Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1985, Qupperneq 3
DV. LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER1985.
47
ríkjunum sýnir mynd sem segir frá
nokkrum miöaldra mönnum, sem eru
kallaöir á varaliösæfingu. Þeim eru
réttar byssur, sagt að marséra í takt
eins og í stríðinu foröum og skjóta á
skriðdreka. Þeir skemmta sér kong-
unglega, finnst þeir vera orðnir ungir í
annaö sinn. En þá kemur foringi til
þeirra til aö útskýra fyrir þeim að þeir
séu þegar dauöir allir saman, hafi
orðið fyrir eldflaug. Nú til dags gerist
allt svo hratt, og á svo háu vísindalegu
plani, að maður veit ekki af fyrr en
maður er dauður. Kannski löngu
dauður.
Þetta eru þeir að sýna í Feneyjum.
Vonandi skolar þessum myndum
einhvern tíma hingað að okkar bíó-
ströndum.
Betra en að brenna
Fréttastofur senda stundum frá sér
skemmtilegar smáfréttir. Stundum
eru þær svo skemmtilegar, að gamlir,
hálfdauðir blaðamenn vakna við og
fyllast áhuga á umhverfinu.
Nýlega komu fréttir um að giftir,
rómversk-kaþólskir prestar víða um
heiminn hefðu myndað samtök sem
miða að því að leggja af hreinlífis-
kvöðina á prestum. Og um þetta mark-
mið sitt hafa þeir talað við páfann.
Hve margir giftir kaþólskir prestar
eru í hempu?
Jú — „70.000”, segir fréttastofa vor.
Ekkert i kaþólskri kenningu segir að
hjónaband og hin heilaga kenning geti
ekki gengið hönd í hönd, segja giftu
prestamir. Páfinn á að hafa sagt að
„það væri jafngott þegar maður er
ógiftur”, hvað sem hann meinar með
því.
Giftir prestar, kaþólskir, eru oft
gamlir lúteristar eða biskupakirkju-
menn, sem hafa gerst kaþólskir.
í Argentinu er prestur sem heitir
Podesta. Hann á konu sem heitir Celia.
Podesta var á fundi giftra, kaþólskra
presta og hélt því fram að það væri
löngu kominn tími til að fara i alvöru
að iræða um hreinlífi presta.
70.000 giftir prestar'.
Nefndin er að velta því fyrir sér hve
margir þeirra eru giftir hver öðrum.
Að vera Ijótur
er ekki svo slæmt — segja banda-
rískir rannsakarar. Svo fremi að
maður sé karlmaður. Sálfræðingar
segja að svo virðist sem fallegt fólk sé
almennt álitið gáfaðra og geðslegra en
ljótt fólk. En þeir sem þannig álykta
eru auðvitaö bara bjálfar. Staðreyndin
er sú að ófritt fólk er yfirleitt betur að
sér, betur menntað og nær betri stöð-
um en þeir snoppufríðu. Þeir ófríðu
hafa sennilega legið i skólabókum á
meðan þeir friðu horfðu á sjálfa sig i
speglinum.
En athuganir sýna að kennarar hafa
tilhneigingu til að gefa laglegum
börnum hærri einkunnir en ófríðum.
Og fagrar konur gif tast trúlega fyrr en
ófriðar. Og eiginmenn þeirra f ögru eru
oft í betri stöðum en þeir sem giftast
ófríðum, segja þcssir amerísku sál-
fræðingar. Nefndin er nú ekki sátt við
þessa niðurstöðu. En hvað skal gera?
Þeir segja einnig að fagrar konur
komist helst áfram í samfélaginu
gegnum hjónaband. En þær ófriðu
spjari sig einar og sjálfar og þurfi ekki
að klifra upp bak einhvers eiginmanns,
segja sálfræðingarnir.
hlessa. Coca-Cola fyrirtækið hefur
hafið uppsetningu á talandi sjálfsölum.
Vélin talar við viðskiptavininn með
nokkrum tónum úr vinsælum Coca-
Cola auglýsingum og býður svo við-
skiptavininum: „Gerðu svo vel og
veldu þér gosdrykk.”
Coca-Cola segir að vélarnar séu
vinsælar og hafi aukið söluna. Enn sem
komið er hefur einungis 30.000 sjálfsöl-
um verið komið fyrir. Coca-Cola
vonast til að geta skipt um laglínur og
Times í náðinni Talandi sjálfsali
boð á sex til átta mánaða fresti.
Fleiri fyrirtæki munu án vafa fylgja
í kjölfarið og við bíðum spennt eftir
sjálfsalanum sem selur okkur frysta
fiskinn og sönglar um leið nokkrar
uppskrif tir með f iskinum.
á blaðsölustöðum
Einu sinni lent
framan byssu
Sveinn Þormóðsson
fréttaljósmyndari
segir frá
Það
eru líka
nokkrir
„mjúkir"
karlmenn
á þingi
Viðtal við
Kristínu
Halldórsdóttur
alþingismann
Smávanar
Nokkrir íslendingar
segja frá smávönum
sínumogfjallaðerum
málið í yfirlitsgrein
Á öðrum fæti,
nýr dálkur:
Diddú ríður á vaðið
Nokkur
spursmál
Einar Kárason
rithöfundur
skrifar
Lundúnablaðið Times er nú aftur til
sölu á Möltu.
t mars 1981 reiddist Dom Mintoff,
f orsætisráðherra á Möltu, við Times og
bannaði blaðið á eyju sinni.
Nú er Mintoff kominn úr veldisstóli
og nýi forsætisráðherrann, sem heitir
Carmeli Mifsud Bonnici, hefur enn
ekki reiðst blaðinu.
Þeir viðskíptavinir sem setja aurinn
sinn í nýju Coca-Cola sjálfsalana sem
settir hafa verið upp í borgum Banda-
ríkjanna, þeir verða meira en lítið
Þú átt ekki
sjens í mig...
„Það er jafnvitlaust að aka hratt og
riða of hratt”.
Þetta er ekki nafn á lélegri klám-
mynd heldur eru þetta skilaboð sem
glæsileg ljóska flytur ökumönnum af
auglýsingaspjöldum í Belgíu. Frum-
textinn er reyndar „snel rijden is zo
dom als snel vrijen.” Þetta er flæmska
en í frönskumælandi hluta Belgíu er
notast við „Tu ne me suduis pas quand
tuvas vite”.
Þú lokkar mig ekki ef þú ert aö flýta
þér. örlítið persónulegri sem sé.
Formaður klúbbann öruggur akstur
í Belgíu, Willy Gryseels, segir að 800
slíkum veggspjöldum hafi verið komið
fyrir og sé þeim ætlaö að halda aftur af
ökuhraða ungra töffara á aldrinum
18—25. „Maður verður að tala til
þeirra á máli sem þeir skilja”. Það er
málið.