Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1985, Side 16
16
DV. FÖSTUDAGUR 23. ÁGUST1985.
Spurningin
Hefurðu verið ánægð(ur)
með veðrið í sumar?
Páll Stefánsson: Það er nú líkast til.
Það er ekki hægt annað.
Guðbjörg Lind Jónsdóttir: Já, ég hef
veriö mjög ánægð meö veðrið. Miklu
ánægöari en í fyrra.
Hjörtur Marteinsson: Ég er alsæll meö
veðrið í sumar. Það er annað en í
fyrra.
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Lesendur
óloftA
kránum
Ah. skrifar:
Mig langar aö hvetja eigendur
Gauks á Stöng, Fógetans og Duus-húss
til að stórbæta loftræstingu staða sinna.
Á hverju kvöldi er þar þröng á þingi
og mikið reykt. Veröur útblásturinn
svo megn þegar mest er að illmögulegt
reynist að halda augunum opnum fyrir
sviða. Og óloftiö dregur maöur niðrí
lungun sín fínu og á aðeins tvo kosti:
sitja kjurr eöa koma sér út.
Ég vil benda þessum herramönnum
á að skoða loftræstin ;una í Hollywood
sem er til svo mikillar fyrirmyndar aö
þótt á annað þúsund manns séu innan-
húss er loftið tiltölulega gott.
Ég veit að þaö er erfitt aö takmarka
reykingar á öldurhúsum en það er
hægt aö lagfæra ástandið mikiö með
bættri loftræstingu.
Getur batnað
Lesendasíðan sneri sér til þeirra
kráa sem getið er í greininni og spuröi
álits á efni hennar.
Fyrstur varð fyrir svörum Omar
Jóhannsson, yfirþjónn á Gauki á
Stöng: „Ég er alveg sammála greinar-
höfundi og okkur sem vinnum hér
frammi í sal sortnar stundum fyrir
augum þegar verst lætur. Hönnun loft-
ræstikerfisins virðist hafa mistekist en
þar sem ég er nýkominn úr sumarleyfi
veit ég ekki hvort vænta megi úrbóta á
næstunni.”
Á Fógetanum varð fyrir svörum
Sölvi Ölafsson. Hann kvaö loftræsti-
kerfi Fógetans mjög gott og gæti tæp-
ast betra verið. „Enda fyllir það helm-
ing efri hæðarinnar,” sagði Sölvi enn-
fremur. Stöðugt er í gangi kraftmikill
blásari sem dælir útilofti inn í gegnum
síur og gætu þeir á Fógetanum hitaö
loftiö en ekki kælt þannig aö ef heitt
væri í veðri úti gæti sumum þótt full
heitt. Hann hafði ekki trú á að betra
gæti loftræstikerfið orðið en viður-
kenndi þó að þegar mest væri af gest-
um yrði loftið í þyngra lagi.
Þorsteinn í Duus-húsi sagði aö fyrir
utan venjulega loftræstingu þá gætu
þeir opnað alla glugga upp á gátt. Mis-
brestur gæti hafa orðið á því þegar
mest væri að gera og harmaði hann ef
svo væri. Hinsvegar þakkaði hann
ábendinguna og kvað þá ætla vera vak-
andi fyrir þessu framvegis.
Sumir reykja stíft á kránum,
Undirskriftasöfnun til stuðnings
þjóðaratkvæði um ölið
Sigurjón Þ. Sigurjónsson: Það hefur
verið fínt veður hérna í bænum í sum-
ar. Ég er ánægðari nú en í fyrra.
Hafdís Hallsdóttir: Auövitað. Veðrið
getur ekki hafa verið betra hér sunnan-
lands. Röðin var svo sannarlega komin
að okkur Sunnlendingum.
Harpa Arnardóttir: Ég hef veriö mjög
ánægð með veörið í sumar. Miklu
ánægðari en í fyrra.
íslendingur skrifar:
Ég hef fengið mig fullsaddan af
skammsýni dómsmálaráðherra og al-
þingismanna í ölmálinu. Það eru sjálf-
sögð mannréttindi að við íslendingar
fáum að drekka öl eins og aörar vest-
rænar þjóðir.
Ég vil leggja til að hafin veröi undir-
skriftasöfnun til stuðnings þeirri kröfu
að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla
um ölmálið, ekki seinna en í haust.
Lýsi ég eftir stuöningi við þessa kröfu
mina hiö fyrsta.
Þetta par býr ekki hér á landi —
enda með ekta öl.
GOTT MORGUNÚTVARP
Lesandi skrifar:
Alltaf er verið að bölva dagskrá út-
varpsins. Og víst er hún upp og niður.
Hitt er annaö að alltof sjaldan er því
hælt sem vel er gert. En það ætla ég að
gera því ýmsir dagskrárliðir i útvarpi
eru með miklum ágætum, þótt aðrir
séu síöri og enn aðrir bókstaflega lé-
legir.
En það bjargar miklu fyrir mig og
mína fjölskyldu að útvarpiö byrjar
fjarska vel á morgnana. Morgunút-
varpið í umsjón þeirra Guðmundar
Árna Stefánssonar, fyrrum ritstjóra,
og önundar Bjömssonar, fyrrum prests
á Hornafirði, er skínandi gott. Þeir
félagamir eru mátulega afslappaðir
og einnig hitt aö þeir taka fyrir ólík-
ustu svið hins mannlega lífs. Og margt
af því er ekki aðeins skemmtilegt held-
ur líka fróðlegt. Tónlistin er hressandi
hjá þeim félögum og það er líka
óvenjulegt í útvarpi aö heyra fyrir-
spyrjendur gera meira en spyrja al-
mennra spuminga í þumbaragangi
heldur líka taka þátt í viðtalinu, þó án
þess að taka neitt af þeim er situr fyrir
svörum. Mér hefur stundum fundist að
orðið viðtal sé rangnefni, þegar frétta-
menn sitja öðrum megin og láta spum-
ingahrinu dynja á viðmælandanum, án
þess að leggja raunverulega nokkuð af
mörkum sjálfir. Þeir morgunútvarps-
menn eru þátttakendur í raunverulegri
viðræðu fyrirspyrjenda og þess sem er
gestur í útvarpssal og þaö kallar á
notalegra andrúmsloft. Og það þarf
svo aldeilis að morgni dags í útvarpinu
eins og raunar á öðrum tímum sólar-
hrings.
En ég er auövitað ekkert betri en
aðrir þegar ég skrifa í blöö. Aðeins
smá nöldur með. Leiður var ég orðinn
á gamla útvarpsstefinu, píanóglamr-
inu sem gert var svo mikið grín að í síð-
asta áramótaskaupi (meö réttu).
Þetta nýja stef fyrir auglýsingar í út-
varpinu er fjarská leiöigjarnt til
lengdar. Má ekki skipta um tónstef
reglulega?
Bréfrltari þakkar þeim Önundi Björnssyni og Guðmundi Árna Stefánssyni
fyrir gott morgunútvarp.