Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1985, Blaðsíða 32
44
DV. FÖSTUDAGUR 23. ÁGUST1985.
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Rod Stewart, fótboltaáhuga-
maöur og poppari, ætlar ekki aö
missa af heimsmeistaramótmu í
knattspyrnu sem verður í Mexíkó
á næsta ári. Hann hefur nú þegar
látiö umboðsmann gera
ráöstafanir svo hann komist
örugglega á mótið. Frekari
fregnir af Rod herma að kærast-
an hans, Keily Emberg, hafi sett
honum það skilyrði að annað-
hvort gangi þau í hjónaband í
september eða allt sé búið á milli
þeirra. Það er aldeilis harkan á
þeim bæ.
Jackie Onassis er sögð hafa
mikinn áhuga á að gefa út ævi-
minningar Marlon Brando. Hann
mun eiga bækur fullar af minnis-
atriðum úr lífi sinu en hann vill
alis ekki að úr þeim verði unnið.
Jackie flaug tU Tahiti til að reyna
að telja honum hughvarf.
Sonur Marlon, Christian, mun
vera hinn myndarlegasti maður
en hann hefur ekki sýnt áhuga á
að leggja leiklistina fyrir sig eins
og faðir hans. Samt getur farið
svo að hann skelli sér í bransann
þar sem honum hefur verið boðið
að gerast módel hjá evrópsku
tiskubiaði. Hann er aö hugsa sig
um en pabbi hans hefur eindregið
hvatt hann tii að drífa sig í
slaginn.
Howard Keel, sem fer meö
hlutverk Clayton Fariow í Dall-
as, hefur fengið meðleikara sina
tii að gangast inn á að gefa út
plötu um fjölskylduna á South-
fork. Ekki er alveg ljóst hvort
Howard ætlast til að leikararnir
syngi efnið eða hvort eingöngu
verður um talað mál að ræða. Á
plötunni verða t.d. lög eða kaflar
sem heita J.R., Augu Miss EDie og
Hver dráp Jock Ewing? Howard
mun vera mjög bjartsýnn á að
plata sem þessi muni seijast
feikivel.
Gull á ólympíuleikunum
geturgefíð góðan pening
Mary Lou Ratton prýðir pakka af Wheaties og fyrir það fær hún dágóða
Bandarískt iþróttafólk, sem gerir
það gott á ólympíuleikunum, hefur
tækifæri til að notfæra sér frægð sína
til fjáröflunar. Auglýsendur hinna
ýmsu vörutegunda sækjast mjög eftir
aö fá íþróttafólkiö til að auglýsa vörur
sínar enda getur verið mikill akkur í
því að nota þekkt nöfn til auglýsinga.
Mary Lou Retton, fimleikakonan
unga, sem sló heldur betur í gegn í Los
Angeles í fyrra, er ein þeirra sem
hefur notfært sér frægð sína. Hún geröi
samning við fyrirtækið General Mills
og prýöir nú pakkana utan um
„Wheaties” sem mun vera heilsusam-
legar kornflögur í morgunmatinn. Hún
kemur líka fram í sjónvarpsauglýs-
ingum fyrir fyrirtækið og fyrir þetta
tvennt fær hún eina milljón dollara.
Mary gerir þaö gott betur því hún
tekur 8.000 dollara fyrir aö koma í
verslunarmiðstöövar og gefa eigin-
handaráritanir.
Sundmaðurinn Rowdy Gaines hefur
líka notfært sér góðan árangur sinn á
ólympíuleikunum en hann sigraði í 100
metra skriðsundi í L.A. Frá því að leik-
unum lauk hefur hann halað inn hálfa
milljón dollara. Hann segist hafa gert
sér grein fyrir því um leiö og hann
snerti bakkann fyrstur á ólympíuleik-
unum að nú mundi líf hans breytast og
hann mundi eiga möguleika á mun
meira fé en nokkru sinni fyrr.
Joan Benoit, sem sigraöi í fyrsta
maraþonhlaupi kvenna á ólympíuleik-
unum, gæti grætt vel á sigri sínum.
Hún hefur hins vegar engan áhuga á
því og vill frekar eyöa tíma sínum meö
fjölskyldunni. Joan segist líka vona og
vilja frekar að fólk muni eftir henni
fyrir að hafa unnið maraþonhlaupiö en
fyrir það að leika í auglýsingum.
Edwin Moses þarf ekki að óttast
frekar en Joan að hann gleymist en
sigrarnir hafa samt ekki fært honum
nein auðæfi, a.m.k. ekki í sama mæli
og Mary Lou Retton. Hann segir að þaö
sé misskilningur að halda að frægir
íþróttamenn geti gengið að auð-
æfunum vísum. Hann hefur nefnilega
ekki haft mikiö upp úr því að standa
sig vel á ólympíuleikunum. Eitthvað
virðist peningalukkunni vera misskipt
milli íþróttafólksins.
K
Sundmaðurinn Rowdy Gaines er
ekki eins vel launaður og Mary en
hann ætti samt að hafa í sig og á.
summu.
Ættarmót Hróarsdalsættarinnar:
JÓNAS FRÁ HRÓARS-
D AL EIGN AÐIST 33
BÖRN, SEX ERU
ENN Á LÍFI
Það var mikiö f jölmenni á ættarmóti
Hróarsdalsættarinnar sem haldiö var í
lok júlimánaöar að Hróarsdal. Þar
voru saman komnir niðjar Jónasar frá
Hróarsdal en hann átti 33 börn, þar af
26 með þrem eiginkonum sínum. Sex
bama hans eru enn á lífi og voru þau
að sjálfsögðu mætt á staðinn. Alls
komu um þrjú hundruð manns á ættar-
mótið og var félagsheimilið á Sauðár-
króki fengið að láni til kaffidrykkju.
Jónas frá Hróarsdal var vel kunnur í
Skagafirði og þá einkum fyrir yfirsetu-
störf sín en hann mun hafa tekið á móti
fjölmörgum börnum í Skagafirði. Jón-
as var fæddur áriö 1840 en hann lést ár-
ið 1927 í hárri elli.
Eins og Skagfirðingum er tamt var
mikið sungið á ættarmótinu, m.a.
sungu bræðurnir Kristján og Jóhann
Már Jóhannssynir saman í fyrsta
skipti opinberlega við mikinn fögnuö
viðstaddra. Jónas var langalangafi
þeirra. SJ
Börn Jónasar frá Hróarsdal, sem enn eru við hestaheilsu, voru að sjálf-
sögðu á ættarmótinu. Þau heita frá vinstri: Sigurlaug, Sigurður, Þórarinn,
Snorri en hann er barnabarn Jónasar og kom frá Kanada á ættarmótið,
Páll, Leó og Sæunn.
TRUÐURINN
RICKY BRUCH
Ricky tók þátt í keppni líkamsræktar-
manna í Sviþjóð, þar varð hann númer
þrjú en ekki fylgir sögunni hvort hann
hafi gefið einhverjum kjaftshögg þar á
eftir.
Eins og greint hefur verið frá á
íþróttasiðu DV í þessari viku
hneykslaði kringlukastarinn
Ricky Bruch fólk með fautalegri
framkomu sinni á sænska
meistaramótinu á dögunum.
Hann gaf formanni sænska
frjálsíþróttasambandsins vænt
kjaftshögg auk þess sem hann
mætti ekki i lyfjapróf sem hann
varð boðaður í.
Ferill Ricky sem íþróttamanns
hefur alla tíð verið nokkuð skraut-
legur, hann virðist vera mikið
fyrir það að láta mynda sig í hin-
um ýmsu uppákomum. Hann hef-
ur mætt á íþróttaleikvang með
grimu og hjálm en hann gengur
gjarnan með húfur ýmiss konar
vegna hárleysis á höfði.
Myndirnar, sem hér fylgja
með, ættu að gefa nokkra hug-
mynd um trúðinn Ricky eins og
hann hefur verið nefndur í sænsk-
um blöðum.