Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1985, Side 18
66
DV. LAUGARDAGUR 8. JUNI1985.
Varstu alltaf viss um aö Van Halen
myndi sláígegn?
„Alltaf viss. Viö fengum sífellt fleiri
áhangendur og hljómsveitin hafði nóg
að gera alveg frá byrjun. Við fundum
bestu leiðina til þess aö vera trúir
smekk okkar sjálfra. Markmiöiö var
aö spila hvaöa músik sem vera skyldi,
burtséð frá tiskusveiflum, og sýna per-
sónuleika okkar sjálfra með þvi. Ef
fólk kann að meta svoleiöis er maður
oröinn stjama.”
Drekkur þú jafnmikið og af er látiö
og étur jafnmikiö af eyturlyfjum?
„Eg á min góðu og slæmu timabil
hvaö varðar skemmtanalífiö. Það má
svo sem oft sjá mig meö flösku af Jack
Daniels á sviðinu en ég klára ekki
ailtaf flöskuna á einu kvöldi. Maður
verður aöhalda jafnvæginu.”
Brennivín og kókaín
bráðdrepandi
Ertu lentur í sterkum eiturlyfjum?
Heróini, til dæmis?
„Nei. Eg hef bara fiktaö viö þessi
venjulegu rokkogról efni. Aldrei tekið
heróín, ekki pillur, aldrei róandi, aldr-
ei spítt. Maður veröur aö ákveöa sig.
A ég að vera á fullu í dag og missa af
morgundeginum? Stundum kannskl
En ekki nærri eins oft og fólk heldur.
Eg er aftur á móti í karate. Og karate
er ekki hægt að stunda timbraöur. Eg
fer svona milliveginn. Fólk segir
stundum að þaö hafi verið synd að
þessi eöa hinn tónlistarmaöurinn hafi
dáið vegna eituriyfjaneyslu. Máliö er
að hann dó ekki. Hann drap sig. A
þessu er mikill munur. Ég hef enga
samúö meö fólki sem drepur sig. Þó
hef ég horft á marga fara forgöröum.
Brennivín og kókaín — þetta tvennt er
bráðdrepandi. Hvort tveggja drepur
sköpunargáfuna og andann í
manni... ”
Ojá. En...
. . . there will come a day
when age will come my way.
What will they say about me?
Snúið og sneitt.
BARA
GIGOLÓ?
I’mjustagigolo
and everywhere I go
people know the part I’m playing
paying every dance
selling each romance. . .
Er þá tilganginum náð? Hefur David
Lee Roth lokiö því hlutverki sem hann
var fæddur til þess að leika; uppfyllt
sitt karma, meö öðrum oröum? Þaö
skyldi maöur ætla. Hann hefur fariö
hamförum í islenska ríkisútvarpinu
meö þá samsuðu sem hann bjó til úr
lögunum Just a Gigolo og Ain’t Got No-
body og vart hefur veriö til einskis unn-
iö. Hvað segir hann sjálf ur?
„Mér finnst þetta bara svo skemmti-
leglög. Þaðerheilamálið.”
Aö sönnu nokkuö undarlegur kostur.
David Lee Roth er, eins og sumir
kannski vita, söngvari meöhljómsveit-
inni Van Halen en hún er einna fræg-
ust þungarokkshljómsveita vestur í
guðseiginlandi. Varö fræg fyrir lag sitt
Jump á síðasta ári, en raunar mun
annar þeirra Van Halen- bræöra
hafa sungiö þaö. Þeir eru hollenskrar
ættar eins og nafniö bendir til og viö
skulum enn um sinn beina athyglinni
að David Lee Roth.
Hvers vegna kaupir fólk
sérhunda?
Hann er frumskógakönnuður og
karateiökandi. Hann er ákafamaöur í
hverju því sem hann tekur sér fyrir
hendur og hann hefur mjög gaman af
því aö tala — svo fremi umræöuefniö
sé hann sjálfur. Hann hefur enn ekki
verið staðinn aö því aö leiða hugann aö
öðrum en sjálrum sér en kemst upp
meö þaö vegna þess aö hann þykir
vera sniðugur strákur. Svo er hann
líka forríkur og getur leyft sér sitt af
hver ju þess vegna. Sex plötur Van Hal-
en hafa selst í rúmlega milljón eintök-
um hver. Svo datt David Lee Roth í
hug aö setja saman plötuna Crazy
fram the Heat og hún hefur líka slegiö í
gegn. Aö minnsta kosti hér í rikisút-
varpinu.
„Veistu að fólk kaupir sér hunda
vegna þess aö þeir minna þaö á þaö
sjálft? Lögin á Crazy from the Heat
eru sama eðlis. Fyrir mér eru þau
bara speglar. Þaö þarf engan sálfræð-
ing til að átta sig á því af hverju ég
valdi gamla Louis Prima lagið Just a
Gigolo.”
Segir David Lee Roth. Og þegar
hann er spurður hvað það sé viö lagið
sem höföi til hans, hvort hann sé í raun
og veru svona dýrslegur — þá svarar
hann:
„Ekki bókstaflega.”
Laumast á mynd með
Marilyn Monroe
David Lee fæddist i smábænum
Bloomington i fylkinu Indiana.
„Viö bjuggum þarna þangað til ég
var sex eöa sjö ára meðan pabbi vann
og læröi til læknis. Þama var stórt
vatn, kvikfénaöur og hross. Viö pabbi
fórum alltaf saman í bíó„ á völlinn og í
leikhúsið. Eg man eftir fyrstu bíó-
myndinni sem ég fylgdist meö af at-
hygli frá upphafi til enda. Eg var sjö
ára. Viö pabbi fórum saman og ég man
aö mamma sagöi: „Ojá, þiö eruö aö
fara aö sjá Hróa hött. Vertu alveg viss
um að þiö fariö að sjá Hróa hött.” Eg
tók eftir spennunni í röddinni. Svo fór-
um við pabbi og settumst upp í bílinn
og keyrðum sem leiö lá framhjá bíóinu
þar sem þeir voru að sýna Hróa hött.
Eg sagði við pabba: „Heyrðu, þama er
Hrói höttur”. „Haföu engar
áhyggjur,” sagöi hann, „viö erum að
fara að sjá aðra mynd.” Eg spuröi
hvaöa mynd við ætluðum að sjá. „Hef-
urðu nokkum tíma heyrt um Marilyn
Monroe?” spuröi hann. „Nei.” „Jæja,
myndin sem við erum að fara aö sjá
heitir Some Like It Hot.” Eg varð al-
veg uppnuminn: „Hún hlýtur aö vera
æðisleg. Um hvaö er hún?” Pabbi
svaraöi: „Það skiptir engu máli. En
áður en viö förum í bíó ætla ég aö segja
þér allt um það um hvað Hrói höttur
er”. Og svo þegar viö komum heim
sagði ég mömmu auövitað alla sólar-
sögunaumHróa hött.”
Faðir þinn varö á endanum augn-
læknir. En móðir þín ?
Mamma í Góbí-eyðimörk-
inni
„Hún var menntaskólakennari,
kenndi tónlist og tungumál - um tíma.
Svo kom ég og eyöilagði allt. Eg skal
segja þér eina sögu sem útskýrir móð-
ur mina betur en nokkuö annaö. Þegar
varð alger sólmyrkvi fyrir mörgum ár-
um þá var eini staöurinn þar sem hægt
var að ná fullkomnum myndum af hon-
um í miðri Góbí-eyðimörkinni, 1000
David Lee Roth,
söngvari Van
Halen, talar um
sjálfan sig' og
sölóplötuna sína
kílómetra frá næsta vatnsbóli. Þaö
varö að flytja menn þangað í þyrlum.
Þama var reist tjaldborg og einu
mennirnir á svæðinu voru vísinda-
menn frá NASA meö sjónaukana sína.
Þaö varð aö flytja vatn daglega á
svæðiö og um leiö flytja burt þá sem
veiktust vegna aðstæðnanna. Jæja,
þama var mamma í sumarfríinu sinu.
Alein. Og skemmti sér konunglega.”
Nú hefur David Lee Roth talaö full-
lengi um aöra en sjálfan sig. En það
lagast þegar hann er spurður hvenær
hann hafi ákveöið að fara út í sjóbiss-
niss.
„Eg var sjö ára. Eg tilkynnti að ég
vildi verða A1 Jolson. Einu plöturnar
sem ég átti voru meö honum — gamlar
og óbrotgjamar 78 snúninga plötur. Eg
læröi hvert einasta lag og fór aö sjá
hann í bíó til aö læra hreyfingarnar. Ég
vildi veröa miðpunktur athyglinnar. ”
Gekk til sálfræðings í 3 ár
Foreldrar þínir létu þig ganga til sál-
fræðings í þrjú ár. Hvers vegna töldu
þau þig þurfa á slíku aö halda ?
„Eg hef aldrei verið mikið fyrir
mannfjölda. Eg var alltaf einn með
sjálfum mér og prýðilega ánægöur
meö það. Eg var hvorki óhamingju-
samur né þunglyndur. En þau héldu að
þaö væri eitthvað að mér. ”
Svo þegar rokkiö kom til sögunnar
þá fórstu aö búa til lög. Og þú hittir
Eddie og Alex Van Halen og Michael
Anthony þegar þú varst kominn í há-
skóla. Hvers vegna fórstu yfirleitt í há-
skóla?
„Eg var bara að biöa þangað til ég
kæmist í hljómsveit. Eg eyddi mestöll-
um tima mínum i undirbúningsdeild-
inni í músfktímum — fræðilegum og
verklegum Eg náði aldrei neitt sér-
stökum árangri. Eg gat ekki taliö
nema upp að f jórum og svo þurfti ég aö
byrja upp á nýtt. Van Halen-bræður
voru miklu betri en ég og Michael líka.
Þeir unnu öll verðlaunin.”
Vissi alltaf að Van Halen
myndi slá í gegn
Þegar þú hittir þá kunnirðu þá vel
viö þá sem persónur? Eöa vissiröu
bara aö þeir væru aögöngumiði að
frægöinni?
„Hvort tveggja. Eg hef alltaf boriö
feikna viröingu fyrir tónlistarhæfileik-
um þeirra — sérstaklega Edwards.
Þegar ég heyröi hann spila á gítar
komst ég til sjálfs min. Eg vildi gera
það sama með röddinni og hann geröi
með gítamum sinum. En um þetta
leyti lá minn styrkur aöallega í dansin-
um. Eg vissi hvaö var góð dansmúsík
og þess vegna gat ég komið okkur inn í
klúbbana.”