Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1985, Side 30
42
Greg Phillinganes - Pulse
UNDIRLEIKARINN OERIR ÞAÐ GOTT
Þeir sem hafa gott minni muna ef til
vill eftir laginu Behind The Mask sem,
eftir að hafa verið leikið í Skonrokki
síðla vetrar, rauk upp vinsældalista
rásar tvö. Lag þetta er flutt af lítt
þekktum náunga að nafni Greg Phill-
inganes. Phillinganes þessi er engu að
síður mjög kunnur hljóðfæraleikari og
hefur leikið á plötum með ýmsum stór-
stjömum poppsins. Þar á meðal má
nefna Steely Dan og Stevie Wonder. Þá
lék Phillinganes i laginu góðkunna We
Are The World með USA For Africa.
Fyrir nokkru sendi Phillinganes frá
sér sólóplötu og á sama hátt og
viðfangsefni hans hafa verið ólík í
gegnum tíðina er platan nokkuð
sundurleit. Lögin eru úr ýmsum áttum
eftir hina og þessa en mestur fengur er
í laginu Lazy Nina en þaö er eftir
sjálfan Donald Fagen, fyrrum liðs-
mann Steely Dan.
Lagið Behind The Mask er auðvitað
að finna á plötunni. Þetta lag hefur
hingað til verið skráð eftir þá Ryuichi
Sakamoto og Chris Mosdell en nú
bregöur svo við að Michael Jackson
hefur troðið nafni sínu inn á höfunda-
listann þrátt fyrir að hann sjái einung-
is um útsetninguna fyrir Phillinganes.
Manni leyfist ýmislegt sé maður
frægur.
Meðal þeirra sem aðstoöa
Phillinganes á plötunni eru Pointer
systur og James Ingram og er það að
sjálfsögðu við sönginn sem þau
aöstoöa. Phillinganes syngur aðal-
raddir að mestu sjálfur og fer það
ágætlega úr hendi. Það má glöggt
heyra að hann hefur starfaö með
Stevie Wonder. Eins má heyra nokkur
áhrif frá George Benson á plötunni.
Hljóðfæraleikur er allur meira og
minna af gerviættinni, hljóögervlar,
trommuheilar og annað í þeim dúr.
Ekkert út á þaö að setja, þetta fellur
ágætlega aö þessari gerö tónlistar.
Lögin eru frekar í rólegri kantinum
með fönk ívafi og af þeim hef ég þegar
nefnt Lazy Nina sem mestan feng en
lögin Countdown To Love og Signals
eru einnig hin áheyrilegustu.
Greg Philiinganes getur bara verið
ánægður meö þetta.
-SþS-
| Tania Maria - Made In New York I
SÖNGKONA Á UPPLEIÐ
Það voru ekki margir sem þekktu til
Taniu Mariu þegar hún heimsótti
okkur Islendinga og hélt hljómleika
fyrir rúmum fimm árum. Að hún
skyldi fylla Háskólabíó var eingöngu
að þakka að í för með henni var bassa-
snillingurinn og góðkunningi okkar
Islendinga, Niels Henning örsted
Pedersen. Tania Maria stóð sig samt
með prýði og hafði undirritaður nokk-
urt gaman af hljómleikunum.
Tania Maria er brasilisk og þegar
hún kom hingað var hún þegar þúin að
skapa sér nafn í Evrópu. Síðan lá leið
hennar vestur um haf og hefur hún
verið á uppleið þar og er Made In New
York hennar önnur plata í
Bandaríkjunum.
Tania Maria hefur góða rödd sem
hún beitir af mikilli natni og yfirkeyrir
aldrei, þótt raddsviö hennar sé mikið.
Að sjálfsögðu eru mikil suðræn áhrif í
lögum hennar og ef einhverjar
breytingar hafa orðið á tónlist hennar
síðan hún gisti Island þá er það helst að
sum laganna bera keim af fönk-tónlist.
Það eru níu lög á Made In New York
og eru þau öll eftir Taniu Mariu. Nýtur
hún aðstoðar hinna ýmsu textahöf-
unda. Lögin eru nokkuö fjölbreytt að
gerð og liggur það jafnvel við Taniu
Mariu að syngja róiegar jassballöður
og fönkaða rokktónlist. Hljómborðs-
leikur hennar er vandaður en um leið
látlaus og truflar aldrei sönginn. Best
þykir mér hún samt þegar hún situr
við flygilinn og syngur ballööur eins og
I Do I Love You og Walking In The
Rain. Rödd hennar nýtur sín best i
lögum með suörænum áhrifum eins og
E Carnival og Made In New York. Þar
er hún á heimaslóðum, suðræn áhrif í
fyrirrúmi.
Made In New York er í heild hin
ágætasta hlustun. Yfirbragð tónlistar-
innar er í rólegra lagi, en það leynist
eldur undir. Tania Maria er söngkona í
sókn og á eftir að láta meira frá sér
heyra á næstu árum.
HK.
ORANGE JUICE — IN A NUTSHELL:
FÍNN MINNISVARÐI
Það sætir tæpast tíðindum þó hljóm-
sveitir geispi golunni. I fáum er raun-
veruleg eftirsjá því skörð þeirra eru
sjaldnast vandfyllt. Frá þessu eru sem
betur fer heiðarlegar undantekningar
og sjálfum þykir mér það heldur miður
að Orange Juice skuli ekki vera ofar
moldu. Þó væri fullmikið að segja að
ég væri meö böggum hildar.
Þessi skoska sáluga hljómsveit
skorti aUtaf herslumuninn á aö komast
í hóp þeirra allra fremstu. Hún sendi
frá sér mörg dágóð lög sem breskir
gagnrýnendur voru tilaðmynda ákaf-
lega hrifnir af en almennar vinsældir
hlaut hún aldrei svo orð sé á gerandi.
Tónlist hennar var giska gáfuleg með
dáUtið þunglamalegum undirtón svart-
sýni og vakti kannski í hugum hlust-
enda einhverjar minningar frá dögum
Velvet Underground. Alténd passar
þessi lýsing við fyrstu árin en frá 1983
reyndi hljómsveitin að höföa tU al-
mennra poppunnenda í ríkari mæU en
áður og átti þá eitt lag á topp tíu í Bret-
landi: Rip it Up, sem var bæöi glaö-
vært og vel danshæft. Sumir hafa geng-
ið svo langt að segja að þessi frísklegi
stm Orange Juice sem Rip it Up vitnar
um hafi lagt grunninn að vinsældum
FRAMKVÆMDASTJÓRI
Fóðurstöðin Dalvík sem framleiðir loðdýrafóður fyrir loð-
dýrabændur í Eyjafirði óskar að ráða framkvæmdastjóra.
Upplýsingar veitir Úlfar í síma 96-61684. Umsóknir skulu
sendar Úlfari Haraldssyni, Klöpp Svalbarðsströnd, 601
Akureyri fyrir 6. september.
RITARI
Hollustuvernd ríkisins óskar aö ráða ritara í hálft
starf. Vinnutími eftir hádegi. Umsóknir sendist
Hollustuvernd ríkisins, Síðumúla 13, 108
Reykjavík.
Duran Duran, ABC og fleiri hljóm-
sveita. Um það má efast.
Þessi plata, In A Nutshell, er minnis-
merki um Orange Juice. Fjórtán
þekktustu lög hljómsveitarinnar, elsta
lagið frá árinu 1980 — Falling And
Laughing — og þau yngstu frá síðasta
ári, þrjú taisins. Orange Juice átti löng-
um í basli með áhöfnina, menn voru
einlægt að koma eða fara, og skipper-
inn einn, Edwyn Collins, hafði úthald
til hinsta dags. Nú er hann sagður vera
farinn að semja kántrí&western lög.
Gúddlökk!
Á þessari plötu eru auövitaö firnin
öll af fínum lögum. Um það þarf ekkert
að karpa. Eg hef trú á því að þau eigi
eftir að standa uppúr að áratugum
iiðnum sem minnisvarðar um merka
hljómsveit og stórlega vanmetna.
-Gsal
EDWYN COLLINS í ORANGE JUICE KVEDUR.
DV. FÖSTUDAGUR 23. AGUST1985.
POPP
SMÆLKI
Sælnú! Ef aö líkum lætur veróur
ekki þverfótað á vinsældalistum
innan tióar fyrir um það bil tutt-
ugu ára gömlum lögum í nýjum
klæðisplöggum. Þegar er Sonny
^og Cher lagió, I Got You Babe,
, ofarlega á lista i höndunum á
UB40 og Chrissie Hynde. Oúett
þeirra Oavid Bowie og Mick
Jagger, Dancing In the Street,
sem Martha & the Wandeiias
gerðu fyrst frægt árið 1964,
kemur út í næstu viku og svo eru
þaó nýju fréttirnar: Boy George
hefur ákveðiðaö synaadúett með
Ihaldið stillingu ykkar) gömlu kær
ustunni, honum Marilyn, og lagið:
Spirit In the Sky frá árinu 1970
sem var þá topplag Normans
Greenbaums:.. Og meira um
Gogga: hann hyggst eínsog sagt
var frá í síðasta Smælki koma
fram á hljómleikum sem kenndir
eru við AIDS. Ólíklegt er að aðrir
meðlimir Culture Club verði
viðriðníf' þessa uppákomu því
hljómplötufyrirtæki sveitarinnar
vill ekki blanda sér í málið...
r
loksins hefur verið látið uppskátt
um kvikmyndina sem , Michael
Jackson hefur verið að föndra
við síðustu mánuði. Kvikmyndin
heitir Captain Eo, gerð af Walt
Disney fyrirtækinu, einhvers
konar geimmúsíkmynd og þaó
sem kannski er hvað merkast:
unga kvikmyndastjarnan hefur
lika samið nokkur lög og syngur í
myndinni. Leikstjóri er enginn
annar en ^rancis Ford Coppola...
Og talandi um kvikmyndir:
Oisneyfyrirtækið ku hafa boðið
Madonnu drjúgar fúlgur fyrir aó
mega framleiða teiknimyndaseriu
um hennar stórbrotnu persónu...
Líkur eru á að bandariska hljóm
sveitin Van Halen sé úr sögunni
(enn hef ég þó ekki rekist á
formlega staðfestingu að svo sé)
og David Lee Roth er sagður ætla
að feta í fótspor Prince og gera
tónlistarmynd að hætti Purple
Rain. Fyrst um sinn mun hann þó
láta sér nægja að vera plötu
snúður hjá MTV, sjúnvarpsfyrir
tækinu bandariska sem sjónvarpar
Skonrokki allan sólarhringinn... Í
síðustu viku kom út smáskífa
nteð góókunningjum okkar, Sal
Solo og Classix Nouveaux, en
rúm tvö ár eru liðin frá því plata
kom út í nafni hljómsveitarinnar.
Sólóplata með Solo kemur út
síðar á árinu... Nýja Sister
Sledge lagið heitir Oancing On the
Sagged Edge og fyrsta smáskifa
Thomson Twins á árinu er komin
út og heitir: Don’t Mess With
Doctor Dream. Here’s the Future
Day heitir svo breiðskifan sem
kemur út eftir réttan mánuð...
Simon LeBon, Nick Rhodes og
Roger Taylor úr Duran Duran gefa
saman út plötu í október undir
hljómsveitarheitinu Arcadia en
platan á að heita: So Red the
Rose... Búið í bili...
Gsal.