Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1985, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1985, Síða 2
2 Endurskoðandi hreppsreikninganna í Vestur-Landeyjum um Eggert Haukdal: DV. FÖSTUDAGUR 23. ÁGUST1985. Oddvita um megn að ráða bót á reikningsflækjum sínum Endurskoðandinn, sem neitaði aö skrifa undir hreppsreikningana í Vestur-Landeyjum, skýrði mál sitt með bréfi sem hann sendi öllum hreppsnefndarmönnum þann 21. júlí síðastliöinn. Haraldur Júlíusson, sem er annar af tveim kjörnum endurskoöendum hreppsins, sendi hreppsnefndarmönnum svohljóðandi bréf: Af gefnu tilefni óska ég undirrit- aður að taka eftirfarandi fram: Viö lok endurskoðunar á reikningum Vestur-Landeyjahrepps, sem fór fram í Njálsbúð aö kvöldi 1. júní og að morgni 2. júní 1985, lagði oddviti fram útreikninga og sundurliðun á byggingarkostnaði félagsheimilisins Njálsbúðar árin 1975 til 1984. Þar er tilgreindur kostnaður hvers árs, f jármögnun og eftirstöðvar Iána og staða eignaraðila gagnvart byggingarreikningi í lok þessa tíma- bils. Utreikningur þessi er óundirrit- aður og telst því vera á ábyrgö odd- vita en er unninn að miklu leyti upp úr endurskoöuðum byggingar- reikningum 1975 tii 1984. Þar sem oddviti hafði áður árið 1983 lagt fram útreikninga á þessari sömu framkvæmd 1975 til 1982, byggða á sömu reikningum, og í ljós hafði komið að sá útreikningur var ónákvæmur og stóðst ekki gagnvart byggingarreikningum þá þótti mér rétt að athuga gaumgæfilega hverjar væru niðurstöðutölur þessarar nýju útgáfu og bera þær saman við byggingarreikninga umrædds tíma- bils. Gleymdi möppunni heima Af einhverjum ástæðum dró oddviti það mjög að afhenda möppu sína þrátt fyrir að hann hafði sagt okkur endurskoöendum af möppunni strax við upphaf endurskoðunar aö kvöldi 1. júní. Kvaðst hann þá hafa gleymt henni heima en kæmi með hana næsta morgun. Þegar við Gunnar Karlsson höfðum yfirfariö reikningana um morguninn 2. júní óskaöi oddviti eftir því að viö undirrituðum alla reikningana. Eg óskaði þá eftir því að fá að sjá möppuna áður og varð oddviti viö því. Kom þá í Ijós að mappan var allmikið rit og yrði ekki yfirfarin á nokkrum mínútum. Oskaði ég þá eftir því að frestaö yrði að undirrita reikningana þar til ég hefði kannað innihald hinna nýju út- reikninga þar sem þeir tengjast hreppsreikningum í gegnum félags- heimilið og skóla með framlögum úr sveitarsjóði. Þá fannst mér einnig ekki hægt að vera að undirrita reikningana við þessar aðstæður með tUliti til þess að við afhendingu á fyrri reikningsútfærslum oddvita, sem fór fram við hátíðlega athöfn í Njálsbúð aö viðstöddum hrepps- nefndarmönnum, stjórnum aðildar- félaga félagsheimilisins, skólanefnd og húsráði Njálsbúðar, vitnaði odd- viti sífellt til endurskoöenda máli sínu og útreikningum til stuðnings. Viö ósk minni um frestun á undir- skrift gat oddviti ekki orðið og féllst Gunnar Karlsson þá á aö undirrita reikninga og skilaði oddviti þeim þannig til hreppsnefndar. • Eggert Haukdal, oddviti Vestur- Landeyjahrepps og alþingismaður. Endurskoðandanum virðist oddvit- anum um megn að ráða bót á reikn- ingsflœkjum sinum. DV-mynd GVA. Ber ekki saman í nokkrum veigamiklum atriðum Ég hef að undanförnu reynt að yfirfara þessa síðari reiknings- möppu eftir því sem tækifæri hafa gefist. Mér virðist að í nokkrum veigamiklum atriðum beri þessari nýju reikningskúnst hvorki heim við fyrri möppu eða byggingarreikninga og mér finnst báöar þessar möppur vekja upp fleiri spurningar en þær svara því aö ef útreikningar oddvita eru réttir þá hljóta aö vera villur í hreppsreikningum. Ég vil nefna nokkra þætti sem mér finnst að athuga þurfi betur áður en reikningar verða undirritaðir: 1. Reikningar ársins 1980 eru óljósir þar sem byggingarreikningar félagsheimilis og skóla eru sam- eiginlegir en bygging á skólaálmu hófst ári 1980. Skipting kostnaöar liggur fyrir eins og oddviti hefur skipt honum en skipting á fjár- mögnun er ógerö. Þannig eru í nýju möppunni öll lán sem tekin voru 1980 færð á byggingarreikning félagsheimilisins en framlög sveitar- sjóðs frá fyrri árum lækkuð til samræmis þrátt fyrir að framlög sveitarsjóðs 1975 til 1979 liggi ekki fyrir samkvæmt reikningum. 2. Framlag Vestur-Landeyja- hrepps er vantaliö árið 1981 og einnig afborganir af lánum sama árs í möppu 1985. 3. Við samanburð á teknum lánum, afborgunum, verðbótum og eftirstöövum lána kemur fram mis- ræmi sem athuga þarf. 4. Ég tel að athuga þurfi og bera saman byggingarreikninga félags- heimilis og sveitarsjóðs árið 1975 til 1980 og síðan félagsheimilis, skóla og sveitarsjóðs 1981 til 1984. Reikningsflækjur oddvita I framhaldi af því komi stjórnir eignaraðila sér saman um reiknings- skil og vinni saman að þeim í fram- tíðinni. Mér virðist oddvita vera það um megn að ráða bót á þessum reikningsflækjum sínum en með samhjálp allra aðila ætti þetta að takast og mun þá útgáfu á sérritum oddvita ljúka. Þaö voru mistök að skipa ekki byggingarnefnd í upphafi sem sæi um framkvæmdir en nú er ef til vill rétt að skipa hana til aö sjá um verklok og uppgjör. Ég vil svo að lokum benda hrepps- nefndarmönnum á að ýmsa þætti í gerð hreppsreikninga þarf að bæta. Ég tel að reikningsuppgjör þurfi að miðast við áramót og endur- skoðendur fái aðgang að uppgjöri út- svara þannig að séð verði hver sjóð- staða sé um áramót. Ég tel að ófullnægjandi sé oröiö í þeirri veröbólgu sem nú á sér stað að gert sé upp eftir útsvarsskrá en ekki eftir raunverulegri stööu. Ég tel og lítinn tíma áætlaðan til endurskoöunar og umfjöllunar á reikningum sveitarsjóðs þar sem þaö er ekki hægt aö ætla endur- skoöendum, þótt glöggir séu, að framkvæma endurskoöun á nokkrum mínútum svo að marka megi. Þá tel ég það varhugaverða þróun, sem nú á sér staö, að meirihluti hreppsnefndar áriti víxla og láns- skjöl án samráðs og vitundar minni- hlutans. Virðíngarfyllst, Haraldur Júlíusson. Enn vantar hjúkrunar- fræðinga Þessa dagana stendur yfir norrœnt Ijóstœkniþing i Reykjavik. Að sögn Gisla Jónssonar, formanns undir- búningsnefndar, er þingið betur sótt en búist var við, en þótttakendur eru i kringum 150. Ljóstœkniþing- inu lýkur í dag, föstudag, en um helgina verða farnar skoðunarferðir með hina erlendu gesti. Myndin er fró opnun þingsins ó miðvikudag. DV-mynd VHV. Rauðmagi tapar á ferðamönnum Frá Reginu Thorarensen, Gjögri: Kristmundur Sörlason, forstjóri í Reykjavík, og Pétur Guðmundsson, bóndi í Ofeigsfirði á Ströndum, hafa um tveggja mánaöa skeiö í sumar rekið ferðamannaþjónustu. Er hún í því fólgin að sigla meö feröamenn frá Norðurfirði og norður í Furufjörð. Tekur ferðin fram og til baka einn dag. Farkostur sá sem notaður er í þessar ferðir er ekki af lakara taginu, nefnilega skemmtisnekkja Kristmund- ar sem ber nafnið Rauðmaginn FT 17; heimahöfn, Gjögur. En Kristmundur er fæddur og uppalinn á G jögri. Með tilkomu þessara ferða gefst nú fólki einstakt tækifæri til aö skoða óbyggðir nyrst á Ströndum og óspillta náttúrufegurð sem veröur hverjum manni ógleymanleg og er ekki öðrum fær en gangandi. Þar sem undir- búningur að þessum ferðum var skammur gafst ekki tími til að auglýsa ferðaþjónustuna þannig að í sumar notaöi fólk sér þetta ekki sem skyldi. Var því taprekstur á útgerðinni. En þeir félagar hafa ákveöiö að fiska upp í tapið og hyggjast stunda handfæra- veiðar grimmt þar til endar ná saman. Þá hafa þeir ákveðiö að bjóöa upp á áðurgreinda ferðaþjónustu næsta sumar og þá í sambandi viö áætlunar- feröir fólksflutningabíla sem hingaö koma á föstudögum og fara til baka á sunnudögum. -EIR. Fjölda hjúkrunarfræðinga vantar til starfa á sjúkrahúsin í Reykjavík. Má nefna sem dæmi að á Landakotsspít- ala vantar um 20 hjúkrunarfræðinga, á Landspítalann vantar um 30, og á Borgarspítalann vantar á fjóröa tug hjúkrunarfræðinga. Einnig mun vanta hjúkrunarfræðinga víöa úti á landi. Þessi skortur á hjúkrunarfræðingum mun þó vera svipaöur og verið hefur undanfarin sumur. Þeir sem DV ræddi við um þessi mál í gær sögðu að yfir- leitt batnaði ástandiö með haustinu þegar fólk sneri aftur úr sumarleyfum. Talið er að nú séu um 1400 hjúkrunarfræðingar við störf hér á landi og að hátt í 200 til viðbótar þurfi til að manna allar stöður sem í boði eru. Sigþrúður Ingólfsdóttir, formaður Hjúkrunarkvennafélags íslands, sagði í samtali viö DV að ein helsta ástæðan fyrir þessum mikla skorti á hjúkrunar- fræðingum væri eflaust sú gífurlega þensla í heilbrigðiskerfinu sem átt hefði sér stað á síðustu árum. Stjórnvöld hefðu þó ekki gert ráðstafanir í samræmi við það til að manna stöðurnar. Sigþrúöur sagði að eftir aö náms- braut í hjúkrunarfræðum hefði tekið til starfa við Háskóla Islands árið 1974 heföi fjöldi íslenskra hjúkrunar- fræðinga aukist stórum. Væru þetta þó mikiö til ungar kraiur með böm og kysu þær að vinna í hlutastarfi. Þeir hjúkrunarfræðingar sem vinna í hluta- starfi fá hlutfallslega hærra kaup en þeir sem vinna fullt starf svo að sífellt verður algengara að hjúkrunar- fræðingar vinni einungis hálfan daginn. Árið 1980 unnu jafnmargir hjúkrunarfræðingar i hlutastarfi og fullu starfi. Nú er svo komið að mun fleiri vinna í hlutastarfi. -EA. Breytingar hjá SÍS Nokkrar breytingar á skipan manna í trúnaðarstöður hjá Sambandi ísl. samvinnufélaga og fyrirtækjum þess koma til framkvæmda nú á næstunni. Steinar Magnússon, framkvæmda- stjóri skrifstofu Sambandsins í Hamborg, hverfur heim og tekur viö fyrra starfi sínu sem framkvæmda- stjóri Jötuns hf. Gylfi Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Jötuns, kemur til starfa hjá Sambandinu og mun vinna að sérstökum verkefnum á aðalskrif- stofu. Viö starfi Steinars Magnússonar í Hamborg tekur Tómas Oli Jónsson, framkvæmdastjóri Bílvangs sf. Við framkvæmdastjórastarfinu hjá Bíl- vangi tekur Gunnar Gunnarsson, for- stöðumaður hjá Búnaðardeild Sambandsins. Jón Sigurðarson hefur veriö ráðinn framkvæmdastjóri Iðnaöardeildar Sambandsins á Akureyri frá og með 15. september. Tekur hann viö af Hirti Eiríkssyni sem ráöinn hefur verið framkvæmdastjóri Vinnumála- sambands samvinnufélaganna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.