Kennslan skapandi starf Þig dreymir ekkert um aö fara alveg útí skáldskap og hætta kennslu? „Nei, ég get ekki séö að það væri mögulegt í ýmsu tilliti. Fjárhagslegu tilliti og öðm. Eins og ég sagði þá er kennsla á vissan hátt skapandi starf sem ég hef ánægju af og myndi sjá eftir.” — Þú vildir kannski ekki hafa þetta neitt öðmvísi? ^ ,,Ég hef aö vísu ekkert hugsað út í það. En ég held ekki. Eg er í tengslum viö ungt fólk í kennslustarfinu og það getur gefið manni heilmikið ef vel er haldiöámálum. Eg held að ef ég hætti að kenna teldi ég mig missa af einhverju. Þaö myndi útiloka vissan þátt tilverunnar. Eg veit aö maður á að vera heill og óskiptur í því sem maöur gerir og starfar en ég held aö það sé erfitt nú á tímum. — Eg á ekki við að í mér sé tog- streita milli skáldskapar og kennslu. Mér finnst þetta vinna saman. Eg er að lesa margt sem ég myndi ekki lesa annars eða velta fyrir mér. Það heldur líka huganum gangandi. Mér finnst kennsla uppörvandi, stimúlerandi vinna. Það sem mér finnst ekki nógu gott er hve mikill hluti kennslustarfsins er fólginn í stjórnsýslu. Hún tekur stundum ansi mikinn tíma. Dagblaðskrítík — Hvaö finnst þér, sem bókmennta- f ræðingi og skáldi um dagblaöskritík? „Það er náttúrlega mjög misjafnt hvernig hún er gerð. Kannski verður aö setja sig dálítið í spor þeirra sem skrifa gagnrýnina. Þeir verða að skrifa á stuttum tíma um mörg verk og hafa kannski ekki tíma til að hugsa nóg um þau. En sumt af þessu er mjög vel gert sýnist mér, heiðarlega unnið og vandlega. Sumt líka miöur. Stundum kemur fram tilhneiging til að setja hlutina upp í formúlur. Það örlar á því, þannig að þaö sem mestu máli skiptir f er kannski f yrir ofan garð og neðan. Mér sýnist aö hlutverk gagmýnenda í blöðunum sé bæði að kynna verkið og gagnrýna það. Síður að analýsera verkiö. Og það er það sem vantar hér í umf jöllun um bækur. Mætti vera meira aö því gert. Þaö er ekki ætlast til þess í blaðagagnrýni. En vettvangur til þess að analýsera bækur virðist ekki vera mikill. Nú eru aö koma fleiri tímarit þar sem fjailað er um nútímaverk á b reiðum g rundv elli. Lesendur — Hugsarðu um þaö hverjir lesi bækurnar þínar? „Nei, ég geri það ekki. Ekki beinlínis hverjir lesa. En auövitað þegar maður skrifar gerir maður alltaf ráð fyrir les- anda. Því að höfundurinn veröur að velta fyrir sér hvort verkið muni skiljast. Þannig að lesandinn er alltaf til staðar að meira eða minna leyti þegar veriö er að skapa. En ég miöa ekki viö neinn ákveðinn hóp manna eða neitt þess háttar. Það gera sjálfsagt fæstir. Þetta er kannski lesandi sem er dulítið skyldur manni sjálfum. Þessi ósýnilegi lesandi gerir líka kröfur til manns.” En þegar bókin er komin út hefurðu ekki hugmynd um hver les bókina og kannski engar áhyggjur af því? „Jú, því fylgir náttúrlega viss óróleiki því er ekki að neita. Því þetta er óvissa, einmitt aö þessu leyti. En það er tvennt ólíkt lesandinn sem maöur hefur í bakhöndinni og svo viðtökumar. Maður tengir þetta ekki alveg saman. Þess vegna ríkir óviss- an. Maður veit ekki hvernig verkinu verður tekið. Ég hreint út sagt hef ekki hugmynd um það,” bætir Álfrún við og hlær. Það er öðruvísi heldur en til dæmis meö fræðigrein, þó að alltaf sé það erfitt að gera hana þannig úr garöi aö hún verði aðgengileg. En fræðigrein þjónar nógu ákveðnum tilgangi til að ég telji mig vita betur hverjir lesa hana heldur en skáldverkin. Og jafnvel er hægt að ímynda sér mótbárurnar og annaö sem ekki er hægt þegar skáld- skapur er annars vegar.” Finnst þér fólk hafa skilið bækumar þínar? „Ja, ég hef ekki orðiö vör við annað og það verður ekki annað séð af þeirri umfjöllun sem bækurnar hafa fengið.” Góðir vinir gagnrýna — Ertubyrjuðáeinhverjunýju? „Já, ég get ekki lokið neinu án þess aö hafa að minnsta kosti eitthvað á bak við eyrað. Annars myndi maður halda áfram að snúast í því sem maður var aö gera og laga það í það óendanlega. Nýtt viðfangsefni er svona til þess að hjálpa því í burtu. Aö fá inn eitthvað annað sem maður hefur áhuga á. Það er kannski dálítið erfitt að sleppa bók? „Þaö má laga, betmmbæta. Mætti jafnvel byrja upp á nýtt þess vegna. Þegar kemur aö vissum punkti finnur maöur að verkiö þarf að fara. Og það er eiginlega ekki hægt að sleppa því fyrr en hugurinn er farinn að leita á önnur mið. Þá er einsog þaö sé auðveldara aðýta því frá sér.” — Hvemig hafa viðbrögð kunningja og vina veriö við bókunum? Hvemig tók fólk því þegar þú fórst að skrifa. Kom þetta þeún sem þú þekktir á óvart eða áttu þeir alltaf von á því? „Eg var ekkert að segja frá því. Maöur gerir þetta fyrir sjálfan sig. Svo kom að því aö mig langaði til aö sýna öðmm það sem ég var að gera. Nátt- úrlega skrifar enginn bara fyrir sjálf- an sig heldur vill fá viöbrögð við því semhanneraðgera. Það er gott fólk sem les fyrir mig þegar ég er búin. Góðir vinir, sem gagnrýna og benda mér á ýmislegt sem að minnsta kosti er gott að vita, hvort sem maöur fer eftir því eða ekki. Þá öölast textinn líka meiri vídd fyrir vikiö. Það hjálpar manni líka til þess aö s já hann meira utanfrá. Ég fer ekki af staö til útgefanda fyrr en þessir vinir em búnir aö lesa yfir handritið. Hvers vegna skrifa? Hefurðu einhvern tímann velt því fyrir þér hvers vegna þú skrifar. Skrif- arðu bara fyrir ánægjuna af þvi að skrifa eða ertu að bæta heiminn? „Nei, ég tel að það sé mjög erfitt að bæta heiminn. Kannski ætti aö puða í því á öðrum vettvangi. Hins vegar vildi maður kannski á vissan hátt viðhalda hefð sem þó er sífellt í sköpun. Miðla því sem miðlað var til manns í von um að enn aörir geti tekið við því og miðlað því enn áfram. Svo er náttúrlega í þessu fólgin ánægja af að skapa. Hún er líka fyrir hendi. En ég held að aldrei verði hægt að skýra nákvæmlega hvers vegna menn skrif a. Það eru svo margir þættir sem þar koma saman. Aö minnsta kosti er ekki hægt að finna á því neina allsherjar- lausn eins og sumir bókmenntafræð- ingar vilja meina. Að það séu mjög ákveðnar hvatir eöa hvati sem komi mönnum til að skrifa. Vesturlandabúum hættir dálítið til að setja alla hluti upp í orsaka- samhengi sem leiðir þá á villigötur stundum. Það er hægt að finna skýringu á öUu. En hvort það er rétta skýringin, það er önnur saga. Þetta tengist kannski því sem við vorum að tala um í upphafi.” Þú hefur enga trú á að bækur breyti heiminum? „Jú, það er að segja, engin ein bók breytir heiminum eða verk eins höfundar eins og stundum er látið í veðri vaka. En þær hafa haft áhrif að því leyti að þegar öUu þessu er safnað saman hjá einstaklingi má vera að hann öölist einhverja ákveðna sýn á heiminn sem þannig, í framhaldi af því, breyti því sem hann er að gera eða tekur sér fyrir hendur. Þær eru miöUl að þessu leyti. En bara dropi í svo mörguöðru.” -SGV. Litli liósálfurinn hefur sannað ágæti sítt á íslandi. Litli Ijósálfurinn gefur þér góöa birtu viö bóklestur án þess aö trufla aöra, frábær í öll ferðalög og sumarbústaö- inn. Kjörin gjöf. Litli Ijósálfurinn er léttur og handhægur, getur jafnt notað rafhlööur og 220 volta rafstraum. Honum fylgir aukapera, hylki fyrir rafhlöður og straumbreytir. Einnig fást geymslutöskur. Lltll ijósálfurinn fæst í næstu bóka- og gjafavöruverslun og i Borgartúni 22. HILDA Borgartuni 22, Reykjavík FALLEGAR SÓLBAÐSSTOFUR Stærðir 3,81 x 2,51, verð frá ca 32.000—45.000 með gleri og plasti. Stærðir 5,04-2,51, verð frá ca 38.000-55.000 með gleri og plasti. TRAUST GRÓÐURHÚS Stærð 196 x 255 cm. Verð 16.000 með gleri. Stærð 382 x 255 cm. Verð 24.000 með gleri. Stærð 381 x 287 cm. Verð 29.000 með gleri. Jónsson & Co hf. Sundaborg 41, sími 686644. jia Jón Loftsson hf. Hringbraut

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.