Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1985, Page 10
10
DV. FÖSTUDAGUR 23. ÁGUST1985.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Umsjón: Guðmundur Pétursson og Hannes Heimisson
Afstærstu
blökku-
mannanýlendu
Suður-Afríku:
Eymd og vonleysi í
Beveriy Hills Soweto
Uggur út af eiturslysunum
Beverly Hills í Soweto
Þaö eru ekki öll hús eins í stærstu
blökkumannanýlendu Suöur-Afríku.
Einn hluti nýlendunnar ber merki
ögn meiri efnalegrar velferðar en
aðrir. Sá borgarhluti heitir í raun
Beverly Hills, alnafni samnefnds
borgarhluta í Los Angeles sem
þekktur er fyrir annað en ómaga og
tómthúsmenn. Lúxusinn í suöur-
afríska Beverly Hills hverfinu er þó
af annarri gráöu og af annarri teg-
und en fyrirfinnst í amerísku
Beverly hæðunum.
Á meðal þeirra er eiga hús í
Beverly hæðum Soweto eru Des-
mund Tutu nóbelsverðlaunahafi og
biskup auk andófsmannsins kunna,
Nelson Mandela. Hús Mandela hefur
reyndar staðið autt í langan tíma,
enda hefur heimilisfaðirinn verið í
fangelsi síðastliðin 20 ár fyrir
skoðanir sínar og andstöðu kynþátta-
aðskilnaðarstefnu stjórnvalda. Mörg
húsanna í Beverly hæðum bera
merki eftir róstur síðustu vikna. Þau
eru í eigu blakkra embættismanna
ríkisstjórnarinnar sem almenningur
í Soweto lítur á sem svikara og út-
sendara hvíta minnihlutans. Utlit
húsanna ber glöggt dæmi um þann
hug er almenningur ber til embættis-
mannanna, brotnar rúður og brotin
tré. Mörg þeirra hafa verið brennd
til grunna. Hús Kunene, borgar-
stjóra í Soweto, ber enn merki um
harðvítuga bensínsprengjuárás her-
skárra blökkumanna fyrir nokkrum
vikum.
Efnahagslegar þrengingar íbúa
Soweto hafa orðið þess valdandi að
blökkumannanýlendan er nú eitt
versta glæpahverfi heims ef tekið er
tillit til íbúafjölda. Eftir eina helgi er
ekki óvanalegt að yfir 25 morð, auk
tuga rána og nauðgana, séu tilkynnt
lögreglu. I flestum tilvikum er þaö
lítiö sem lögreglan gerir né getur
gert og langflest kærumálanna verða
aldrei upplýst. Enn heldur ofbeldiö
áfram í nýlendum blökkumanna og
allar líkur á að svo verði áfram.
Efnaiðnaður í Bandaríkjunum er
nú í brennidepli eftir nokkur alvarleg
óhöpp með stuttu millibili á dögun-
um, en þau hafa orðið til þess að
!vekja ugg meðal almennings. Enda
ljóstruðu fjölmiölamir því upp að
ástandið í iðnaðinum kynni að vera
jafnvel enn alvarlegra en kæmi á
daginn í stöku óhöppum.
Það byrjaði með því að eiturgas iak
út úr skordýraeitursverksmiðju
Union Carbide í bænum Institute í
Vestur-Virginíu á sunnudegi. 142
urðu fyrir eiturverkunum, eftir að
verksmiðjan hafði dregið í 20
mínútur að gera almannavömum
viðvart.
Á þriðjudegi varð aftur eiturleki úr
annarri Union Carbide-verksmiðju í
Charleston í sama fylki, en það varð
ekki eins alvarlegt slys.
Það virðist ekki ætla af Union
Carbide að ganga, en fyrirtækið á
verksmiðjuna í Bhopal á Indiandi,
þar sem 2500 fórust í eiturslysi í des-
ember í fyrra og 177 þúsundir urðu
fyrir eiturverkunum vegna gasleka
frá verksmiðjunni. Þar þótti um að
kenna trassaskap í viðhaldi
verksmiðjunnar og öryggisbúnaði.
En mánudaginn á milli slysanna í
verksmiðjunum í Virginíu-fylki valt
tankbíll með banvænan eiturfarm á
fjölfarinni hraðbraut við Washington.
Ekillinn fórst og nokkur hundruð
manns, sem bjuggu í nágrenninu,
urðu í öryggisskyni að flýja heimili
sín á meðan hættunni var bægt frá.
— Sama dag fór flutningalest út af
teinunum í Árizona en hún flutti
meðal annars 46 geyma sem í voru 30
mismunandi eiturtegundir, meira og
minna banvænar. Gaus upp mikill
eldur og forða varð 250 manns burt
úr nágrenninu. — 1 Camden í New
Jersey varð annað slys með tankbíl
sem flutti 8 þúsund litra af stórhættu-
legum eiturefnum sem láku ofan í
holræsakerfi borgarinnar. Þar urðu
100 manns að yfirgefa heimili sín um
hríð.
Dag hvern eiga sér stað milli 100
og 250 þúsund flutningar á
hættulegum eiturefnum í Banda-
rikjunum. Um þvert og endilangt
landið eru fluttar árlega um 4
miiljarðar smálesta eiturefna.
Umhverfisverndarsamtök, sem
annars fjargviðrast yfir flestöllum
sköpuðum hlutum, hafa til þessa
látið þetta afskiptalaust.
Ohöppin í hinni vikunni gefa
annars ekki sanngjarna mynd af
slysatíðni í efnaiönaðinum. Ef
marka má skýrslur er eiturefna-
iðnaðurinn í reyndinni einn sá slysa-
minnsti af 42 iðngreinum sem
alríkislögin taka yfir í Bandaríkjun-
um. — En hitt er rétt að fari eitthvað
úrskeiðis er jafnan um líf eöa dauða
að tefla fyrir fjölda fólks. Því hefur
vaknað umræöa í kjölfar slysanna
um að heröa verði skyldur þessa
iðnaöar til varúðarráðstafana.
Union Carbide hefur sætt gagnrýni
fyrir aö hafa ekki samstundis hringt
viðvörunarbjöllum þegar óhappið
varð í Institute, en sumir virða þeim
til vorkunnar að enginn lét sér detta í
hug óhapp í þeirri verksmiðju. Strax
eftir stórslysið í Bhopal var Institute-
verksmiðjunni lokað og rekstur ekki
hafinn aftur fyrr en fimm mánuðum
síöar, eftir endurbætur á öryggis-
búnaðinum, sem kostuðu fimm
milljónir dollara.
James Florio, þingmaður í New
Jersey, segir að Union Carbide sé
raunar ábyrgara fyrirtæki en flest
önnur í efnaiðnaöinum, en það vekur
menn til umhugsunar hvernig
ástandiö sé þá hjá hinum ef þeir hjá
Union Carbide eiga í þessum erfið-
leikum. — Florio þessi stendur að
flutningi lagafrumvarps sem miöar
að því að herða eftirlit með efna-
iðnaðinum. I heimakjördæmi hans
hafa oröið 17 alvarleg eiturslys síðan
í október í fyrra. Fjórði hluti
efnaiðnaðar Bandaríkjanna er
staðsettur í New Jersey.
Soweto, stærsta nýlenda blökkumanna i Suður-Afríku. Fátækleg kofaræksni og moldargötur i hróplegu ósamræmi við steinsteypu og skýja-
kljúfa Jóhannesarborgar í aðeins 20 kílómetra fjarlægð.
mannaborgarinnar Soweto og til
baka. Eftir að hafa kynnt sér helstu
túristavinjar landsins, allt frá aldin-
göröum Jóhannesarborgar til Góðr-
arvonarhöfða, rennur ískaldur
raunveruleikinn upp fyrir ferða-
manninum þegar nálgast er úthverfi
Soweto. Það eru aðeins 20 kílómetrar
er skilja að skýjakljúfa Jóhannesar-
borgar og kofaræksni blökkumanna í
Soweto og andstæðumar eru gífur-
legar. „Það er erfitt fyrir mig að
gera mér grein fyrir ástandinu
héma,” er haft eftir eldri konu frá
Brasiliu, „við höfum blandaða kyn-
stofna heimafyrir en þar er enginn er
þvingar þá til að lifa aðskiida.” „Áf
manna búa. Þaö fyrsta er grípur at-
hygli ferðamannsins er alger vöntun
á ræktuðu landi. I samanburði við
endalausa trjágarða og græn tún í
Jóhannesarborg er Soweto ekkert
annað en grámyglulegar hæöir þar
sem rykmökkur liggur yfir hreysum.
biökkumanna og ekki sést í grænan
lit. Fátækleg hreysin eru smá og illa
hirt. Þau standa í beinum röðum og
raðirnar virðast endalausar. I
Soweto fyrirfinnast fimm bágbomar
almenningssundlaugar. I Jóhannes-
arborg eru yfir 65 þúsund einkasund-
laugar. Vegna ófriðarástandsins er
komið hefur blökkumannaborginni í
heimspressuna dag eftir dag aö
sams konar ferðamannahópi en sá
slapp með skrekkinn.
Afleiðingar ófriöarástandsins eru
sjáanlegar hvert sem litiö er. Brotn-
ar rúður og brunnin bílflök eru al-
geng sjón. A daginn sjást hópar
blakkra íbúa á ferli illa klæddir og
flóttalegir ásýndum. Á næturnar hef-
iur útgöngubanni stranglega verið
framfylgt, einn liður í neyðarlögum
Botha forsætisráðherra. Þá eru það
hermenn og öryggissveitir lögreglu
er ráða ríkjum á moldugum strætun-
um gráir fyrir jámum. Þeir sem
brjóta útgöngubannið mega eiga á
hættu að verða fyrir biti blóðhunda
yfirvalda eða gúmmíkúlum og þeim
kunnugra hefur ástandiö þar þó oft
verið verra en nú. Fram að þessu
hafa óeirðir verið verstar síöustu 19
mánuöi í öörum sambærilegum
hverfum blökkumanna í Durban og
Höfðaborg.
Þrátt fyrir neyöarlög hefur ofbeldi
í héruðum blökkumanna lítið minnk-
að. I þessari viku fylktu hundruö
blakkra ungmenna liði á götum
Soweto, gerðu aðsúg að lögreglu,
grýttu bíla og verslanir í eigu hvítra.
Lögreglan svaraði áhlaupi ungmenn-
anna með táragasi og gúmmíkúlum.
Eftir heiftarlega bardaga lágu fimm
blökkumenn í valnum og fjölmargir
særðir.
Fyrir einar 400 krónur bjóða ferða-
mannayfirvöld í Suður-Afriku er-
lendum gestum fjögurra tíma
kynnisferð um tvo heima aðskilnað-
arstefnu stjómvalda í Pretóríu.
Frá Jóhannesarborg til blökku-
sjónvarpsmyndum sem ég hef séð
frá Soweto hafði ég ekki ímyndað
mér að þetta væri svona stórt,” segir
enskur kennari í einum hópnum, for-
viða á umfangi hverfisins þar sem
meira en tvær milljónir blökku-
undanförnu er fararstjóri ferða-
mannahópsins í stöðugu sambandi
við öryggissveitir stjórnarinnar ef
ske kynni aö hinum erlendu ferða-
mönnum yrði gerð fyrirsát. Nýverið
var grjóti og eldsprengjum kastað að
sem nást er umsvifalaust varpað í
fangelsi. Þar geta þeir dúsað dögum
saman.
Soweto er stærsta byggð blökku-
manna í Suður-Afríku. Að sögn