Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1985, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1985, Qupperneq 13
DV. FÖSTUDAGUR 23. AGUST1985. 13 „Afhverju étur fólkið ekki bara kökur?” — hugleiðingar í tilefni af útvarpsviðtali lambakjöti i landinu slikt ógnarverð sem á þvi yrði." £ „Hugsunarhátturinn um „þetta þarna vandamál með verðið”, sem ríkið á að leysa, á að vera útlægur orðinn úr þessari umræðu.” Fyrir nokkrum árum átti ég tal viö kunningja minn, sem veitti forstöðu meöalstóru fyrirtæki. Talið barst aö málefnum þess og spurði ég m.a. hvernig reksturinn gengi. „Hann gengur alveg ljómandi vel,” svaraöi kunninginn. Það eru bara þessi eilífu vandamál meö fjár- málin, sem eru að veröa óyfirstígan- leg.” Þetta vil ég kalla séríslenska rekstrarhagfræði. Þessi saga kom mér í hug kvöld eitt nú á dögunum þegar rætt var í fréttum hljóðvarpsins við formann nýstofnaðs hagsmunafélags sauð- fjárbænda. Eftir að hafa rætt um nauðsyn þess að hverfa aftur til fyrri ríkisábyrgðar á offramleiðslu sauð- fjárræktar og að lóðið til þess aö fá almenning til þess aö borða meira lambakjöt væri að selja það tilbúið í örbylgjuofninn barst talið að útflutn- ingi lambakjöts, m.a. til Bandaríkj- anna. Taldi formaöurinn lítil vand- kvæði á að selja íslenskt lambakjöt inn á þann stóra markað sem sér- staka lúxusvöru. Einasta vandamál- ið í því sambandi væri barasta það, að líklega fengist ekki það verð fyrir vöruna, sem bændur þyrftu. M.ö.o. var umsetningin ekkert vandamál, heldur bara verðið. Við sama hey- garðshornið Ekki efa ég, að sauðfjárbændur eiga nú í miklurn erfiðleikum og síst vil ég lítið úr þeim gera, en menn verða að athuga, að einmitt 'þessi hugsunarháttur hefur búið þá erfið- leika til. Mönnum verður að fara að skiljast það einfalda atriði, að „reksturinn” getur ekki gengið „alveg ljómandi vel” nema tekjurn- ar nái að mæta útgjöldunum. For- manni hagsmunasamtaka sauðfjár- bænda hefur tekist í þessari einu setningu að lýsa meginvandanum í viðskipta- og efnahagsmálum heims- ins. Lóðið er nefnilega einfaldlega það, að menn fá barasta ekki verðið, sem þeir þurfa. Og það eru ekki að- eins fyrirtækin, sem eru í þeim ein- földu vandræðum, heldur fólkiö líka; meira að segja fólkið hér á Islandi. Fiskverkafólkið er t.d. ekki í neinum vandræðum með að selja vinnu sína, það er bara verðiö fyrir hana; já kaupið; sem er þess vandi. Sama má svo segja um bréfberana, kennarana — og yfirleitt alla þá, sem búa við lág laun og lítið kaup. Sauðfjárbónd- inn hefur síður en svo neina sérstöðu í þessum hópi. Hann getur ekki ætlast til þess, að þjóðfélagið leysi fyrir hann þetta „vandamál með verðið” á kostnað bréfberans, kennarans og allra hinna á lágu laununum. Sauðfjárbóndinn verður aö athuga það, að þarna á hann ekki frekari kröfur á þjóðfélagið en t.d. framleiðandi á skóm eða peysum eða húsgögnum eða kexi, sem vill gjarna selja afurðir sínar á Bandaríkja- markaði en á bara í „þessu vanda- málimeðverðið”. Á yztu nöf Það var einmitt þessi hugsunar- háttur, sem kom íslenzkum landbún- aði í hefðbundnum búgreinum á kaldan klaka — sá hugsunarháttur, aö ríkið eigi að leysa „þetta vanda- mál með verðið”. Það var gert í gömlu framleiðsluráðslögunum með því, að ríkissjóður tók á sig að veita verðábyrgð á framleiðslu afurða hinna hefðbundnu búgreina, sem aftur varð til þess, að framleiðendur spenntu bogann svo hátt í offram- leiðslu sauðfjárafurða og mjólkur- afurða að hann brast loks í hendi þeirra sjálfra. Þessi offramleiðsla haföi verið byggð upp á verðlags- grundvelli, sem var svo víðs fjarri raunveruleikanum að þegar boginn loksins brast var allt framleiðslu- kerfi landbúnaðarins í hinum hefð- bundnu búgreinum svo ramm- skakkt, aö bændastéttinni í heild liggur við hruni. Hafa menn athugað að væri frjálst verðmyndunarkerfi látið ráöa ferðinni í landbúnaðar- framleiöslunni án afskipta hins opin- bera með niðurgreiðslum og fóður- bætissköttum þá myndi varla seljast eitt tonn af lambakjöti í landinu slíkt ógnarverð sem á því yrði. Samt er þetta framleiðsla, sem svo til alfarið byggist á íslenskum aðföngum, eins og formaður hagsmunafélags sauöfjárbænda réttilega tók fram. Þessi niðurstaöa er sjálfskaparvíti framleiðendanna; afeiðingin af því óskapakerfi í landbúnaöarmálunum, sem ég heyröi ekki betur en for- maðurinn væri að biðja um aftur. Lærið af reynslunni Eins og við Alþýðuflokksmenn sögðum þegar við gagnrýndum þetta kerfi fyrir daufum eyrum árum saman, þá endaði það með að ógna afkomu þeirra, sem kerfið átti að verja, bændanna sjálfra. Þannig launaði sá kálfur ofeldið. Auðvitað sjá nú allir þetta, hvort sem menn fá sig til þess að viður- kenna þaö opinberlega eöa ekki. Málið snýst ekki heldur um slíkar yfirbætur á opinberum vettvangi né yfirlætislegan fræðatón þeirra, sem betur vissu, undir formerkinu: „Sagði ég ekki!” Máliö snýst um það, að menn feti sig út úr vitleys- unni — ekki í einu stökki, því það er ekki hægt, heldur í áföngum þannig, að landbúnaðurinn á Islandi beri ekki óbætanlegan skaða af heldur Kjallarinn SIGHVATUR BJÖRGVINSSON FYRRVERANDI ALÞINGISMAÐUR geti fengið að dafna við eðlilegar kringumstæður og með eðlilegum hætti. Það gerist hins vegar ekki með því að menn feti sig til baka inn í vit- leysuna aftur loksins þegar menn stefna í átt til a.m.k. einhverrar ljós- glætu í framleiðslu- og verðmyndunarkerfinu. Hugsunarhátturinn um „þetta þarna vandamál með verðið”, sem ríkið á að leysa, á að vera útlægur orðinn úr þessari umræðu. Eigi nú að fara að endurvekja hann glatar bændastéttin þeirri samúð almenn- ings, sem hún þarf á að halda og verður að hafa eigi að takast að leysa erfiðleika hennar. Ég trúi ekki öðru en bændum sé það almennt ljóst, að einmitt „þetta þarna vandamál með verðið” er hin hliðin á vandamáli launafólksins í landinu, sem orðið hefur að draga við sig meira en gott þykir kaup á lambakjöti og jafn- framt, þótt aukin þjónusta við neyt- endur sé allra góðra gjalda verð, þá fæ ég ekki séð, að fólk, sem í dag ræður ekki við að kaupa þessa afurð, yrði nokkru bættara þótt lambakjöt- iö væri selt tilbúið í örbylgjuofninn. Formaður hagsmunasamtaka sauðf járbænda ætti aö minnast þess, að það var María Antoinetta, keisaraynja Frakklands, sem svar- aði þegar henni var sagt, að þjóðin ætti ekki lengur brauð: „Já, en af hverju boröar fólkiö þá ekki bara kökur!” örbylgjuofnar voru hins vegar ekki komnir á markaðinn á þeim tíma. Annars hefði María Antoinetta sagtja, sagthvað? Sighvatur Björgvinsson. Kjaramál á haustdögum Hvað gerir verkalýðshreyfingin ef vísitalan fer yfir rauðu strikin? spurði einn kunningi minn mig á dögunum. Ég sagði við hann þaö sama og þig. Ég held það gerist ekkert. Ég leit að vísu svo á að forsætis- ráðherra hefði gefið ákveðið loforð í þjóðhátíðarræðunni. En á Islandi telja ríkisstjórnir sig ekki skyldugar að standa við loforð og verka- lýðshreyfingin er of sundurþykk til að kenna henni betri siði. Nú, en kannske getur blessuð þjóöhags- stofnunin bjargað þessu öllu með ein- hverri nýrri línu að utan. Satt að segja trúi ég því aldrei aö neitt gerist í kjaramálum fyrir áramót. Það voru aldrei lausir samningar 1. sept. Aðeins kaupliðir samninga. Ég veit að flest félög þurfa að leiðrétta margt fleira en kaupliði í næstu samningum. Spurningin er, tekst svo vel að vinna aö undirbúningi samninga að þeir geti tekið gildi um áramót og hvernig verður sam- staðan. Þar eru veikir punktar. Satt að segja hefur margt gerst innan verkalýðshreyfingarinnar síðustu tvö árin sem mér finnst stór hættulegt ef svo á áfram að ganga. Við skulum taka síðasta dæmið fyrst. Tilboð VSl kom öllum í opna skjöldu eða svo segja menn. Þetta tilboð fól það í sér að bæta átti launfólki upp það sem öllum var ljóst að tapast myndi í sumar. Þetta var sterkt út- spil og vafasamt að forystunni hefði haldist það uppi aö segja nei. Öll landssamböndin vildu ræða málin nema hvað VMSI var tvíátta. Málin voru í óvissu þegar ég fór til Danmerkur 8. júní. Það var yndis- legt á Fjóni en við sáum aldrei íslensk blöð. Þó fréttum viö að samkomulag væri úr sögunni. Eitthvað um 20. júní sé ég blöð. Þar segir annars vegar að upp úr sé slitn- að og hins vegar að framkvæmda- stjórn VMSI hafi komiö saman og samþykkt með öllum atkvæðum, líka Guðmundar J., Jóns Kjartanssonar og Sigrúnar Clausen.að biðja VSI um nýjar samningaviðræður. Og öll landssamböndin skrifuöu undir þann viðauka sem nú gildir og ASI fyrir hönd þeirra sem eru meö beina aðild. Kröfum fiskvinnslufólks var ýtt út af borðinu og nefnd sett í málið. Ég verð að segja að ég sat dolfallin yfir þessum lestri. Síðan ég kom heim og fór að lesa það sem til min berst hef ég orðið enn meira hissa. Forystumenn úr sumum verka- lýösfélögum úti á landi hella skömmum og svívirðingum yfir ASI fyrir að semja. Það er eins og VMSI sé alveg út úr kortinu. Einhverjir vondir skúrkar í ASI neyddu litlu greyin til að semja. Þessu fylgja hót- anir um úrsögn úr ASI og per- sónulegar svívirðingar, verri en ég hef áður séð á prenti. Og það fólk sem talar svona gerir það ekki af ókunnugleik eöa barnaskap. Það gerir þaö vitandi vits til aö rugla fólk, hvaða tilgangi sem það þjónar. Víst hefur verkalýðshreyf- ingin átt og á skilið gagnrýni en sú gagnrýni verður að vera heiðarleg og byggð á einhverju viti. Ég er ekki að skrifa þessar línur vegna þess að mig langi aö eiga í illdeilum við fé- laga mína. Ég skrifa þær vegna þess að ég óttast að ef á að vinna svona þá sundrist hreyfingin og það væri iíla farið því þrátt fyrir allt er hún eina fjöldahreyfingin á Islandi sem hefur varið rétt þeirra sem minnst mega sín. Okkur íslensku erfiðisfólki hefur aldrei verið rétt neitt á silfurfati. Einföld mannréttindi eins og at- vinnuleysistryggingasjóður, verka- mannabústaöir, lífeyrissjóðir, svo eitthvað sé nefnt, hafa kostað löng verkföll og afsal á launum, sem svo aftur hefur leitt af sér vinnuþrælkun, sem er öllum til skammar. Við þurfum aö fara að vinna að næstu samningagerð. Ég skal nefna nokkur atriði sem mér finnst að eiga að berjast fyrir sameiginlega. Fyrsta, að við tökum upp kröfuna um 8 st. vinnudag með mannsæmandi launum. Þrældómur á ekki að verða hlutskipti barna okkar og barna- barna. Annað, meiri verkmenntun og fullorðinsfræðslu. Þriðja, endurmat á störfum AÐALHEIÐUR BJARNFREÐSDÓTTIR, FORMAÐUR SÓKNAR. kvenna. Mikið af launamisrétti karla og kvenna liggur í því að kvennastörf eru lítilsmetin. Um þetta ættu allar konur að standa saman og reyndar allir launþegar. Það er fyrir nógu að berjast ef fólk vill berjast fyrir betri tíð. Marklausar upphrópanir fólks, sem er að kaupa sér vinsældir eða pólitískan frama á kostnað félaga sinna, færa verkafólki ekkert. Það þekkjum við af reynslunni og reynslan er ólygnust, nú og ævin- lega. Aðalheiður Bjamfreðsdóttir. ^ „Marklausar upphrópanir fólks, sem vill kaupa sér vinsældir eða pólitískan frama á kostnað félaga sinna, færa verkafólki ekkert.”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.