Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1985, Síða 4
48
DV. LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER1985.
Hausttískan 1985
Vetur konungur er nú aö ganga í
garð og með honum kemur breyttur
klæðnaður. Létu sumarfötin víkja nú
fyrir skjólbetri og hlýrri vetrarfötum.
Það sem einna helst virðist einkenna
vetrartískuna í ár eru breiðar axlir,
þrengri föt og meiri litagleði.
Að elska sjálfan sig er þaö sem gildir
í dag og móta sjálfur sinn eigin stíl. Nú
á að blanda litum og munstrum eins
mikið og hvern lystir. Aðalatriðiö er að
skilja sig frá fjöldanum á einhvern
hátt. Tíska fyrri ára hefur alltaf sín
áhrif og sumir segja að tískan fari í
einhvers konar hring, það gamla komi
alltaf aftur en kannski í örlítið breyttri
mynd.
Breiðar
axlir
og
litrík
föt
Hefðbundni stíllinn er undir áhrifum frá sígildum enskum klæðnaði.
Þægilegir gönguskór og dragt úr tweedefni þar sem ólíkum munstr-
um er blandaö saman. Litirnir eru náttúrlegir eins og ýrnis afbrigði af
brúnu.
Dandystíllinn er lík-
iega einna sérkenni-
legastur en það sem
einkennir fötin, sem
falla undir hann, eru
dökkir litir. Hversdags
klæðast konurnar
nánast herraklæðnaði
en spari fara þær I
rómantíska blúndu-
kjóla. Munstruð efni
eru mikið notuö
hversdags og þá er
um að gera aö blanda
saman alls kyns
munstruðum fötum
og ekki má gleyma
litagleöinni.
X —it nefnist sænskt tískumerki og
sjáum við hér ágætt dæmi um hvernig
ólíkum stíl er blandaö saman. Stutt
pils og jakki sem vel gæti falliö undir
dandystilinn.
Zero—Zero er annaö sænskt merki
sem mikið hefur framleitt af jogging-
fötum. Nú eru joggingbuxurnar
þröngar og jafnvel meö einni breiöri
rönd á hliöinni sem var orðiö algert
bann viö fyrir allnokkrum árum. Viö
þröngu buxurnar er joggingpeysa meö
stórum axlapúöum eins og vera ber á
þessu hausti.
Hér er frelsið algert, ef svo má að
orði komast hvað varöar fatnað. Jú,
hér í sérlynda stilnum gildir nefnilega
að blanda saman alls kyns
munstruðum efnum og margs konar
stíl. Hugmyndaflugið ræöur ferðinni
og vel þykir passa aö vera í stuttum
kjól og munstruöum sokkaþuxum.
Litirnir eru sterkir. Alls kyns fylgi-
hlutir, eins og t.d. sólgleraugu, þykja
henta vel fyrir þær sérlyndu.
Fyrir þær sportlegu er lagt til að vera I
stórum yfirhöfnum með breiðum en
rúnnuðum öxlum. Á teikningunni
sjáum viö tillögu um jakka úr einhvers
konar gerviskinni sem er i bláum lit.
Við jakkann er veriö i þröngum strets-
buxum og innanundir er þaö svo
prjónuð peysa og góður trefill um
hálsinn. Þetta er dæmigert fyrir hinn
svokallaða virka stil.
1 hausttískunni fyrir 1985 er mikil
fjölbreytni. Viö sjáum t.d. alls kyns
bróderí og austurlensk munstur.
Rómantísk föt eru vinsæl bæöi hvers-
dags og til hátíðabrigða. Föt í enskum
aöalsmannastíl eru líka vinsæl eins og
t.d. reiðbuxur og reiðjakkar og í þau
eru notuö tveedefni af ýmsum gerðum.
Munur á fötum kynjanna er nú minni
en oft áður, konur klæðast eins og
karlar og öfugt. Joggingefni eru nú
mikiö notuð í föt af ýmsum gerðum,
mest í jakka og boli en líka í þröngar
buxur. Bandarísku háskólamerkin eru
nú aftur orðin vinsæl á joggingfötin.
Fataskápar afa og ömmu geta líka
nýst vel því gömul föt eru enn og aftur
„inni” ef svo má segja. Kíkið í
skápana og athugið hvort ekki má
finna eitthvað nýtilegt þar.
Eins og fyrr var minnst á þá má sjá
ýmislegt frá fyrri tímum í hausttísk-
unni í ár. Frá árunum 1920—30 koma
síöu kjólarnir og pilsasíddin er yfirleitt
um miöja kálfa eða jafnvel síðari. Frá
því um 1940 koma breiðu axlirnar og
aðskornir jakkar. Axlapúðar eru nú
notaðir í næstum allar flíkur. Á
árunum milli 1950 og 60 komu strets-
buxur fram á sjónarsviöið og nú eru
þær aftur allsráðandi. Stuttu kjólarnir
eða minikjólarnir eins og flestir kann-
ast við þá komu nokkuö seinna og nú
eru þeir aftur komnir á blað hjá
tískuhönnuðum.
Fjölbreytnin er mikil en það sem
gildir er að vera í fötum sem ykkur
líður vel í því frelsið er algert.
Aðalatriðið er samt breiðu axlirnar og
þá er bara að skunda af staö og setja
axlapúöa í gömlu fötin og línan er
komin.
Þrátt fyrir að frelsið eigi að vera
allsráðandi i fatatískunni þá láta
tískuhönnuöir sitt ekki eftir liggja og
koma með sínar hugmyndir um haust-
og vetrartískuna.
Fjórir meginstraumar
Ef við reynum að raöa saman hinum
ýmsu straumum sem virðast vera í
gangi í hausttískunni þá má sjá þar
fjóra meginstrauma. Frændur okkar
Sviar, sem við fengum þessar
upplýsingar lánaöar hjá, nefna þessa
strauma eða stíla heföbundna stílinn,
dandystílinn, stíl þeirra virku eða
framtakssömu og loks stíl þeirra sér-
lyndu.
Hefðbundni stíllinn er eins og nafnið
bendir til nokkuö heföbundinn, iitimir
sem mest eru notaðir eru mildir
haustlitir náttúrunnar. Fötin eru
einnig nokkuð hefðbundin, þ.e. dragtir
og föt sem minna á klæðnaö enskra
aðalsmanna.
Dandystíllinn er aftur á móti
byltingakenndari þar sem konurnar
ldæðast skrautlegum fötum en í frekar
dökkum litum, t.d. svörtu, dökkfjólu-
bláu, brúnu og dökkgrænu. Munstruð
efni af ýmsu tagi eru notuð saman.
Spariklæönaður í þessum stíl er af
rómantísku tagi eða alls kyns blúndur
og bróderí og síðir kjólar.
Fyrir virku og framtakssömu
konurnar er mælt með grátónuðum
pastellitum. Þar gildir ekki mikil
blöndun munstra heldur frekar að vera
í einlitum fötum sem eru ólík að lit og
úr óliku efni.
Sérlyndi stíllinn ef svo má segja er
langfrjálsastur, þar er ólíkum hlutum
blandað saman eftir því sem
hugmyndaflugiö býöur hverjum og
einum. Sterkir litir einkenna föt sem
segja má aö tilheyri þessum stil eins
og t.d. hárautt, grænblátt, skærgrænt,
fjólubláttog gult.
Eins og fyrr var nefnt fengum við
nokkra punkta lánaða hjá Svíum í
þessa tískuumfjöllun okkar. Við
birtum því til gamans nokkrar myndir
af fötum sem sænskir tískuhönnuðir
hafa hannað fyrir haust og vetur 1985.
SJ