Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1985, Side 19

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1985, Side 19
DV. FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST1985. iróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir on, fyrirliði Skagamanna, rnum eftir sigur ÍA á Fram i fyrra. arar eða Keflvíkingar i ár? þetta »kur” Akraness frá því í fyrra, Sverrir Einarsson, Þorsteinn Þor- steinsson, Ásgeir Elíasson, Pétur Orm- slev, Kristinn Jónsson, Omar Torfa- son, Guömundur Steinsson, Guðmund- ur Torfason. Lið Fram hefur verið skipaö þannig í síðustu leikjum. Örn Valdimarsson hefur að vísu átt mjög góða leiki meö Fram er hann hefur komiö inn á sem varamaður en ekki er líklegt að Ásgeir Elíasson þjálfari geri neinar breyting- ar fyrir leikinn. Lið ÍBK: Þorsteinn Bjarnason, Sig- urjón Sveinsson, Freyr Sverrisson, Valþór Sigþórsson, Sigurður Magnús- son, Sigurður Björgvinsson, Jón Kr. Magnússon, Gunnar Oddsson, Sigurjón Kristjánsson, Oli Þór Magnússon, Helgi Bentsson, Björgvin Björgvinsson (RagnarMargeirsson). (12menn). Líð Keflavíkur er mun reynsluminna en liö Fram, margir leikmanna liðsins unnu sér sæti í liðinu í byrjun keppnis- tímabilsins. Þá hafa aðeins tveir leik- manna liðsins leikið til úrslita í bikar- keppninni. Það eru þeir Þorsteinn Bjarnason, sem leikur til úrslita í þriðja sinn, og Valþór Sigþórsson er lék til úrslita með ÍBV-liðinu gegn IA 1973. -fros rentry Mackay þurft að selja þrjá af sínum bestu mönnum til að halda sér gangandi. Þetta eru þeir Ian Butterworth og Stuart Pearce, sem báðir fóru til Nott- ingham Forest, og Peter Barnes sem gekk til liðs við Man. Utd. Farið getur svo aö Terry Gibson bætist í hóp ofanskráðra en Luton hefur sýnt áhuga á honum. Coventry vantar nefnilega peninga til að kaupa Tom McKinley, sem er bráðefnilegur bakvörðurhjáDundee. -SigA. „Verða með ný brögð” — segir Hólmbert Keflavíkurþjálfari um Framara „Eg held að hægt sé að búast við skemmtilegum og góðum leik því bæði liðin spila opna knattspyrnu. Fram-lið- ið hefur mun meiri reynslu en mínir menn en margir okkar leikmanna eru ungir og nýkomnir inn í l.deildar knattspyrnu,” sagði Hólmbert Friðjónsson, þjálfari ÍBK. Þeir eru með fína leikmenn sem eru á meðal þess besta er hér finnst. Pétur Ormslev, Guðmund Torfason og Steins- son sem báðir eru gífurlega hættulegir sóknarmenn, þá Ásgeir með sitt heilabú, Omar Torfason með sína líkamsbyggingu og grimmd. Allt eru þetta landsliðsmenn. Lið okkar hefur gengið í gegn um mótun og þróun frá því í vor og við erum fyrst að sjá árangurinn af því núna. Hins vegar er ég dálítið hræddur við þaö stranga leikjaprógramm sem við höfum gengið í gegn um. Viö höfum leikiö fjóra leiki á stuttum tíma og þeir hafa verið óhemju erfiðir. Ég vona að þreytan komi ekki til með að setjast í leikmenn í bikarleiknum. Við höfum fengið í okk- ar raðir Sigurjón Kristjánsson. Þaö var vitað fyrir að hann væri meðal efnilegri knattspyrnumanna okkar og hann hefur sprungið út hjá okkur. Reynst okkur hreinn gullmoli. Ragnar Hólmbert Friðjónsson. Ásgeir Elíasson. Margeirsson verður hins vegar örugg- lega ekki í byrjunarliði okkar því hann hef ur ekki enn náð sér af meiðslunum. Liðin koma til með að leika hefð- bundnar leikaðferöir en ef ég þekki Framarana rétt þá koma þeir til með að hrista ýmis ný brögð fram úr erm- inni,” sagöi Hólmbert. -fros „Hræðist baráttu ÍBK” — segir Ásgeir Framþjálfari um Kef Ivíkinga „Ég á von á því að bæði liöin reyni að spila eins og þau hafa gert í tslands- mótinu hingað til og ég reikna með því að bæði leiki eins og um slíka leiki væri að ræða,” sagði Ásgeir Elíasson, þjálf- ari og leikmaöur með Fram. „Leikurinn verður erfiður. Kefla- víkurliðið leikur baráttuknattspyrnu eins og önnur lið er Hólmbert hefur stjórnaö. Ragnar Margeirsson hefur reynst okkur erfiöur. Annars hræðist ég mest baráttugleöi þeirra. Síðasti leikurinn viö Keflvíkinga veröur örugglega ekki endurtekinn. Þá töpuðum við, 3—0, en á sunnudaginn verður annað upp á teningnum. Leikurinn í Keflavík var versti leikur okkar í deildinni í ár. Ég held að við séum ekki í lægð þrátt fyrir aö viö höfum misst nokkuö af okkar forskoti í deildinni. Við höfum undanfariö leikið mjög erfiöa leiki. Þá hefur það haft mikið að segja að viö höfum ekki verið jafnmarkheppnir og í byrjun mótsins. Höfum misnotað mikið af færum í síðustu leikjum, þá hafa sumir leikmanna leikið undir getu. Annars leggst leikurinn vel í mig. Ég þori ekki aö spá um úrslit en við ætlum okkur aö vinna. -fros. „Það þýðir ekkert að hræðast Keflvíkinga” — segir Guðmundur Steinsson, Fram „Það þýðir ekkert að hræðast Keflvikingana. Við vitum að þeir eru sterkir og aö þeir leika góða knatt- spyrnu,” sagði Guðmundur Steinsson, hinn hættulegi framherji hjá Fram. „Við höfum tapað nokkrum erfiðum leikjuin að undanförnu en ég held að við séum á uppleið aftur eftir sigurinn gegn Víði og ég held að það sé mjög mikill hugur i mannskapnum. Völlurinn held ég að hafi enga þýðingu. Keflvikingarnir eru vanir að leika á Laugardalsvellinum og þeir fá væntan- lega góðan stuðning frá áhorfendum sem við reyndar vonumst eftir lika. Ég treysti mér ekki til að spá um úr- slit en ég vona að áhorfendur fjölmenni á völlinn til að sjá skemmtilega knatt- spyrnu,” sagði Guðmundur að lokum. -fros Guðmundur Steinsson. „Úrslitin ráðast af einu marki” segir Þorsteinn Bjarnason, markvörður ÍBK „Leikurinn leggst vel í mig eins og allir leikir sem ég spila. Ég hef trú á því að úrslitin ráðist með einu marki, eitthvað mikið þarf að ske eigi leikar t Sunnudaginn 28. ágúst kl. 1400 verður íþróttabandalag Akraness jarðað á Laugardalsveilinum af íþróttabandalagi Vestmannaeyja. Nærvcru þinnar cr óskað, mcðan útförin fcr fram. Aðstandendur. Það hefur löngum verifl talifl óheillamerki afl sigra fyrirfram. Bikarúr- slitaleikurinn 1983 á milli ÍA og ÍBV ber því glöggt vitni. Nokkrir stuðningsmanna ÍBV tóku sig til fyrir leikinn og útbjuggu minningar- kort þafl er sést hér afl ofan og dreifflu þvi meflal éhorfenda. Leikur- inn fór þó é annan veg en Eyjamennirnir gerflu réð fyrir. Liflifl tapaði 2—1 í úrslitum og féll siðan um haustið niflur i 2. deild vegna kæru- méls. fros Þorsteinn Bjarnason. að fara öðruvísi,” sagði Þorsteinn Bjarnason, markvörður Keflavíkur- liðsins en Þorsteinn er nú í sitt þriðja skipti í bikarúrslitum. Keflavík vann bikarinn síðast 1975 fyrir tíu árum. Síöan þá hefur Þorsteinn leikið tvo leiki sem báðir hafa tapast. „Það er mikill uppgangur í liðinu. IBK fór til Austurríkis og Þýskalands í æf- inga- og keppnisferð og síðan við komum heim höfum við unniö þrjá deildaleiki auk þess sem viö erum komnir í úrslit bikars- ins. Það er því ekki hægt annað en að vera bjartsýnn á úrslitin,” sagði Þorsteinn. -fros. Leikur Ragnará sunnudaginn? Nokkrar vangaveltur eru um það hvort Hólmbert Friðjónsson muni tefla Ragnari Margeirssyni fram í byrjunarlið sitt gegn Fram í bikarúr- slitunum á sunnudaginn. Ragnar meiddist í leik gegn Akranesi fyrr í sumar og hefur ekki náð sér fyllilega á strik síðan. Hins vegar hefur Ragnar staðið sig frábærlega vel með Kefla- víkurliðinu í sumar og var af fiestum talimi eiun besti maður þeirra fram að meiðslunum. Þegar blm. DV spurði Hólmbert að þvi hvort hann ætlaði að stilla Ragnari upp í lið sitt þá sagði hann. „Hann verður örugglega ekki í byrjunarliðinu hjá mér því hann er ekki oröinn góður af meiðslunum.” Ásgeir Elíasson, þjálfari Fram, hafði hins vegar litla trú á ummælum Hólmberts er þau voru borin undir hann. „Ragnar spilar,” var svar hans. -fros. Golfmótið öldungur '85 Golfmótið öldungur ’85, verður hald- iö á vegum Golfklúbbs Borgamess á laugardaginn og verður ræst út frá 10—12. Rétt til þátttöku hafa allir 35 ára og eldri. 18 holur verða leiknar, með og án forgjarar. Keppt verður á golfvellinum i Borgamesi. -fros Þrenna hjá Van der Bergh — ogAnderlecht íefstasæti Frá Kristján Bernburg, fréttamanni DVíBclgíu: Anderlecbt komst í efsta sætið í 1. deildinni í Belgiu í fyrrakvöld, þegar liðið sigraði FC Liege 4—1 í Briissel. Van der Bergh skoraði þrennu fyrir Andcrlecht og er langmarkahæstur eftir þrjár umferðir. Anderlecht hefur 5 stig, Beerschot einnig, en liðið vann Charleroi 2—0. Standard Liege og Malines gerðu jafntefli, 0—0. Bæði lið misnotuðu vítaspyrnu, — varið frá' Czerniatynski á lokasekúndum en áður hafði Ceulemans, yngri bróðir lands- liðsmannsins kunna, misnotað víti fyrir Malines. Af öðrum úrslitum má nefna Lokeren-Beveren, 0—1, FC Brugge—Kortrijk, 3—1, Waregem—CS Bmgge, 3—1 og Waterschei— Molenbeek, 0—0. hsím. Hátt verð á Mommens Frá Kristjáni Berburg, fréttamanni DVíBelgíu. Samningar standa nú yfir milli Lokeren og Fortuna Diisseldorf um belgíska landsliðsmanninn Raymond Mommens. Samningar hafa ekki tekist en Lokeren vill fá 22 milljónir franka fyrir leikmanninn, um 16 miUjónir ís- lenskar. Það stendur í Fortuna. 1,1 milljón marka er mikið fyrir leikmann í V-Þýskalandi nú. Mommens hefur ekki skrifað undir nýjan samning við Lokeren, viU fara til Fortuna, og hefur ekki leikiö með Uðinu í þremur fyrstu umferðunum í 1. deild nú í sumar. hsím.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.