Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1985, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1985, Blaðsíða 12
60 DV. LAUGARDAGUR 8. JUNI1985. Ferðinni var heitið, ásamt fjórum öörum blaðamönnum, til Austurríkis. Um þessar mundir er verið aö hefja beint flug þangaö frá Islandi og í tilefni þess var okkur boöið til að skoða unað- semdir landsins. Fyrsti áfangastaður okkar var Wal- chsee í Týról og þangað komum viö að kvöldi fyrsta dags. Þetta er litill bær, íbúar eitthvaö á annaö þúsund en rúm fyrir gesti eru helmingi fleiri. Það var ekki minni maður en borg- arstjórinn sem sat kvöldverðarboð okkur til heiðurs. Hann flutti stutt ávarp þar sem hann dró fram ýmsar samsvaranir úr sögu Islands og Aust- urríkis. Við borðuöum margréttað og það var mesta furða hvað magasekk- urinn þoldi af afbragðsmat. Eftir mat og drykk var farið á skemmtistað í þessum litla og kyrrláta bæ. Hljómsveitin var öll í hnébuxum úr skinni og úti á gólfi voru nokkrar túr- istakellingar frá Englandi sjöunda og áttunda áratugarins. Þær rifu upp um sig pilsin og sveifluðu sér áfram. Æs- andi? Tja, að minnsta kosti óvenjulegt. Okkur félögunum kom saman um að það væri hægt að gera ýmislegt heimskulegra í ellinni en aö dansa. Eftir að hafa dustaö rykið af dans- kunnáttunni í hófstilltum polkum og völsum var ákveðiö aö fara í háttinn og búa sig þannig undir skoöunarferð daginn eftir. Hann hét Hans maöurinn sem átti aö leiða okkur um Walchsee svæðið dag- inn eftir. I skógivöxnu, fjöllóttu um- hverfi með týrólaklæönaði, lygnu vatni og sjóskíðum leið manni eins og pers- ónu í James Bond kvikmynd. Hans leiösögumaöur er um fimmtugt, í gönguskóm, með gilda kálfa, hraust- lega brúnn og með gullfyllingar í tönn- um. Hann var KGB maðurinn í draum- sýninni. Þetta var að morgni skírdags og Hans byrjaði á því að fara með okkur í kirkju. Það var falleg mynd sem mað- ur fékk af smábæjarsamfélaginu á þessum fagra morgni. Fullorðið fólk í þjóðbúningum dreif að og börnin, sjö ára aö aldri, báru kerti til altaris- göngu. Fyrir hópnum fór lúðrasveit og presturinn gekk með börnunum álútur og gamall. Hræðslustjarfi Eftir kirkjuskoðunma fór Hans með okkur upp að fjallshlíð. Ég uppgötvaði þaö heldur seint að hann ætlaöi að senda okkur upp fjallið í stólalyftu. Það var ekkert annað að gera en að ímynda sér að þetta væri allt saman draumur eða James Bond kvikmynd og vippa sér upp í einn stólinn: „Ef vír- inn slitnaði hérna myndi ég kannski bjargast ef ég dytti á tréð þarna,” man ég að ég hugsaöi í byrjun. I hræðslu- stjarfanum heyrði ég að hinir blaða- mennirnir í ferðinni: Agnes Bragadótt- ir af Mogganum, Gullveig Sæmunds- dóttir, ritstjóri Nýs lífs og Hildur Bjarnadóttir á útvarpinu spjölluöu saman eins og ekkert væri eðlilegra. Hans fór fremstur, sneri öfugt í stólnum og tók myndir. Ekki laust við að ýmsar miður uppbyggjandi hug- renningar sæktu á mann um þennan vöövastælta kall sem glotti svo að skein í gullið. Þegar upp var komiö fórum við aö rennibraut sem lögð hefur verið niöur fjallshlíöina. Hvert um sig fengum við úthlutað sleða og renndum okkur á honum eftir þessari geysilöngu renni- braut. Það var sínu jarðbundnari og skemmtilegri ferð en ferðin upp. Winterberg í Þýskalandi. Gist er í herbergjum og í íbúðum. Jódlllem og stuttbuxnr Farid nm Austurríki (og Þýskaland) Upp í lyftu Þaö var nokkurt áfall á jörðu niðri að uppgötva að það var ætlast til að við færum aftur upp í stólalyftunni og end- urtækjum skemmtunina. I þeirri vissu aö þaö gæti gengið enn nær heilsu minni aö ganga brattann fór ég aftur í lyftuna en í þetta skipti afþakkaöi ég boð um að renna niöur og beiö sam- ferðakvenna minna í þessum áfanga. Þær komu aftur upp í lyftunni og við héldum áfram fótgangandi upp fjallið. „Hæfilega hægt, litil skref og stíga nið- ur í hælinn,” sagði Hans og við hlýdd- um. Uppi á fjalli eftir nokkra göngu beiö okkar snotur veitingastaöur þar sem hægt var að matast undir berum himni. Þar voru borðaðar krásir. Síðdegis þennan dag héldum við af stað til Salzburg. Borgin er afar fall- eg og róleg enda eru íbúarnir ekki nema á annað hundrað þúsund eins og leiðsögumaður okkar sagði hálfafsak- andi. Við þessum tíöindum brugðumst við að sjálfsögðu með umburðarlyndu brosi sem gaf ekkert upp um höfðatölu íslensku þjóöarinnar. Það var enskumælandi stúlka sem leiddi okkur um Salzburg næsta morg- un. „Best er að skoða borgina gang- andi,” sagði hún. Borgin er umgirt há- um fjöllum á þrjá vegu. Á einu þeirra er virki sem við fórum upp í með einni lyftunni. Af virkisveggnum má sjá yfir borgina. I gömlum hluta borgarinnar eru mjóar götur og hús sem flest eru með einhvers konar merkjum og tveimur ártölum uppi við þakskeggiö. Annað segir til um hvenær húsið var byggt, hitt hvenær það var endurbyggt. Fyrir utan allar sögufrægu byggingarnar vöktu harmóníkustrætisvagnar og blómskrúð mesta athygli okkar Islend- inganna. I Salzburg fæddist Mozart og bæjar- búar gera mikið til að varðveita minn- Textl og myndir: Sigurður G. Valgeirsson ingu hans. Eðlilegt, þar sem minning tónskáldsins færir borgarbúum tals- vert í aðra hönd. Okkur var sagt frá öðru sem dregur túrista til Salzburg. Atriði úr The Sound Of Music voru tek- in upp í borginni. Það reyndist svo af- drifaríkt fyrir feröamannaiönaöinn að enn í dag er boðið upp á Sound Of Music skoðanaferðir til borgarinnar. Hvítur flygill Eftir góöan málsverð í Salzburg tóku fulltrúar dreifbýlisins við okkur og hrifsuöu okkur með sér til Zell am See, en bærinn er ýmsum Islendingum kunnur. Þeir hafa golfvöll þarna ágæt- an og þar hafa ekki minni menn en Sean Connery slegið og púttaö. Bærinn er, ef dæma á eftir hótelinu sem viö gistum á og fleiri sem við skoöuðum, ekki fyrir þá alblönkustu. Við litum inn í hótel sem var skreytt hvítum marmara að innan. Á þakhæð þess settumst við niður á svonefndan Wund- erbar. Barinn er með glerþaki, hvítum flygli, speglum og fleira sem virðist liggja beint við í augum þess sem þarf að hvíla sig frá kvikmyndaleik eða módelstörfum i viku eða svo. Næsta dag var haldið til Bad Hofga- stein. Þar náttuðum við á flottasta hót- elinu í ferðinni. Heimsvanur samferöa- Úti í guösgrænni náttúrunni, nálægt Badgestein. Tré og fjöll í Agnes Bragadóttir í bóling í Winterberg. Morgunblaðið og DV kepptu. DV vann. Morgun- baksýn. blaðið vann hins vegar í keppni blaðanna í sundi og fleiri íþróttagreinum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.