Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1985, Blaðsíða 18
66
DV. LAUGARDAGUR 8. JUNI1985.
BARA
GIGOLÓ?
I'mjustagigolo
and everywhere I go
people know the part I'm playing
paying every dance
selling each romance.. .
Er þá tilganginum náð? Hefur David
Lee Roth lokið því hlutverki sem hann
var fæddur tii þess aö leika; uppfyllt
sitt karma, með öðrum orðum? Það
skyldi maöur ætla. Hann hefur faríö
hamförum í islenska rfkisútvarpinu
með þá samsuðu sem hann bjó til úr
lögunum Just a Gigolo og Ain't Got No-
body og vart hef ur verið til einskis unn-
iö. Hvað segir hann sjálf ur?
„Mér finnst þetta bara svo skemmti-
leglög. Þaðer heilamáliö."
Að sönnu nokkuð undarlegur kostur.
David Lee Roth er, eins og sumir
kannski vita, söngvari með hljómsveit-
inni Van Halen en hún er einna fræg-
ust þungarokkshljómsveita vestur í
guoseiginlandi. Varð f ræg f yrir lag sitt
Jump á síðasta ári, en raunar mun
annar þeirra Van Halen- bræðra
hafa sungið það. Þeir eru hollenskrar
ættar eins og nafnið bendir til og við
skulum enn um sinn beina athyglinni
að David Lee Roth.
Hvers vegna kaupir fólk
sérhunda?
Hann er frumskógakönnuður og
karateiökandi. Hann er ákafamaður i
hverju þvi sem hann tekur sér fyrír
hendur og hann hefur mjög gaman af
því að tala — svo fremi umræðuefnið
sé hann sjálfur. Hann hefur enn ekki
verið staðinn að því að leiða hugann að
öðrum en sjálfum sér en kemst upp
með það vegna þess að hann þykir
vera sniðugur strákur. Svo er hann
líka forrfkur og getur leyft sér sitt af
hver ju þess vegna. Sex plötur Van Hal-
en hafa selst í rúmlega milljón eintök-
um hver. Svo datt David Lee Roth í
hug að setja saman plötuna Crazy
f ram the Heat og hún hefur líka slegið í
gegn. Að minnsta kosti hér i ríkisút-
varpinu.
„Veistu að fólk kaupir sér hunda
vegna þess að þeir minna það á það
sjálft? Lögin á Crazy from the Heat
eru sama eðlis. Fyrir mér eru þau
bara speglar. Það þarf engan sálfræð-
ing til að átta sig á því af hverju ég
valdi gamla Louis Príma lagið Just a
Gigolo."
Segir David Lee Roth. Og þegar
hann er spurður hvað það sé við lagið
sem höfði til hans, hvort hann sé í raun
og veru svona dýrslegur — þá svarar
hann:
„Ekkibókstaflega."
Laumast á mynd með
Marilyn Monroe
David Lee fæddist i smábænum
Bloomington i fylkinu Indiana.
„Viö bjuggum þarna þangað til ég
var sex eða sjö ára meðan pabbi vann
og lærði til læknis. Þarna var stórt
vatn, kvikfénaður og hross. Við pabbi
fórum alltaf saman í bíó„ á völlinn og í
leikhúsið. Eg man eftir fyrstu bió-
myndinni sem ég fylgdist með af at-
hygli frá upphafi til enda. Eg var sjö
ára. Við pabbi fórum saman og ég man
að mamma sagði: „Ojá, þið eruð að
fara að sjá Hróa hött. Vertu alveg viss
um að þið farið að sjá Hróa hött." Eg
tók eftir spennunni í röddinni. Svo fór-
um við pabbi og settumst upp í bílinn
og keyrðum sem leið lá f ramhjá bíóinu
þar sem þeir voru að sýna Hróa hött.
Eg sagði við pabba: „Heyrðu, þama er
Hrói höttur". „Hafðu engar
áhyggjur," sagði hann, „við erum að
fara að sjá aðra mynd." Eg spurði
hvaða mynd við ætluðum að sjá. „Hef-
urðu nokkum tíma heyrt um Marilyn
Monroe?" spurði hann. „Nei." „Jæja,
myndin sem við eruin aö fara að sjá
heitir Some Like It Hot." Eg varð al-
veg uppnuminn: „Hún hlýtur aö vera
æðisleg. Um hvað er hún?" Pabbi
svaraði: „Það skiptir engu máli. En
áöur en viö förum í bió ætla ég aö segja
þér allt um pað um hvað Hrói höttur
er". Og svo þegar við komum heim
sagði ég mömmu auðvitað alla sólar-
söguna umHróa hött."
Faðir þinn varð á endanum augn-
læknir. En móðir þín?
Mamma í Góbí-eyðimörk-
inni
„Hún var menntaskólakennarí,
kenndi tónlist og tungumál - um tíma.
Svo kom ég og eyðilagði allt. Eg skal
segja þér eina sögu sem útskýrir móð-
ur mina betur en nokkuð annað. Þegar
varð alger sólmyrkvi f yrir mörgum ár-
um þá var eini staðurinn þar sem hægt
var að ná f ullkomnum my ndum af hon-
um í miðri Góbi-eyðimörkinni, 1000
David Lee Roth,
söngvari Van
II a len, talar um
sjálfan sig og
sólo|ilöiuna sína
kílómetra frá næsta vatnsbóli. Það
varð að flytja menn þangað í þyrlum.
Þama var reist tjaldborg og einu
mennirnir á svæðinu voru vísinda-
menn frá NASA með sjónaukana sína.
Það varð að flytja vatn daglega á
svæðið og um leiö flytja burt þá sem
veiktust vegna aðstæðnanna. Jæja,
þama var mamma í sumarfríinu sínu.
Alein. Og skemmti sér konunglega."
Nú hefur David Lee Roth talað full-
lengi um aðra en sjálfan sig. En það
lagast þegar hann er spurður hvenær
hann hafi ákveðið að f ara út í sjóbiss-
niss.
„Eg var sjö ára. Eg tilkynnti að ég
vildi verða Al Jolson. Einu plöturnar
sem ég átti voru með honum — gamlar
og óbrotgjarnar 78 snúninga plötur. Eg
lærði hvert einasta lag og fór að sjá
hann i bíó til að læra hreyfingarnar. Eg
vildi verða miðpunkturathyglinnar."
Gekk til sálf ræðings í 3 ár
Foreldrar þinir létu þig ganga til sál-
fræðings í þrjú ár. Hvers vegna töldu
þau þig þurfa á slíku að halda?
„Eg hef aldrei verið mikið fyrir
mannfjölda. Eg var alltaf einn með
sjálfum mér og prýöilega ánægður
með það. Eg var hvorki óhamingju-
samur né þunglyndur. En þau héldu að
það væri eitthvaðaðmér."
Svo þegar rokkið kom til sögunnar
þá fórstu að bua til lög. Og þú hittir
Eddie og Alex Van Halen og Michael
Anthony þegar þú varst kominn í há-
skóla. Hvers vegna fórstu yfirieitt í há-
skóla?
„Eg var bara að bíða þangað til ég
kæmist i hljómsveit. Eg eyddi mestöll-
um tíma minum i undirbúningsdeild-
inni í musíktímum — fræðilegum og
verklegum. Eg náði aldrei neitt sér-
stökuin árangri. Eg gat ekki talið
nema upp að fjórum og svo þurfti ég að
byrja upp á nýtt. Van Halen-bræður
voru miklu betri en ég og Michael líka.
Þeir unnu öll verðlaunin."
Vissi alltaf að Van Halen
myndi slá í gegn
Þegar þú hittir þá kunnirðu þá vel
við þá sem persónur? Eða vissirðu
bara að þeir væm aðgöngumiði að
frægðinni?
„Hvort tveggja. Eg hef alltaf borið
feikna virðingu fyrir tónlistarhæfileik-
um þeirra — sérstaklega Edwards.
Þegar ég heyrði hann spila á gítar
komst ég til sjálfs mín. Eg vildi gera
það sama með röddinni og hann gerði
með gitarnum sínum. En um þetta
leyti lá minn styrkur aðallega í dansin-
um. Eg vissi hvað var góð dansmusfk
og þess vegna gat ég komiö okkur inn í
klúbbana."
Varstu alltaf viss um að Van Halen
myndisláigegn?
„AUtaf viss. Við fengum sífeUt fleiri
áhangendur og hljómsveitin hafði nóg
að gera alveg fra byrjun. Við fundum
bestu leiðina til þess að vera trúir
smekk okkar sjálfra. Markmiðið var
að spila hvaða músík sem vera skyldi,
burtséð f rá tiskusveiflum, og sýna per-
sónuleika okkar sjálfra með þvi. Ef
fólk kann aö meta svoleiðis er maður
orðinnstjarna."
Drekkur þú jafnmikið og af er látið
og étur jafnmikið af eyturlyfjum?
„Eg a min góðu og slæmu tímabil
hvað varðar skemmtanalífiö. Þaö má
svo sem oft sjá mig meö f lösku af Jack
Daniels á sviðinu en ég klára ekki
alltaf flöskuna á einu kvöldi. Maður
verður að halda jafnvæginu."
Brennivín og kókaín
bráðdrepandi
Ertu lentur i sterkum eiturlyfjum?
Heróíni.tUdæmis?
„Nei. Eg hef bara fiktað við þessi
venjulegu rokkogról efni. Aldrei tekið
heróín, ekki piUur, aldrei róandi, aldr-
ei spítt. Maður verður að ákveöa sig.
A ég að vera á fullu í dag og missa af
morgundeginum? Stundum kannski.
En ekki nærri eins oft og fólk heldur.
Eg er aftur á móti i karate. Og karate
er ekki hægt að stunda timbraöur. Eg
fer svona mUUveginn. Fólk segir
stundum að það hafi veriö synd að
þessi eða hinn tónlistarmaöurinn hafi
dáið vegna eiturlyfjaneyslu. Málið er
að hann dó ekki. Hann drap sig. A
þessu er mikiU munur. Eg hef enga
samúð með fólki sem drepur sig. Þ6
hef ég horft á marga fara forgörðum.
Brennivin og kókaín — þetta tvennt er
bráðdrepandi. Hvort tveggja drepur
sköpunargáfuna og andann i'
mannL .."
Qjá.En...
. . . there wUl come a day
when age wUl come my way.
What wUl they say about me?
Snúið og sneitt.
*fcöi*véiw«ii»>n-.. veilltf «wiw<lec»«oítf>*cvH8wttefc< go «iU9 ntenuiJ