Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1985, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1985, Page 28
40 DV. FÖSTUDAGUR 23. AGUST1985. Andlát Helgi Guðmundsson, fyrrverandi skip- stjóri, sem lést 13. ágúst síðastliðinn, veröur jarösunginn í dag, föstudaginn 23. ágúst, kl. 13.30 frá Langholtskirkju. Helgi var faeddur aö Hóli á Patreksfirði 1. júlí 1912. Foreldrar hans voru þau Anna Helgadóttir og Guðmundur Þórö- arson. Helgi kvæntist 30. desember 1948 Guörúnu Helgadóttur frá Kollsvík viö Patreksfjörö. Þau eignuöust fimm börn en auk þess átti Guörún eina dótt- ur, Elínu. Börn Guörúnar og Helga eru: Anna, Sigrún Sjöfn, Hafdís, Kjartan og Helgi. Helgi starfaði lengst af til sjós en einnig í Áburöarverk- smiöjunni og sem húsvöröur. Kjartan Klemenson, Hraunteigi 18 Reykjavík, sem andaöist 18. ágúst síöastliðinn, veröur jarösunginn frá Bústaðakirkju mánudaginn 26. ágúst kl. 10.30. Magnús Blöndal bóndi, Gilsstöðum Vatnsdal, veröur jarösunginn frá Undirfellskirkju laugardaginn 24. ágústkl. 14. Gunnlaugur Stefánsson, fyrrverandi kaupmaöur, Hafnarfiröi, andaðist i Elli- og hjúkrunarheimilinu Sólvangi 22. ágúst. Þuríður Guðjónsdóttir, fyrrverandi ljósmóðir frá Kýrunnarstöðum, verður jarðsungin frá Hvammskirkju í Dölum laugardaginn 24. ágúst kl. 14. Vilhelmína Tómasdóttir frá Vest- mannaeyjum, Eyjaholti 10 Garöi, sem lést' 12. ágúst síðastliöinn, veröur jarösungin laugardaginn 24. ágúst kl. 14 frá Utskálakirkju. Einar G. Kvaran framkvæmdastjóri, Kleifarvegi 1 Reykjavík, veröur jarðsunginn frá Bústaöakirkju í dag, föstudaginn 23. ágúst, kl. 13.30. Tilkynningar' Alþjóðleg ráðstefna um sjávarstrendur, ár og aurburð Dagana 2.-4. september 1985 veröur haldin alþjóðleg ráöstefna aö Hótel Loftleiðum sem hlotið hefur nafnið „Iceland Coastal and River Symposium”. Meginviðfangsefni ráð- stefnunnar verður þýðing aurburðarins fyrir þróun stranda og árfarvega og flutningur aursins eftir landgrunninu. Suðurströnd Islands veröur þar sérstaklega i sviösljósinu og áhrif jökulánna og eldsumbrota, bæði und- ir jökli og í sjó, á þróun hennar. Ennfremur verður þar fjaliað um hvaöa áhrif sjávar- stöðubreytingar hafa á þróunina og hvaða áhrif mannvirkjagerð, bæði við strendur og í árfarvegum, getur haft bæöi í nútíö og framtíðinni. Dr. Per Bruun er aöalhvatamaður þess að þessi ráðstefna er haldin hér. Hann er mörgum Islendingum að góðu kunnur þar sem hann hefur veitt hér margvíslega ráðgjöf við mannvirkjagerð. Dr. Per Bruun er heims- þekktur vísindamaður á þessu sviði. Hann hefur verið prófessor í Þrándheimi, Kaupmannahöfn og Bandaríkjunum, en rekur nú í Danmörku alþjóðlega ráögjafastofu um strandmannvirki. Að ráðstefnunni á Hótel I.oftieiðum standa Háskóli islands, Vita- og hafnamálaskrif- stofan, Orkustofnun, I.andsvirkjun, Hafrann- sóknastofnun og Vegagerð ríkisins. Undir- búningsnefnd skipuð fulltrúum frá þessum stofnunum hefur unnið að undirbúningi hennar. Ritari nefndarinnar er Guttormur Sigurbjarnarson, deildarstjóri á Orkustofnun. A ráöstefnunni verða flutt yfir 40 erindi um þessi mál, þar af um 30 af erlendum þátt- takendum frá II þjóðum. Erindin fjalla jöfnum höndum um vandamál viö hagnýta mannvirkjagerð og um fræðilegan bakgrunn þeirra. Fyrir tilstilli Per Bruun sækja ráöstefnuna ýmsir af þekktustu vísindamönn- um heims á þessu sviði, bæði frá Evrópu og Ameríku og jafnvel frá Astralíu. Það verður því örugglega fróðlegt fyrir íslenska verkfræðinga og jarðvísindamenn að fylgjast með því hvað þeir hafa til málanna að leggja og ræða við þá um vandamál okkar hér á landi. íslenska hausttískan í Modern lceland Ut er komið nýtt tölublað af tímaritinu Modern Iceland, sem er sérrit á ensku um ís- lensk útflutnings- og viðskiptamál, fram- leiðslustarfsemi og samgöngur. Utgáfa blaðs- ins miðar að þvi að gefa sem fjölbreyttasta mynd af islenskum framleiðsluvörum og þjónustu með erlenda markaðsöflun í huga. Blaðinu er dreift ókeypis til þúsunda viðtak- Þakka innilega samúd og vinarhug vid andlát og jarðarför módur minnar, Valgerðar Helgu Jónsdóttur, Túngötu 9 Sandgerði. Sérstakarþakkir til Óttars Guðmundssonar lœknis og allraþeirra er studdu mig í veikindum hennar. Ása Arnlaugsdóttir. Fiskeldi Tveir starfsmenn óskast til vinnu við fiskeldisstöð Silfur- lax hf. að Núpum III í Ölfushreppi, Árnessýslu. Æskileg starfsreynsla og menntun: fiskeldi, líffræði, raf- virkjun eða skyldar greinar. Æskilegt er að starfsmenn búi eða setjist að í Hveragerði eða nágrenni þess. Umsóknir ásamt upplýsingum um nafn, heimilisfang, síma, fyrri störf og menntun óskast sendar fyrir 1. september nk. til Silfurlax hf., Sundaborg 15, 104 Reykjavík. í gærkvöldi I í gærkvöldi PÁLL, RAGNHEIÐUR OG OFURLÍTIÐ JÓN Þaö nægir mér venjulega á fimmtudagskvöldum aö lesa dag- blööin og ég sakna sjónvarpsins lítiö. I gærkvöldi kveikti ég þó á útvarpinu til aö friöa samviskuna enda átti ég yfir höföi mér aö vera rukkuð um þennan pistil í morgun. Eg hlustaði aöeins á fréttir á rás eitt en klukkan átta stundvíslega heyrðist upphafsstefiö á rás tvö. Mikið er það gaman þegar starfsfólk á rás eitt og tvö sýnir þá samstööu aö láta skiptinguna gerast mjúklega. 1 gær sagöi þulurinn: „Utvarp Reykjavík, klukkan er átta,” og þá kom stefið stundvíslega. Alltof oft gerist það hins vegar aö þulurinn er ekki tilbúinn eöa þá aö þáttur fer fram yfir tímann og rás tvö veröur aö hef jast í miöri setningu á rás eitt. Klukkan átta byrjaði vinsældalist- inn. Stjórnandinn, Páll Þorsteinsson, hefur það fram yfir marga starfs- bræður sína þarna á rásinni aö vera skemmtilegur á aö hlusta. Hann er ekki nema temmilega klisjugarn. Ennfremur gleymir hann því ekki að hann er aö þjóna hlustandanum en er ekki á einhverju einkaflippi í þáttum sínum. Þaö vill alltof oft brenna viö að stjórnendur láti slíkt eftir sér. Þá er mér sérstaklega hugsaö til eins stjórnanda sem þarna ræöur ríkjum á besta hlustunartíma á föstudögum og laugardögum. Fyrir mína parta væri það nóg aö heyra vinsældalistann svona einu sinni í mánuöi. Þar veröa ekki bein- línis byltingarkenndar breytingar frá viku tilviku. Klukkan níu byrjaði Ragnheiöur Davíðsdóttir afskaplega menntaðan þátt um vefjarlist. Boöið var í.heim- sókn tveim listakonum sem voru heldur þurrar á manninn. Fyrir minn smekk ætti Ragnheiöur aö hlæja lægra og reyna aö vera svolítiö liprari viö gestina sína. Þaö er kúnst aö fá gestinn til að gleyma því aö hann sé í upptöku. Elín Hirst enda víöa um iönd og annast utanríkisráöu- neytiö, íslensk útflutningsfyrirtæki, samtök og stofnanir þá dreifingu ásamt erlendum sendiráöum hér á landi. I þessu nýja blaði af Modern Iceland birtist ítarlegt viðtal viö Sigurð Helgason, forstjóra Flugleiða, greint er frá starfi Hjálparstofnun- ar kirkjunnar, fjallaö um nýjungar í rekstri ýmissa fyrirtækja, en aðalefni blaösins er um hausttískuna í islenskum ullarvörum og möguleika til stóriöju á Islandi. Þá eru og birtar stuttar fréttir úr viöskiptalifinu. Ritstjóri Modern Iceland er Róbert Mellk en útgefandi er Utgáfuþjónustan Víkverji, Skúlagötu61. Fyrirlestur um trjágróöur fyrir norölægar slóðir Mánudaginn 26.8. 1985 kl. 20.30 heldur Magne Bruun, prófessor í landslagsarkitekt- ur viö I^andbúnaöarháskólann aö Ási í Noregi, erindi í ráöstefnusal Hótel Loftleiöa á vegum félags landslagsarkitekta. Fyrirlesturinn fjallar um ferö hans til Alaska og Y ukonskaga þar sem hann athugaði trjá- og runnagróöur meö tilliti til notkunar á Noröurlöndum. Magne Bruun er þekktur fyrir ritstörf sín og fyrirlestra um gróðurnotkun í þéttbýli. Fyrir- lesturinn er öllum opinn. IMý föndurverslun Nýlega tók til starfa föndurvöruverslun í Hafnarfiröi. Verslunin er til húsa aö Reykja- víkurvegi 68 og ber nafnið Handvirkni. Handvirkni er meö mikiö úrval föndurvara fyrir alla aldurshópa. Nefna má fjölbreytt vöruúrval fyrir börn og unglinga til aö föndra viö og búa til sínar eigin gjafir. Fyrir þá eldri og reyndari eru margar nýjungar. Bæði er um aö ræöa leir, sem brenndur er í heimilis- bakaraofninum, bútasaums- og applikeringa- pakkningar, loödýrapakkningar og föndur- málning fyrir allt mögulegt. Handvirkni verður meö mörg námskeið í vetur og sýnikennslu. Viöskiptavinir geta nú þegar séö sýnishorn af fjölmörgu sem kennt verður á námskeiöum. Auk föndui*vara er verslunin meö úrval af þurrskreytingum og gjafavöru sem er hand- unnin og fáséö. Eigendur Handvirkni eru þær Guörún Helgadóttir og Halldóra Jóhannsdóttir, þékktar föndurkonur. Verslunin veröur fyrst um sinn opin frá kl. 13.00-18.00 daglega. KFUM og KFUK, Amt- mannsstíg 2B Almenn samkoma í kvöld kl. 20.30. Minnst verður 100 ára afmælis Sigurbjörns i Vísi. Ræöumaöur sr. Sigurður Pálsson. Einnig verða fluttir þættir úr ævisögu Sigurbjörns Þorkelssonar. Tekið á móti gjöfum í launasjóð félaganna. Stund fyrir börnin veröur í öðrum sal, seinni hluta samkomunnar. Kaffiterían verður opin eftir samkomuna. Allir velkomnir. Flóamarkaður einstæðra foreldra Félag einstæöra foreldra efnir til flóa- markaöar og vöffluveislu í nýju húsnæöi sínu aö öldugötu 11 nú um helgina og verður opiö laugardag og sunnudag frá kl. 14—17. Mikiö úrval af húsgögnum, leikföngum, tískufatnaði á ýmsum aldri og fleiru á boö- stólum. Enn er tekiö fagnandi á móti munum og upplýsingar má fá í síma 32601. Á meðfylgjandi mynd má sjá einn vinnu- hópinn í kaffipásu, en þeir hafa starfaö aö því síöustu kvöld aö koma veislumarkaðinum upp, frá vinstri: Kristjana, Annie, Jóhanna, Guöný, Anna Dís, sér í kollinn á Þóru, síðan Anna Þ. og Erna. Ráðstefna um ísl. skólastefnu I^ugardaginn 31. ágúst næstkomandi gang- ast Bandalag Kennarafélaga og Kennarahá- skóli Islands sameiginlega fyrir ráöstefnu er ber yfirskriftina: — Ráöstefna um íslenska skólastefnu. — A ráösteínunni veröa flutt fjögur erindi. Flytjendur eru: Jónas Pálsson, rektor Kennaraháskóla Is- lands. Sólrún Jensdóttir, skrifstofustjóri í mennta- málaráöuneyti. Svanhildur Kaaber, formaöur Bandalags kennarafélaga. Dr. Wolfgang Edelstein, prófessor viö Max Planck rannsóknarstofnunina í Vestur- Berlín. Þá veröa flutt af myndbandi svör ýmissa aðila innan skólakerfisins og utan þess vió spurningum er varöa efni ráöstefnunnar. Ráöstefnugestum gefst gott tóm milli er- inda til fyrirspurna og umræöna. Ráðstefnan hefst kl. 9 í Borgartúni 6 Reykjavík, og er öllum opin. Tilkynning um þátttöku þarf að berast skrifstofu Kennarahá- skólans í síma 91-32290 fyrir 28. ágúst. Geðhjálp Geðhjálp er félag fólks með geðræn vanda- mál, aöstandenda þess og velunnara. Félags- miðstöðin er að Veltusundi 3 B (við Hallæris- plan). Sími 25990. Opiðhús til 1. september: Mánudaga kl. 14 til 17. Föstudaga kl. 14 til 17. I-uigard. kl. 14 til 18. Símaþjónusta alla miðvikudaga ki. 16 til 18. Simsvari allan sólarhringinn sem gefur upp- lýsingar um starfsemi félagsins. Vetrarstarfið hefst 1. september og verður það auglýst síðar. Allir velkomnir í opið hús. Hússtjórnin. Tapað -fundið Köttur týndur Svartur fressköttur fór aö heiman frá sér i Vallargerði 4 Kópavogi, 29. júlí og hefur ekki sést síðan. Hann er frekar styggur viö ókunn- uga, meö brúna hálsól og er viö hana festur gult spjald. Finnandi hafi vinsamlegast sam- band í síma 43676 eöa 14594. Fundarlaun. Tapað/fundið Blágrár kettlingur með hvítan blett á hálsi var á flækingi kringum Kolbeinsstaði á Sel- tjarnarnesi. Hann er með hvíta ól um hálsinn en ómerktur. Upplýsingar um kettlinginn má fá í síma 15976 á daginn og 30175 á kvöldin. Kápa tapaðist Eftir djasstónleika, sem haldnir voru í Nor- ræna húsinu sl. mánudag, saknaði einn starfs- manna hússins kápu sinnar. Kápan er ný, ljósblá popplínkápa. Var hún tekin úr fata- hengi hússins en í stað hennar var skilin cftir önnur kápa, gömul og slitin. Eru það vinsamleg tilmæli að sá sem tók nýju kápuna í misgripum skili henni í Nor- ræna húsið. Sína kápu getur viðkomandi feng- ið á skrífstof u hússins. Afmæli Áttræður er í Uag, föstudaginn 23. ágúst, Þorkeli Ingvarsson, fyrrum stórkaupmaöur, Dalbraut 27, Reykja- vík. Hann tekur á móti gestum í félags- heimilinu Drangey, að Síöumúla 35, Reykjavík, eftir kl. 16 á afmælisdag- inn. Ferðalög Sumarleyfisferöir Ferðafélagsins: 23.-28. ágúst (6 dagarj: Landmannalaugar — Þórsmörk. Gengið milli sæluhúsa. ATH. Síðasta gönguferðin á áætlun. 29. ágúst — 1. sept. (4 dagar); Norður fyrir Hofsjökul. Ekið til Hveravalla, þaöan yfir Blöndukvíslar norður fyrir Hofsjökul og í Nýjadal. Gist eina nótt á Hveravöllum og tvær nætur í Nýjadal. 5.-8. sept. (4 dagar): Núpsstaðarskégur. Sérstæð náttúrufegurð, spennandi göngu- ferðir. Gist í tjöldum. Obyggðir Islands eru aldrei fegurri en síðla sumars. Ferðist með Ferðafélaginu. Öruggur og ódýrar ferðir. Farmiðasala og upplýsingar á skrifstofunni, Öldugötu 3. Dagsferðir Ferðafélagsins 24. og 25. ágúst. Laugardag 24. ágúst, kl. 09. Söguferð um Borgarfjörð. Verð kr. 700.00. Sunnudagur 25. ágúst: 1 kl. 10. Víðiker—Kvígindisfell—Hvalsskarð— Brynjudalur. Ekið að Víðikeri, gengið þaðan að Skinnahúfuhöföa, meðfram Hvalvatni og niður í Brynjudal. Verð kr. 650.00. 2. Kl. 10. Berjaferð í Brynjudal. Verð 650.00. 3. Kl. 13. Berjaferð í Brynjudal. Verð kr. 400,00. Brottför frá Umferðarmiðstöðinni, austanmegin. Farmiðar við bíl. Frítt fyrir börn í fylgd fullorðinna. Helgarf erðir 23.-25. ágúst: 1. Álftavatn—Háskerðingur—Mælilells- sandur—Skaftártunga. Gist í húsi v/Alftavatn. Ekið heimleiðis um Skaftár- tungu. 2. Landmannalaugar—Eldgjá. Gist í húsi í Laugum. 3. Þórsmörk. Gist í Skagfjörðsskála. 4. Hveravellir—Þjófadalir. Gist í húsi. Helgarferðir með Ferðafélaginu eru skemmtileg tilbreyting. Farmiðasala á skrif- stofuF.l. Ferðafélag Islands. Útivistarferðir Dagsferðir sunnudaginn 25. ágúst. Kl. 8.00 Þórsmörk—Goðaland. Stansað 3—4 klst. í Mörkinni. Berjatínsla. Verð kr. 650. KI. 13.00 Brynjudalur—Botnsdalur. Gömul þjóðleið milli dala. Verð kr. 400.- KI. 13.00 Botnsdalur—Glymur. (hæsti foss landsins). Létt ganga fyrir alla. Verð kr. 400 — frítt f. börn m. fullorðnum. Brottför frá BSI, bensínsölu. Atb. svcppaferð i Skorradal er frestað fram í september. Helgarferð í Núpsstaðarskóga 30.—1. sept. Gönguferðir, berjatínsla og veiði. 4. og siðasta ferðin þangað á árinu. Einnig verða helgarferðir á Kjöl og í Þórsmörk. Miðvikudagsferð i Þórsmörk. 28. ágúst kl. 8. Ýmislegt Hver vill páfagauka og búr? Hjónakorn af ætt páfagauka standa þeim til boöa er fyrstur kemur á staö- inn. Og staöurinn er íbúö nr. 1 á annarri hæð í Hátúni 12, Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.