Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1985, Qupperneq 9
DV. LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER1985.
53
Ýmsir frœgir höfundar msfl Pivot á
skjánum: Marguerite Duras (a),
Valery Giscard D'Estaing (b),
Francois Mitterrand (c), Maurice
Clavel og Bernard-Henri Levy (d),
Jane Fonda (e), Pierre Mendes
France (f).
ljósi, sem var fast á rauðu! Það er
ekki nóg að lesa, hann skrifar glósur
á snepla sem hann stingur inn í bók-
ina. 1 þætti sínum er hann alltaf
viðbúinn að fletta eldsnöggt upp og
segja, „á bls. 187 segið þér að...”
Sumum þykir hann sérvitur. Hann
lætur færa sér allar bækur heim til
sín í fjölbýlishús í París, leigjendum
til mikillar skapraunar því bækurnar
skipta hundruðum á viku hverri.
Pivot þaggar niður í þeim með því að
gefa þeim bækur annað slagið.
Á tíu árum hefur ekki einn einasti
Apostrophes þáttur fallið niður. Pivot
hefur komið fram með hönd í fatla,
einu sinni var hann svo veikur að
hann sofnaði nánast, einu sinni var
hann með dökk sólgleraugu enda
með glóðarauga!
Á Le Figaro vann Pivot sig upp í
Pivot ar forfallinn knattspyrnuað-
dáandi, sem er nóg til afl sumir bók-
menntamenn hata hann eins og
pestina.
stöðu yfirmanns bókmenntadeildar.
Þar kom einn aðalhæfileiki hans í
ljós: hann hefur mikinn húmor og
gerir óspart grín að sjálfum sér. Og
stundum að öðrum líka. Þegar hann
kvaddi Le Figaro vitnaöi hann í
mikla speki eftir Konfúsius. Það setti
alla hljóöa, menn risu upp og
vitnuðu: Og sjá, þvílikur maður!
Þvílíkur kúltúr! Pivot glotti út í
annað, og seinna sagöi hann félögum
sínum að reyndar hefði hann diktaö
þessa speki sjálfur sem hann eignaði
Konfúsíusi.
Aprílgabb
Annað dæmi um húmor Pivots
þykir nálgast ósvífni í Frakk-
landi, þar sem þykir hinn mesti galli
á menntuðum mönnum að brosa
oftar en einu sinni á ári. Hinn fyrsta
apríl f jallaöi Pivot rækilega um bók-
ina Hið falska í hinu sanna og hiö
sanna í hinu falska eftir Raymond
Devos. Það varð allt vitlaust í
frönskum bókabúðum daginn eftir
þegar skylduræknir lesendur skund-
uðu í bókabúðir og vildu kaupa bók-
ina hið snarasta. Hvergi til og þaö
kannaðist enginn útgefandi við að
hafa gefið hana út... Engin furða,
þessi bók hefur aldrei verið skrifuð.
Pivot hló.
Einn lykill enn að sigurgöngu bók-
menntapáfans. Hann blandar mjög
sérkennilega saman gestum. Eitt
sinn bauð hann til sín vísna-
söngvaranum George Brassens,
Bigeard nokkrum hershöfðingja,
fræðimanninum Roland Barthes og
konu nokkurri sem nýverið hafði
gefið út bókina „Markgreifynja
englanna”.
Enn verður Pivot hrósað fyrir að
vera mjög sjálfstæður. Hann passar
sig á því að blanda ekki um of geði
við rithöfunda. Pivot verður argur ef
slfkum köppum er boðið þar sem
hann kemur, og bókmennta-hanastél
hatar hann eins og pestina. Eftir
hvern þátt býður hann gestum sínum
upp á eitt glas. í stúdíóinu en því næst
býður hann samstarfsmönnum
sínum í mat á matsölustaðinn Lipp.
Bónleiðir ráðherrar
Það skal tekið fram að Pivot
fjallar ekki aðeins um fagurbók-
menntir, heldur um bækur yfirleitt.
Því hafa til dæmis stjórnmálamenn
verið boðnir ef þeir hafa skrifað
bækur. Ráöherrar hafa bankað upp á
hjá Pivot og heimtað viðtal en koma iöu-
lega bónleiðir til búöar.
Utgefendur hafa oft reynt að nota
nafn Pivots bókum sínum til fram-
dráttar en hann hefur reynst mjög
harður við að stjórna því að nafn
hans sé ekki lagt við „hégóma”.
Maður í jafnviðkvæmri stöðu og
Pivot er, verður að skilja vendilega
milli starfs síns hjá ríkisfjölmiðli og
annarra starfa. Þetta kemur íslensk-
um lesendum ef til vill spánskt fyrir
sjónir, þar sem sjónvarpsfréttamenn
og aðrir starfsmenn rikisfjölmiðla
lesa inn á auglýsingar og koma þar
fram kinnroðalaust. En Pivot er rit-
stjóri bókmenntablaðs sem nefnist
Lire eða að lesa. Og enda þótt Pivot
kynni reglulega slík blöð í þættinum
minnist hann aldrei á LIRE!
Hins vegar er iöulega minnst á
Apostrophes í blaðinu. Munurinn er
eftirfarandi aö áliti hans:
„Sjónvarpið er ríkisfjölmiðill. Það
væri því óþolandi að auglýsa blað i
einkaeign í gegnum þessa opinberu
þjónustu. Blað í einkaeign hefur á
Pivot kannaðist afl visu ekki við Malcolm Lowry þegar hann sótti um vinnu sem bókmenntablaðamaflur
en hann vissi margt um bósjóle. Hér er hann i ,,La Cave" — vinkjallara heimilis sins.
Pivot náði i myndina sem hann tók
og tók af allan efa um að ráðgjafi
Mitterrands haföi svo sannarlega
sagt þetta.
Það leikur enginn vafi á því að
þátturinn vakti enn meiri athygli en
áður eftir þetta snilldarbragð. „Það
dreymir alla þáttastjóra sjónvarps-
ins að fá sinn Regis Debray til að
auglýsa þáttinn,” segir Pivot þegar
hann rif jar þetta upp.
Pivot heima hjá sér í Quincé í Beaujolais-héraðinu.
hinn bóginn fyllilega rétt á því að
kynna það sem er að gerast í opin-
berriþjónustu.”
Mrtterrand skerst
í leikinn
Aðalsmerki Pivot er að hann er
„hreinn”. Ekki einu sinni hefur
tekist að sanna á hann að hann dragi
óeðlilega taum einstakra útgefenda
eða höfunda. Þaö er líka lykillinn aö
góðri blaðamennsku.
Pivot er hins vegar óvinsæll hjá
mörgum þeirra sem vilja vera í
sviðsljósinu. Regis Debray, sem laigi
var ráðgjafi Mitterrand forseta, lét
hafa eftir sér að Pivot væri einræðis-
herra á bókmenntamarkaðnum. Það
lá við pólitísku hneyksli. En Mitter-
rand forseti gaf út yfirlýsingu þess
efnis að hann hefði ekkert á móti
Pivot. Þá dró Debray orö sín til
baka, sagðist aldrei hafa sagt þetta:
Gamalt bragð sem íslenskir blaða-
menn eru vanir. En Pivot sýndi
hvílíkur refur hann er: Debray hafði
látið þessi orð falla við blaöamenn í
Montreal í Kanada. Og viti menn:
þaö var sjónvarpsmaður á staðnum.
Frá Jane Fonda
til Levy-Strauss
Sannleikurinn er sá að það er sann-
leikskorn í orðum Debray. Pivot
ræður gríðarlega miklu um bókasölu
í Frakklandi. Vitaskuld eru þeir
höfundar til sem alltaf hafa neitað að
koma í þátt hans en þeir eru miklu
fleiri sem bítast um það. Tökum
nokkur nöfn sem margir Islendingar
kannast við. Frakklandsforsetamir
Francois Mitterrand og Valerie Gis-
card d’Estaing, Bernard Henri
Levy, Philippe Sollers, Claude Levy-
Strauss, Marguerite Duras, Marguerite
Yourcenar, Alain Robbe-Grillet, Jean
d’Ormesson, Pierre Mendes France.
Og það eru ekki bara Frakkar sem
mæta hjá Pivot. Fjöldi útlendinga
hefur kynnt verk sin þar. Alexander
Soltsjénitsin, Jane Fonda, Lauren
Bacall, Harold Robbins, John Irving
eru aðeins dæmi af handahófi.
Að meðaltali horfir tíundi hver
sjónvaipsáhorfandi á Apostrophes
eða um 3 milljónir. Ætli það værí
mögulegt aö halda uppi slíkum þætti
i íslensku sjónvarpi?
ás
7