Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1985, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1985, Blaðsíða 5
DV. LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER1985. 49 Tískukóngarnir í París móta stefnuna Stuttu kjólarnir eru greinilega inni aftur. Vifl þó eru notaðar grófar sokkabuxur í sterkum litum. Þessi klæðnaflur er lika frá Kenzo. Hér er útfærsla Kenzo 6 sígildum enskum aðalsmannsklæðnafli, reiðbuxur, stór frakki, hvit skyrta og vesti. Fáðu þér persneska mottu, vefðu hana um þig miðja og fáðu þér breitt belti sem heldur herlegheitunum uppi. Þú átt nú pils og mottu, getur það verið einfaldara? Þessi hugmynd kemur frá ungum og upprennandi frönskum tískuhönnuði, Jean Paul Gaultier sem nú er talinn meðal fremstu tiskuhönn- uða í París. Hann var nánast ári á undan hinum tiskuhönnuðunum í París en í fyrra sýndi hann einmitt föt þar sem sterkir litir voru allsráðandi, þá þótti það mjög djarft. Nú er litadýrðin það sem gildir. Tískuhönnuðinn Kenzo þekkja víst flestir núorðið, en hann hefur löngum verið þekktur fyrir mikla litadýrð og ýmiss konar munstur í sinni hönnun. Hausttískan frá honum spannar ein- mitt þær stefnur og stíla sem virðast liggja í loftinu fyrir veturinn. Hann sýndi stutta kjóla með grófum sokka- buxum og stutta jakka utanyfir kjólana. Hann var líka með vetrar- klæðnað sem minnti á klæðnað enskra aðalsmanna eins og reiöbuxur, frakka með skinni á kraganum, vesti og hvíta skyrtu innanundir. Hann var vitanlega með litríku fötin sín, t.d. sýndi hann klæðnað sem minnti einna helst á mexíkanskan þjóðbúning. Gaultier og Kenzo eru báðir taldir nokkuö djarfir hönnuðir og koma yfirleitt með frjálslegan klæðnað. Tískuhönnuðurinn Claude Montana er sá sem innleiddi breiöu axlirnar í öll föt. Hann sýndi jakka með miklum axlapúöum fyrir ári síðan og núna er það snið allsráöandi. Yves Saint-Laurent er nafn í tískuheiminum sem erfitt er að komast hjá að nefna þegar rætt er um tísku yfirleitt. Jakkarnir frá honum eru löngu víðfrægir. Þeir breytast ekki mikið ár frá ári þó hann aðlagi þá allt- af að þeim straumum sem ráðandi eru hverju sinni. Nú sýndi hann þá við stutta kjóla í samræmi við það sem virðist vera rikjandi í vetrartískunni, stuttir kjólar í líflegum litum. Við. birtum hér nokkrar myndir frá haust- tískunni 1985 i París. ÞýttSJ Montana hefur buxurnar frekar stuttar og þröngar en með breiðum uppábrotum. Innanundir kasmirfrökkunum eru stúlkurnar í jökkum úr gallabuxnaefni. Hinn sigildi Yves Saint Laurent jakki, nú mælir hann mefl þeim vifl stutt pils og kjóla.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.