Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1985, Síða 8
8
DV. ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL1985.
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Gorbatsjov boðar-
frystingu kjama-
vopna i Evrópu
en er þurrlega tekið á meðan Sovétmenn hafa
yfirburði íEvrópu í kjarnavopnum
Leiðtogafundur þeirra Reagans for-
seta og Mikahíl Gorbatsjovs, leiðtoga
Sovétríkjanna, einhvern tíma í náinni
framtíð verður með degi hverjum æ
líklegri möguleiki en alger ágreiningur
er um frystingu kjarnavopna í Evrópu.
Stjóm Hvíta hússins lét í ijós von-
brigöi með fyrstu meiriháttar stefnu-
yfirlýsingu Gorbatsjovs síöan hann tók
við embætti í síðasta mánuði. I viðtali,
sem birtist í Pravda um páskana,
boðaði Gorbatsjov að ekki mundu sett-
ar upp fleiri kjarnaflaugar sem miöaö
væri að Evrópu.... ekki fram að
nóvember næsta. Skoraði hann á
Bandaríkjastjórn að gera eitthvað á
móti.
Bandarikjastjórn túlkar þessa tii-
kynningu sem gamalt bragð er Leonid
Hollendingar
ræða við Sovéta
umeldflaugar
Hans van den Broek, utanríkisráð-
herra Hollands, var væntanlegur til
Moskvu í dag og mun aö líkindum ræða
viö sovéska ráðamenn áætlun NATO
um að koma fyrir meðaldrægum
kjarnaeldflaugum í Hollandi. Almennt
er talið að þessari áætlun verði fylgt
þrátt fyrir tilkynningu Sovétmanna
um frystingu kjarnavopna í álfunni.
Van den Broek mun ræöa viö Andrei
Gromyko starfsbróður sinn. Vekur
fundur þeirra meiri athygli en ella
vegna tilkynningar Sovétstjómarinnar
um aö ekki verði settar upp fleiri
sovéskar kjarnaflaugar í Evrópu þar
til í nóvember.
Svo vill til að í nóvember má einnig
vænta ákvörðunar Hollandsstjórnar
um hvort komið skuli fyrir í Hollandi
48 bandarískum stýriflaugum, eins og
NATO—áætlun gerir ráö fyrir.
Hollandsstjórn haföi frestaö
ákvörðun sinni og lýst þó um leið yfir
að eldf laugapallamir y rðu settir upp ef
SS-20 eldflaugum Sovétmanna hefði
fjölgað í nóvember frá því 1. júní í
fyrra.
Samkvæmt tölum bandariskra sér-
fræðinga em núna 414 sovéskar
flaugar af gerðinni SS-20 í Austur-
Evrópu en í júni sl. voru þar 378.
Hollenskir stjórnmátamenn létu í
gær í ljósi efasemdir um tiigang Sovét-
manna með frystingartilkynningunni.
heitinn Bresnev hafi reynt 1982 til að
valda klofningi milli Bandaríkjanna og
bandamanna þeirra í Evrópu. — Er
lögð áhersla á að slík frysting kjama-
vopnabirgða, eins og þær em í dag,
veitti Sovétmönnum algera yfirburði
meö átta kjamaodda á móti hverjum
einum vestanmanna.
Hin hugmyndin, sem Gorbatsjov
viöraði, um hugsanlegan leiötogafund
hans og Reagans, fékk aftur á móti
mjög góðar undirtektir í Washington.
En bent er á að slíkur fundur þurfi
rækilegan undirbúning.
Víöast í V-Evrópu hefur tilkynningu
Gorbatsjovs um frystingu kjama-
vopna, eins og birgðir em núna, verið
tekið fremur þurrlega.
Indlandsstjórn
stefnir Union
Carbide til bóta
Indlandsstjóm hefur krafiö fyrir-
tækið Union Carbide um skaöabætur
fyrir hönd þeirra sem fómst eða
slösuöust þegar eiturgas lak út úr
eiturefnaverksmiðju fyrirtækisins í
Bhopal í desember í vetur.
Engar fjárhæðir voru tilgreindar í
stefnunni en tekið fram að bætur
skyldu nógu háar til þess að fæla Union
Carbide og önnur fjölþjóðafyrirtæki
frá því að „virða að vettugi rétt og
öryggi borgara þeirra landa, þar sem
þau stunda rekstur.”
Málið er höföaö fyrir bandarískum
dómstólum og er reist á því að gaslek-
inn úr verksmiðjunni í Bhopal hafi
beinlínis orsakast af vanrakslu
fyrirtækisins. — Rúmlega 2500 létust
af eitrun og það er talið aö um 200
þúsund hafi beðið eitthvert tjón á
heilsu sinni út af gasinu.
Þessi hnáta úr Hvíta húsinu, Amy, dóttir Jimmy Cartsrs, nú orflin 17
ára dama, var i mótmmiaaflgerðum vifl sendiráð S-Afríku í Washing-
ton fnrð i handjámum burt í lögreglubifreifl.
DÓTTIR CARTERS
HANDJÁRNUÐ
Amy Carter, hin sautján ára
dóttir Jimmy Carters fyrrum Banda-
ríkjaforseta, var handtekin í gær við
mótmæli fyrir utan sendiráð Suöur-
Afríku í Washington. Þar hafa dag-
lega að undanfömu veriö höfð uppi
mótmæli viðaðskilnaðarstefnunni.
Amy sagði fréttamönnum í sömu
mund sem hún var handjámuö og
færð í lögreglubíl að fjölskylda henn-
ar hefði ekki sett sig upp á móti mót-
mælaaðgerðum hennar gegn
aðskilnaðarstefnu S-Afríkustjórnar.
„Ég hringdi heim fyrst og þau
sögðu OK,” sagði Amy. — Chip, eldri
bróöir hennar (35 ára), tók einnig
þátt í mótmælunum en var ekki
handtekinn.
Mótmælin við sendiráð S-Afríku
hófust í nóvember og hafa yfir 1860
verið handteknir fyrir að rjúfa bann
viö að fara of nærri sendiráðinu með
mótmælum. Amy hafði reynt ásamt
tveim öðrum að fá inngöngu í sendi-
ráðið og virtu þau að vettugi fyrir-
mæli lögreglunnar um að halda sig í
hæfilegrifjarlægð (165metra).
Yfirleitt hefur þetta fólk sloppið
við kærur og verið látið laust strax
aftur á næstu lögreglustöð.
Verkföllum aflétt í
Súdan eftir valdaránið
Hinn nýi leiðtogi Súdans, Abdul-
Rahman Swareddahab hershöföingi,
virðist núna, fjómm dögum eftir
valdatökuna, hafa fengið grið til að
festa sig í sessi með því aö verkalýðs-
félögin hafa fallist á að aflétta verkföll-
um. — Þaö var einmitt verkfallaalda
sem veitti hernum tækifæri til að
steypa stjórn Jaafar Nimeiri forseta.
Swareddahab, sem vék stjóm
Nimeiris frá á laugardaginn, átti í gær
ítarlegar viðræður við verkalýðsfor-
kólfa. Að þeim loknum lýstu verkalýðs-
leiðtogarnir yfir því að verkföllum
skyldi hætt. Þó bættu þeir því við í yfir-
lýsingunni að verkalýðshreyfingin
þyrfti að halda vöku sinni, einingu og
staöfestu til þess að viðhalda kröfum
alþýðunnar. Virðist af því sem verka-
lýðsforystan sé ekki alveg örugg um
stefnu herforingjastjórnarinnar.
Læknar, vélstjórar, verkfræðingar,
lögfræðingar, kennarar, flugumferðar-
stjórar, bankastarfsmenn og dýra-
læknar hófu verkföll á miðvikudag til
að mótmæla efnahagskreppu og póli-
tísku öngþveiti sem ríkt hefur í land-
inu. Kröfðust þeir afsagnar Nimeiri
forseta, sem nú er staddur í Kaíró, en
hann var þá í heimsókn í Washington.
Swareddahab hefur þegar orðið við
kröfum um að leysa upp hina illræmdu
innanríkislögreglu og hefur látið hand-
taka marga nánustu aöstoðarmenn
Nimeiris og embættismenn. Þar á
meðal varaforsetana þrjá.
Frá Kaíró hefur Nimeiri gert
Swareddahab hershöfðingja orð og lýst
stuðningi sínum og skilningi á kring-
umstæðunum sem leiddu til valdatök-
unnar.
Hershöfðinginn lét sleppa öllum póli-
tískum föngum á laugardag eftir að
þúsundir gerðu aðsúg að Kobarfang-
elsinu við Khartoum. Múgurinn reyndi
að rífa þar niður tyftunarpall sem
reistur var fyrir 19 mánuðum þegar
Nimeiri innleiddi Islams-lög. Þar voru
af brotamenn handhöggnir.
Herforingjaráðiö, æðsta stjórn hers-
ins, fer nú með æðstu völd í landinu og
gilda herlög fyrst um sinn, en Swared-
dahab lýsti yfir því að herforingjarnir
þyrftu lengra svigrúm áður en þeir
gætu falið landstjórnina óbreyttum
borgurum aftur.
af öllum SKOFATNAÐI f búðinni með-
an við rýmum fyrir nýjum vörum.Rýmingarsalan
stendur aðeins út þessa viku.
Skóverslun Þórðar Péturssonar
Kirkjustræti 8, sími 14181.