Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1985, Qupperneq 3
DV.LÁUGARDAGUR 8. JUNl 1985.
51
Landid týnda
Ekkert
kampavín
Slæmar fréttir fyrir þá sem hafa
gaman af þvi aö skjóta tappa úr
kampavinsflösku og sötra svo „the
bubbly stuff” ó kvöldin. Þetta verður
versti kampavínsárgangur í 50 ár,
segja bændur í Champagne í
Frakklandi og kenna um höröum
vetri og vorkuldum. Alla vega 10.000
af 25.000 hektara vinekrum
héraðsins munu gefa miklu minni
uppskeruen vanalega.. .
Margir muna eftir breska rit-
höfundinum Jan Morris sem á sinum
tima var karlmaöur en er þaö ekki
lengur. Skömmu eftir kynskiptaaðgerö
kom hún fram í frægum sjónvarps-
þætti meö Johnny Carson og skýröi sitt
mál röggsamlega. En burtséö frá kyni
sinu hefur Morris ætiö notiö mikillar
viröingar fyrir bækur sinar, bæöi sagn-
fræöirit en þó aðallega feröabækur..
Og nú virðist hún hafa veriö orðin leiö
á að skrifa um staöi sem allir þekktu
og þá greip hún þaö ráö aö skrif a ferða-
bík frá landinu Hav.
Hav? Hav er auðvitað ekki til.
Morris kemur landinu fyrir á skaga
suður af Tyrklandi og er um að ræöa
sjálfstætt borgriki. I bókinni er rifjuð
upp saga landsins gegnum aldimar,
fjallað um dýralíf, plöntur, arkitektúr
etc.; sem sagt allt þaö sem feröabækur
fjalla vanalega um. Og það hefur sitt
af hverju gengið á i Hav. Akkilles reisti
þar búðir sinar; Spartverjar grófu þar
skipaskurö. Krossfararnir hrifsuöu
landið úr höndum Tyrkja sem síðar
náðu skaganum aftur á sitt vald.
Bretar réöu landinu á 19. öld en vegna
lélegrar stjórnar misstu þeir það í
hendur Rússa sem notuðu það sem
leikvöll. Siöan komu Frakkar, þá
Italir, loks Þjóðverjar. A sínum tima
réðu Feneyingar höfninni og Kínverjar
lögöu undir sig peningamarkaðinn;
raunar er í Hav tilkomumesta
kínverska byggingin vestan við
Góbíeyðimörkina. Marco Polo stóö viö
í Hav og sama geröu frægir menn á
borö við Tolstoj, Diaghilev, Heming-
way og Freud. Bókin ku vera athyglis-
veröasta lesning. . .
Borgríkið Hav. Það er ekki hægt að
komast þangað hóðan.
Ertu karlmenni?
Stór, sterkur, harður af sér,
snöggur upp á lagið, ætiö með hnef-
ann á lofti. Gamla karlmennsku-
ímyndin hefur svolítið látiö undan
síga, einkum eftir að kvenna-
hreyfingin komst til vits og ára, en
lifir þó ennþá góðu lífi. Donald
Mosher viö háskólann í Connecticut
hefur meira að segja búiö til próf til
þess aö kanna hvort stúdentamir
hans séu uppfullir af gömlu karl-
mennskuímyndinni; þeirri ímynd
sem felst í þvi aö ná völdum yfir
öðrum (einkum konum) og halda
síöan þeim völdum með góðu eða
illu. Próf Moshers þykir gott og gilt
svo langt sem það nær en hins vegar
hefur verið gagnrýnt að hann skuli
leggja það fyrir 19 ára stúdenta sem
litla lífsreynslu hafi að baki, hvort
heldur er í samskiptum við konur
eða aöra karia. Og flestallir koma
frá tiltölulega vel stæöum heimilum
svo viðhorf verkamannastéttarinnar
koma lítt eða ekki fram.
En hvað sem því líður; hér geta
menn reynt sig við 10 af 30
spumingum Moshers.
1. a — Lesbíur hafa sinn eigin lífs-
stíl.Egvirðiþær.
b — Það eina sem lesbíur þurfa er
karlmaður.
2. a — Eg reyni að gleyma öllum
átökum minum viö karlmenn.
b — Mér finnst gaman að rifja upp
fyrstu alvöru slagsmólin sem ég
lentií.
3. a — Það ætti að fyrirgefa konum
sem æsa karlmenn upp en neita
síðan að sofa hjá þeim.
b — Svoleiðis konum ætti að
nauðga.
4. a — Eg sigra meö þvi að ber jast
ekki.
b — Eg berst til þess að sigra.
5. a — Þegar ég drekk verð ég
rólyndur.
b — Þegar ég drekk leita ég uppi
vandræði.
6. a— Ef maður er valinn í bardaga
berst maöur.
b — Ef maöur er valinn í bardaga
kjaftar maður sig undan honum.
7. a— Eg vildi heldur vera frægur
boxari en frægur vísindamaður.
8. a — Sérhver karlmaður sem er
karlmaður þarf reglulegt kynlíf.
b — Sérhver karlmaður sem er
karlmaður þarf ekki reglulegt kynlíf.
9. a — Mér finnst gaman í villtum
partium.
b — Mér finnst gaman i rólegum
parium þar sem gott er að tala við
fólk.
10. a — Svokallaöir kvenlegir
karlar eru tilfinningasamir og list-
rænni en aðrir.
b — Kvenlegir karlar ættu að vera
aðhlátursefni.
Það þarf ekki mikla hæfileika til að
skera úr hvaða svör gefa til kynna
karlmennskuviðhorf — sem Mosher
er raunar síður en svo hrifinn af —
það er aö segja lb, 2b, 3b, 4b; 5b, 6a,
7b, 8a, 9a, lOb. En undir það má taka
að það er varia rétt að dæma alla
karlmenn út frá því hvernig 19 ára
ameriskir háskólastúdentar svara
þessu..
r»5
Viltu vara hann? Rhett Butler sigrar konuhjarta.
Þetta er ekki kæruleysislegt
samsafn pönkara heldur
vandloga hannaður
tískufatnaður.
Tískanítísku
Tískan er komin í tísku í New
York. Næturhrafnamir sem stunda
klúbbana og skemmtistaöina hugsa
núorðiö vart um annað en föt og
kjörorðin em að vera ætíð æðislegri
en næsti maður. Karlmenn ganga í
kvenfötum, ekki endilega vegna þess
að hneigðir þeirra séu eitthvað öðru-
vísi en gengur og gerist heldur bara
vegna þess að það er smart. Raunar
ku það vera áberandi hversu nýja
tiskudellan hefur náð sterkari tökum
á körlum en konum. Og allt er leyfi-
legt — eins og svo oft óður. Geisp...
Þeir félagamir Giaquinto, Billy
Boy og James í sínu finasta
skarti.
TRYGCIR ÞER ÞÆGINDIFYRSTA SPOUNN
Bill fra Hreyfli flytur þig þægilega og a réttum
tima a flugvöllinn.
Pu pantar fyrirfrani
Við hja Hreyfli erurn tilbunir að flytja þig a Keflavikur-
flugvoll a rettum tima i mjúkri limosinu. Malið er
einfalt Pu liringir i sima 685522og greinirfra dvalarstað
og brottfarartima Við segjum þer hvenær billinn
kemur
Eitt gjald fyrir hvern farþega
Við fiytjum þig a notalegan og odyran hatt a
flugvollinn. Hver farþegi borgar fast gjald Jafnvel þott
þu sert einn a ferð borgarðu aðeins fastagjaldið.
Við vekjurn þig
Ef brottfarartimi er að morgni þarftu að hafa samband
við okkur mllli kl 20 00 og 23 00 kvöldið aður Við
getum seð um að vekja þig með goðum fyrirvara. ef þu
osknr. Þegar brottfarartimi er siðdegis eða að kvoldi
nægir að liafa samband við okkur rnilli kl. 10:00 og 12 00
sama dag
UREVFÍLL
685522